Morgunblaðið - 15.03.1923, Qupperneq 4
♦
Frá Danmörku.
Samkvæmt sjúkdómsskýrslu er
gefjn var út föstudagsmorgun er
hennar kátign drotningin á ör-
uggum batavegi.
Samkvæmt ákvörðun er gerð
liefir verið við rjettarstjórnina í
Moskva sendir danska stjórnin
bráðlega verslunarm'álanefnd til
Moskva og eru í henni ölan
kammerberra, sem er formaður
nefndarinnar, forstjóramir Hjerl-
Hansen og Bigil Leth, exi skrifari
nefndarinnar er Gustav Rasmus-
sen fulltrúi í utanríkisráðuneyt-
inu.
13. mars.
Síðasta tilkynning, er birt hef-
ir verið um sjúkleik Alexandrínu
drotningar, segir, að líðan henn-
ar sje hin besta. Verða ekki fleiri
tilkjmningar birtar um líðan henn
ar, ef batinn heldur áfram.
Próf. dr. Harald Höffding hjelt
hátíðlegt áttræðisafmæli sitt síð-
asta sunnudag, og var honum
sýnd hin mesta virðing þennan
dag. Meðal fyrstu gestahna, er
heimsóttu hann, var Kristján kon-
uxigur, og bar hann honum blóm-
vönd frá drotningunni. Stuttu
síðar komu fulltrúar norrænna
kvenna, þá fulltrúar háskólans,
nýja stúdentabústaðarins, Stú-
dentafjelagsins og Carlsbergs-
sjóðsins. Að þessu loknu færði Sv.
Bjömsson sendiherra Höffding
gjöf frá íslenskum lærisveinum
hans, stóran og mjög skrautleg-
an pappírshníf. — í þakkarræðu
sinni lagði próf. Höffding áherslu
á það, hve gott samkomulagið
hefði jafnan verið milli hans og
íslenskra stúdenta, og jafnframt
bar hann fram óskir um það, að
sjálfstætt vísindalíf mætti blómg-
ast við háskóla fslands.
Ruhr-málin.
París, 13. mars.
Porsætisráðherrar 'Frakka og
Belga, Poincaré og Theunis höfðu
mikilvægan fund með sjer í
Bryssel í gær, og ræddu þar um |
hertöku Rulir-hj eraðsins. Br ,á-1
standið í Ruhr þannig:
Síðan hjeraðið var tekið, hafa
frönsk og belgisk yfirvöld leitast
við að koma skipulagi á járn-
brautarsamgöngurnar, eftir að frá
hafði verið vikið þýskum starfs-
niönnum brautanna er,gert höfðu
verkfall. Ganga nú 250 járnbarut-
arlestir um hjeraðið og við þær
starfa 10.000 franskir og belg-
ískir starfsmenn og nokkur þús-
und Þjóðverjar, sem gengu að því i
að taka aftur upp vinnu undir
yfirstjórn Prakka og Belga. —
Allar kola-lestir, sem heftu um-
ferð á járnbrautunum, hafa verið
latnar fara til Prakklands, Belgíu,
ftalíu og Hollands, eða Svss, en
járnbrautarsamgöngur og allur
útflutningur kola og iðnaðarvöru
ti' Þýska lands er enn bannaður.
Er Ruhr-hjeraðið því ennþá al-
gerlega frá skilið öðrum hlutum
Þýskalands.
En með því að námuverkamenn
hafa enn neitað að vinna að flutn-
ingi kola þeirra, sem áður hafa
verið. brotin og safnast hafa fyrir
við námuopin, ákvað fundurinn
í. Brýssel í gær, að láta franska
og belgiska verkamenn vinna að
fermingu þehsara kola, undir
vernd setuliðsins, og senda þessi
kol til Prakklands og Belgíu, j
svo að fullnægt verði kröfum
þeim, sem á Þjóðverjum hvíla,
tim kolaframsal fyrir skemdir
þeirra á námum Prakka og Belga.
Að því er snertir hermdarverk
þau, sem franska setuliðið hefir
orðið fyrir af hálfu Þjóðverja
og vegna undirróðurs af þeirra
hálfu, þá ákvað fundurinn í
Bryssel, að innleiða hina ströng-
ustu ákvæði til þess að gera enda
á óhróðurssögum þeim, sem Þjóð-
verjar hafa borið út um Prakka
og Belga útaf hertöku Ruhr-hjer-
aðsins gáfu þeir Poincaré og
Theunis yfirlýsingu um, að ráð-
stafanirnar í Ruhr-hjeraði væru
gerðar af tveimur orsökum: I
fyrsta lagi væri hertakan fram
komin vegna vanskila Þjóðverja
á skaðabótum, sem þeir hefðu
gengist undir að greiða, og mundi
henni því verða ljett af undir
eins og Þjóðverjar byrjuðu að
fullnægja skuldbindingum sínum;
en hins vegar vildu bandamenn
ekki lengur láta sjer nægja ein-
tóm loforð heldur raunverulegar
framkvæmdir. í öðru lagi, að
undir eins og Þjóðverjar ljetu
undan mundu ekki aðeins Frakk-
ar og Belgar einir, heldur í sam-
einingu við aðra bandamenn sína,
leggja fram skilmála þá, er Þjóð-
verjum verða settir, til þess að
tryggja skuldbindingar sínar.
Blöðin benda á, hve mikilvægar
þessar ákvarðanir sjeu til þess
að afstýra ofbeldisverkum gegn
setuliðinu. Og þau minnast á, að
aðferð sú, að slaka smátt og smátt
á hertökunni eftir því, sem Þjóð-
verjar borgi, sje í fullu samræmi
við aðferð þá, sem Bismarck'
hafði gagnvart Frökkum 1871.
Þjóðverjar hljóti að viðurkenna
rjettmæti þeirrar aðferðar, og
aðrar þjóðir sömuieiðis, fyrst þær
mótmæltu ekki, þegar þannig var
farið að við Prakka 1871. Blöðin
þvkjast mega álykta, að aðrar
þjóðir muni verða hliðhollar á-
kvörðunum þeim, er ráðstefnan
tók í gær, að halda áfram her-
t.ökunni þangað til Þjóðverjar
aki þann kosinn að borga.
í Prakklandi benda menn á,
að með því að halda áfram mót-
stöða sinni í tvo mánuði, láta
100.000 sýslunarmenn ganga iðju-
lausa, og hjálpa miljónum verka-
manna til þess að gera verkfall
með því að borga þeim kaup
fyrir enga vinnu, hafi Þjóðverjar
sj-nt að þeir hafi haft ástæður
cg getu til þess að borga skað.a-
tæturnar, og að ef þeir hefðu
notað fje það, sem þeir hafa verið
til mótstöðu sinnar í Ruhr-hjer-
aði til þess að greiða skuldir
sínar, hefði þeim verið í lófa
lagið að ráða fram - úr málinu,
og afstýra missætti því, sem orð-
it hefir milli Prakka og Þjóð-
verja, í stað þess að koma af
stað vandræðum í Evrópu.
Jordan.
Khöfn 14. mars.
Fundurinn í Bryssel.
Símað er frá Bryssel, að á
fundi Prakka og Belga þar, hafi
orðið fullkomið samkomulag um
stefnuna í Ruhr-málunum fram-
vegis og skilyrðin fyrir því, að
Frakkar fari burt með lið sitt
úr hjeraðinu. Sleppa Prakkar
ekki landi því, sem þeir hafa
tekið nema hvað eftir að Þjóð-
verjar greiði skaðabæturnar.
Hermálaráðstafanirnar í Ruhr-
hjeraði koma Prökkum og Belg-
M0 RGUNBLAÐIÐ
I
uni einum við, en þess er vænst,
að samkomulag náist við ítali
og Breta um endanleg úrslit
málsins.
Dagbók.
Sigurður . Nordal prófessor var
fluttur á Landakotsspítala í gær. —
Hefir hann fengið ígerð í eyrað og
verið þjáður undanfama daga.
Pilskipin. Seagull kom inn í gær
með 8.000 fiskjar og Keflavíkin
rieð 7.500.
Háskólinn. Dr. phil. Kort Kortsen
flytur í dag fyrirlestur um Sören
Kirkegaard.
Jón Jörundsson fyrv. skipstjóri og
kaupmaður, á Reýkjanesi við Reýkja-
fjörð verður 75 ára í dag.
Bois-Rose heitir franskur botnvörp-
ungur afarstór er hingað kom í gær.
!
þorparabrögð. Tvö kvöld í röð,
mánudags- og þriðjudagskvöld, hefir
slókkviliðið verið kallað út í bæ,
annað skiftið kl. 9—10 og í hitt
skiftið eftir miðnætti. í bæði skiftin
var kallið gabb. Annar brunaboðinn
scm brotinn var, var á Vatnsstíg,
en hinn á mótum Bergstaðastrætis
og Baldursgötu. Er orðin sannkölluð
plága að þessu, og getur varla hjá
þyí farið, að einhverjir þorparar geri
sjer að leik að því, að ónáða slökkvi-
liðið, því varla eru óvita börn á ferli
um það leyti, sem brunaliðið var
kallað í þessi tvö skifti. Er bæjar-
búum mikil háðung að því, að þeir
menn skuli vera til, sem vilja hafa
á samviskunni þann óþokkaskap sem
í þessu felst.
Hjónaefni. 13. þessa mánaðar opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Ásta
Agnarsdóttir frá Fremstagili í Langa-
dal og Einar Baehmann.
„Dómar' ‘ heitir leikrit, sem er
nýkomið út, eftir A. G. porniar. ■—
Hefir hann áður gefið út sögur
og æfintýri. Leikritið er í 4 þáttum
og gerist á galdrabrennuöldinni,
norður í Skagafirði. Leikriti'sins
verður nánar getið síðar.
Verslm.fjelag Reykjavíkur heldur
fund í kvöld kl. 8y2 á Hótel Skjald-
fcreið. Steinn Emilsson talar um
„Ósjálfstætt konungsríki1 ‘. Meðlimir
kaupmannafjelagsins eru boðnir á
fundinn.
„Leo“. Hjer í blaðinu var sagt
í gær, að vjelbáturinn „Úlfur“ væri
seldur austur á Seyðisfjörð. Var
það „Leó“. „Úlfur“ er hjer enn
verður framvegis. Á hann að fara
í flutningsferðir mjög bráðlega.
Andbýlingarnir verða leiknir í
síðasta sinn í kvöld.
. .Knattspyrnufjelagið „Víkingur“
biður þess gótið, af gefnu tilefni,
að grímudansleikur sá, er einhver
Víkingsklúbbur gengist fyrir, sje sjer
alveg óviðkomandi.
-------o-------—
Gengi erl. myntar.
14. mars.
Kaupmannahöfn:
Sterlingspund ............. 24.55
Dollar.................. .. 5.231/2
Mörk........................ 2.75
Sænskar krónur.............139.20
Norskar krónur............. 95.00
Franskir frankar........... 31.60
Svissneskir frankar .. .. 97.65
Lírur...................... 25.10
Pesetar.................... 80.75
Gyllini................... 206.90
--------o-------
NvlíOmiö meö e.s „Islanö":
Gardinusiangir, mabogni, póleraðar og gyltar, með tilheyr-
andi húnum og hringjum
Barnavagnar, Barnakerrur, Körfustólar, margar teg.
Körfubord, Körfusóffar.
Körfur ýmiskonar: pappírakörfur, brauðkörfur, brjefakörfur,
hnífakörfur 0. s. frv.
Barnastólar, Dúkkuvagnar, Saumastativ.
Vöggur, Barna-hjólbörur og vagnar.
Rólur, Barnakommóður úr bambtts, Dúkkurúm 0. fl.
Kristján Siggeinsson,
húsgagnaverslun.
Olíuofnar
með rauðu glasi eru nú aftur komnir til
Johs. Hansens Enke.
Skiffafunöarboð.
Skiftafundur í þrotabúi, Elíasar F. Hólm kaupmanns, verður
haldinn í bæjarþingsstofunni mánndaginn 19. þ. m. kl. 10 árdegis
og verða þar teknar ákvarðanir um meðferð eigna búsins.
Bæjarfógetinn í Reykjavik 14. mars 1923.
Jfrh. Jóhannesson.
Háseta
vantar á s.s »Dorrit >, sem fer hjeðan til Bilbao.
Uppl. um borð hjá skipstjóranum fyrir kl. 4 í dag.
Lampaglös,
allar stærðir hjá
Johs. Hansens Enke.
Postulín og leirvonun.
Fyrirliggjandi: Bollapör, marg. teg. — Diskar, marg. teg. —
Könnur, marg. teg. — Kaffistell — Tekatlar —
Skálar — Föt allsk. — Vatnsglös — Ávaxta-
skálar 0. fl. — Alt selt mjög ódýrt.
K. Einarsson & BJörnsson. Símar 915 og 1315. Vonarstrœti ð. Suun.: Einbjörn
Flugl. dagbók Divanar, allar gerðir, bestir og ó- dýrastiB, ECúsgagnaverslun Reykja- víkur, Laugaveg 3. RuEr5 uEgna ei „Smára‘‘-snijörlíki8 betra en alt annað smjörlíki til viðbits og bökunar? Af því að það er gert úr fyrsta flokks jurtafeiti. — Húsfreyjur, dæmið sjálfar um gæðin.
2 bráðsnembærar kýr vil jeg selja. Menn semji við mig sem fyrst. — Magnús þorláksson, Blikastöðum.
- vi f?#*ll, iiI TsmjmíKÍI 'H'
Hreinar ljereftstuskur kaupir ísa- foldarprentsmiðja hæsta verði.
f H/fSmjörlikisger6ir!iR!V};:;.í > f l ■ , y Ágæt húseign í miðbænum til sölu fyrir gott verð. Lysthafendur sendi nöfn sín til Morgunblaðsins fyrir 2>) þessa mánaðar, merkt „27“, fá þeir þá nánari upplýsingar.
Kjólföt á meðal mann til sölu, með sjerstöku tækifærisverði a Klapparstíg 9.
Rósastiklar fást hjá Ragnari Ás- geirssyni, Gróðrarstöðinni. (Rauða húsinu) Sími 780.
Stúlka óskast á gott sveitakeimili. A. v. a. Smjörlíki á 95 aura l/2 kg., selur Hannes Jónsson, Laugaveg 28.