Morgunblaðið - 04.10.1922, Síða 3

Morgunblaðið - 04.10.1922, Síða 3
MORGUNBLAIIJ ■ 1 nmffi IBBWICRMWM StErk barna og unglinga-gnmmistíguiEl hjá RuannbErgsbræörum. ^agri'qMsa á þeirri vöru sje nú orðiö svo óforsvaranlega hátt í samanburði við annað, að ekki geti annað kornið til mála, en að þaS verði lækkað liið bráðasta. Rjettmæti þessarar kröfu bygg- ist á því, að alt sem til brauð- gerðar þarf, hefir l^kkað stórum i verSi síðan brauðverðið var síð- ast lækkað. Koln hafa lækkað, hveiti og rúgmjel hefir lækkað og sykur hefir lækkað — alt nema vinnulaun þeirra, sem að brauðgerðinni vinna, Mönnum er ekki annað sjáanlegt en að af þessari margskonar lækkun hljóti það að leiða, að brauðin geti einn- ig lækkað í verði, og það all- mikið. Það mun ekki verða hægt að verja það, að núverandi brauð- verð sje ekki alt of hátt. Brauð er nú orðið svo mikill þáttur í nauðsynjavörum manna, og hdlst og frekast hinna fátæk- ari, að óverjandi er, að því sje haldið í hærra verði en nauð- syn krefur. Og það er orðin sam- hljóða krafa brauðneytenda, að það lækki. Það virðist óhjákvæmi- legt fyrir bakara að taka þá kröfu til greina. Annars er mjög hætt við því, að fjöldi manna hverfi að því ráði, að ■ bjargast við heimabökun að mestu eða öll leyti. lírl siíTífrcsnir frá frjettarítara MorgunblaSams. Khöfn 3. okt. 1922. Venizelos. Frá Aþenu er símað, að Veni- zelos hafi svarað uppreisnarmanna nefndinni, að hann mundi gera alt hvað hann gæti til þess a"ð frelsa landið, en a'S hann vildi ekki taka að sjer stjórnmálastörf og gæti því aðeins tekið á móti skip- un sem sjerstakur auka-sendiherra hjá bandamönnum. Tyrkir og Grikkir. Frá Konstantinopel er símað, að tyrkneskir hermenn sjeu komnir yfir Dardanellasundið og Kemal pashja hafi skipað svo fyrir, að hersveitir Tyrkja í Konstantinopel skuli vígbúast. Fregn frá Reuters frjettastofu segir, aS Angorastjórnin liafi skip- að svo fyrir, að allar hernaðar- hreyfingar gegn Karnak skuli stöðvaðar, en óskar jafnframt, að ‘ óvinalið Tyrkja víki burt úr Þrak- íu austan Maritza-fljóts. Herfor'ngjar bandamanna og fulltrúar Keraals komá saman á morgun. I. 0. 0. F. 1041049 Stf Belgaum hefir nýlega selt afiasinu í Englandi fyrir 1734 sterlingspund. Sjö myndir hefir Freymóður Jó- hannsson selt af sýningu sinni: Hraun í Öxnadal, Tunglsljós, Stærraárskóg, Bettifoss, Innrivoga (við Mývatn); Júlíkvöld á Akureyri og Kvöld í Lax- ’árgljúfri. , Jóh. Kjarval málari er nýlega kom- inn til bæjarins, kom á Gullfossi að austan. Jónas Gíslason kaupmaður á Fá- skrúðsfirði er staddur hjer í bænum. Kom hann með Gullfossi að austan. Lagarfoss fór hjeðan kl. 8 í gær- kveldi. Þau einsdæmi gerðust við burtför hans, að ekki voru farþegar aðrir en ein einasta kona. Venjuleg- ast eiga menn þó öðru að venjast, þegar skip fara hjeðan. Hjónaband. Síðastliðinn föstudag gaf sjera Ólafur Ólafsson saman í hjónaband Sólveigu Sigurðardóttur og Óskar Þorgilsson, bæði til heimilis í Hafnarfirði. Við kirkjudyr. Fyrir skömmu kvað gamall maður vísu þessa við dyr frí- kirkjuunar, er sjera Har. Níelsson var að stíga í stólinn: Hingað dregur okkur inn einhver leyniþráður. Það eru gömlu guðspjöllin glQggra skýrð en áður. I Fimmtíu ára afmæli á í dag- frú major Grauslund. Yfir 27 ár hefir hún starfað sem foringi í Hjálpræð- ishernum. Hjer á íslandi hefir hún starfað rúmlega 8 ár og hefir verið Hjálpræðishernum hin mesta hjálpar- hella. í kvöld kl. 8 koma foringjar og hermenn Reykjavíkurflokks saman til þess að minnast í sameiningu fæð- ingardags frúarinnar. B. Sex togarar eru nú eftir við hafn- argarðinn; er búist við að þeir muni hverfa þaðan allir innan skamms á veiðar og væri það vel farið. Ari kom frá Englandi nýlega. „Kol og Salt‘ ‘ hefir nýlega fengið kolafarm með gufuskipinu Ara. Glaður kom í gajr frá Englandi. Hann seldi afla sinn þar fyrir rúm 1000 sterlingspund. . Hjónaband. 1 dag verða gefin sam- an í hjonaband af bæjarfógetanum hjer Þorsteinn Þorsteinsson sýslumað- ur á Staðarfelli í Dalasýslu og frk. Ása Lárusdóttir, dóttir sjera Lárusar heitins Benediktssonar frá Selárdal. Klettafjallaskáldið, Stefán G. Stef- ánsson verður í dag 69 ára. Ágætis tíð hefir verið á Norður- landi undanfarna daga. í Eyjaffjarð- ar- og Skagafjarðarsýslu setti niður alimikinn snjó fyrir stuttu, en hann er allan tekinn upp. Björn G. Björnsson raffræðingur. Lögberg frá 20. júlí síðastl. flytur mynd ■ af honum ásamt eftirfarandi ummælum: Björn G. Björnsson er fa.ddur í Reykjavík 4. mars 1898, út- skrifaðist í raforkufræði frá The Uni-- versity of Wisconsiu 14. júní sl. — Hann er sonur G. Björnson landlækn- is og útskrifaðist af Mentaskólanum í Reykjavík vorið 1917. Síðustu fjög- ur árin hefir hann stundað nám við V isconsin'háskólann og gengið mæta- vel, þar sem hann var kosinn á junior ári sínu meðlimur „Tav Beta Pi‘ ‘ (honorary Engineering Fraternity) og „Eta Kappa No“ (Honorary Elec- trical Engineering Fraternity). Næsta ár vinnur hann hjá The Westing- liouse Electr,ical and Manufacturing Co. í East Pittsburgh. Hann býr í ár á 1109 South Ave. í Wilkinsbivrg, sem .or smábær milli' Pittsburgh og F.ast Pittsburgh. Egy, Epli, Appeisínur, Perur, Súkkulaði og aSlar matvorur ódýrastar í A. B. C. Málhreinsun er nauðsynleg. — Það ætti að vera vandalítið að útrýma orðinu ,,divan“ úr núfíðarmálinu, þeg- ar Húsgagnaverslunin Á f r a m (Ing- olfs.trætj 8) lieiir t\ruliggjaii..i gerjr almenningur ábyggilega i útsölunni í húsi þrjar tegundir aflegubekkjum. . ** **** ** (Sími 919). „Kol 3t S a 11“ við Batteriiscjarðinn. Þar er selt rúgmjöl, hveiti og aðrar venjulegar kornvörur. Alt fyrsta flokks vörur. Athugið þetta i tíma. Beimanmundurinn — Það er enginn vafi á því, það er sami maðurinn. Bókhaldari sá sem jeg talaði við var að koma með einhverjar glósúr nm að Hillmer & Co. hefðu varla haft lánstraust bankans, ef yfirmaður- inn hefði ekki haft persónuleg kynni af mjer. Jeg man aðeins óglögt eftir honum og að mjer fjell hann illa í geð. Svo man jeg eftir í blöðunum að framkoma hans gagnvart bankastjórunum vi.ð verslunarbankann, Schernech og Feldmann var alt annað en hrósverð, þegar hann áttj að bera vitni í málunum á móti þeim. Jeg hefj eflaust minna að vænta af þessum manni en nokkrum öðrum °S jeg get ekki fengið af mjer að auðmýkja mig 4 ag fara bónar- veg að honum. Malva var ennþá áhyggjufull að sja. Og það voru margar hugs- anir sem hreyfðust á bak við hvíta ennið hennar. — Og það er alt undir honum komið, spurði húu, — er það hann einn, sem getur steypt þjer í þessa ógæfu eða frelsað þig frá henni? — Já, í bráSina er það svo, en jeg efast um að þaS sje nokkur bót í því að fá nokkurra vikna frest. — Jeg liefi hvort sem er enga minstu von um að geta útvegað svo mikla upphæð á svo stuttum tíma; og sómatilfinning mín leyfir mjer ekki að halda manninum uppi á lof orðum, sem jeg ekki get efnt. En hin kvenlega skynsemi leit öSruvísi á máliS. þrír mánuSir er langur tími, sagði hún og þegar þú ert nú búinn að ýtta >ig vel, >á er jeg viss um, að þú .hefir einhver ráS. Væri það óhugsandi aS faðir þinn llun. var ekki,£yr búin aS segja orðið en hún sáriðraSist eftir því; hiim þungbúui raunasvipur á and- liti Bernds færði henm fljótt heim sanninn um, hve óvarkár hún hafSi verið. — Alt annað geri jeg heldur, sagSi hann; næstum reiSilega; enda þótt að faðir minn gæti hjálpaS mjer; en hann getur þaS ekki, Mal- va, því hann hefir ekld mikla pen- inga undir höndum — þá xhundi jeg aldrei að eilífu leita hjálpar hjá honum — eggjaðu mig aldrei framar á það, þe.ss bið jeg þig lengstra orSa. — Fyrirgefðu mjer — þáð var heimskuleg hugsun! en á morgun ætlarðu samt aS reyna að finna Rainsdorf — er ekki svo? — þó að þú hafir enga von, er samt btra aS tala viS hann og vita hvaS hon- um finst. Bernd stundi viS og játti því. — Það verða þung sþor fyrir mig, en það er víst skylda mín aS gera það! Það getur aldrei orSiS verra en þaS nú er; en hvaS svo tejmr víð, veit enginn nem.i guð. Hún lagði höfuðið á öxl hans og strauk mjúkri hendinni um enni hans. — Elsku Bernd, mikiS eT' þaS, sem þú hefir liaft við iað itríóa, án þess aS jeg hafi haft bxigmvnd um það! En guði sje lof, aó jeg er nú búin aS fá aS vita þaS og get bor- iS það með þjer. — ÞaS getur þó aldrei verið svo örðugt, að viS kom- umst ekki yfir þaS með sameinuð- um kröftm beggja. Hann þekti alt of vel hvað lífið getur verið miskunnarlaust og kalt til þess aS aðhyllast þessa von og traust; en það var einhver undar- lega sæl huggun í að heyra þessa bjargföstu trþ, sem hún hafði á valdi kærleikans, sem liún áleit sterkara en alla sorg og andstreymi lífsins. Hann vildi ekki fyrir nokk- urn mun verSa til þess aS veikja þessa ti’ú hennar. Ennþá sátu þau lengi saman í hálfdimmunni úti í stofuhorninu; og þó að þau ekki mæltu orð frá munni nema meS löngu millibili, þá var það þó altaf eitthvert ástar- og blíðuorð, sin talaði til hjarta.ns. XVI. Laugur og mjór og fölleitur vika- drengnr opnaði dyrnar aS skrif- stofu LúSvíks Rainsdorfs. — Það er kona frammi, sem lang ar til að tala við yður. — Hvað heitir bún? •— Hún vill ekki segja það. — Hvernig lítur hún út? — Hún er sorgbitin. — Látið hana koma inn. LúSvík Rainsdorf var einmitt aS enda við að skrifa jiafniS sitt und- ir brjof, sem hann hafði verið að skrifa. þegar konan kom inn. Undireins og hann leit á hana þekti hann 'aS þar var Malva von Degerndorf komin, þrátt fyrir hiS þjetta slör, sem hún bar fyrir and- litinu. Þaö var auSsjeS, að honum kom þessi hoimsókn mjög á óvart, og hanu flýtti sjer að standa upp af stólnum. — Eruð það þjer, frú? — má jeg bjóða yöur sæti? Malva liafSi ekki sjeð hinn fyrverandi umboSs- mann föður síns, síSaji daginn sem hún trúlofaðist, og þún gat ekki annað en tekið eftir hversu mikiö útlit liáns hafði breyst til batnað- ar. ÞaS var næstum ómögulegt. að búast viö hörku og misk.^iarleysi af þessum vingjarnlega og brosandi Jarðarberin ljúffengu fást enn hjá Jes Zimsen. Kvölðskóli K. F. U. M. , Þeir sem þegár hafa sótt um ij.ntöku í skólann, og aðrir sem kynnu að æskja inntöku í hann, komi til viðtals í K. F. U. M. fimtu dagskvöld (þann 5. þ. m.) kl. 8y2. vel búna manni; en þegar henni datt í hug aS Rainsdorf hefði einu- sinni verið biðill sinn, 'varð hin unga kona >ó feimin og vandræða- leg. MeS hálfum huga þá liún boð hans og sagði lágt, svo þaS varla heyrðist: — ÞaS hlýtur að koma yður und- arlega fyrir aS sjá mig hjer, — en jeg vissi ekkert annað ráð; — því jeg — maðurinn minn. — Svo hætti hún og vissi ekkert hvaS hiún átti aS segja. En Rains- dorf kom henni kurteislega til lijálpar og sagði: — Ef að jeg skil yður rjett, frú, þá komið þjer fyrir manninn yð- ar? — Nei, nei, sagði hún, hann veit ekkert um þaS, og má heldur ekki vita þaS. Þjer verðið að lofa mjer því, aS segja honum ekki, aS jeg bafi *komið hingað. Raiusdorf hneigöi sig lítiS eitt. — Jeg haga mjer auðvitað alveg eftir því sem þjer óskið, frú von Degerndorf. — En meS leyfi aS spyrja. — Hvers vegna jeg kem?Já, jeg verS auðvitað aS segja þaS! Þjer liafið einhverja víxla, sem maður- inn minn, eftir því sem hann segir, er skyldur að innleysa; en ef þjer lcrefjist þess aS þeir sjeu borgaðir þann dag sem þeir falla í gjald- daga, verðum viS sjálfsagt gjald- þröta. Ef að undrun sú, sem lýsti sjer á andliti Rainsdorfs, hefði veriS uppger,ð, þá mátti hann þykjast af leiklist sinni. — Jeg veit ekki, frú, hverju jeg ^lielst á að svara yður. Ef til vill hefir maSurinn ySar sagt eitthvaö, sem þjer hafiS misskilið svona, því ]>essi hræðsla yðár r eflaust. ástæðu- laus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.