Morgunblaðið - 02.04.1922, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 02.04.1922, Qupperneq 3
MORGUNBLABIÐ Neðri deild. 1. frv. til laga um frainlenging á gildi laga um út- fiutningsgjald; 3. umr. 2. um kenslu heyrnar- og málleysingja 3. umr. 3. um sönnun fyrir dauða manna, sem ætla má að farist kafi af slysum; 3. umr. 4. um sameining' Dalasýslu og Stranda- sýslu; 2. umr. 5. um sameining Árnessýslu og Rangárvallasýslu; 2 umr. 6. till. til þingsályktunar tsm lánveitingar úr iRækftunar- sjóði; ein umr. 7. til þingsálykt- Unar um rannsókn á máli Arna Theódórs Pjeturssonar; fyrri umr. 8 til þingsályktunar um rann- eókn á skaða.bótamáli A. L. Pet- ersens; fvrri umr. 9. til þings- ályktunar um prentunarkostnalð ríkisins ; ein umr. 11. til þingsá- lyktunar um að skora á ríkis- •etjórnina að hefja skaðabótamál , ®egn tslandsbanka; ein mnr. --------o------- Blaðakonungurinn Northcliffe lávarður er nýlega kom- inn heim til sín, úr ferðalagi uinhverfis jörðina. Lagði hann á stað í september í haust og fór fyrst til Bandaríkjanna ■og Canada, þá til Japan og Kína, Ástralíu, Indlands, Gyðingalands og Egypt.alands, en þaðan til Prakklands. ítafa blöð hans eigi sparað að flytja frjettir af ferðalagi hans, langir pistlar hafa verið birtir um heimsóknir hans hjer og þar, um stórpólitískar viðrfeður hans við ýmsa höfðingja í ókunnum álf- um, og viðtökur þær, sem hann hafi fengið. Virðast þær frásagnir bera með sjer, að honum hafi hvarvetna verið fagnað sem stórhöfðingja. Sjálfur hefir lávarðurinn ritaðdanga ferðapistla, sem hirst hafa í „Times“, og fjalla þeir Gnkmii um skilyrði fyrir útflntningi Englendinga til ýmsra staða, er hann hefir heimsótt. pykir mörgum blöð- in hafa „reklamerað" óþarflega mikið, •og næstum ósmekklega fyrir eiganda sínum, og mjög er nú deilt um það, hvort Northcliffe sje eins mikill maður og af hafi verið látið. Á ófriðarárun- Um var vegur hans mikill. Hann beitti áhrifum sínum til þess, að Englending- «r legðu sig betur fram í styrjöldinni on verið hafði áður. Og um það leyti Var hann talinn voldugri en Lloyd George. Meðan þessir menii voru sam- hviga voru áhrif þeirra mikil. En þegar Styrjöldin lauk skildu leiðir. Lloyd Oeorge vildi sýna, að hann gæti vel komist af án aðstoðar blaðakongsins, og vináttunni var lokið. Northcliffe gerði alt sem hann gat til að spilla fyr- Tr forsætisráðherranum, og vildi meðal Ohnars afstýra því, að hann færi til VT ashington á ráðstefnuna þar, og greip L1 þeirra ráða, að láta blöð sín sví- virða Lloyd George og Curzon utan- ríkisráðherra, og gera þá tortryggilega í augum Ameríkumanna. Lloyd George fór ekki til Washington, en það var ekki fyrir áhrif Northcliffe, heldur vegna viðburðanna, sem um það leyti urðu í ^ílandsmálunum. Síðan þetta gerðist, hUm fífill Northcliffe lávarðar hafa fölnað stórum. Norskur ritstjóri, C. J. Hambro, hef- ir nýlega ritað persónulýsingar á ýms- Um merkum mönnum, og er í því safni að finna samanburð é ritstjóra þeim, Sem fyrstur skóp „Times“ frægð og Völd, J. T. Delane, og hinurn núverandi oiganda þess, Northcliffe lávarði. Per útdráttur úr því hjer á eftir. Á dögum Delane fórust Abraliam Lincoln svo orð: „Times“ er eitt af Uiestu stórveldum heimsins. Jeg veit okki af neinu, sem hefir meiri völd, hema þá ef það væri Mississippi“. — Times nútímans hefir mist mest af þess- etti völdum. Hvort aðstæðurnar og fram í'U'mnin á mikinn eða lítinn þátt í þessu, er erfitt að segja. En víst er það, að hæði fyr og nú getur blaðið haft áhrif á unnað og meira en smámuni, ef inikil- kæftir maður situr við stýrið. Og Delene vur tvímælalaust mikilhæfur maður. Hann varð aðalritstjóri „Tímes“ þeg- er hann var «23 ára, og var hann yngsti Garfsmaðiir við blaðið. Ef ekkert hefði ^erið varið í hann, hefði hann bráð- lega revnst ónýtur til þess starfa. En. í honum var sá rjetti efniviður, og það að hann kom svo ungur að blaðinu, gerði það að verkum, að hann fjekk aldrei tækifæri til að skifta starfskröft- um sínum milli óskyldra éhugamála, en hafði á herðum sjer alla hina miklu ábyrgð, sem skapaði persónulegt þrek. Delane stýrði „Times“ í 37 ár, frá 1841 til 1878, og þetta tímabil er merk- asti kaflinn úr sögu lilaðsins. Og áhrif- in, sem blaðið hafði á þessum árum, eiga ekki rót sína. að reka til fyrirkomu- lagsins á blaðinu, venju þess eða stærð- ar, heldur til Delane sjálfs. Áhrifanna frá honum gætti í hverri grein, sem blaðið flutti, frá leiðaranum, sem ávalt var um það efnið, sem mest var um rætt þann daginn, og til frjettagreina blað- í'itaranna. Delane skrifaði aldrei neitt sjálfur, en hann hafði hæfileika, sem enginn hefir haft betri til þess að vita hvað átti að skrifa. Eftir daga Delane náði Times aldrei þeim völdum, sem það hafði haft um hans daga, en þó voru orð þess ávalt mikils metin og áhrif þess mikil, einkan- lega ei'lendis, því þar var það orðin venja, að álíta skoðun „Times“ vera skoðun Englendinga. Nvi ræður yfir hlaðinu maður, sem kevpti það fyrir miljónir króna. Northcliffe lávarður hefir víst gert ráð fyrir, að hann hafi keypt völd blaðsins með nafninu. En hann er maður gjörólíkur því sem De- lane var. Alfred Harmsvvorth var líka koni- ungur þegar hann gerðist ritstjóri. En liann var sprottinn upp frá lakári end- anum, frá smáblöðum lægstu tegundar, barnablöðum, kveimablöðum, trúmála- blöðmn, og þaðan kom hann og náði tökum á dagblaðaútgáfunni. Vald hans varð sífelt meira og meira, þangað til svo var komið, að hann og bræður hans höfðu komið sjer upp blaðahring, sem náði til (50—70 blaðaútgáfu-fyrirtækja, og koma blöð þessi út í yfir 20 miljón eintökum. Kunnust allra blaðanna í þessum hring, máttarstoðirnar í „The Amalgamated Press“, eru „Daily Mir- ror“ og „Daily Mail“. Árið 1908 náði Northcliffe einnig tökunum á „Times“. pó að Northcliffe færi mjög gætilega meS blaSiS fyrst í staö, og reyndi að láta það halda þeim' blæ, sem það haf'öi haft, gat ekki hjá því farið að hinn nýi andi, andi Northcliffe, færi smám sam- an að gera vart við sig. Verð blaðsins var lækkað, og prentsmiðjuáhöldin end- urbætt í samræmi við nýjustu tísku. Og þegar ófriðurinn skall á, og enska stjóm in gerði Northcliffe að forstjóra blaða- undiiTÓðursins, þá fjekk hann djörf- ung til að fara að láta bera meira á sjálfum sjer í „Times“. En með þessu braut hann gamla venju blaðsins og losaði það úr jafnvæginu. Pegar Nor- thcliffe tók við blaðinu var hagur þess þröngur. Nú er það gefið út með mikl- um halla, og það sem verra er: það hefir mist áhrif sín. Og hver er ástæð- an önnur en sú, að nú var annar maður orðinn eigandi þess, maður, sem „re- klame“ hjekk við, en maður, sem var alls enginn ritstjóri. Enski rithöfund- urinn Hilaire Beloc gefur þessa lýs- ingu af „Times“, eins og það er nú: Ritstjóri þess var „gentlemann“ og velkominn gestur, eigandi þess lávarð- ur, sem varð altaf órótt þegar hann sá „gentleman' ‘. Northcliffe og blaðamenn af hans tagi skilja ekki, að blaðamenskan er köllun. Frá hans sjónarmiði er hún ekkert annað en kaupsýsla. pannig farast þessum norska blaða- manni orð. Er dómur hans ærið harð- ur, og sýnir, að mjög er um manninn deilt, eins og öll mikilmenni. pví það er Northcliffe, hverjum dómum sem blaða- menska og blaðaútgáfa hans sætir. -o Síðastl. mónudagskvöld hafði „Hljóm sveit Reykjavíkur“ afmælisfagnað í veitingasalnum hjá Rósenberg. par sem jeg hefi hvergi sjeð á þetta minst í blöðunum, þá þykir mjer það ekki óvið- eigandi að geta þess hjer með nokkrum orðum. Meðlimir Hljómsveitarinnar höfðu boðið nokkrum vinum sínum og vanda- mönnum, svo alls voru þátttakendur í fagnaðinum um 90 manns. Hr. fiðlu- leikari Theódór Ámason bauð gestina velkomna fyrir hönd Hljómsveitarinn- ar, og að því loknu ljek hún nokkur lög undir stjórn hr. fiðluleikara pórarins Guðmundssonar, sjálfri sjer til sóma og gestunum til ánægju. ( Dynjandi lófa- klapp). pá talaði Theódór aftur, sagði sögu sveitarinnar frá upphafi og sagðist vel Hljómsveitin sem stofnuð var 20. febrú- ar 1921 hafði ekki haft tök á því fvr en þetta að fagna fæðingu siuni — en það átti vel við, að hún veldi sjer þenn- an dag, því það var afmælisdagur hljóm jleikastjórans, Þ. G., sem sveitin á að þakka tilveru sína og framfarir. A þessu rúma ári, sem liún hefir lifað og starfað, hefir hún haft frá 20—25 mönn um á að skipa, haft 105 æfingar, nokkra opinbera hljómleika, og þar að auki leikið í konungsveislum síðastliðið sumar, svo annað verður ekki sagt, en að hjer sje vel á stað farið. Peir, sem kunnugir eru hljóiplista- lífi bjer í bænum og skilja þá örðug- leika, sem á því eru, að halda saman slíknm flokk í slíkum bæ, munu allir geta dáðst að þrautseigju og elju hljóm listastjórans; þeir munu, ekki síður en sjálfir meðlimir hljómsveitarinnar, þakka honum starf hans af heilum hug. Laun pórarins hafa ekki verið önnur en gleði sú, sem hann hefir haft af því, að heyra framfarir sveitarinnar, og sú glæsilega von, að úr þessum fáu leik- brieðrum sínum verði í framtíðinni f jöl- menn hljömsveit, sem fullkomlega geti jafnast ó við erlenda. Symfoniu Or- kestra. Margir munu hafa búist við því og talið það sjálfsagt, að hið háa Alþingi synjaði ekki pórarni um þann litla styrk, sem hann fór fram á að sjer yrði veittur til eflingar hljómlistalífí hjer í höfuðborginni. En þingið brást þeim vonum og ljet ekkert af hendi rakna. En þrátt fyrir það mun pórarínn ekki lóta hugfallast, til þess á hann of mikið af áhuga og eldmóði. Að samspilinu loknu ljeku þeir pór- arinn og Thteódór konsert duett éftir Bériot, og dáðust allir áð, (dynjandi lófaklapp). Og nú byrjaði dansinn, og það var nú dans í lagi. Svo var jetið, sungið og kvæði flutt, og svo dansað og sungið á ný, þar til dagur rann. Að lok- um vil jeg ósba hljómlistinni allrar blessunar í framtíðinni, og vona að hún eigi eftir að veita bæjarbúum marga gleðistund og auka þá menningu, sem sannri hljómlist fylgir. Einn af gestunum. 0- Frá Danmörku. Reykjavík 1. apríl Atviimudeilurnar. Aukning verkhannsins, sem ganga átti í gildi 1. apríl, hefir verið frestað í átta daga, vegna þess, að nú hefir að áliti sátta- semjaranna fundist grundvöllur fyrir endanlegu samkomulagi í deilunni. Pedersen-Nyskov dáinn. Pedersen-Nyskov ‘fólksþingsfor- seti, sem átt hefir sæti í fólks- þinginu síðan 1895 og verið .for- maður þess síðan 1913, andaðist 30. fyrra mán., 72 ára að aldri. Fjárlögin. Vði fyrstu umræðu fjárlaganna í landsþinginu danska sagði Neer- gaard forsætisráðherra, að lántaka handa ríkissjóði kallaði ekki að nú, því ríkið ‘hefði átt í sjóði 100 miljón krónur 1. mars síðastliðinn og væri því nóg til að' fullnægja þörfinni. Hefði ráðherrann því ekki fengist neitt við að undir- búa nýtt ríkislán. -o- isH li l hngl. „Gula Tidend“ flutti um áran ót- in siðustu grein þá sem hjer fer á eftir um kaup á íslenskum bjöðum í Noregi: ,.A öllum pósthúsum í Noregi geta menn fengið að gerast áskrif- áskrifendur að hvaða útlendum blöð um sem vera skal, nema íslenskum. Til leiöbeiningar fyrir póstmenn- ina eru gefnar Yit skrár yfir útlend blöð. Viljir þú leita að íslensku blaði á þeirri skrá, aðgætir þú vitanlega skrána vfir dönsku blöðin. Og þar er eitt einasta íslenskt blað, „ísa- fold“, sem er vikiiblaS og kemur út í Reykjavík. Á Íslandi eru gefin út nær 50 blöð og tíinarit og af þeim eru 2 (eða 3) dagblöð í Reykjavík. En póststjórn- irnar í Danmörku og Noregi vilja ekki láta Norðmenn lesa þau. Þau eru ekki í blaðaskránum. Þar er að- eins blaSið „ísafold“. Og svo halda kaupsýslumenn og aðrir, sem ekki vita betur, að aðeins eitt blað sje gefið út á íslandi. Og vilji einhver, sem þekkir bet- ur til, panta íslenskt blað á pósthús- unum, fær hann afsvar: póstmaSur- inn veit ekki hvað blaðið kostar og getur þess vegna ekki tekið á móti pöntun. Á þennan hátt hefir það gengið ár eftir ár. Póstmálastjórnin í Krist- ianiu svarar á sömu leiS. Hún þekk ir ekki önnur íslensk blöð en viku- blaðið ísafold. Öll liin blöðin e'ii póststjórninni óviðkomandi. I framkvæmdinni er þetta sama sem jnnflutningsbann á íslenskum blöSum. Vjer eignm í tollstríði við vínlöndin, en þó leyfir póststjórnin okkur að kaupa frönsk og spönsk blöð eftir vild. En bannar okkur að lesa blöð nánustu frœnda vorra. Þessari óstjórn hefir póststjórxim gert sig seka í ár eftir ár, bæði undir liægri og vinstrimannastjórn, hún bannar íslenskum blöðum landvist í Noregi“.--------- I sambandi við þetta mál minnist greinarhöfundur á f jelagið ,Norden‘ og starfsemi þess. Segir hann að f je- lag þetta þykist beita sjer fyrir sam- vinnu milli skandinavisku þjóðanna, en svo líti út, sem að f jelagsstjórnin lialdi, að Norðurlönd sjeu ekki nema þrjú, Danmörk, Noregur og Svíþjóð. ísland eigi engan fulltrúa í fjelag- inu og fái ekki að vera með. Þessu svaraði formaður fjelagsins, próf. Hagerup Bull, nokkrnm dögum síð- ar. Segir hann þar, að íslendingar sjeu vitanlega boðnir og velkomnir í fjelagið, en það sje að svo komnu rnáli til fyrirstöðu, að á íslandi hafi ekki enn verið stofnað fjelag, með því markmiði að ganga inn í sam- bandið, og muni það helst vera til fyrirstöðu, að það sje nokkuð dýrt. Segir prófessorinn, að íslendingum hafi fyrir löngu verið boðið að stofna fjelagsdeild fyrir ísland og taka þátt í starfsemi f jelagsheildar- innar.--------- En livað blöðin snertir þá er senni- legt, að ekki þurfi annað en mála- leitun frá póststjórninni hjer til norsku póststjórnarinnar, um að ís- lensk blöð verði tekin upp á norsku blaðaskrána. Er þar með ráðin bót á því ástandi sem nú er, og NorS- mönnum.gert fært að kaupa íslensk blöð, fleiri en þetta eina, sem minst er á, og nú er úr sögunni. -------o-------- Samskot til rússneskra flóttakvenna í Konstantínópel. Skilagrein. Safnað á fundi i Bárunni 212.00; Hreinn ágóði af kveimaskeintuninni 5 Iðnó 319.60. Gjöf frá kvenfjel. Freyja i Keflavik 100.00. Frá konum í Kefla- vik 301.00. Tvær fundarkonur. 2.00. Tvær fundarkonur 3.00. Guðrún og Gunnþórunn 10.00. Frú María Jónsd. og stúlka 10.00. Ragnh. Jónsdóttir 4.00. N. N. 100.00. Jón Jónsson beyfc- ir 10.00. Afh. af Á. J. 5.00. G. Þ. 5.00. E. S. 10.00. G. Sv. 5.00. St. og M. 5.00. Frá ónefndum 5.00. Símafólkið í Rvik 50.00. Frá ónefnd. 5.00. Stór- kaupm. Ólafur Johnson 200.00. K. G. 5.00. Ó. og R. 10.00. Frá starfsfólkinn á Kleppi 50.00. Jón Jónsson Tjarnar- götn 4 30.00. Frú Jakobína Helgad. 10.00. G. B. 5.00. T. p. 5.00. E. I. 3.00. . Halld. Jónsd. 5.00. Jón Einar 10.00. Kona J. Sigm. 3.00. B. A. 5.00. K. Hermanns. 5.00. Ónefnd 10.00. Sigr. Halld. 10.00. Ragnh. 2.00. Dalhoff 10.00. Helga 5.00. Kona 5.00. Stúlka 5.00. Gyða 2.00. Guðrún 5.00. Krist- jana 10.00. Ólafur 10.00. Sigga, Einar og Bagga 30.00. Dosla 10.00. Frú M. Rasmus 5.00. H. J. H. 10.00. Safnað í Hafnarfirði 400.00. Frá sjúklingum á Vifilsst. 10.00. Frá gamalli konu 5.00. Frú Ragnh. Þorbjarnard. 5.00. Ungfr. Sigr. Björnsd. 20.00. G. P. safnað 11.00. Magniús Th. Kjartars- son 10.00. Hluti af ágóða af skemtun í Nýja Bíó 355.00. M. P. 10.00. Ó. L. 15.00. N. N. 10.00. p. F. 5.00. Safnað af frú Kr. B. Símonarson kr. 70.00. Áheit, afh. frú Kr. B. S. kr. 100.00. Samtals krónur 2.662,60. Af samskotum þessum hefir verið sent til skrifstofu dr. F. Nansens í Genf kr. 2026, og vil hjer með nota tækifærið til að flytja kærar þakkir frá dr. Nansen til allra gefendanna. Þareð samskotunum til rússneskra kvenna í Konstantinópel er þegar lok- ið, verður afgangurinn, kr. 636.60, látinn ganga til hungurssamskotanna rússnesku. Fyrir hönd Bartdalags kvenna. Steinunn Hj. Bjarnason. --------o-------- í 95. tbl. Morg’unblaÖsins hefir, Matthías Þórðarson fornminjavörð ut gert grein fyrir samskotum til aðgerðar Bessastaðakirkju og jafn framt tilgreint helstu aðgerðir á kirkjunni. Segir bann rúmar 200 krónur óeyddar af samskotafjenu en það hrökki skamt, því enn þarfnist kirkjan talsverðar aðgerð- ar — Síðan Jón Þorbergsson óð- alsbóndi á Bessastöðum bauð forn- minjasafninn kirkjuna til eignar og umráða, að því er mig minnir, árið 1917, og gaf kirkjunni þá jafn framt mjög rausnarlega, bef- ir fornminjavörður látið sjer mjög umhugað um viðbald og vemdun hennar og endurnýjun á þann hátt að leifa rliins forna stíls, sem enn eru óbaggaður, hjeldust sem mest óbreyttar, enda er hann manna smekkvísastur á þá hluti. Ríkið hefir enn ekki tekið kirkj- una á sína arma og óvíst mjög að svo verði, þrátt fyrir hinn ósjerplægna áhuga fomminjavarð- ar á því, að vernda hana sem aðrar fornminjar landsins frá glöt un. En til þess að fje það, sem þegar hefir verið varið kirkjunni ti! endurbótar komi að fullum notum, er nauðsyn að lúka að- gerðinni hið hráðasta því enn er margt ógert til þess að endurbæt- urnar verði varanlegar. Vonandi er því að vel verði brugðist við tilmælum fomminjavarðar um gjafir til fullkominna endurbóta. Þó Bessastaðakirkja geti máske

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.