Morgunblaðið - 21.02.1920, Blaðsíða 1
7. árg., 89 tbl
Laugarðag 21. lebrúar 1920
Is»to i darpr entsmiOlai
Góðan daginn. Hafið þér reykt Special Sunripe-cigarettur
Fyrirliggjandi í lieildsölu til
kaupmanna og kaupfélaga:
BKTA „PPJMUS“ (A.B. HJORT
& Co., STOKKHOLM), Suðu-
áhöld, eldhol,bakaraofnar,strau-
hattar, hreinsunaráhöld. — Alls-
konar varahlutar svo sem nálar,
brennarar, hringar o.fl. MOTOR-
LAMBAR og brennarar í þá.
G. EIRÍKSS, Reykjavík
Einkasali á íslandi.
01nbog:abarnið.
—0---
Frá stjórnarskrárnefnd . hefir
komið fram álit um frv. til laga um
þingmannskosningu í Reykjavík.
Er það að 'sumu leýti einkénnilég
niðurstaða, seni nefndin kemst að,
og skal stuttlega gerð hér að nm-
talsefni.
Sex af sjö nefndarmönnum hafa
sem se komist að þeirri niðurstöðu,
að „sanngirniskröfunni“ viðReykja
vík sé fullnægt ef þingmönnum sé
fjölgað um tvo. Og þetta styður
nefndin með því: 1. að þó þingmenn
Roykjavíkur verði ekki nema f jórir
og þannig 1378 kjósendur um
hvern, sé bærinn botur settur en
eitt kjördæmi annað á landinu,
nfl. Suður-Þingeyjarsýsla, sem hafi
1477 kjóisendur en ekki nema einn
þingmann, 2. að margir þingmenn
kjördæma út um land séu búsettir
í Reykjavík, og- 3. að „aðstaða kjós-
enda í Reykjavík til þess að neyta
kosningarréttar síns og fylgjast
með störfum þingsins er betri en
aðstaða kjósenda í nokkru öðru
kjördæmi.“
Við fyrStu „röksemdinni’1 er það
að segja, að svo sem sýnt er í frv.!
stjórnarinnar, eru að meðaltali 830jI
kjósendur um hvern fulltrúa á land
inu. Það meðaltal ber að sjálfsögðu
að leggja til grundvallar þegar
reynt er að koma réttlátara skipu-
lagi á kjördæmaskiftinguna. Og
samkvæmt því stóðu Reykvíkingar
nær því að fá 7 þinginenn en 6,
eins og gert er ráð fyrir í stjórnar-
frv. En nefndin hefir nppgötvað
það, að með þessu móti verði 8
kjördæmi af 24 miður sett en
Reykjavík, og það má ómögulega
ske. Því vill hún breyta svo til, að
Reykvikingar fái aðeins 4 þing-
menn, og verða því 1378 kjósendur
um livern þingmann. Og til afsök-
unar þessu nefnir hún, að Suður-
Þingeyjarsýsla hafi 1477 k.jósend-
ur en aðeins einn þingmann. Reykja
vík má vera þakklát slíkri sann-
gimi. Hvað mundi nefndin hátt-
virta segja við því, ef Reykvíkin'g-
ar krefðust þess að fá 15 þingmenn,
eða eínn fyrir hverja- 360 íbúa, og
færðu það máli sínu' til stuðnings,
að 287 kjósendur á Seyðisfirði
hefðu heilan þingmann? Væri það
ekki álíka viturleg röksemdafærzla ?
Þá er önnur ástæðan, nfl. sú, að
Reykvíkingar hafi fleiri talsmenn
á þingi en þeir kjósa sjálfir, þ. e.
fulltrúa kjördæma úti um land, bú-
setta í Reykjavík. Þar til er því að
svara, að ekki eiga kjósendur í
Reykjavík neinn þátt í því, liverja
Reykvíkinga kjördæmi úti um land
senda á þing. Og þeir kjósendur,
sem senda þá, sénda þá ekki sem
taismenn Reykvfkinga, héldur
sjálfra sín.
Næsta veigalítil er sú ástæða, að
kjósendur í Reykjavík eigi hægra
með að neyta kosningarrettar "síns
en aðrir. Því eigi er það undir að-
sókn ti-1 kjörfunda komið, hvort
kjördæmi sendir marga menn eða
fáa á þing. Atlcvæði þingmanns
vegúr nákvæmléga jafnm’ikið í þing
■salnumÍ, hvort margir eða fáir hafa
áótt kjörfund til þess að kjósa.
Eigi er. það eðlilegt, að háttvirt
stjórnarskrárnefnd yrði vísari á
rök fyrir máli sínu en raun er á
orðin. Því þau rök eru ekki til. Þing
rnenn hafa nú áram saman misbeitt
valdi sínu og haldið fyrir Reykvík-
ingum skýlausum .rétti þeirra.
Reykjavík er sá hluti landsins, sem
mest geldur til þarfa landsins, og
hér er saman kominn meira en
sjötti hluti allra landsbúa. Hingað
til hefir þingið kæft í fæðingunni
alla viðleitni til lagfæringar á þeirri
rangsléitni, sem sá hluti þjóðarinn-
ar, er hér býr, hefir átt við að búa.
Nú hefir nefndin ekki þorað að
hundsa kröfuna al'gerlega. En hún
vill ekki fara nema hálfa leið. Og
talar svo um sanngirni!
Erl. símfregnir.
(Frá fréttaritara Morgunblaðsins).
Khöfn 19. febr.
4000 masms drDkna.
Frá Konstantinopel er símað, að
skip, sem var að flytja flóttamenn
frá Odessa þangað, hafi rekist á
tundurdufl í Bosporus og farist.
Með skipinu voru 4000 manns.
CiiUaax-hneybslid.
Caillaux-málið byrjar aftur í dag.
Þingnefnd hefir haft málið til rann-
sóknar undanfarið.
Landráðamál Cailleux
hefir nú að nýju verið tékið til með-
ferðar í þinginu. Héfir það legið
niðri síðan í haust. Þá vildi Caille-
ux leggja málið í dóm, en þvert á
móti var tekinn- frestur í því og
Cailleux hafður í varðhaldi síðan.
Hann þýkist sjálfur sannfærður um
að ekki sé hægt að dæma sig sek-
an um landráð þótt böndin hafi
borist að honum um það, að hann
hafði um eitt skeið ráðagerð í
frammi með það að ná stjórnarfor-
mensku í Frakklandi og semja svo
frið við Þjóðverja og hafi til þess
ætlað að hafa þýzkt fé.
Her Þjóðverja.
Bandamcnn hafa gefið Þjóðverj-
um tveggja mánaða frest til þess
að minka herinn í samræmi við á-
kvarðanir í friðarsamningunum.
Inflúenziu í Khöfn
Þaðan er sínlað í gær, að inflú-
onzan sé í rénun og fari hægara
yfir.
Danir og þjóðbandalagíð.
Allir flokkar eru ásáttir um, að
Danir gangi í þjóðbandalagið, þrátt
fyrir ýmsa annmarka, sem því eru
samfara.Gagnið að þátttökunni yrði
þó rneira, einkum að því 'leyti að
herbúnaður smáþjóðanna yrði mink
aður mjög.
Forseti Ftakklands
Paul Deschanel.
M^rnd þessi er tekin á heimili hins
nýja forseta, fyrir skemstu. Des-
shanel er talinn glæsilegast stjórn-
málamaðurinn meðal Frakka og
ræðuskörungur með afbrigðum. —
Þykir hann mikið tilkomumeiri
heldur en Poincaré.
Nýju batnoörpungarnir.
Skipin bráðum til.
Vér hittum í gær að máli útgerð-
armann, sem nýlega er kóminn frá
Englandi. Báðum vér hann að segja
oss hvernig væru horfur með skip
þau, sem íslendingar eiga í smíðum
i Bretlandi, hvenær þeirra væri von
og hvað þau mundu kosta.
— Eftir því sem eg ih-efi komist
næst eiga íslendingar 11 skip í
smíðum í Bretlandi, 6 skip í Selby
og 5 í Bewerley. Voru flest þeirra
huigt komin þégar málmsteypu-
menn liófu verkfall og smíði skip-
anmv' 'Stöð vaðúú./ En 26. jan. var
verkfallið á enda og nú eru beztu
vonir um að skipin fari að verða til-
búin. Eg býst við að 3—4 komi í
marz en líklega verða 6 komin í
apríllok.
— Það vantaði aðallega ýmsa
vélahluta, sem steyptir eru.
— Er ekki verðið hátt?
— Ákaflega hátt og að.sögn fer
það hækkandi. Þó har ekki öllum
skipasmíðastöðvum saman í þessu
efni. En eg hygg það rétt vera, að
smíði verði enn dýrara eftir nokkra
mánuði. Gömul skip, 7 ára gömul,
eru seld á 24,000 sterlingspund. Eg
heyrði í Bretlandi að íslendingar
hefðu keypt 4 gömul skip, þrjú
þeirra. 7 ára, en eitt 12 ára. Og þau
kváðu vera væntanleg innan skams.
Það er því útlit til þess að hotn-
vörpungafloti Islands aukist um að
minsta kosti 15 skip á þessn ári. —
Og öll verða nýju skipin gerð út
héðan og úr Hafnarfirði.
— Hverjar eru áðrar ástæður
til þess að smíðið gengur svo illa?
— Það er miklu ver og minua
nnnið í Bretlandi nú en áður. Ann-
ars era horfnr þar hálf-illar. Kola-
gkortnr meðál almennings og skömt-
un á kolum og sykri til allra heim-
ila.
— Eg álít að íslendingar verði
beppnir ef þeir ná öllum skipunum
heim í sumar.
Kjötsalan.
Horfurnar á því, að Sláturfélag
Suðurlands geti selt kjöt sitt frá í
liaust með viðunanlegu verði eru
bví miður mjög slæmar. Hafa verið
gerðar tilraunir, bæði í Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku til þess að selja
kjötið, en allar strandað. í haust
fékst gott boð í ketið erlendis, en
þótti eigi nógu hátt, en síðan hefir
verðið farið sílækkandi.
Er því mest mn kent að fram-
leiðsla Dana, bæði á fleski og nauta-
keti sé nú orðin að kalla eins mikil
og var fyrir stríðið. Er því nóg af
dönsku. keti á boðstólum um öll
Norðurlönd, og með lágu verði,
vegna þess að kjötflutningur til
Þýzkalands hefir algerlega stöðvast.
(tg- ekki standa saltkjötinu íslenzka
fremur opnar leiðir þangað.
Það er.að eins örlítill hluti af
kjötiuu sem selt hefir verið. Noltkur
þúsund tunnur liggja enn þá óseldar
hér í Reykjavík. Og liorfur eru á,
að þær muni ekki seíjast í bráð,
nema fyrir sárlítið verð. Kjöt norð-
lensku kaupfélaganna var selt í
haust fyrir nær hálft fjórða hundr-
að-krónur komið um borð hér. Mega
Norðlendingar því hrósa líappi yfir
sölunpi. En súnnlenzkir bændur bíða
gífurlegt tjón.
Nýkomið:
VICTOR og PRIOR kveikitappar
(kerti) með 3 kveikioddum, fyr-
ir bifreiðar, bifhjól og allskonar
benzlnmótora. Hafa reynst bezt
af öllum tegundum er hér þekkj-
ast.
G. EIRÍKSS, Reykjavík.
Einkasali á íslandi.
KolarandrœBii.
Ekkert hefir enn raknað úr kola-
vandræðunum nema hvað Villemo-
es flutti 207 smálestir hingað. Munu
þau kol aðallega vera ætluð skip-
unum og ef til þill sjúkrahúsunum,
ef þess gerist þörf. Bæjarmórinn
hefir orðið mörgum. til hjálpar nú
í kuldakastinu, en hann mun vera
búinn eða þá alveg á förum.
Baðhúsið hefir verið lokað und-
anfarið og lítil líkindi til þess að
það verði opnað aftur fyrst í stað.
Því miður er ekki 'hægt a.ð nota
koks þar. Baðhúsið þarf tæpa smá-
lest á viku, þegar þa ðer opið alla
daga vikunnar.
Eftir svo sem þrjá daga verður
að stöðva mulningsvél bæjarins.
Fyrir náð tókst að útvega uokkur
skipppnd kola, en koks verða eigi
notuð til hennar.
Vitanlega bætir það ástandið mik
ið þegar koksið kemur á markaðinn
Því til flestra ofna er það nothæft,
og sumstaðar betra en kol, að
minsta kosti betra en kolamylsna
landsyerzlunarinnar, sem seld hefir
verið í vetur.
Loks höfum vé rsannfrétt það,
að ekki muni með öllu vonlaust að
Bretár láti af hendi nokur kol til
Islendinga. Er unnið að því máli
nú og væri óskandi að það bæri
árangur. Því aunars er fyrirsjaan-
legt að botnvörpungarnir geta ekki
stundað fiskveiðar í salt um vertíð-
ina.
Frá Alþingi.
Fjölgun þingmanna í Reykjavík.
Frv. stjórnarinnar um fjölgun
þingmanna í Reykjavík var til 2.
umræðu í neðri deild í gær. Nefnd
sú, er hafði haft málið til með-
ferðar, klofnaði og vildi meirihlut-
inu ekki að þingmönnum Reykja-
víkur yrði fjölgað um fleiri en tvo.
Sveinn Björnsson var í minni hluta
og kom hann fram með breytingar-
tillögu um það, að þingmenn Reykj-
avíkur skyldu þó að minsta kosti
vera 5. Bjarni Jónsson frá Vogi
hafði einnig komið fram með breyt-
ingartillögur þess efnis áð fjölgað