Morgunblaðið - 09.08.1922, Blaðsíða 4
MORGUNBLABIB
ar Iragsanir, 47. Yfirlit í árs-
byrjnn 1916, 48. Löglei,ðing her-
skyldramar í Englandi, 49. Fram-
eftir árinu 1916.
----->•----
-= DABHÓt E-
Emil Thoroddsen. heldur hljómleika
í Bárunni annað kv. 'kl. 9. Leikur hann
þar lög eftir Beethoven, Brahms,
Chopin og Lizt. E. Th. hefir ekki
áður spilað hjer opinberlega neitt
að ráði, en lagt stund á píanóleik
lengi og niá Síðast í Þýslkalandi. Um
4 síðuStu misserin hefir hann dvalið
í Dresden eingöngu við þeitta nám.
Hann hefir einnig lagt stund á mál-
aralist og hafa myndir eftir hann
verið tieknar hjer á opinberar lista-
sýningar og þóltt góðar. Hann er stú-
dent hjeðan frá Reykjavíkur skóla,
'en hefir dvalið erlendis síðustu árin
og mun sigla aftur með haustinu.
í>ó ekkert verði um það sagt að
óreyndu, hvernig honum muni tákast
hljómleikamir, Verða sjálfsagt margir
til að ssikja þá, þó tíminn sje ekki
heppilegur og margir úr bænum, enda
eru mörg viðfangsefnin aðlaðandi og
alkunn listaverk.
Groðafoss var á Seyðisfirði í gær.
Hey er nú daglega flutt til bæjar-
ins. Kom bábsfarmur ofan úr Leir-
ársveit í gær.
Síldveiðin að aukast. Frá Akureyri
var símað í gær, að mikill síldarafli
hefði verið á öllum veiðistöðvum við
Eyjafjörð í fyrrinótt og gær, Hefðu
vjelbátar komið með frá 3—5 hundr-
uf tunnur, en togarar frá 4—700
tunnur. Gott veður var sagt þar, og
hefir því fiíldin gefið sig betur til.
Nóg komið. f gær endar langloka
sú í Alþýðublaðinu, sem H. J. S.
Ottósson hefir verið að birta þar
undanfarna daga. í eftirskrift við
langlokuna kveðst hann reiðubúinn
að fara rækilegar út í efnið, ef ein-
hver vilji fræðast um málið frekar.
Elestum mun nú finnaat nóg komið
af isvo góðu. Búast menn ekki við
að þeir vitkist við það, þó hann
færi að útskýra vitleysu með vitleysu.
Því annað en bull getur hann auð-
sjáanlega ekki um þetta dkrifað.
Trúlofun sína opinberuðu síðastl.
sunnudag hjer í bænum ungfrú Þór-
hildur Briem, dóttir Páls sál. Briem
anxtmanns og Theodór Línldal stud.
* juris frá Akureyri.
I
Vínsmyglunin. Rjettarhald var í gær
yfir skipstjóranum þýska, sem sett-
ur var hjer í gæsluvarðhald í fyrra-
kvöld. En ekkert kom nýtt fram í
ználinu. Naumann skipstjóri heldur
fast við fyrri framburð sinn, að bann
jBje á leið til Ameríku og háfi alls
ekki ætlað að selja vínföng hjer. Þó
t
hafa menn komist að því, að skipið
mun hafá komið hjer upp að land-
inu 31. júlí. Enn hefir ekki Verið
rannsakað, hvort farmurinn er jafn-
mikill og skipsskjölin bera með sjer,
að öðru leyti en því, að skipstjórinn
hefir játað, að hann hafi eytt 5 köss-
um á leiðinni. Þykir mönnum trú-
legt, að meira sje farið. í dag verð-
ur málið enn rannsakáð, próf haldið
yfir allri slkipshöfninni og ef til vill
símað til burtfararstaðar skipsins á
Þýskalandi.
Hjónaband. Á morgun verða gefin
saman að Yalþjófsstað Múlaþingi,
dóttir prestsins þar, ungfrú Bryndís
Þórarinsdóttir og Ámi Sigurðsson
fríkirkjuprestur hjer í Reykjavík. —
Faðir hennar gefur þau saman og
munu þau svo flytjast hingáð innan
skamms og hann taka við starfi sínu.
Verslunarráðið og kaupþingið fá
húsnæði á komandi hausti á eftsu
hæð í húsi Eimákipi,- elagsins. Er
þar salur, sem er heritugur fyrir
kaupþingið, miklu stærri en sá sal-
ur, iSem það nú hefir á öðrum stað
í húsinu, og með hliðarstúkum, þar
sem meun geta talað saman í næði.
Tvö herbergi eru þar ætluð skrif-
stofum verslunarráðsins og eitt versl-
unarráðinu. Mætti þetta, að næg og
góð húsakynni fást fyrir verslunar-
ráð og kaupþing, stuðla að viðkvnn-
ingu og samheldni meðal verslunar-
stjettarinnar og ljetta viðsfcifti á
ýmisan hátt, því svo er til ætlast, að
ýmis konar verslunarviðskifti geti
farið þarna fram.
/
Sigurður Einarsson, sonur Einar.s
Markússonar áður ritara í Stjórnar-
ráðinu, er nýkominn híeim frá Nor-
egi, eftir nálega sex ára dvöl þar, og
htfir tekið gott próf við norskan
búnáðarskóla. .Einar fór ntan 1916,
með síðustu ferð Flóru hjeðan, var
fyrst við ýms störf, en fór svo á
búnaðarskóla Mæri og lauk þar
námi fyrir alllöngum tíma, en hefir
«vo verið á nokkrum sttórum bú-
görðum norðan við Þrándheim.
Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn í
gær með 40 farþega.
Atkvæðakassar eru enn ókomnir úr
5 sýslum, Þingeyjarsýslunum báðum,
Skaftafellssýsllunum og Árnessýslu.
Ástæðan til þess að atkvæðin eru
ekki komin úr Þingeyjarsýslum er
sú, að þau voru send ineð landpósti.
!
Fyrirlestur heldur dr. Kort Kort-
sen í kvöld í Iðnó kl. 9 um spírit-
ismann. Er hann fyrsti útlendingur-
inn sem hjer flytur erindi um það
efni. Mun því margan fýsa að heyra
hvað hann hefir um þetta mikla
ágreiningsmál að segja, og það því
fremur, «em hann hefir rannsakað
það lengi, skrifað bækur um ein-
kennileg fyrirbrigði sálarlífsins og
stundað sálsýkisfræði við erlenda há-
skóla. Má því gera ráð fyrir, að
hí.nri hafi margt nýtt og merkilegt
öegja um málið. Hann er og kunn-
ur að því að vera varfærinn og
gætinn í ályktunum sínum og s'tað-
hæfingum, og er það kostur, þegar
um svo margbrotið og þýðingarmikið
mál er að ræða. — Hjer, í bæ hafa
menn sýnt svo miMnn áhuga á því
ag kynnast spíritismanum, að sjálf-
sagt setja menn sig ekki úr færi að
heyra hvað dr. Kortsen hefir um
hann að segja.
Vikuafli. Vikuna frá 29. júM til 5.
ágúst voru saltaðar á Akureyri 5927
tnnnur og kryddaðar 744 tunnur. En
á Siglufirði voru saltaðar 24011 og
kryddaðar 1592 tunuur, eða alls yfir
vikuna 32.271 tnnna.
Síldveiðarnar vestanlands. í ísa-
fjarðarumdæmi var saltað vikuna
milli 29. júlí og 5. ágúst 5.521 tn.
Magnús Guðmundsson fyrv. fjár-
málaráonerra auglýsir njú hjer í blað-
inu, að hann taki að sjer að gegna
málfærslustörfum.
• t
Botnía kom hingað M. 9 í gær-
kveldi frá útlöndum. Farþegar voru
margir, þar á meðal Jakob Möller
ritstjóri, Magnús Sigurðsson bankastj.
Þórður Edilonsson læfcnir og frú
hans, Ólafur Þorsteinsson læknir og
frú hans, Matthías Þórðarson forn-
menjavörður, Bjarni Jónsson Bíófor-
stjóri og frú hans, Geir Zoega kaup-
maður, Gunnar Kaaher, Ámi Thor-
laeius, Kampmann lyfsali og frú
hans, frú Unnur Bjaridind, frú Guð-
rón Carlson. — Frá Yestmannaeyjum
komu Jón Hinriksson og Snæbjörn
Amljótsson kaupm.
fiEÍmanmundurinn
Herslmfslili Isisiís
tekur til starfa mánudag 2. okt. n.k. kk 4 e. h. Starfsfyrirkomulag
verður hið sama og áður og sömu inntökuskilyrði. Umsóknir send-
ist skólastjóra.
Reykjavík, 8. ágúst 1922.
Jón Sivertsen.
Islenska smjörlíkið
fœst nú glænýtt i öllum verslunum og hefir lækkað
um 10 aura hvert kg.
B. D. S.
„Það segir sig sjálft að jeg álít
það skyldu mína að sjá þeim öllran
bcrgið að svo miMu leyti sem jeg
cr fær um!“
— Jæja þá — en nú skal jeg
segja þjer nokkuð! — Jeg er bú-
ii n að sjá að það er ómögulegt að
tala við þig neitt af skynsemi, í
dag. En jeg hefi svo mikið traust
á þjer að jeg vonast enn til að þú
áttir þig þegar þú færð tíma til
að hugsa rólega um málið. Lausnar-
heiðni þína verðurðu auðvitað að
senda — eins og nú er ástatt, verð-
nr víst ekki hjá því komist. Nú er
ekki ran annað að tala, en að
reyna að búa svo um hnútana að
þú fáir inngöngu í herinn aftur
seinna. Þú veist hvað til þess þarf
— þann dag sem þú sækir um skiln-
að, stígur þú fyrsta sporið í þá átt.
— Það spor stíg jeg aldrei,
hvorki nú nje nokkurn tíma
seinna! jeg gef þjer drengskapar-
orð mitt fyrir því! Á því getur
þú sjeð að það er ekki' til neins1
að minnast á það framar“. I
Augu ofurstans tindruðu af
reiði, sem hann ekki gat dregið
dulur á.
— Og jeg — jeg gef þjer dreng-
slaparorð mitt fyrir því, að ekk-i
ert band skal tengja okkur saman
L meðan þú ert giftur þessari I
konu! Fyrir öllum, sem a cnslaðir
eru Bereitenbach , loka jeg dyr- í
nm mínum! Heldur vil jeg .gefaj
c’iihverjnm slátraranum höllina á
e;gn minni og alt, sem henni
tilheyrir, en að jeg vilji láta dóttur I
þessa Breitenbachs ráða þar Iög-
um og lofum! — þetta er mitt
svar — og nú veistu livtmig á-
siatt er milli mín og þín.
Bernd fölnaði, en hann gleymdi
ekki að hann átti tal við föður sinn
cg stilti sig því.
— Mjer þykir fyrir, hve lítil-
mannlega þjer ferst, en það hefir
engin áhrif á fyrirætlanir mínar.
Ef að þú lítur svo á, að sómatil-
finning þín bjóði þjer að afneita
mjer, af þeirri ástæðu að jeg geri
skyldu mína, eins og hverjum vönd-
nðum manni ber, þá verður þú að
eiga um það við þína eigin sam-
visku — jeg geri það, sem mín sam-
viska býður mjer.
Hann greip hattinn sinn og fór
fram að dyranum.
Ofurstinn virtist eiga í haráttu
við sjálfan sig. Hann þekti son sinn
of vel til þess að vita ekki að hann
mundi aldrei af eigin hvöt koma
til sín aftur, ef hann ljeti hann fara
svona frá sjer. En hann gat ekki
tekið aftur það, sem hann var ný-
búinn að segja; þess vegna kreisti
hann saman varirnar og þagði.
E.s. ,Sirius*
fer hjeðan, samkvæmt áætlun, laugardaginn 12. þ. m. vestur og
norður um land, til Noregs.
Flutningur tilkynnist eigi siðar en fimtudaginn 10. þ.m*
Farseðlar sækist sama dag.
Nic. Bjarnason.
Mikið úrval nýkomið.
Landstjarnan.
Nýjar
kartöflur
frá Reykjum fást í smásölu
hjá Jóni Hjartarsyni & Co.
(Sími 40) og wersluninni
Baldur, Hverfisgötu 56 (sími932)
Herbergi með eða án hús-
gagna óskast nú þegar til l.okt.
Upplýsingar í síma 656.
TapaS. — Fundií.
Mansjettuskyrtuhnappur
hefir fundist. Ólafur V. Ofeigs-
son gefur upplýsingar, í versl.
Vaðnes.
Gengi erl. myntar.
8. ágúst 1922.
Kaupmaxraahöfn.
Sterlingspund - 20.71
Dollar
Mörk 0 63
Sænskar krónur 121.50
Norskar krónur . 79.85
Franskir frankar . 37.90
Svissneskir frankar .. . 88.55
Lírur
Pesetar
Gyllini
Reykjavík. 1
Sterlingspund . 25.80
Danskar krónur . 124.64
Sænskar krónur . 154.46
Norskar krónur 101.39
Dollar . 5.92
Hurdarskrár,
Húna og Lamir selur
Versl. Brynja.
Til sölu:
tveggja ára gamalt mótorskip
circa 26 tonn sterkbygt og f
ágætu standi með 44 hestafla
Gideonmótor, selst ódýrt gegn
borgun um leið. Nánari upp-
lýsingar hjá
O- Tynes
— Siglufirði. —
líandaðar
svefnherbergis
möblur
verd kr. 750,00 7. stk. í alt.
Til sýnis í Suðurgötu
14 niðri.
nÉi
Mikið úrval.
Landstjarnan.
Hafið hugfastp
að bestu kaup á
málningavörum eru i
Aðalstræti ll9
vegna þess, að sjerstök áhersla
er lögð á að hafa eingöngu bestu
fáanlegu vörurnar á boðstólum.
Af þessu geta allir reitt sig á,
að hvergi er málningin betri nje
verðið lægra. Kynnið yður verð-
ið í Aðalstræti 11 áður en þjer
festið kaup annarsstaðar.
Daníel Dalldórsson.