Morgunblaðið - 24.10.1920, Side 4

Morgunblaðið - 24.10.1920, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ Knattsyprnufélagið ,F R A M‘ Meðlimir félagsins eru beðnir að inæta fí dag kl. 2x/a niður við geymsluhús h. f. Kol og Salt, til þess að hjálpa til við færslu á kapp róðrabátnum. Mætið stundvislega. STIÓRNIN. «ektar, fvr en við sjálfir erum orðn- ir syndlausir og heilagir menn. — En það getur dregist. Skrifað skal standa, kaliar nú 'þeirra annar innri maður: „Sá yð- ár, sem er syndlaus, kasti fyrstur steini á bankastjóra, slökkviliðs- stjóra „'fiskihringsmenn'1 og kaup- menn, þar á meðal þá, sem með hljóðfæri verzla. — Heyrið þetta, bræður góðir. Eg ásaka yður eigi. Gangið burt og syndgið eigi fram- ar. Þegar þeir höfðu þetta heyrt, voru þeir „slegnir af þeirri sam- vizku og gengu burt“ — eins og skrifað stendur. Og guðfræðingurinn í þeim glotti að öllu saman, því hann fann, að nú höfðu þeir slegið sjálfa sig á munninn. Þessi fyrirbrigði urðu 14. þ. m., sean sjá má af málgagni alþýð- nnnar- S Þ. Það var nýlega sagt hér í blaðimi eftir norskum blöðum, að Spánverjar mundu ef til vill bafa hækkað fisktoll- inn um rúml. 26 af bundraði. Norska utanríkisráðuneytið spnrðist fyrir um þetta og fékk það svar, að fisktollur- inw hefði ekki verið hækkaur, en sam- kvæmt lögum frá 20. marz 1906 þá ætti að gjalda alla tolla til spánska ríkisins í gulli eða gulls ígildi. Þegar toílurinn nú er greiddur í seðlum, eru tekin 26,71 prósent fram yfir, en það er einmitt verðmunurinnn á spönsku gullí og seðlum. » Silkikjóll til sölu á Hverfisgötu 47. Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar og Garðahrepps efnir til hlutaveltu um mánaðamót- in. Samlagsmenn og aðrir, sem eitt- hvað láta af hendi rakna, eru vin- samlega beðnir að senda gjafir sín- ar í sölubúð P. V. Snæland fyrir 20. þ. m. Hlutaveltunefndin. þurkaðir ávextir Epi Apricots Bl. ávextir Sveskjur Rúsinur fást í verzlun Ó. Ámundasouar Sími 149. Laugaveg 24. Bifreið til sðlu Chevrolet bifreið er til solu í góðu standi ásamt nauðsyn'egum verk- færum og varastykkjum. Verð: 3800,00 kr. Talið við Jón Guð- mundsson Skólavörðustíg 17 eða Kjartan Jakobsson í Hafnarfirði simi 44. Glitofnar ábreiðnr eða söðulklæði vil eg kaupa. Vilh Finsen, ritstjóri. Verkfara & byggingarvðruverzlunin ,Brynj'a( Laugaveg 24 Hetur beztu vörur. Selur mest af öllum Hús feiknuð Utvegrar hu>ðir og glngga. Siðari aðalfundur Sjúkrasamlags Hafnar- fjarðar og Garðahrepps verður 'haldinu í Goodtemplarahúsinn í Ilafnarfirði miðvikudaginn 3. nóv. næstkomandi kl. 8y2 e. m. — Dag- skrá: — 1. Lagt fram yfirlit yfir tekjur og gjöld samiagsins. — 2. Fjárhagsmál rædd. Einnig hvort eða á 'hvern hátt komið verði í veg fyrir, að samlagið hætt£ störfum. Skorað er á alla félagsmenn að mæta á fundinum. STJÓRNIN. Tapast hefir poki með hnakktöskn, kvennsvipn merkt »Guðrún« o. fl. dóti, á leiðinni frá Reykjavík að Baldurshaga. Skilist gegn fundarl. í verzlunina Lagarfoss, Laugaveg 70. Nokkrir notaðir ofnar og ein ný eldavél til sölu á Hótel ís- land. Nánari upplýsingar á skrif- stofu Hótelsins. Vöruflutninga bill í góðn standi til sölu með góðum kjörum ef sam- ið er strax við Guðm. Ág. Jónsson bifreiðarstj. Hafnarfirði. Kartöflur fást í verzlun Ól. Ámundasonar Sími 149 Laugaveg 24. UJJ mn roiiTtTMir Hús til söln í Haínarfirði Húsið nr. 11 við Austurgötu — með stórri lóð — er til sölu ■ ef viðunandi boð fæst fyrir 30. þ. m. Upplýsingar hjá Oddi Jónssyni, Austurg. 9 10-20 duglega drengi vantar til þess að bera tímarit um bæinn. Komið í verzlunina Arnarstapi. Tiiboð óskast í 5 til 8 smálestir af ágætri sauðatólg. Sendist á skrifstofu Morgunblaðsins eða Hótel Island, herbergi 21, merkt »Tólg«, Samkoma verður haldin í Bámsalnum kl. 8Va i kvöld Olatía Jóhanns- dóttir talar og fleiri. Allir velkomnir. Frá Frakklandi Cand. Avextir & Confect Súkkulaði (suðu- eða átsúkkulaði pk. 3,50) Simi S„ C Rydén> HEIÐ ARHETJAN. r Hvemig getur yður dottið í hug að koma með þá vitleysu, að eg geti látið stigamanninn vita, hvar hann geti fundið vagn greifadótturinnar. Hvar ætti eg að finna hann? Og hvernig ætti að koma honum í skilning um þetta? Mittachip hló í hjarta sínu. Aðals- maðurinn var þá tilleiðanlegur til að nota þessa uppástungu. — Það er eitt a£ störfum lögmann- anna, að komast að raun nm hvað ger- ist í kringum þá. Eg gæti áður en lið- in er klukkustund, sent Beau Brocade hvaða skilaboð, sem þér vilduð, — Á hvaða hátt? — John Stich, smiðurinn niðri við krossgöturnar, er vinnr hans og félagi. Það eru margir, sem álíta, að hann gefi fantinum upplýsingar um í hvert skifti sem vagn fer um heiðina. En það lát- um við nú liggja milli hluta. En ef þér vilduð koma í smiðjuna rétt áður en BÓlin sest, þá munduð þér sjá dökk- brúnan hest tjóðraðan þar nálægt og líklega einhvern ókunnan mann vera að tala við smiðinn, ungan, laglegan mann. Hann sést oft í smiðjnnni. — Fólk spvr aldrei um, hver hann er, því ailir hafa heyrt talað um gerfilega stigamanninn, sem rænir hina ríku til þess að gefa hinum fátæku. Farið þér til smiðjunnar, sir Humphrey. Þar getið )þér afgreitt þetta mál á svip- stundu. Þér skuluð ekki óttast, að til- boð yðar um peningana komist ekki tií Beau Broeade. Aðalsmaðurinn var óvenjulega þög- nll. Kætin var horfin af andlitinu og í stað hennar var kominn skuggablær yfir* það. Mittachip aðgætti hann með ánægju og honum tókst illa að dylja þá ánægju. Uppástungan hafði auðsjáanlega fundið náð fyrir augum aðalsmanns- ins. Hún var vel framkvæmanleg, djörf og gat komist í framkvæmd á einni svipstundu; hamingja heillar æfi í einu teningskasti. Sir Humphrey hafði á- kveðið að reyna þetta, löngu áður en lögmaðurinn hafði endað mál sitt. — Hann sá það, að honum var sjálfum óhætt, enginn gat sett nafn hans í sam- band við hinn alræmda stigamann, sem var nýbúinn að ræna bann. — Eg vil ekki vita af íþví, að menn 'leiki hana grátt á nokkurn hátt, var iþað fyrsta er hann sagði. — Leiki hana grátt! isvaraði lögmað- urinn. Því ætti maður að gera það? Beau Brocade mundi aldrei vinna fall- egri konu nokkurt mein. Það mun ekki verða erfitt fyrir hann, að ná hréfun- um af henni án þess. — En þá mun hann sjúga út úr mér fé til æfiloka. Eg mundi vera í vasan- um á fantinum héðan í frá. — Hvað gerir það, sir Humphrey, þegar þér eruð kvongaður Patienee og hafið fengið auð hennar til* umráða? Eg hefi heyrt að í ástamálum væri öll brögð leyfileg. Sir Humphrey kom ekki með fleiri mótbárur. — Þar að auki, sagði brögðóttur lög- maðurinn, Iþegar þér eruð ornir hand- hafi bréfanna, þá getið þér sjálfur kært dónann og þá verðnr bann hengd- ur og þér laus við hann. — Hann mundi ákæra mig. — Hver tryði orðnm hans? þegar þér þverneituðuð öllu? Minsta kosti ekki West dómari, sem mundi hafa málið til meðferðar. Og þér gætuð alt af séð fyrir því, að hann sæti í varð- haldi þangað til ^þér væruð kvongaður. Það leit út fyrir að öll heilbrigð skynsemi mælti með þessu. Það .sýndiist ekki vera nein hætta fyrir aðalsmann- inn að fylgja Iþessu ráði. 0g það var öll von um ágætan árangur, ef stiga- maðurinn biti á agnið. — Hann gerir það óefað, sagði Mittachip, ef þér segið honum að vagn- inn, peningarnir og bréfin tilheyri lafði Raunee, og að stúlkan sem sé i vagninum, sé að eins systurdóttir henn- ar. Rounce er rskaphörð kona, sem geng ur miskuhnarlaust eftir fé sínu, ha, ha! Að yður undanteknum hefir enginn verra orð á sér í öllu héraðinu. Lögmaðurinn hló að þessu spaugi sínu. En sir Humphrey var of sokkinn niður í hugsanir sínar til þess að taka eftir því. Hann var enn ekki fullráð- inn. En lögmaðurinn var hinn ánægðasti með dagsverk sitt. Hann sá í anda 200 gineurnar. Og stuttu síðar leiddi hann talið að fjármálum aðalsmannsins. — Sagði hann honum frá "þvl, að hann hefði innheimt nokkra skatta fyrir sir Humphrey og hann yrði að hraða sér tii Wirksworth til Iþess að koma pen- ingunum í bankann. Hann hafði skótið sinni eitruðu ör, og beið ekki eftir að sjá, hve langt hún hefði geugið inn. Hann kvaddi því sif Humphrey með allri þeirri virðingu er hann átti til, en mintist ekki einu orði á greifadótturina, stigamanninn eða smiðjuna. En það var ánægjusvipur ú andliti hans, þegar haun gekk frá sii Humphrey. 10. kapítuli. Ókendur maður í smiðjunni. Meðan þessu fór fram, hafði Pati- ence gengið í áttina til smiðjunnar með Betty við hlið sér, svo hratt sem veg- urinn leyfði. Yið snögga bugðu á veginum kom hún nálægt krossgötunum og* gálgan- um, þar sem skjalið, gegnvott af regni, blakti enn fram og aftur fyrir blænum. En þá sá hún alt í einu sjón, er olli henni óumræðilegs kvíða og hræðslu. Á að giska 10 hermenn komu gang- andi leiðina fráWirksworth og stefudu að kofa 'smiðsins. Sá fremsti var ein- kennisbúinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.