Morgunblaðið - 22.03.1923, Síða 4

Morgunblaðið - 22.03.1923, Síða 4
fiuers uegna ei „Smára“-smjörlíkið betra en alt annað smjörlíki til viðbits og bökunar? Aí því að það er gert úr fyrata flokks jurtafeiti. — Húsfreyjur, d»mið sjálfar um gæðin. 'if H'í Smjörli kisgeröin í Rsykjay íkl flugl. dagbók Hreinar ljereftsttiskur kaupir ísa- foldarprentsmiðja hæsta verði. Divanar, allar gerðir, bestir og ó- dýrastir, HJúsgagnaverslun Reykja- víkur, Laugaveg 3. Hið óviðjafnanlega andlitsvatn „Li lac“ frá Colgate — fyrir konur og karla. Verð frá kr. 4,50—8,50 flask- an (lækkað verð). Reynið eitt glas og þjer sannfærist. Rakarastofan í Eimskipafjelags- húsinu. — Sími 625. Ungmennafjelagsfundur kl. 8 í b völd á Laufásvegi 13. Sjómannadýnur selur versl. Áfram, Ingólfsstræti 6, eins og að undan- förnu, bestar og ódýrastar. (Sími 919). Stúlka óskast strax á gott sveita- heimili. Uppl. á Hverfisgötu 49 — búðinni. Fyrir 15—20 krónur seljast nokkrir karlmannsfatnaðir. Notið tækifærið meðan það það gefst. Laugaveg 33, (efri búðin). Kápa á unglingstelpu og jakkaföt á unglingsmann til sölu á Bergstaða- stræti 7. öllum ljóst, sem að málinu st-anda, að framkvæmd þess kostar fórn- ir og baráttu þrátt fyrir það, þótt umbeðinn fjárstyrkur verði ,'eítt- ur og undir það vilja þeir hik- laust gangast. t ---------o-------- SKt MPB. Frakkar eru allra þjóða fremst- ir í því, að smíða stóra togara. Eru þeir einkum ætlaðir til fisk- veiða við N-ew Foundland, en eru einnig hjer við land á vetr- arvertíðinni og hafa komið hing- að til Reykjavíkur. Þýsk blöð segja, að Frakkar sjeu nú að smíða enn stærri botn- vörpunga en nokkru sinni fyr. Er sagt að í Le Havre sjeu í smíðum sex skip fyrir fjelagið Pécheries de France. Stærð skip- anna er þessi: Lengd 60 metrar, breidd 9.86 m. og hliðarhæð 5.90 m. Burðarmagn skipanna er 1825 smálestir brútto. Vjelamar hafa 800 hestöfl og eru gerðar fyrir olíukyndingu. Er áætlað að þær þurfi 600—620 gröm af olíu fyrir hvert hestafl um klukku- tímann. Físklestamar era kældar með frystivjelum og eiga að taka 800 smálestir af fiski. Er þannig um þær búið, að loft kemst aldréi beina leið niður í lestamar, svo að þær hitna ekki af utanaðbom- andi lofti þó fiskur sje látmn í þær. Hýbýli hásetanna eru á þilfari og era mjög rúmgóð.. Uppranalegtt voru skip þessi ætluð til veiða suður við Mar- okkó, en frá því hefir vérið horf- ið og verða þau notuð til veiða við New Foundland. Er þessarí nýung í togaraútgerð veitt mikil athygli og bíða menn þess með eftirvæntingu 'hvernig hún hepn- ist. að um langt skeið, hlýtur áhugi og trú á málinu að þverra. Þau lög gilda alstaðar, að áhuginn dofnar, þar sem ekkert vinst. Of mikill áhugi og starfskraftur hef- ir horfið að þessu máli í hjerað- inu, til þess að því sje nú öllu hent í hafið. Fjárloforð þau, sem þegar eru fengin til skólastofnunarinnar, taka nú óðum að fyrnast. Með hverju ári sem líður, má búast við afföllum af þeim, ef ekkert er kallað inn. Hins vegar verður eigi unt að kalla loforðin inn, nema trygt sje, að fjeð verði not- að til þess, sem ætlað var, þegar þau voru gefin. 3. Skólinn á Breiðumýri getur ekki haldið áfram í þeim húsa- kynnum, sem hann verður nú að búa viðJBer þar þrent til: þau eru of lítil, óhentug og eigi hættu laust fyrir heilsu nemenda að halda þar skóla í hörðum vetr- um. Hins vegar er þttð almennur vilji í hjeraðinu, að lata ekki þann þráð slitna, er þar hefir ver- ið tekinn upp með skó'lahaldinu. Hjeraðsbúar vilja eigi sleppa þeim kenslukröftum, sem valist hafa að sivólanum, og forstöðumenn skól- ans vilja heldur ekki gefast upp á miðju skeiði, ef annars er kost- ur. Rætt hefir verið um að stofna skólann með frjálsum framlögum hjeraðsins eingöngu, en vegna fjárhagsörðugleika hefir það ekki yerið talið fært. Hins vegar er það Erl. Rimtregnír frá frjettaritara Morgunblaðsins. Khöfn 21. mars. Sáttavottur í Ruhr-málunum. Símað er frá London, að óopin- berir samningar sjeu byrjaðir milli Frakka og Þjóðverja í Bern. Þrátt fyrir afar mikinn meining- armun þessara aðila, er það talið þýðingarmikið, að stjómir þessara ríkja skuli hafa komið sjer sam- an um að hefja viðræður um Ruhr-málið. Eftir heiðni þýskra iðjuhölda hefir sendiherra Breta í Berlín farið til London til þess að leggja frumvarp Cuno kanslara til und- irstöðu samninga við Þjóðverja. fyrir ensku stjómina. Viðskifti Breta. og Frakka. Símað er frá París, að enskir og franskir bankar hafi komist að samningum um skuldaskifti Breta og Frakka frá stríðsárun- um. Þýsk-frönsk samvinmi? Símað er frá París, að stóriðju- höldar Þjóðverja ætli sjer að efna til ráðstefnu um páskana til þess að ræða um samvinnu milli iðnaðarstofnana Frakka og Þjóð- verja. -------o------- MUKU tJNBLAÐIÐ Dagtmk. I. O. O. F. 1043238y2. — K. e. E. 1. v. st. s. Háskólinn. Dr. K. Kortsen flytur niðurlagserindi fyrirlestra sinna um Sören Kirkegaard í dag kl. 6—7. Oiium heimill aðgangur. Verslunarmannafjelag Reykjavíkur heldur fund í kvöld kl. 8% á Hótel Skjaldbreið. Sóttvarnir. Síðastl. föstudag kom danskt skip, Njáll, til pingeyrar, beina leið frá Lissabon. Hafði það engan bannaðan farm meðferðis, að ejns saltfarm. Skipið hafði verið 17 daga á leiðinni og hafði hreint heil- brigðisvottorð gefið út af danska kon- súlnum í Lissabon, og gaf það jafn- framt til kynna, að enginn svarti dauði væri þar í borginni. Á skipinu voru allir heilbrigðir, er það kom hingað til lands. En stuttu áður hafði sú fregn komið frá sendiherra Sv. Bj., að svarti dauði væri í Lissabon. Ljet því landlæknir setja skipið í sóttkví á pingeyri og engar sam- göngur við það hafa. Var nú símað til Sv. Bj. sendiherra, og hann beð- inn að komast fyrir um það til fullnustu, hvort nokkur pest væri í Lissabon. En slík fyrirspurn þurfti að ganga í gegnum utanríkisráðu- neytið danska, og var hún svo lengi á leiðinni, að henni var fyrst svarað í fyrradag. Og er svarið á þá leið, að enginn svarti dauði sje í Lissabon nú — sje um garð genginn. En aftur á móti hefir orðið vart við hann í Malaga. Er því með öllu ástæðulaus sá orðrómur, sem hjer gekk um dag- irn, að pestinni hefði verið hleypt hjer á land. Hefir full varúð verið höfð í þessu máli af heilbrigðis- stjórninni — svo sem vera bar. Ensku togaramir, Aspasia og St. Dönis, sem ganga hjeðan á þessari vertíð, fóru út á veiðar í gær. Á þeim eru íslenskir skipstjórar og nokkur hluti skipshafnanna. „Islands Falk' ‘ kom hingað í gær. Skallagrímur er nýlega kominn af veiðum með 82 tunnur lifrar. Sigríður kom af veiðum í gær með 7000 fiskjar. G-oðafoss var á Norðfirði í gær. Hann á að vera hjer 4. apríl. Skáld og listamenn. Nýlega hefir vorið úthlutað styrknum til skálda og listamanna, fyrir 1923, sém er 15 þús. kr., og skiftist hann þannig: Ingibjörg Benediktsdóttir söngn. 500 Jón porleifsson listmáíari .... 1000 Guðm. Friðjónsson rithöf....... 800 Davíð Stefánsson rithöf.......... 700 Guðm. J. Kristjánsson söngnemi 400 Sig. Birkis söngnemi ............ 400 Jón Stefánsson liátmálari .... 1000 Ben. Á. Elfar söngnemi .......... 400 pórður Kristleifsson söngnemi 400 Gunnl. Blöndal listmálari .... 500 Sigvaldi Kaldalóns tónskáld .. 800 Einar H. Kvaran rithöf.......... 3000 Sig. S. Skagfeldt söngnemi .. 500 Guðm. Thorsteinsson listmálari 500 Jóh. Kjarval listmálari ........ 1000 Ásm. Sveinsson myndhöggvari . 1000 Slefanía Guðmundsd. leikkona 1000 Nína Sæmundsd. myndhöggvari 400 Guðm. Einarsson myndhöggvari 400 Jón Jónsson listmálari .......... 300 Gamalmennahælið Grund. Margir þingmenn heimsóttu gamalmennahæl- ið síðastl. sunnudag, og leitst vel á þá stofnun. petta gamalmennaheimili er hreinlegt og vistlegt, og forstöðu- mönnum þess til sóma. Gamla fólkið er ánægt og hafði ekki annað en ó- blandað lof að segja um vistarveruna Opinbert uppboð verður haldiS á verslunarvörum úr verslununum A. B. C., A. B. C.-basarnum og Lucana, tilheyrandi þrotabúi Elíasar F. TTólm kaupmanns, í sölubúð A. B. C. verslunar, Laugaveg 12, laugar- daginn 24. yfirstandandi marsmánaðar, og hefst kl. 10 f. h. Gjaldfrestur verður að eins veittur skilvísum kaupendum, sem uppboðshaldari þekkir. Söluskilmálar verða birtir á uppboðtt- staðnum. Bæjarfógetinn í Reykjavík, 21. mars 1923. Jóh. Jóhannesson. nuglýsing fynr sjófarendur. Galtarvitinn er í ólagi. Reykjavik, 21. mars 1923. Vitamálastjórinn. Nokkrir duglegir flatningsmenn verða fram að hádegi i dag ráðnir á enskan botnvörpung. H.f. Kveldúlfur. Jeg hefi ákveðið að halda áfram gleraugnasölu mannsins mína sál. og hefi fyrirliggjandi allskonar gleraugu, gerfiaugu, kíkira og fleira. Gleraugnasalan verður opin á hverjum degi frá kl. 4 til 7 síðdegis á heimili mínu, Lækjargötu 6B, uppi. Sigriður Fjeldsted. þarna og ekki síst um stúlkurnar, sem ganga þar um beina og hjúkra þeim, sem aðhlynningar þnrfa. Tuttugu og tvö gamalmenni eru nú á hælinu, þar af fjórir karlmenn, og er Sig- urður Erlendsson bóksali einn þeirra, maður, sem kunnur er víða um land af bóksalaferðum sínum á fyrri ár- um. Hann átti hjer eitt sinn stein- liús við Laugaveg og bjó þar, en gaf það heilsuhæliiíu á Vífilstöðum. Otto Leval heitir söngvari frá Frag í Tjekko-Slovakíu, sem nú er á leið hingað til lands með Botníu. Er hann tenor-söngvari og hefir hlotið ágætan orðstír úti í heimi. Hr. Leval ætlar að halda hjer nokkrar söngsamkomur, og mun hann vera fyrstur útlendra söngvara tií þess aí' koma til fslendinga og biðja sjer hljóðs. Annars eru allar horfur á, að á þessu ári muni Reykvíkingum gef- inn kostur á að heyra til ágætra er- londra söngvara, þvi auk manns þess, sem hjer hefir verið getið, er í næsta mánuði von á finsku söngkonunni Signe Lilieqvist, sem mjög er rómuð á Norðurlöndum fyrir frábæra hæfi- leika í sönglist, og svo síðar ef til vill finsku sönghetjunni Helge Lind- berg, baryton-söngvara, sem getið hef- ir sjer svo góðan orðstír á söng- pöllum Evrópu, að hann má teljast meðal fremstu söngvara álíunnar. Dagskrár Alþingis í dag. — Ed.: 1. Prv. um undanþágu frá lögum nr. 91, 14. nóv. 1917, um aðflutningsbann á áfengi, 3. umr. (Ef leyft verður), 2. Frv. um breyting á lögum nr. 74, 27. júní 1921, um tekjuskatt og eigna- skatt, 2. umr. (Ef leyft verður). 3. Prv. um breyting á lögum nr. 61, frá 28. nóv. 1919, um bæjarstjórn á Seyð isfirði, 2. umr. 4. Frv. um íþrótta- sjóð Reykjavíkur, 2. umr. 5. Frv. um breyting á lögum nr. 22, 6. okt. 1919, um hæstarjett, 1. umr. 6. Fr". um bankaráð íslands, 1. umr. 7. Frv. um áfengissjóð, 1. umr. — Nd.: 1. Frv. urn ríkisskuldabrjef, 3. umr. 2. Frv. um skiftimynt úr eirnikkel, 2. umr. 3. Frv. um breyting á lögum nr. 38, þakkarávarp. pegar jeg varð fyrir þeirri sorg að missa minn elskaða eiginmann, Jón Valdemarsson, í sjóinn í of- veðrinu 14. janúar s. 1., frá tveimur ungum börnum, urðu margir góð- hjartaðir mannvinir hjer í Keflavík og víðar, til þess að rjetta mjer hjálparhönd, bæði með peningagjöf- um og á annan hátt. Öllum þessum góðu mönnum bið jeg himnaföðurinn að launa velgerðir sínar, þegar hann sjer þeim hentast. Keflavík, 19. febr. 1923. Jóna Lilja Samúelsdóttir. 27. júni 1921, um vörutoll, frh. 2. tlmr. 4. Frv. um breyting á lögum nr. 41, 11. júlí 1911, um breyting á lög- urn nr. 57, frá 22. nóv. 1907, um vegi, 1. umr. 5. Frv. um útsvarsskyldu vatnsnotenda, 1. umr. 6. Frv. um skemtanaskatt og þjóðleikhús, 1. umr. 7. Frv. um breyting á lögum nr. 41, 27. júní 1921 (Tolllög), 1. umr. 8. Frv. um breyting á samkomutíma reglulegs Alþingis, 1. umr. 9. Frv. um sandgræðslu, 1. umr. (Ef deildin levfir). 10. Till. til þingsályktunar um innlendar póstkröfur; ein umr. Dr. Frederick Cook, fyrrum kunnur fyrir staðhæfing sína um að hafa komist á norðurheim- skautið, hefir nýlega verið tekinn faetnr suður í Texas. Hafði hanu leigt sig inn á gistihús ásamt ungri stúlku og hafði nokkrar flöskur af wisky með sjer. Kona hans hafði njósnir um þetta, og gerði lögregl- uuni aðvart. Var Cook tekinn fastur og ákærður fyrir skírlífisbrot og fcannlagabrot. Lauk því máli svo, að hann varð að borga 500 dollara sekt fyrir síðar nefnda brotið, og fyrir hið fyrnefnda hefir kona hans farið í hjónaskilnaðarmál, og heimtar af- armiklar bætur. --------o--------

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.