Morgunblaðið - 11.02.1920, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
tt> AÍ*..r£s.*l*.,íl«.&Uj..l Mií.I&K. Átt jMueU.
MORGUNBLAÐIÐ
Ritstjóri: Vilh. Pinsen.
Afgrei8sla í Lœkjargötu 2
Sími 500. — Prentsmiðjusími 48.
Ritstjómarsímar 498 og 499.
Kemur út alla daga vikunnar, aS
mánudögum undanteknum.
Ritstjómarskrifstofan opin:
Virka daga kl. 10—12.
Helgidaga kl. 1—3.
Afgreiðslan opin:
Virka daga kl. 8—5.
Helgidaga kl. 8—12.
Auglýsingum sé skilaS annaöhvort
á afgreiðsluna eða í ísafoldarprent-
smiSju fyrir kl. 5 daginn fyrir útkomu
þess blaSs, sem þær eiga aS birtast í.
Auglýsingar, sem koma fyrir kl. 12, fá
aö öllum jafnaSi betri staS í blaSinu
(á lesmálssíSum), en þær sem síöar
koma.
Auglýsingaverö: A fremstu síöu kr.
3.00 hver em. dálksbreiddar; á öörum
síöum kr. 1.50 em.
VerS blaðsins er kr. 1.50 á mánuði.
'SPJIÍ’ ’Wríf 'VXV WWIV
reynsla sannar þetta, ef að er gáð.
Til þess að taka aðeins eitt dæmi,
skal drepið á það, að nú eru eitt-
hvað um 60 ár síðan Bushido var
gert að skyldunámsgrein í öllum
japönskum skólum. En „Bushido“
likist einmitt mjög „Nyhyggjunni“
og snmt í þessum tveim fræðigrein-
um fellum alveg saman. Og, eins og
kunnugt er, byrjaði einmitt um
þetta leyti hin mikla framsókn
Japana á öllum sviðum, og nú eru
þeir rneðal fremstumenningarþjóða
heimsins. í Ameríku einni eru marg
ar miljónir manna, sem Nýhy-ggjan
hefir gert hamingjusama, miljónir
manna, sem voru áður sokknir of-
an í allskonar eymd og volæði!
Sama er að segja um England og!
Ástralíu. Og nú hefir þessi stefna
drepið á dyr hjá okkur íslending-
um, og ef til vill hafa einhverjir
opnað fyrir henni og skilið, að góð-
an gest bar að garði. En allur f jöld-
inn mun lítil deili vita á þeim gesti,
cg fer það að vonum, þar sem hann
hefir svo fáar fregnir af honum
haft.
Nýhyggjan er auðug af ýmiskon-
ar fyrirmælum eða boðorðum. Yms-
ir hafa flaskað á því, að fara aðeins
eftir nokkrum, en láta önnur eiga
sig. Þegar svo hinn tilætlaði árang-
ur hefir ekki fengist, hafa þessir
menn skelt skuldinni á Nýhyggj-
una, talið kenningar hennar stað-
laust fleypur, sem jafnvel gæti ver-
ið hættulegt að fara eftir. En sökin
hefir verið hjá mönnunum sjálfum,
legið í skilningsleysi þeirra og til-
slökun þeirra við sjálfa sig. Regl-
um Nýhyggjunnar verður að fylgja
öllum, afdráttarlaust og skilyrðis-
laust, og hver sem það gerir, mun
reyna, að hún lofar ekki meiru en
hún getur efnt.--------
Þessi nýja stefna leggur mikla
áherslu á og rækt við andardrátt-
inn, eins og „Yoga“. í bók nokk-
urri, sem fjallar um Nýhyggju, er
komist svo að orði, að menn þurfi
að læra að „anda að sér kamingj-
unni“, og er slíkt stórviturlega og
lallega mælt. Þessvegna gefur Ný-
hyggjan ýmsar leiðbeiningar við-
vikjandi ákveðnum andardráttar-
a fingum, og eru þær margar nokk-
uð svipaðar þeim, sem „Yoga“ fyr-
Gunnar Egilson
DAGBÓK
Hafnarstræti 15.
Sjó-
Striðs-
Bruna-
Líf-
Slysa-
Tais'mi 608. Símnefni: Shipbroker.
ktUI
liimuy
jselur
8ÍíRi6lusur
með —
10—30% afslætti
ReykjaVík NV sn. vindur, hiti 2.4
Akureyri SSA kaldi, hiti 3.0
SeySisf jörSur NV hvassviöri, hiti -4- 1.1
GrímsstaSir SV kaldi, hiti -h 5.0
Vestmannaeyjar VSV stormur. hiti~:-0.1
pórshöfn V hvassviSri, hiti 3.7.
Loftvog mjög lág, einna lægst á norS-
urlandi og noröaustan viS land, vestlæg
átt; víöa stormur. Mjög óstöSug veör-
átta.
—o—
Bla’Samenn friðlausir. BlaSamönnum
einum er ætlaö sitt herbergiö hjá hverri
deild þingsins — þau herbergin, er for-
setar höföu áSur. En í gær fyltist
blaöamannaherbergiö hjá neSri deild af
hinum og öSrum forvitnum áheyrend-
um og komust blaöamenn þar hvergi að
fyrir þeim. Vitum vér eigi, hvort blaSa-
mönnum sjálfum er ætlað aS verja sig
þar ágangi, eSa hvort einhver af starfs-
mönnum þingsins á aö líta eftir því, aö
þangaS fari ekki aðrir en þeir, sem þar
eiga aS vera.
irskipar. Sannleikuriun er sá, að
andardrættinum er af langflestum
ílt of lítill gaumur gefinn, jafnvel
þó að „vísindin“ kannist við gíldi
"eglulegrar, djúprar öndunar, að
því leyti sem þau halda þeirri aug-
ljósu staðreynd fram, að djúpur,
leglulegur andardráttur útvegi lík-
amanum mikið af súrefni. En Ný-
liyggjan segir, að hér sé um fleira
að ræða í þessu sambandi, —en út
í það skal ekki farið hér. Og hvað
sem því líður, þá er það víst, að
mest er vert um hið andlega and-
rúmsloft, að það sé hreint og heil-
brigt. Því þegar að er gáð, sést, að
tilveran er óneitanlega andlegs eðl-
is og hefír ótal hliðar, sem hvorki
er hægt að sjá né þreifa á með lík-
amlegum skynjunarfærum. Allar
athafnir manna eiga rætur sínar og
upptök í sálarlífinu, í hugsuninni.
Þessvegna er hugsunin í raun og'
veru aðaluppspretta lífsins, því hún
hrindir öllu af stað, er orsök og
skilyrði allra athafna. Með öðrum
orðum: Hið inrnra líf ákvarðar og
mótar ytra lífið. Flestir munu geta
orðið Nýhyggjunni samferða á þess-
um velli. En þá liggur í augum nppi
hversu nauðsynlegt það er, að
ieggja rækt við hugsanalífið,og það
verður að meta það mest. Þeim sem
vilja fá sem mest af órækum sönn-
unum fyrir mætti mannsandans, en
láta sér ekki nægja þau rök, sem
daglega lífið hefir fram að færa, má
t. d. benda á dáleiðsluna („Hypno-
tismen1 ‘). Þau fyrirbrigði, sem
gerast í dáleiðslunni, sanna mátt
mannsandans einna átakanlegast.
Og þessvegna er þaðfyllilegaómaks
ins vert, að rannsaka þau fyrir-
brigði.------
í stuttri blaðagrein er ekki hægt
að gefa mönnum annað en aðeins
mjög ófullkomna hugmynd um
þessa nýju stefnu, Nýhyggjuna.
Hún er heilt fræðikerfi, og menn
skilja og tileinka sér bezt sannindi
hennar með því að lifa nákvæm-
lega eftir reglum hennar og fyrir-
mælum, og með því að hugsa um
þau viðfangsefni, sem hún tekur til
meðferðar, hugsa sjálfstætt og
hefja sig þannig upp til hennar.
Annars var það ekki tilgangur
minn með þessu greinarkorni að
gera mig að talsmanni Nýhyggjunn
ar, heldur að eins að hvetja menn
til að kynna sér og rannsaka ’hana
upp á eigin spýtur.
Að öðru leyti mælir hún beet með
sér sjálf.
G. Ó. Fells.
„Nidaros“. Samkvæmt símskeyti frá
Færeyjum hafa 8 menn á skipinu „Nid-
aros“ veriö einangraðir, vegna þess, aö
við læknisskoöun reyndust þeir hafa of
háan líkamshita. Er þó talið víst, að
enginn þeirra sé haldinn af inflúenzu.
Mislingar voru eugir meðal farþega og
skipverja.
Úlfur kom hingað frá Stykkishólmi í
fyrrinótt með um 40 farþega og hrepti
aftaka veSur á leiðinni.
Karl Einarsson bæjarfógeti er eigi
kominn til þings ennþá. Sami maöur lét
einnig standa á sér er þing kom saman
síðast. HafSi hann enga afsökun þá
fremur en nú, því feröir hafa veriö
hingað frá Eyjurn fáum dögum fyrir
þing í bæði skiftin.
Harðindi á Norðurlandi.
Svo segja þeir Norðlendingar, er
hér eru nú staddir í bænum, að
mjög hart sé um alt Norðurland.
Hafa veriíð þar algerð jarðbönn
síðan um miðja jólaföstu, svo hver
skepna hefir verið á gjöf síðan.
Eru snjóþyngsli ékki afskapleg, en
áfreðar svo miklir, að gaddstorka
er á hverjum hnjót. Segir bændum
því þungt hugur um heyforða sinn,
ef þessu fer fram. Þó kváðu liey-
fcirgðir manna hafa verið sæmileg-
ar í haust. En flogið hefir fyrir, að
i'arið væri að skera af heyjum í
Húnavatns- og Skagafjarðarsýslu.
Utdráttur
úr samþykt um leigu á lóðum
bæjarsjóðs Reykjavlkur
til íbúðarhúsabygginga.
Lóðin skal látin á leigu til 75 ára
og sé leigutaka heimilt að selja og
veðsetja leigurétt sinn, ásamt hús-
um þeim og mannvirkjum, sem á
lóðinni verða gerð, svo og rétt sinn
til endurgjalds úr húsfyrningar-
sjóði (sjá síðar). Réttur veðhafa til
veðsins skal haldast að öllu leyti ó-
■skertur, þótt leigutaki brjóti skuld
bindingar þær, sem hann hefir und-
irgengist gagnvart lóðareiganda
með leigusamningnum.
Leigutaki skal hafa byrjað á
byggingu íbúðarhúss á leigulóðinni
eigi síðar en 12 mánuðum eftir dag-
Avalt bir^ðir
af góðum og ódýrutn Hessian.
Stærstu birgðiruar á landinu af Gútumi- og Waterprof—
kápum, ótal tegundir og öllum stæiðum.
Ágaetir barlmaunssokkar,
Nýkomið: Bollapör og diskar, fl. teg. Mjög ódýrt.
Því miður uppselt em von á með næstu skipumr
Linolsum og gólfdúkum. Línum og öngultaumum. Agætum mótorol-
ium i 20 kg. dunkum.
Jón Sivertsen
Vesturgötu io. Slmar 550 og 850 (heima).
Járðarför síra Lirusasr Benediktssonar fer fram fimtudag 12.
febrúar, og hefst kl. 12 með húakveðju á heimili hins litna,
Bröttngötu 6.
Aðstandendurni r.
setningu leigusamnings, og hafa
húsið fu'llgert og íbúðarhæft eigi
síðar en 2 árum eftir dagsetniingu
Idgusamnings, ella fellur samning-
urinn úr gildi.
Leigutaki greiðir alla skatta og
gjöld til opinberra þarfa, sem lögð
eru eða verða á hina 'leigðu 'lóð, þar
á meðal lóðargjald til bæjarsjóðs
eftir sömu reglum sem eigendur
byggingaflóða í bænum.Verði skatt-
ar eða gjöld miðuð við verðmæti
lóða, skal ákveða verðmæti leigu-
ióðarinnar á sama hátt sem verð-
mæti annara lóða í kaupstaðnum
1 sama skyni.
Leigutaki greiðir kostnað við
þinglestur á leigusamningi og
stimpilgjald, svo og kostnáð við
matsgjörð.
Leigutaki skal greiða árs'leigu af
lóðinni, sem ákveðst þannig:
a) 4% af verðmæti lóðarinnar, eihs
og það verður ákvéðið með mati.
b) Gjald, sem miðað sé við verð-
mæti húsa þeirra, er hann bygg-
ir á lóðinni. Brunabótavirðing
á húsinu fullgerðu og íbúðar-
hæfu skal skoðast rétt ákvörðun
á verðmæti hússins, er hún hefir
hlotið samþykki bæjarstjórnar.
Vilji bæjarstjórnin ekki að lokn-
um leigutímanum leyfa lei'gutaka
með nýjum leigusamningí að láta
bús það eða híis 'þau, sem þá eru á
lóðinni, standa þar áfram, skal
ieiguta'ki taka burtu öll hús og ofan
jarðar-mannvirki af leigulóðinni.
Jafnframt fær hann endurgoldið
úr húsfyrningarsjóði verðmæti
hússins eða húsanna, eins og metið
verður til notkunar í 'lok leigutím-
ans af sérstakri matsnefnd, þó aldr-
ei með hærri upphæð en húsið var
virt upprunalega eða eftir endur-
hyggingu og gjald samkvæmt 4.
gr. b. er miðað við.
Ryðji leigutaki ekki lóðina innan
irests, sem bæjarstjórnin setur, má
bæjarstjórnin láta gera það og
greiða kostnaðinn af endurgjaldi
því, sem ræðir um í þessari grein.
Lóðarleigu skal greiða á sömu
gjalddögum og önnur gjöld til
bæjarsjóðs. Leigan rennur beint í
bæjarsjóð, en gjáldið í sérstakan
sjóð, er nefnist „Húsfyrningarsjóð-
ur Reykjavíkurbæjar1 ‘ og ekki má
gera að eyðslufé.
Leigutaki og veðhafi eru skyldir
að hlíta því, ef í lög verða sett á-
kvæði um að leigan gangi á trndan
veðskuldum, sem á eigninni hvíla..
Fé það, sem greiðist í húsfyrn-
íhgarsjóð, skal ávaxta tryggilega,.
og þegar sjóðurinn er að áliti bæj-
rstjórnar orðinn nægilega stór, skal
veita úr honum lán til íbúðarhús-
bygginga á leigulóðum bæjarins,.
gegn veði í húsunum og vöxtum,,
er ekki séu hærri en 5 af hundraði
á ári.
Fyrst um sinn og þangað til öðru.
vísi verður ákveðið, hefir borgar-
stjóri á hendi stjórn sjóðsins, en,
bæjargjaldkeri reikningshald hans-
Stjórnarfrumvðrp.
—0—
1. Frv. til vatnalaga.
2. Frv. til laga um sérleyfi til hag:
nýtingar á orkuvÖtnum og raforku.
Á síðasta þingi vísaði neðri deild
vatuamá'lunum 'til Stjórnarinnar
með svolátandri rökstuddri dag-
skrá: „í því trausti, að landstjórn-
in taki til rækilegrar yfirskoðunar
frumvörp milliþinganefndarinnar-
og þingnefndanna í ár í fossamál-
inu og leggi síðan fyrir alþingi
frumvörp til samfeldrar fossalög-
gjafar fyrir ríkið, tekur deildin.
fyrir næsta má'l á dagskrá.‘ ‘
1 Athugasemdum sínum við frv..
þessi segir stjórnin svo:
Á því stu'tta tímabili, sem nú er-
milli þinga, hefir það að sjálfsögðn
ekki verið unt fyrir ráðuneytið að
taka vatnamálin til meðferðar frá
rótum, sem þó hefði þurft að gera,
ef semja hefði átt að nýju frum-
vörp til 'samfeldrar löggjafar í
þessu efni. Núverandi ráðuneyti
hefir heldur ekki, samkvæmt að-
stöðu sinni, getað 'talið það skyldu
^sína að gera það. Hinsvegar hefir
ráðuneytið talið það rétt að ’leggja
fyrir þingið frumvarp alþingis-
manns Sveins Ólafssonar til Iagaum
sérleyfi til hagnýtingar á orkuvötn-
um og raforku, sem ráðuneytið get-
ur aðhylst í aðalatriðum, ásamt
frumvarpi minni hluta fossanefnd-
arinnar til vatnalga. Greint frum-
varp til sérleyfislaga er lagt fyrir
þingið óbreytt, að öðru leyti en því,
í,ð ákvæðið um samþykki alþingis
tvisvar sinnum, fyrir og eftir nýjar
koisningar, til veitingar sérleyfis,
þegar um orkuvinslu er að ræða