Morgunblaðið - 22.08.1922, Síða 2
MORGUNBLAHI
F.r-
rrierk ummæli um Island.
Diötal uiö hr. Kurthals-RltES.
Staddur er hjer í bænum um
þessar mundir merkur gestur i'it-
lendur, sem undanfarnar vika:-
liefir veri?5 á ferðalagi um landið
á.samt frú sinni. Er þaö hollenskur
aðalsmaður, J. Korthals-Altes,
frægur maður í fööurlandi sínu
og virtur vel fyrir margra hluta
sakir. Hefir hann um ár&tugi
v'erið þingmaður á ríkisþinginu
hollenska, sem fulltrúi fyrir land-
búnaðarkjördæmin Hoorn og Ed-
am. Er hann formaður landbúnað-
arfjelagbinfe *í hjeraði sínu óg
hefir mjög verið við landbvinað
riðinn, er sjálfur óðalsbóndi og
hefir mjög starfað að ýmislegum
endurbótum í búnaði. Hefir hann
mjög fengist við rannsóknir á
jarðvegsbreytingum, þurkun lands
og ööru því líku, og af öðrum
afskiftum hans af landbúnaðar-
málum má nefna baráttu hans
fyrir nýbýlahreifingunni, sem hjer
er kölluð svo, í föðurlandi sínu.
Er hann kunnur mjög fyrir vís-
indastarfsemi sína á sviði jarð-
vegsbóta og sögulega rannsókn
á búnaðarháttum Hollendinga. -
Síðustif tvö árin hefir hann dvalið
í Englándi til þess að rannsaka
áhrif hollensks landbúnaðar á
búnaðarháttu Englendinga og er
að skrifa sögulega og tekpiska
bók um það efni. Hefir honum
verið sýndur ýms sómi sem vís
indamanni, og meðal annars ver-
ið kjörinn meðlimur konunglega
landfræðisfjelagsins bretska.. Perð-
ast hefir hann víðsvegar um heim
og haft persónuleg kynni af ýms
um merkustu mönnum’ samtíðar
sinnar.
Þau hjónin komu hingað til
íands í júní og lögðu þá þegar
í ferðalag hringinn í kring um
ísland, sem þau eru nú nýlega
komin úr. Hafa þau farið ríðandi
alla leið, upp á gamla og góða
vísu, og farið jafnan bygðir. Má
telja þetta frækilegt ferðalag af
'fólki, sem er allsendis óvant ís-
lenskum ferðalögum og erfiðleik-
um þeim, sem þau hafa í för
með sjer.
Morgunblaðið fór nýlega á fund
Mr. Korthals-Altes og bað hann
segja frá ferðalagi sínu og hvern-
ig land og þjóð hefði komið hon-
um fyrir sjónir. Við fyrstu spurn-
ingunni, mm tildrögin til þess að
liann hefði tekist þessa löngu og
erfiðu ferð á hendur, var svarið
þetta:
— Jeg hefi ferðast mikið um
æfina og sjeð mörg og ólík lönd.
ísland liggur fjarri þjóðvegum
ferðalanganna, en spumir þær, er
jeg hafði af landinu, þegar í
bernsku, voru þess eðlis, að jeg
þráði að komast. til íslands. Og
árið 1908 bar svo við, í veitslu
sem haldin var í hollensku sendi-
sveitinni í Briissel, að íslands var
getið, og beitstrengdi jeg þá að
Iáta ósk mína uppfyllast og heim-
sækja Island ef líf og heilsa entist.
Svo leið og beið. í vetur las jeg
ensku blaði símskeyti er sagði
frá stofnun fjelags enskumælandi
manna í Reykjavík. íslands >er
ekki oft getið í stórblöðunum,
og mjer fanst þetta vera bending
um að nú ætti jeg ekki að láta
ferðalagið dragast lengur. Því lof-
— Og- sjáið þjer ekki eftir
f erðalaginu ?
— Nei. Þjer megið trúa mjer
er jeg segi, að mig langar ekki
eins mikið til neins og þess að
geta orðið íslandi að einhverju
liði. Því að ferð okkar hjónanna
til Islands og um landið, hefir
kent okkur að þekkja ^landið
og elska það og íslendingar hafa
komið okkur svo vel fyrir sjónir
að við minnumst þeirra ávalt
með velvildarhug'. Og jeg trúi á
framtíð íslands.
Mr. Korthals-Altes heldyr áfram:
— Það er mjög eftirtektarvert
hve andleg menning er á háu stigi
hjer á landi. I allar þessar níu
vikur sem við höfum verið hjer,
höfum við aldrei hej’rt misjafnt
orð hjá þeim, sem við höfuiír'
átt að sælda við- Og sá sem ekki
skilur landsbúa er þeir tala sam-
an, notar augun þeim mun betur.
Á öllu ferðalaginu hefi jeg aldrei
sjeð íslendinga rífast, aldrei seta
upp vonskusvip eða fyllast gremju.
Og það finst mjer bera vott um
holla menningu, sem hwr þjóð
þjóð geti verið hróðug af. Og
framkoma fólks hjer finst mjer
bera þess órækan vott,1 að íslenski
kynstofninn sje hreinu og göf-
ugur og þjóðin háættuð.
í þessu sambandi get jeg ekki
látið hjá líða að minnast þess,
hve heimilislífið úti um sveitir
íslands kom mjer vel fyrir sjónir.
Mjer virtist því líkast sem alt
heimilið væi’i ein fjölskylda, þar
sem allir ynnu að sameiginleguny
hagsmunum. Og mjer fanst ein-
hver gömul og háleit erfikenning
váða orðum og athöfnum hvers
einstaklings og stjói’na þeim að
sama marki.
Vjer biðjum Mr. Korthals-Altes
að láta í ljó álit sitt á ‘atvinnu-
vegunum og svarar hann á þessa
leið:
— Hvað atvinnuvegina snertir
þá dylst engum að miklu munar
á liáttum þeirra. í bæjunum virð-
ist svo, sem fiskveiðarnar sjeu
rekhar eftir nýjusu tísku. Á því
sviði lifa Islendingar í nútíðinni.
En þegar jeg fór að ferðast um
sveitirnar fanst mjer jeg vera
kominn svo langt aftur í tímann,
að mjer meira en datt í hug hvort
jeg mundi ekkj rekast á Snorra
Sturluson eða einhvern hans sam-
tíðarmann á næsta bæ, sem jeg
hitti fyrir. — En jeg hefi, þrátt
fyrir þetta, óbiluga trú á við-
gangi Islands. En þá er það að-
alatriðið að leggja stund á full-
komnun landbúnaðarins. Og þar
er einkum þrent fyrir. í fyrsta
lagi að auka ræktun landsins,
í öðru lagi fjölgun kvikfjenaðar
og framleiðsla og útflutningur
smjörs og osta og í þriðja lagi
efling skógræktarinnar.
Hvað snertir fyrsta atriðið,
aukna ræktun landsins. þá verð
jeg að telja það nauðsynlegt að
skifta stórjörðunum í smærri býli.
Það er vafalarast, að nú sem
stendur eru of stórar jarðeignir á
einni hendi, og þessi hönd er í
rauninni altaf vanmáttug hönd,
sem ekki getur afkastað því að
nota þessa eign sína í líkingu við
það, sem vera bæri. Og afleiðing
þessa er rányrkja sú, sem jeg
orð eru gefin til þess að halda þau. | því miður hefi orðið vottur að
alstaðar á ferðalagi mínu, mjer
til leiðinda. Mjer var ánægja að
sjá verk það, sem verið var að
vinna fyrir austan Olfusá (Flóa-
áveituna) og miðar að því að
auka grasfenginn með áveitum.
En jeg er þó sannfærður um
það að vatnveitingar á stórum
svæðum styðja að aukinni rán-
yrkju og eru fullkominni jarð-
yrkju , Þrándur í götu. Mín per-
sónulega skoðun er sú, að þurkun
lands og djúpplæging ásamt full-
nægjandi notkun áburðar sje
miklu affarasælli fyrir landið,
einkanlega ef stórjörðunum jafn-
framt er skift í smærii býli,
sem yngum mönnuin verði kleyft
að fá til ábúðar og rækta til full-
nustu. Ungum og áhugasömum
íolendingum, sem nú fara til ann-
ara landa upp á von og óvon
eða þyrpast til kaupstaðanua, gæf-
ist með þessu móti kostur á að
dvelja í heimahögum sínum, reisa
þar bygðir og bú og vinna' að
heill og hagsæld fjölskyldu sinnar
og ættjarðar.
Jeg kem þá að öðru atriðinu.
Sjerhver bóndi mun vera mjer
samþykkur í þvi, að um leið og
ræktun jarðarinnar eykst skap-
ast skilyrði til þess að auka naut-
peningsræktina og samfara því
felst æ meira til af áburði, er
skapar möguleika fyrir bættri og
meiri ræktun landsins, ár frá ári
og þá um leið aukna framleiðslu
smjörs og osta. Fleiri og miui/i
býli á sama svæði skapa mögu-
lcika fyrir sainvinnu, ekki aðeins,
um það að kaupa tilbúinn áburð
og þessháttar heldur einnig til
þess að koma upp smjörbúum
og ostagerðum.
Og skógarhir. Hverjum sem
vildi gera sjer ljósa þýðingu þá,
sem skógarnir hafa fyrir Island,
vildi jeg ráða til að koma að Hall-
ormsstað og sjá þar hverju ís-
lenskur jarðvegur, gróðrarmagn
og loftslag getur áorkað. fslenskur
landbúnaðarráðherra, sem tækist
það hlutverk á hendur að skylda
menn með lögum til þess að friða
skógana í haglendi sínu nokkra
mánuði á hverju ári fyrir hinum
eyðileggjandi ágangi búfjár,
mundi ef til vill hljóta óvild
núverandi kynslóðar . bændastjett-
arinnar, en barnabörnin mundu
bera þalcklætishug til hans.
— Um þessar mundir er mjög
unnið að endurbótum og nýung-
um í landbúnaði, segjum -vjer.
Hafið þjer hvergi orðið þess var,
að áhugi sje vaknaður fyrir um-
bótum í búnaði ?
— Mjer hefir veitst sú ánægja,
að taka eftir áhrifum hinna ágætu
og vel stjórnuðu bændaskóla á
Hvanneyri og Hólum, á nokkrum
bæjum, sem jeg hefi komið á.
Þessir skólar munu vera mjö<:
fullkomnir. En jafnframt þessari
bændamentun held jeg það væri
heillaráð af landsstjórninni hjer
að koma upp á nokkrum jörð-
um víðsvegar um landið tilrauna-
stöðvum þar sem feiigist gæti
reynsla um mýraþurkun, nothæfi
helstu tilbúinna áburðartegunda,
gagnsemi áveitu, hafrarækt, — alt
í smáum stíl og aðeins sem til-
raun. f sambandi vil tilraunirnar
á Hvanneyri og Hólum vildi jeg
nega minriast á hinn ágæta árang-
ur, sem orðið hefir af tilraun-
raunum með „tilbúinn húsdýra-
áburð“, uppgötvun sem Rotham-
sted tilraunastoðin í Harpenden
(Englandi) hefir tekið einkaleyfi
á og rannsakað. Til frftraleiðslu
þessá ábrðar þarf aðeins nroð-
rusi, hálm, kartöflugras og ann-
að þessháttar, að ótöldu vatni og
efnasambandinu, sem orsakar efn-
isbreytinguna, og einkaleyfl hefir
verið tekið á. Einnig vildi jeg
gjarnan mega ráða Mendingum
til þess, að spyrjas't fyrir um ár-
angur tilrauna þeirra, sem gerðar
liafa verið í Rothamsted til að
rannsaka notkiui rafmagns til
þessa að flýta fyrir korngróðri
og bæta liaim. Íslendingum, sem
hafa svo mikið af vatnsorku til
þess að framleiða rafmagn, gæti
orðið mikill gróði af því. að kvnna
sjer þetta mál, sem í framtíð-
inni gæti orðið þess valdandi að
landið breyttist svo, að verða
kornflutningsland ,í stað þess að
flytja iun alt koru eins og það
gerir nú. Er ómögulegt að gera
sjer í hugarlund hver áhrif þetta
getur haft á hlutfallið milli inn-
fiutnings og útflutnings og hve
mjög það getur aukið auðæfi ís-
lensku þjóðarinnar.
Landbúnaðurinn er vísindi.Hann
>er iðnaður og háður sama lög-
máli eins og öll önnur atvinnu-
tyrirtæki, hann verður að vera
rekinn samkvæmt reynslu vísind-
anna. Þar verður ávalt að kynna
sjer nýjar aðferðir og uppgötv-
anir.
Að minni hyggju er þvílíkt
varið hjer eins og heima hjá mjer
í Hollandi, að of mikið vatn liáir
jurtagróðrinum. Hefð) jeg gam-
an af því, að halda fyrirlestur
um þetta mál hjer og sýna með
mynclum álirif þurkunar á mýr-
lendið hollenska og eggja menni
til aukinnar ræktúnar og skifting-
ar stórjarðanna í smábýli, er yrðu
þiautræktuð, he'lst fyrir einstak-
lings tilstilli, en ef *ekki það, þá
ai samlagsfjelögum. Jeg gleymi
því ekki að mikill munur er á
hfslagi hjer og í Hollandi, en hið
ágæta og næringarmikia gras, sem
vex á túnunum hjerna, gefur mjer
fylliLega ástæðu til. að ætla, að
að þ'að borgi sig betrar að rækta
gott gras á fullræktuðu engi, en
stargresi og sef á mýrlendisengj-
um, þar sem illfært er að ríða
um í júlí og ágúst vegna vatns-
aga.
Jeg vildi óska að hver einasti
íslenskur drengur hefði tækifæri
til að ferðast um allar bygðir
íslands, að loknu’ námi sínu í
skólanum, eins og jeg hefi gert
í sumar, til þess að öðlast aukna
trú á landi sínu og þjóð. Jeg hefi
fylst mikilli aðdáun fyrir íslerisku
þióðinni, þjóð sem hefir verið
fullvalda í aðeins fjögur ár, og
aðeins haft frjálsa verslun síð-
an 1854.
Það er undravert hve miklu
þessi þjóð hefir getað afkastað
og afkastar á ári hverju. og því
undraverðara þegar þess er gætt,
að liún telur aðeins tæplega
100.000 sálir. Talsímar og rit-
símar eru um alt land, í ágætu
standi og ódýrir í notkun. Og
mig langar til að láta virðingar-
kveðju fró mjer til landpóstanna
íslensku sjást á prenti; þeir eru
hetjur sem leggja mikið í hættu
til þess að gegna skyldu sinni
eigi síst á vetrum, er þeir verða
að glíma við ofsabylji og spiltar
ár. Vegirnir eru alstaðar eins
góðir og hægt er að búast við
og alstaðar sá jeg viðleitnina á
því aS bæta þá. Og finnist ein-
hverjum þeir ekki nógu góðir,
þá má ekki gleyma hinram feyki-
legu erfiðleikum sem á því eru
að halda við vegum í strjálbygðra
fjallalandi, og því hve hjer er
naumt um vinnukraft. En því vildi '
jeg mega stinga upp á, að þar
sem bifreiðavegir eru komnir,
verði jafnframt geröir mjúkir
reiðvegir handa hestunum, þessum
smávöxnu hestum, sem mig brest-
ur orð til að hrósa eins og vert
er, þessum hetjum — bestu vinum
Islendinga. En oft furðaði mig
á því hversu menn voru skeyt-
ingarlausir um hestinn sinn þegar
þeir komu lieim og ekki aðeins
um hestinn heldur einnig um
hnakkinn sinn, vagnin eða aktýgin.
Nærri því éins skeytingarlausir
eins og um það aö hafa þarfa-
hús á bænum. Jeg minnist á þetta
um leið og er þá upptalið það,
sem jeg þykist þurfa að finna að.
En hvað ísland er yndislegt.
ATitanlega þurftum við aö fara
yfir ýmsar slæmar og hættulegar
ár í Skaftafellssýslum. Mjer dett-
ur í hug gamalt franskt máltæki
er segir: „Paris vaut bien un
messe“. Ójá. Suðurlaud launar
manni vel fyrir hættur og örðug-
leika þá sem jökulgöngu eru sam-
fara eða þá að fara yfir illfærar
ár. Það er einstakt í sinni röð,
hvar sem leitað er í heiminum.
Jeg gleymi aldrei útsjóninni af
fjalli einu. sem við fórum vfir
seinni hluta dags á leiðinni frá
Stafafelli að Hólum í Hornafirði.
Beint framundan okkur var speg-
ilsljett hafið og HornafjörSurinn
en skriðjökulinn sígandi niður
hlíðarnar, tignarlegur og fagur.
X fjarlægð var Öræfajökull eins
ög hvítklæddur drotnanidi varð
maður, er hefði völdin á hinu
guðdómlega sjónarsvrði. En þó jeg
hrósi Suðurlandi dettur mjer ekki
í hug að gleyma öðrum lands-
hlutum og fögrum hjeruðum þar,
svo sem Borgarfirði, Skagafirði,
Mývatnssveit, Ásbyrg'i, Goðafossi,
Dettifossi, Gullfossi, Geysi og
Surtshelli. Hver óg einn þessara
sta'ða er útaf fyrir sig verður
þess, að útlendingar taki sjer ferð
á hendur til þess að skoða hann.
Jeg- get ekki talið upp alla
fögru blettina, sem jeg hefi sjeð
á íslandi; það mundi verða altof
langt mál. En þó má jeg eigi
láta lijá líöa að minnast staðar-
ins fagra og fornfræga, Þing-
valla, og getur mjer eigi dulist
að þar var rjettur staður valinn
til allsherjar mannfunda og mála-
lúkninga íslendinga hinna fornu.
Þeir hafa eigi aðeins valið sjer
stað hinnar sviphörðu fegurðar,
lieldur einnig kosið spegil liins
silfurtæra Þingvallavatns, í um-
gerð hraunflóðs, og Almannagjá
alvarlega og áminnandi til þess
að vera vitni gerða sinna. — Eða
hafnirnar í Borgarnesi, Blönduósi,
Sauöárkróki og Akureyri. Seyðis-
fjörður minnir mann undir eins
á norsku firðina, og Reykjavík
má ekki gleyma. Höfnin hjer
minti mig, er jeg kom hingað
meö Gullfossi í júní mánuði síð-
astliðinn á höfnina fögru í Vladi-
vostok, en þegar jeg fyrir nokkr-
um dögum nálgaðist Reykjavík á
leiöinni ofan frá Þingvöllum þá
var það einkum Esjan, sem dró
að'sjei’ athygyli mína, sama fjallið
sem jeg hafði kvatt fvrir átta
vikum, og mjer var ljúft að
rcnna augunum yfir grænu túnin
í Viðey og á Bessastöðum og yfir
Reykjavíkurbæ, sem var svo fagur
í síðustu geislum hverfandi sólar.
Jeg skal geta þess að við höfð-
um skoðað forngripasafnið og