Morgunblaðið - 23.06.1921, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.06.1921, Qupperneq 4
 MORGTJNBLAÐIÐ Kastið ekki notuðum frímerkjum. Seljið þau beint til frímerkjasafnara. Hátt verð og skílvís borgun. Allar tegundir frímerkja keyptar. Skrifið til Kai Ludvigsen, 0sterbrogade 53n Köbenhavn 0. Agæt »Ernemann« ljósmynda- vél og karlmannsreiðhjól sem nýtt til sölu uppl. hjá Leví. Seglbátur i ágætu standi til sölu ódýrt Nlagnús Guðmundsson skipasmiður Vinnuleysið í Danmðrku. I Börsen frá 24. maí reiknar I. H. West verkfræðingur út, hve mik- ið atvinnuleysið, sem á sér stað í Danmörk, kosti landið, og kemst að þeirii niðurstöðu, að það kosti Dan- mörk tvöfalt meira hlutfallslega en hernaðarskaðabæturnar kosta Þýska- land. Þá eru 63 þús. manna taldar atvinnulausar í Danmörk ogfærhver af þeim til jafnaðar styrk, sem nem- nr rúml. 5 kr. á dag. Verður það samtals nál. 100 milj. kr. á ári. En mun meira er þó hið óbeina tap, segir höf., það, að þessir menn gera ekkert, framleiða ekkert. Hann áætl- ar, að helmingur þeirra manna, sem nú eru atvinnulausir, ynnu annars að framleiðslu með 2 kr. kaupi um klukkutlmann, eða 16 kr. daglaunum, og að verðmæti framleiðslunnar sé vinnulaunin þreföld. A þann hátt fær hann út 460,800 þús. kr. tap af þessu á ári, eða aíls nál. 560 milj. tap á ári af vinnuleysinu. —Þýska- land er nál. 20 sinnum stærra en Danmörk. En 20 sinnum 560 milj. kr. eru 11.2 mi’jarðar eða nál. 12,6 miljarðar gullmarka. Hernaðarskaða* bæturnar, sem Þýskaland á að greiða eru nál. 5 miljarðar gullmarka á ári, og hefir bandamönnum komið sam- an um, að þýska þjóðin sé ekki fær um að greiða meira. En vinnuleysið kostar Danmörku nú 2^/2 sinnum meira hlutfallslega, segir höf. ------0------ Eífstykki feikna úrval, best og ódýrust í bænum. Lífstykkki saumuð eftir máli. Brjósthöld og alt tilheyr- allar stæröir gj andi líf8tykkum- tífstykkjabúQin Kirkjustræði 4. isii. Smóking til sölu, ennfremur sama sem nýjir brúnir skór nr. 42. A. v. á. Listivagn Hið naínfræga ameri ka ROYAL Gerduft Það er trægt nm 8)Jan heim fyrir hreinleik og' ágæti - Hver húsmóðir getur reitt sig á að úr því verða kökur, kex o. s. frv. bragðgott og hollt, það bezta sem unt er að baka. — Byðilegst alöreiþví það er selt 1 dós- um. Selt í heildverzlun | Nýjar vörnr! í góðu standi til sölu með tæki- færisverði til sýnis á Vesturg. 15. Herbergi. j Nýtt verð j 1 í 1 jvöiuhúsinu Þeir sem vildu leigja herbergi með húsgögnum handa gestum um konungskomuna eru beðnir að koma til viðtals á skrifstofuna á Hótel ísland sem allra fyrst. Carlsberg Pilsner — Porter p y nýkomið í M 1 PBlaSIM S í m i 14 9 Laugaveg 24. / . Hreinar léreftstnakur ÍT&lt keyptaj luesta verCi í IsafoldarprentsmlSjn h.f Garðars Gíslasonar 1 _ • f / ; r n • ^ - / I2--I4 tonna móiorbáfur með 15—20 hkr. Bolinðer í góðu stanöi. Talið við Nlagnús Guðmundsson skipasmið. Sími 76. 137 vegna hann gæti ekki talað þannig í návist Ruthe. Hann var bara skóladrengur og talaði einB og hann, þegar hann var með henni. »Gefið mér frest!« hrópaði hann hátt. »Gefið mér aðeins frest!«. XIV kapituli. Það var ekki fyrir fortölur Olneys, heldur af mótþróa gegn latínunni, sem Martin ákvað að læra hana ekki. Tíminn var honum peningar. Það var svo margt, sem var nauðsynlegra en latínulærdómur, og það var hann að lesa um. Hann varð að skrifa og vinna fyrir peningum. Enn þá hafði hann ekki fengið neitt prentað. Handritin fóru hringfer milli blaðanna og tímarit- anna. Hvernig fóru hinir að! Hann sat langar stundir á lestrastofum bókasafnanna og blaðaði í því, sem aðrir höfðu skrifað, gagnrýndi og mat það með ákafa og elju, bar það saman við það, sem hann hafði áður skrifað og var hissa á þvi, hvað það væri í verkum þeirra, sem gæfu þeim gildi fram yfir hans. Hann varð stein hissa á öllum þeim ósköpum, sem prentað var og þá var í raun og veru dautt. Það var líflaust og litlaust. Hann var hissa á öllum þeim smásögum, sem þó voru skrifaðar léttilega og læsilega en skortu allan lífsþrótt og veruleika. Lífið var, svo ótæmandi og dómlegt, — 138 — fult af óteljandi rannsóknarefnum, af draumum og tilraunum, og þó voru þessar sögur um hina lít- ilfjörlegustu hluti. Hann fann, hvernig lífið kipti i honum, lífið sjálft með öllum sínum undrum, baráttu sinni og uppreistar þrá. Það áttu að vera þeir hlutir, sem menn skrifuðu um. Hann vildi hylla þá menn, sem fluttu kynslóð þeirra til sig- urs eða dauða, unga menn, sem voru gripnir af tryltri ást, hetjur, sem börðust við ofurefii mitt í hörmunmungum og hami. En þessar smásögur höfðu ekkert annað erindi en að víðfrægja smá- menni eins og Charles Butler, óhreina ágirndar- púka, og smá ástaræfintýri smárra, einfaldra manna. Var það vegna þess að ritstjórarnir voru sjálfir svo grátleg smámenni! Eða voru þeir hræddir við lífið, þessir ritstjórar, rithöfundar og lesendur. En það aem honura var nú mest áhyggjuefni, var það, að hann skyldi ekki þekkja einn einasta rithöfund eða ritstjóra. Hann þekti ekki einn einasta mann, sem reynt hafði að skrifa. Það var engin til þess að ráðleggja honum hið minsta. Hann fór að efast um, að ritstjórarnir væru lifandi. Þeir voru eins og hjól í vél. Það voru þeir, þeir voru — vél. Hann hafði ausið úr sál sinni í sög- um, greinum og ljóðum og látið þaö í vélina. Hann braut handritin saman, lét nógu mörg frí- merki í umslagið, lokaði því, límdi ennþá frímerki á það og fleygði því síðan í póstkassann. Svo flæktist það þvert yfir landið og eftir lítinn tíma — 139 — kom pósturinn með það aftur í nýju umslagi og á það voru límd frímerkin, sem hann hafði lagt innan í sitt. Það var engin lifandi ritstjóri, sem skifti um umslög heldur skringileg samansetning af hjólum, sem skifti um umslög og límdi frímerkin á. Þetta voru eins og sjálfsalanir, sem látinn var koparskildingur í og síðan skilaði vindling eða súkkulaði eftir því, hvar skildingurinn varlátinn. Og eins var því farið með ritstjórnarvélina. önnur skilaði ávísunum en hin prentuðum synj- unum um upptöku á greinum. Alt til þessa dags hafði hann aðeins séð hin síðar töldu. En hann var ekki á því að gefast upp. Berj- ast skyldi hann til þrautar, stöðugt og með öllu þreki sálar sinnar. En nú voru peningar hans að þrotum komnir. Við hverja vikuna, sem hann borgaði lengur fæði og húsnæði án þess að fá neitt í aðra hönd, kom peningaleysið nær. Og burðargjaldið var nær því jafn hár útgjaldaliður. En nú var hann hættur að kaupa bækur og var byrjaður að spara til þess að verjast peDingaleys- inu 8em lengst. En hann kunni ekki að spara. Og eina vikuna gaf hann systir Binni 5 doliara fyrir nýjum kjól. Hann fann að hann barðist í myrkrinu, barð- ist einn og án ráða, án örfunar frá nokkrum manni. Enginn bar traust til hans, jafn vel Ger- truðe var tekin að efast um hæfileika hans. í byrjun hafði hún litið með systurlegri umönnun á hann og alla heimsku hans og barnaskap. En

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.