Morgunblaðið - 27.10.1922, Blaðsíða 3
_ MORGUNBLAÐIÐ__________________
Hvitbotnuð Gúmmistígvjel með bæjarins lægsta verði hjá Hvannbergsbræðrum.
Fyrir skvifstofur.
Höfuðbækurnar ensku, sem einu sinni voru
hjer vinsselastar allra (og eiga sennilega eft-
ir að verða það aftur nú), eru nýkomnar,
mjög ódýrar; bundnar í skinn, tölusettar
og með registri.
Blýantsyddarinn „Boston“ sem
nú þykir ómissandi á hverri skrifstofu (þött
hann sje það raunar ekki alveg).
„Bumps“ pappirsheftivjelar, sem hefta
með tungu er Þser klippa úr örkunum sem
hefta skal. Þetta eru góð tæki og mjög hag-
nýt á hverri skrifstofu, og vinna verk hhma
leiðinlegu pappirsnála.
BókauErsl. Sigf. Eymundssonar.
anna í því að fara með vatnslit-
ina er og auðsjeð, að hann hefir
þroskast og tamist í því að velja
og hafna efni í myndirnar — sjá
hvað þar nyti sín ekki og hvað
ætti að vera þungamiðja myndar-
ii nar. ,
Hafursfell og Múiakot (stœrsta
myndin) eru og ágætar myndir.
Sömuleiðis er Furudalir snotur
mynd. í myndinni Múlakot sjest
glögt, hve mikla áherslu Túbals
leggur á byggingu myndarinnar
(Komposition). í framsýn mynd-
arinnar og lægst liggur lilaðið,
sljett og flatt. Þá taka við garð-
veggirnjr og kofaveggirnir hækk-
andi, þá garðstolparnir og önnur
ihús, alt hækkandi, loks í baksýn
hæstu húsin og trjen í garðinum
nokkurnveginn jafnhá. Öll mynd-
in er aflíðandi, samræm hækkun,
ihvert einstakt atriði undirbýr
heildaráhrifin. Sömu byggingar-
innar gætir í myndinni Snæfells-
jökull, sjeður frá Hofgörðum. —
Hóllinn og húsið, sem á honum
stendur, er þar sett til að undir-
búa hæð jökuisins, fá samræmi í
myndina. En þó má ef til vill of
mikið að þessu gera, því húsið
óprýðir myndina. En baksýn heiin
ai er vel gerð, skýin þó líklega
h.eldur hörð, þung, dauð.
Túbals er lærisveinn Ásgríms
■Jónssonar. Margur mundi því
ætla, að hann hefði mótast af
sjer eldri manni og ráðnari. En
það verður ekki sjeð. Engin sjer-
einkenni Ásgríms koma fram í
myndum Túbals. Hann virðist fara
«ínar eig;n götur, þó hann fari
um sama svið og kennarinn. Sýnir
það festu hans og sjálfstæði. En
hitt er og sjálfsagt að játa, að
■enn á hann mikið ólært list sinni
til frama og fullkomnunar. En
hann er einn þeirra málara, sem
ekki hopa á hæli fyrip neinum
órðugleikum, er þroski getur af
sprottið. Má t. d. nefna það sem
■dæmi um dugnað hans, að hann
fjekk alt í einu löngun til að
mála Guðnastein, efsta tindinn á
Eyjafjallajökli. Og þangað fór
hann. Og eru tvær myndir af
þeirri för á sýningunni. Als hefir
-hann málað um 30 myndir í sumar.
Nú má ætla að Túbals hafi feng-
ið svo mikinn þroska hjer heima
og tamningu á sjálfum sjer, að
honum væri hættulaust að fara
wtan og sjá, það hesta 5 mál-
verkalist erlendra þjóða og kynn-
ast stefnum og straumhvörfum
málaralistarinnar. En of festu-
lausum og reikandi byrjendum,
geta þau áhrif orðið til tafar
og deif'ngar á kröftum þeirra.
En sú festa sýnist nú vera orðin
á verkum Túbals, að honum yrðu
ný og göfug áhrif aðeins til hins
be-tra.
Sýningargestur.
——-----o--------
fieimanrnundurinn
XVIII.
Eins og það væri einhver ást-
fólginn lengi þráður ættingi sem
Anton Herrlinger væri að fagna,
eftir langan skilnað, rjetti hann
báðar hendurnar móti Walther
Piittnes, og var nú eftir að Sig-
ríður var farin út ekki annað en
alúðin sjálf.
— Þjer megið ekkj misvirða við
mig, kæri ungi vinur minn, að jeg
hefi látið yður bíða. Ef jeg hefði
ekki hugsað að dóttir mín væri
hjá yður hefði jeg ennþá fyr lok-
ið þeim áríðandi samningum, sem
jeg var með, enda þótt þeir væru
gerðir eingöngu yður í vil .
— Mjer í vil, herra Herrlinger?
— Já, kæri herra Puttner, við
skulum fá okkur sæti; jeg hefi
mjög gleðileg tíðindi að færa yður.
Gkkur hefir nefnilega komið sam-
an uin, eigendunum að Samlo nám
unum, vegna hinna miklu verð-.
leika yðar í sambandi við fjár-
sjóðu þá, sem þjer hafið dregið
fram úr skauti jarðarinnar í okk-
ar þarfir, að bjóða yður ný og
miklu betri kjör en þjer hingað
til hafið haft. Samningurinn ligg-
ur inni á skrifstofu minni alveg
tilbúinn, og jeg fullvissa yður um,
að það er ekkert orðum aukið, þó
jeg segi að þjer verðið auðugur
maður um leið og þjer skrifið
undir hann. Og hvað segið þjer
um þetta kærivinur?
Þakklætis og gleðiópið, sem
herra Herrlinger hafði búist við,
kom alls ekki.
— Jeg er yður og vinum yðar
mjög þakklátur fyrir hinn góða
tilgang. En fyrir utan það að jeg
álít að mjer sje ríkulega borguð
vlnna mín eins og er, get jeg af
öðrum ástæðum ekki notað mjer
Avaxfabúðin ©inasfa besfa er L U C A N A.
Vínber - Appelsínur - Epli - Epli - Appeisínur - Vínber.
lil mánaöamótanna, -
□fnar -
Hvitu emailleruðu elda-
vjelarnar eru á förum,
og emailleruðu ofnarn-
ir seljast óðum.
Eldaujelar
Til þess að selja sem mest og liggja meí sem minstar birgí-
ir yfir veturinn, höfum vjer ákveíið — ofan á okkar þekta lága
verð — að láta fylgja með hverjum ofni, sem vjer seljum fyrir 1.
nóvember, og sem kostar hundrað krónur eða meira, þau rör, sem
venjulegast eru nægileg, eða tvö hnjerör, annað með, og hitt án
spjalds, og auk þess hálfan meter af beinu röri. — Verð okkar er
hið sama, sem verið hefir í haust, og eru þetta því sjerstök kosta-
kjör fyrir Þá sem enn eiga eftir að kaupa eldfæri. Kastið gömlu
eyðslufreku ofnunum og kaupið yður Cora ofna, sem eru eldivið-
arsparir fallegir og ódýrir. Gæðin eru þegar þekt. — Spyrjið þá
sem keypt hafa þessi eldfæri.
Látið ekki dragast að SKOÐA þessi eldfæri í dag, berið svo
saman og ráðgist við kunninga og vini og Þá sem reynsluna hafa,
Þá mun svo fara að Þjer kaupið fyrir mánaðarmót og ÞAÐ ER
YÐAR HAGUR.
A. Einapsson & Funk.
Templarasund 3. Talsimi 982. Simnafn: Omega. Rvik.
4.
hið ágæta tilboð. Það er þvert á
móti bón mín til yðar, að leysa
mig' frá hinum fyrri samningi áð-
ui en tíminn er útrunninn — og
helst nú þegar. Eins og nú standa
sokir getur hver og einn tekið
þetta að sjer, og jeg vo-nast þess
vegna eftir, að þjer sýnið mjer
tilslökun á þessu.
Antoii Herrlinger varð furðu
1; ngleitur.
— Skil jeg yðnr rjett, herra
Púttner? Eruð þjer að hugsa urii
að yfirgefa okknr?
— Jeg get ekkj neitað því að
það er áform mitt. Jeg ætla til
Þýskalands, og taka við stöðu, sem
mjer býðst þar.
— Það er ekki sú allra minsta
ástæða til þess fyrir yður! Það
sem aðrir bjóða yður, getum vjer
líka boðið yður. Og án þess að
vita hvernig kjör þjer eigið að
hafa, skuldbind jeg mig í nafni
allra hluthafanna til að borga yð-
iii' e'rin meira en þjer fáið þar.
— Þjer misskiljið mig herra
Herlingers! Það eru ekki betri
kjör sem jeg__sækist eftir, því í
hinni nýju stöðu minni fæ jeg
tæplega helminginn af þeim laun-
um, sem jeg nú hefi. Það er af
persónulegum hvötum, sem jeg
hefi tekið þessa ákvörðun.
—Og þjer viljið ekki segja mjer
ástæðuna? Maður sleppir ekki
cðrum eins manni eins og yður,
án þess að heyra ástæður hans!
Ef að það er eitthvjið, sem yður
ekki líkar, þá þurfið þjer ekki
annað en segja til. Og ef að yður
langar til að sjá ættjörðu yðar,
þá er sjálfsagt að þjer fáið eins
langt heimfararleyfi, eins og þjer
óskið eftir.
— Jeg ætla ekki að leyna á-
stæðum mínum fyrir yður, en jeg
er hræddur nm að þjer skiljið mig
ekki vel, þegar jeg segi yður, að
það sjeu sömu ástæðurnar, sem
í fyrra komu mjer til að taka við
þessari stöðu.
— Nei, jeg get ekki neitað því,
að jeg skil það ekki. Þjer ætlið
að fara frá okkur nú, af því að
þjer komuð til okkar þá?
— Ja, einmitt! Jeg tók að mjer
verkfræðilega umsjón á rekstri
námanna í Somlo, af því að jeg,
með því að fínna ný kolalög, gat
fært sönnur á, að „Sameinaða
málmbræðslu og námafjelagið“
hefði getað gefið það af sjer,
sem ætlast var til, ef að ekki
hefði verið gripið fram í og rekst-
urinn orðið að hætta. — Nú hefir
mjer — vona jeg — hepnast að
sanna þetta, og þar með hefi jeg
lokið starfj mínu, og álít þess
vegna að jeg geti farið frá.
-------o---------
j.t r: 1 f • -
Grænar baunir, marg. teg.
Carotter
Bay Pölser
Salatolia
Nýkomið i
M. I Mm.
Simi 149.
Laugaveg 24.
Hin ágæta Rolfix slipivje>
fyrir rakvjelablöð
er nú komin aftur. Verðið aSeiníi
10 krónur.
Rakarastofan i Eimskipa-
fjelagshúsinu.
Eins og áður tek jeg á mótli
baldjeriuga pöntimnm. — E:nnig;
teikna jeg á og veiti tilsðgft
i útsanm og baldjeringu. ,
Vesturgötu 14. B, (uppi).
Jónfna Kr. Jínsdóttir.
(Schoushúsið.)
Trachóm í Kína.
Li læknir segir, að enginn sjúls-
dómnr valdi jafnmiklu fjártjóni i
Kína og trachóm. Miljónir mannj
hafi orðið blindir og margfalt fleiri
hálfblindir.
(Læknablaðið).
--------o--------