Morgunblaðið - 10.02.1920, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
M* Af .j>lv JK, *IKJ- ,'V>A». Htfc Hfa, Afat,
MORGUNBLAÐIÐ
Ritstjóri: Vilh. Finsen.
AfgreiSsla í Lækjargötu 2
Sími 500. — Prentsmiöjusími 48.
Ritstjórnarsímar 498 og 499.
Kemur út alla daga vikunnar., a
mánudögum undanteknum.
Ritstjórnarskrifstofan opin:
Virka daga kl. 10—12.
Helgidaga kl. 1—3.
Afgreiöslan opin:
Virka daga kl. 8—5.
Helgidaga kl. 8—12.
Auglýsingum sé skilað annaShvort
á afgreiSsluna eða í ísafoldarprent-
smiöju fyrir kl. 5 daginn fyrir útkomu
þess blaSs, sem þær eiga a'ð birtast í.
Auglýsingar, sem koma fyrir kl. 12, fá
aS öllum jafnaSi betri staS í blaSinu
(á lesmálssíSum), en þær sem síSar
koma.
AuglýsingaverS: Á fremstu síSu kr.
3.00 hver em. dálksbreiddar; á öSrum
síSum kr. 1.50 em.
VerS blaSsins er kr. 1.50 á mánuSi.
Svo sem kunnugt er, á danska
stjóruin um 300 smálestir af kol-
um inni í Viðey, sem ætluð eru Is-
lands Palk. Mestan hluta birgða
þessara hefir landstjórnin nú feng-
ið umráð yfir til nauðsynlegra ráð-
stafana, en eitthvað þarf að skilja
eftir handa varðskipinu. Fór Sterl-
ing inn í Viðey í gærmorgun og
fekk þar nægilegar birgðir til þess
að komast til Seyðisfjarðar. Og(
þar á Lagarfoss einnig að fá kol,
svo hann komist vestur og norður
um land með mjöl og aðrar mat-
vörur.
íslendingar meiga vera Dönum
þakklátir fyrir þessa hjálp, því það
er ekki víst að skipin hefðu getað
komist auvstur án hennar. Að minsta
kosti hefði Lagarfoss ekki getað
farið ferðina vestur og norður um
land nema hann hefði fengið kol
í viðbót við það sem fyrir var
skipinu.
Gunnar Egilson
Hafnarstræti 15.
Sjó-
Tátryggingar.
Striðs-
Brnna-
Líf-
Slysa-
Tais mi 608. Símnefni: Shipbroker.
selur
silRiGlúsur
rceð —
10—30°/0 afsJætti
Söttvarnirnar
og Inflúensuhættan.
Svo sem séð verður á auglýsiug-
um þeim, sem að tilhlutun stjórnar-
valdanna hafa verið birtar í blöðun-
um, er nú ætlunin að gera alt sem
unt er til þess að verja landið fyrir
inflúenzu og þeim öðrum næmu
sóttum sem nú ganga í Kaupmanna
höfn. Mun það gleðja alla, því sum
ir lað minsta kosti voru smeykir um
að ekkert yrðj gert nú, frekar en
í fyrra.
Vér áttum tal um þetta við hér-
aðslæknirinn. Sagði hann það vera
fasta ákvörðun læknayfirvaildanna
að gera alt hugsanlegt og fram-
kvæmanlegt til þess að verja landið
Þegar Nidaros kemur mun hver
einasti skipverji og farþegi, ef
nokkur er, verða mældur til að
vita tvort þeir hafi nokkurn hita.
Sé nokkur minsti grunur um að
emhver sé sjúkur, hvort heldur af
inflúenzu eða mislingum, verður
hann tekinn í land og einangraður,
en skipið síðau sett í sóttkví unz
öll hætta er úti. Ekkert verður lát-
ið ógert og ekkert sparað, segir hér-
aðslæknir, til þess að koma í veg
fyrir að næmar sóttir berist hing-
að. Það gætj haft mjög alvarlegar
afleiðingar, ef hér yrðu mikil veik-
indi nú, þegar uær allir eru kola-
íausir og fyrirsjáanlegt er að fæst
hús er hægt að hita upp, þó sjúk-
lingar liggi þar.
Það er vonandi að læknavöldum
vorum takist að verja landið uæm-
um sjúkdómum. Það er nógu margt
ilt, sem n'ú steðjar að hér í bæ og
víðar á landinu.
En vér viljum þó minna læknana
á að það koma fleiri skip að iandi
hér í bæ en póstskipin frá Dan-
inörku, sem vissulega engu síður
gætu flutt uæma sjúkdóma með sér.
Nær daglega koma hingað brezkir
botnvörpungar, og skipverjar af
þeim sjást oft í landi. Væri ekki
byggi'iegt að banna þeim með öllu
að ganga á land, eða mæla þá
alla áður þeir fá landgönguleyfi ?
Hér dugar engin miskun.
SkðrBótt fylking,
Ef vér hugsum oss íslenzku þjóð-
ina sem fylktan her í baráttunni
fyrir tilverunni, þá sjánm vér að
það er eigi að -eins þunnskipuð fylk-
ing, heldur einnig mjög skörðótt.
Það er auðvitað ekkert við því að
íjegja, þótt fylkingin sé þunn. Við
því verður ekki gert með góðu móti
nema á æfalöngum tíma. En hitt er
bráðnanðsynlegt, að fylkja liðinu
betur, jafna fylkinguna og fylla
skörðin. Með því einu móti getur
þjóðin vænst sigurs.
Líkt og hlutverkum er skift hér
er 'hlutverkum skift með hverri
þjóð. Alt frá óbreyttum liðsmanni,
íil hins æðsta hershöfðingja hefir
'hver maður sitt vissa hlutverk að
vinna. En sé það vanrækt að skipa
menn til einhvers hlutverks, þá er
allur herinn í voða. Höfuðlaus her
er ósigri vígður. Eius færi um þann
her, sem ekki hefði með sér verk-
fræðinga, eða hjúkrunarlið, eða
r jósnarlið, eða flutningalið o. s. frv.
Þannig mætti lengi telja. Og ilia
fer hverri þeirri þjóð, sem eigi hef-
ir mönnum á að skipa til ýmissa
hlutvarka.
Það eru mörg hlutverk óskipuð
hjá hinni íslenzku 'þjóð. Og þau
skörðin verðum vér að keppast að
fylla á næstu komandi árum, eða
ein-s fljótt og unt er. Oss vantar t.
a. vísindamenn í ýmsum greinum.
Háskólinn hérna er enn í bernsku
og þess verður langt að bíða að
hann nái þeim þroska að 'hann verði
oss einhlýtur. Og líklega verður
hann það aldrei. En það má aldrei
spyrjast, að það verði menningn
þjóðarinnar til tjóns, að vér feng-
nm vórn eigin háskóla og skildum
við Dani. Þær fræðigreinir, sem
ekki eru kendar við háskólann
hérna, verða íslendingar að sjálf-
sögðu að nema við háskóla í öðrum
inenningarlöndum álfuimar. En
þar sem fæstir íslenzkir stúdent-
ar ern svo efnum húnir, að þeir
geti af eigin ramleik brotist í gegn
um margra ára háskólanám erlend-
is, eru inestar líkur til þess, að þeir
snúi sér annaðhvort að þeim fræði-
greinum, sem þeim verða auðveld-
astar, eða hverfi hreint og beint
út af þeirri braut, sem þeir hafa
lagt út á. Það er því nauðsynlegt,
að íslenzka ríkið styðji efnilega
unga menn, sem vilja leggja stund
á vísindanám eHendis, taki þá
hreint og beint upp á sína arma.
Vísindamenska hér á landi verður
ekki fyrst um sinn látiu í askana,
og þess vegna er líklegt, að eigi
muni aðrir gerast til þess að nema
ví'sindi, en þeir menn, sem sérstak-
lega eru fyrir það hneigðir, 'hver í
sinni grein. Námsstyrk til þeirra á
landið eigi að skera við nögl sér,
því að síðar verða þeir starfsmenn
alþjóðar. Þeir, sem leggja út á Vís-
indabrautina fórna öllu æfis’tarfi
sínu fyrir þjóðina og það verður
hún að kunna að meta að verðleik-
nm, einkum þar sem hana vantar
slíka menn.
Svo kvað skáldið:
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljan hvessa,
vonina glæða, hugan hressa,
farsældum vefja lýð og láð.
Það , er tæplega sjáanlegt, að
augu íslenzku þjóðarinnar hafi opn-
ast fyrir þessum sannindum, þrátt
fyrir það, þótt húri hafi nú horft
upp á það dag eftir dag, árum sam-
an, að vísindamenskan er eitthvert
r.'llra sterkasta aflið í heiminum.
Það eru vísindin, sem hafa gefið
framförum þjóðanna mestan og
beztan byr í seglin. Vísindunum er
ekkert ómögulegt. Þau byggja brú
milli himins og jarðar, þau beizla
hiu ósýnilegu öfl nátturunnar, þau
kafa í myrkurdjúp fortíðarinnar
og seilast langt inn í ljó'shaf fram-
'tíðarinnar, þau i eru það stafrof,
sem mannkynið verður að læra, til
þess að þekkja sjálft sig og móður
sína, náttúruna.
Það væri til altof mikils mælst,
að ætla það, að vér gætim orðið
brautryðjendur á sviði vísindanna.
En án hins getnm vér ekki verið,
að læra af öðrum þjóðum og færa
oss í nyt þekkingu 'þeirra og
reynslu. Gerum vér það ekki drög-
umst vér æ lengra aftur úr, og „því
er fífl, að fátt er kent1'. Er það
hinn vísasti vegur til 'þess, að vér
glötum sjálfstæði og þjóðerui, því
að þá kunnum vér ekki lengur að
berjast fyrir tilveru vorri. Þá er-
um vér eins og vél, sem vantar sum
h júlin, eða stýrislaust skip. Þá verð
ur okkur hörpunnar dæmi, þeirrar
er kúrir strengjalaus á vegg.
Danskenslu fyrir börn
byrja eg 1 dag kl. 5 í Good-Teactpla,rahúsinu.
Þátttakendur þuiía ekki að láta mig vita fyririrfram, en koiru kl. 5;
i dag á fyrstu æfingu.
Börn, sem hafa verið hjá mér áður, ganga fyrir.
Stefanía GuOmundsdóttir,
Simaskráin 1920.
Á blaðsíðu 66 í Símaskránni eru tvær prentvillnr. Þar stendur:
350 Möller Jakob
117 Möller Tage & F. C.
en á að standa: 117 Möller Jakob
3SO Möller Tage & F. C.
Þetta eru þeir, sem bdnir eru að fá simaskrána, góðfiislega
beðnir að leiðrétta strax.
DAGBÓK
EDDA59202106V2—1
I. O. O. F. 101.2109 — stf.
Um matjurtarækt heldur Einar Helga
son garðyrkjustjóri erindi í kvöld kl.
81/2 í húsi K. F. U. M. og verSa um-
ræður á eftir. Fyrirlesturinn er sérstak-
lega ætlaður garöeigendum, en allir eru
velkomnir, er áhuga hafa á garðrækt.
Menn ættu áð fjölmenna á fyrirlestur
þennan, því óefaS má sækja þangað
góða fræðslu á máli því, er um ræðir.
Og aukin garðrækt ætti að vera eitt af
aðaláhugamálum bæjarbúa.
ísland fór frá Kaupmannahöfn í
fyrradag áleiðis hingað. Á að koma við
í Leith.
Botnía kom til Kaupmannahafnar síð
astliðinn sunnudagsmorgun.
Nidaros kemst ekki frá Þórshöfn fyr
en í kvöld í fyrsta lagi.
Sterling fór héðan í gærmorgun áleið
is til Kaupmannahafnar. Farþegar voru
sárfáir; meðal þeirra var Guðmundur
Hávarðsson fyrrum konungsekil). Eigi
tókst að gera við rafljósavélina meðan
skipið stóð við hér.
Firðtalstæki þau, er sett voru í Ster-
ling í Kaupmannahöfn í síðustu ferð
þess, hafa enn eigi verið reynd svo, að
seljandinn, O. B. Arnar kaupmaður,
vilji afhenda þau. Er sú ástæða til þess,
að tækin fá rafmagn frá sömu rafvél-
inni, sem framleiðir rafmagn til ljósa,
og þegar hún bilaði, varþ ekki hægt að
nota stöðina. En áður en rafvélin bil-
aði, meðan skipið var fyrir Austfjörð-
um, talaði Arnar þráðlaust við Seyðis-
f.jörð og tókst það ágætlega . Er því
stöðin tilbúin til notkunar undir eins og
hún fær rafmagn. Þó vántar enn sérstak
an klefa fyrir áhöldin.
Frú Agústa Svendsen varð 85 ára
í gær.
Alþingi. Fundur í Sameinuðu þingi
verður kl. 10 árd. í dag. Fer þá fram
kosning embættismanna og iná vel vera,
að í dag verði og gert út um kosnkiga-
kærurnar, sem fram hafa komið.
Lagarfoss kom hingað í gærmorgun
frá New Ýork'. Hafði meðferðis einn
íarþega, Jóhann Ólafsson stórkaup-
mann. Af vörum flytur skipið 800 smáL
af hveiti til landsverzlunarinnar og
nokkuð af vörum til kaupmanna.
Johann Ólafsson segir horfur illar í
Á meríku, dýrtíð sé þar afskapleg og all-
ar vörur hafi hækkað mikið í verði
síðustu mánuðina og haldi áfram að
hækka.
Samvinnuskólinn, sem haft hefir að-
setur sitt í Iðnaðarmannahúsinu, mun
flytja um næstu mánaðamót upp í hi'ð
nýja hús Sambandsins við Ingólfs-
stræti.
—O—
Sóttvarnartíma skipa, sem frá út-
löndum koma, hefir stjórnarráðið nú
iengt úr 5 dögum upp í 7 daga. Skip,
sem hingað koma og eigi hafa verið T
daga í hafi, verða sett hér í sóttkví.
Hvað Nidaros snertir, sem hingað er
væntanlegur næstu daga, þá hefir ekki
enn verið tekin ákvörðun um það skip..
Það kemur undir því, hvaða ráðstafan-
ir yfirvöldin í Færeyjum hafa gert,..
rneðan skipið lá þar. En svar við fyrir-
spurn stjórnarráðsins um þetta var ekkí
komið í gærkvöldi.
Alþýðuvinur, myndiii sen» Nýja Bíá
hefir sýnt undanfarið í mörg kvöld fyr-
ir troðfullu húsi áhorfenda, þykir ein
með allra beztu myndum, er hér hefir
verið sýnd. Fer þar saman ágætt efni
og fyrirtaks leiklist. Myndin verður
sýnd enn í nokkur kvöld, svo öllum gef-
ist kostur á að sjá hana.
Barn varð undir bifreið í Hafnar-
firði nýlega og meiddist eitthvað.
Síldveiðin. Heyrzt hefir, að Ásgeir
kaupmaður Pétursson, sem nú dvelur er-
lendis, hafi leigt norsku útgerðarfélagi
síldarpláss þau, er hann hefir undanfar-
ið notað nyrðra. Virðist það benda á
það, að hann ætli sjálfur ekki að gera
út á síld í sumar. Og svo kvað vera um
fleiri menn, sem áður hafa gert út k
síld, en nú ætla að draga saman seglin.
Gjafir til Samverjanss
Þorarinn Jónsson verzlm. kr. 15.00.
Sendiherra Böggild og frú kr. 100.00.
Jön Jónsson beykir kr. 10.00.
Beztu þakkir.
Rvík 9. febr. 1920.
Har. Sigurðsson
gjáldkeri.