Morgunblaðið - 13.03.1923, Síða 4
i.íi KJ
„Viðvaningsháttur samvinnu-
afglapa' ‘.
Loks var svo einnig á dagskrá
12. mars frv. til laga nm breyt-
ing á 1. nr.36., 27.júní um samvinnu-
fjel. frá Pjetri O. og Pj. Þórð-
arsyni. Er það svo: 3. gr. 2.
liður síðari málsgrein orðist svo:
f þeim fjelögum er skiftast í
deildir, nægir þó sameiginleg á-
byrgð í hverri deild fyrir sig.
Takmörkuð ábyrgð nægir í þeim
fjelögum, sem um er rætt í 2.
cg 3. lið 2. greinar. Lög þessi
<>ðlast gildi þegar í stað. Fylgir
frv, einnig svohljóðandi greinar-
gerð: Á aðalfundi Kaupfjelags
Borgfirðinga 27. f. m. var samþ.
svoihljóðandi tillaga: „Aðalfull-
trúaifundur Kaupfjelags Borgfirð-
inga skorar á Alþingi að breyta
samvinnulögunum í það horf, að
kaupfjelög, 'sem einunjgis hafa
.samábyrgð innan deilda í sam-
þyktum sínum, geti notið fullra
r.iettinda samkvæmt þeim lögum“.
Frv. þetta er flutt samkv. á-
skorun frá stjórn Kaupfjelags
Borgfirðinga og í samræmi við
framanskráða fundarsamþykt. —
Euda þótt það sje ekki líklegt,
að heimild sú, er í frv. felst, ef
að lögum verður, valdi breytingu
á aðalskipulagi samvinnufjelag-
anna, eins og það nú er almennast
hjer á landi, þá er hitt áreið-
anlega víst, að í þeim hjeruð-
um, sem þetta skipulag er ekki
komið á eða búið að fá fast form,
mundi notkun heimildarinnar efla
rojög og auka samvinnufjelags-
skapinn, og má telja það hina
mestu þörf á þessum erfiðu tím-
um. Pjetur Þórðarson talaði með
frv. og um núverandi samá-
byrgðarfyrirkomulag kaupfjelag-
anna, sem nauðsyn væri á að
breyta og smækka samábyrgðar-
sviðið, enda gæti hið víðtæka
samábyrgðarsvið gert einstökum
óreiðumönnum kleift að vinna
ýmislegt verslunartjón á kostnað
allrar heildarinnar, sem ékkert
hefði til þess unnið, en það væri
itokkum veginn ómögulegt með
þrengra samábyrgðarsviði. Benti
hann á reynslu Kaupfjelags Borg-
fírðinga, en það er eins og kunn-
ugt er, ekki í sambandinu, enda
mundi breytingin heldur ekki
verða sambandinu að meini. —
Sagði hann og að þetta frum-
varp væri samið , með nákvæmni
athugun og yfirvegun og skyldu
menn því ekki halda, að það væri
samið af neinum „viðvanings-
hætti samvinnuaf glapa' *, eins
og hann tók til orða, am leið
og hann horfði allhvast á ská
uppvfir gleraugun og á höfund
samvinnulaganna, Hriflumanninn,
sem var staddur inni í nd., en
fór á augabragði á kaf inn í efri
deild. En frv. þeirra Pjetranna
var vísað til 2. umr og allshn.
Dagbók.
□ Edda 59233137—1 B C.
Kórfjelag Páls ísólfssonar svngur
i kvöld í Dómkirkjunni.
Nýársnóttin var leikin á sunnu-
dagskvöldið í 75. sinn, fvrir troðfullu
húsi. Yoru leikhúsgestir hinir ánægð-
ustu með sýninguna og kölluðu höf-
undinn, Indriða Einarsson, fram, að
henni lokinni og guldu honum þakkir
stnar með dvnjandi lófataki.
Gullfoss fór frá pingeyri í gær
áleiðis hingað suður.
Föstuguðsþjónusta á morgun í frí-
kirkjunni í Hafnarfirði kl. 71/2, sjera
Ólafur Ólafsson.
„Merkúr' ‘ heldur skemtifund í
kvöld í Bárunni. Eru fjelagsmenn
beðnir að muna eftir honum og
mæta stundVíslega.
ísland kom hingað seint á laug-
ardagskvöldið frá útlöndum. Meðal
farþega voru Hallgrímur Tulinius,
Asgeir Pjetursson, Axel Tulinius,
Matthías pórðarson útgerðarmaður og
porvaldur Pálsson læknir.
Lestrarfjelag kvenna heldur skemti-
fund á Hótel ísland í kvöld. Yerður
þar margt til skemtunar.
Gjafir til Elliheimilisins frá 1.
jan. — 10. mars. Steinunn Vilhjálms-
dóttir kr. 10.00. Áheit kr. 5,00. Ó.
Á. kr. 12.50. Áheit kr. 10i.00. Eskild-
sen kr. 50.00. Áheit G. K. kr. 100.00.
Finna kr. 10.00. Guðmundur krónur
5.00. Jón Jónsson kr. 10.00. Áheit
kr. 50.00. J. kr. 144.81. Kornelíus
Sigmundsson kr. 50.00. N. N. kr.
50.00. Frá Bæjarsjóði kr. 2000.00.
Bestu þakkir!
12. mars 1923.
Har. Sigurðsson.
Dansleiknr Iþróttafjelagsins fór
fram síðastliðið laugardagskvöld. —
Var hann að vanda svo fjölsóttur,
að eigi mátti þrengra vera í Iðn-
aðarmannahúsinu. — Salnrinn var
skreyttur betur en nokkum tíma
hefir sjest hjer áður og hafði Guð-
mundur Thorsteinsson listmálari sjeð
um það. 'Var saluidnn sem hellir,
eu út um opin mátti sjá myndir
ýmsra íslenskra staða blasa við. —
Pórarinn Guðmundsson sá um hljóð-
færasláttinn, prýðilega, eins og vænta
raátti. Dansinn stóð til kl. 4, og
varð varla hlje á allan tímann.
Sjötng verður í dag ekkjan Magda-
lena Margrjet Sigurðardóttir, Hverf-
isgötu 83.
Aðstandendur „Alþýðublaðsins' ‘
eru ósköp glaðir yfir því, að blaðinu
hefir einhversstaðar verið líkt við
bam; höfðu víst í hæsta lagi gert
sjer vonir að líka mætti því við
hvolp eða kálf. En litlu skiftir; hver
samlíkingin er notuð. Hitt er aðal-
atriðið, að afkvæmi þeirra er bæði
heimskt og illa vanið, skitið og ó-
þrifið og öllum til skammar, sem
að því standa.
Mannalát. Tveir kunnir borgarar
bæjarins Ijetust í fyrrinótt, Magn-
ús Gunn'arsson, dyravörður í Stjórn-
arráðinu og Eyjólfur porkelsson úr-
smiður. Varð Eyjólfur heitinn bráð-
kvaddur, en Magnús hafði lengi
legið rúmfastur og mjög þjáður
lengstum. Ennfremur er nýlega lát-
iun Magnús Jónsson bóndi á Brekkum
á Bangárvöllum, mesti dugnðaarmað-
itr. Hafði hann þjáðst af brjóstveiki
um margra ára skeið.
Lúðrasveitin ljek fyrir bæjarbúa á
Austurvelli í fyrradág. Hlustaði
fjöldi fólks á, eins og vant er þegar
hún lætur til sín heyra, og veður
er bærilegt.
--------o---------
námuslys í Schlesiu.
Yfir 100 manns farast.
Snemma í febrúar varð gæileg
sprenging í Heinitz-námunum í
Beuthen í Upp-Schlesíu. Varð
sprengingin að morgni dags,
skömmu eftir að verkamenn voru
komnir ofan í námuna. Alls uhnu
þar 871 menn.
Var þegar hafist handa til að
bjarga mönnum úr námunhi. Um
kvöldið höfðu náðst 200 menn, og
PLONTU
SMJÖRLÍKI
fAgætí til viðöiti,*
bökunar ðútilaú
steikjís í.
Otboö.
Þeir er kynnu að vilja gera tilboð í að byggja steinlhús, sem e>
3 hæðir, rishæð og kjallari, á lóðinni Laugaveg 16 hjer í bæniim,
vitji teikninga og útboðslýsingar í Laugavegs Apóteki.
Tilboðin skulu vera afhent fyrir þ. 22. þ. m. og verða þau
opnuð að bjóðendum viðstöddum sama dag kl. 2.
Sem pantur fyrir teikningum og útboðslýsingu sjeu setta»
10 krónur.
Stefán Thorarensen
lyfsali.
Uppboð
á timbri úr mótorbátnum Emmu verður haldið við
Zimsensbryggju miðvikudaginn 14. þ. m. kl. 3 siðd.
Nokkra duglega og vana
lóðamenn
vanta á m.b. Freyju í Hafnarfirði nú þegar. Upplýaingar gefa
Tómas Guðnason, skipstjóri og Kristinn Vígfússon,
Syðri-Lækjargötu 18. Strandgötu 35. Sími 90.
Ágætar byggingarlóðir
á besta stað í bænum til sölu.
Guðm. H. Þorláksson byggin^arfuilfrúi
Sími 1052.
Duers uegna
er „Smára1 ‘ -smjörlíkið betra en
alt annað smjörlíki til viðbits og
bökunar?
Af því að það er gert úrfyrsta
flokks jurtafeiti. — Húsfreyjur,
dæmið sjálfar um gæðin.
fíugl. dagbók
Divanar, allar gerðir, bestir og ó-
dýrastin, HJúsgagnaverslun Beykja-
víkur, Laugaveg 3.
Desinfector, 3 stærðir. Verð kr.
5.00, 2.85, 1.85. Rakarastofan í Eim-
skipafjelagshúsinu. Sími 625.
Gljábrensla og viðgerðir á hjólum
er ódýrast í Fálkanum,
Húseign til sölu við eina af aðal-
götum bæjarins. íbúð laus 14. maí
eða fyr. Verslun er í húsinu. Semjið
við Halldór Eiríksson, Hafnarstræti
22. Sími 175.
3 herbergi og eldhús óskast til leigu
frá 14. maí næst komandi. Upp-
lýsingar í verslun Jóns pórðarsonar.
■ Herbergi til leigu. A. v. á.
Hús til sölu. A. v. á.
2 bráðsnembærar kýr vil jeg selja.
Menn semji við mig sem fyrst. —
Magnús porláksson, Blikastöðum.
af þeim voru 35 dauöir. Bjuggust
menn við, aö þeir sem eftir voru,
yfir 600, mundu allir hafa látið líf-
ið. En þegar lengra var grafið kom
í ljós, að mikill hluti af námuhni
hafði ekki hrunið saman viS spreng-
inguna. Voru þar saman komnir
nær allir mennirnir, og flestir lif-
andi. Alls voru það 109 menn, sem
fórust, en flestir þ'eirra, sem náS-
ust, voru ómeiddir.
-------o------
EtL gímfrepir
frá frjettaritara Morgunblaðsins.
Khöfn 12. mars.
Friðurinn við Tyrki.
Símað er frá London, að Tyrkir
hafi gert bandamönnum nýja
orðsending og leggr þar til að
friðarfundur verði haldinn aftur
í Konstantínópel.
Þátttaka Breta í ófriðnum.
Hlutdeild Breta ■ í ófriðnum
mikla sjest Ijóslega á opinberri
skýrslu er birt var í gær. Alls
voru kvaddir í herinn 9.496.370
menn og af þeim voru 946.023
drepnir en 2.121.906 særðust. —
Hernaðurinn kostaði 959u miljón
sterlingspúhd og fengust af því
2740 miljónir með sköttum og
tollum, 5500 miljónir með inn-
lendum lánum og 1360 miljónir
með útlendum lánum.
Frakkar og Versailles-friðurúm.
Sá orðrómur hefir borist út,
að Frakkar ætli sjer að fella
friðarsamningana í Versailles úr
gildi, án þess að leita álits Eng-
ltndinga um málið. Hefir þetta
vakið megnustu gremju.
Frakkar reka þýsku námurnar.
Símað er frá Berlín, að full-
yrt sje, að Frakkar ætli að taka
í sínar hendur rekstur námanna
í Ruhr og nota pólska verkamenn.
Káupið „Royal“ hjólhesta hjá
Sjgurþór Jónssyni úrsmið.'
Franskir hermenn skotnir.
Símað er frá Parls, að á eftir-
litsferð franska hermálaráðuneyt-
isins um Ruhr-hjeraðið hafi 2
franskir hermenn verið skotnir.
Af þessum orsökum hafa Frakkar
tekið marga Þjðverja sem gisl.
o