Morgunblaðið - 04.07.1924, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.07.1924, Blaðsíða 2
M0R6UNBLABI1 Ipillur! II þeis* sesn etga panianir* hjá okkur, eru heðnii* að witja þeirra stras, þareð birgðirnar eru af mjög skornum skamti, en efLÍrspurnin mikil. UPPBOÐ. Eftir beiðni lögreglustjórans í Reykjavík og að undangetignu iögtaki, verða bifreiðarnar: RE 39, RE 47, RE 121 og RE 178, seldar tii lúkningar greiðslu á bifreiðaskatti, á opinberu uppboði, er hald- ið verður á Lækjartorgi laugardaginn 12. þ. m. kl. 1 e. h. Söluskil- málar verða birtir á uppboðsstaSnum. Bæjarfógetinn í Reykjavík, 4. júlí 1924. ]óh. Jóhannesson. SUNDMAGA Fyrsta flokks. Kaupum við. — Móttöku veitt i vþru- geymaluhúsi okkar við Tryggvagötu. Heildversl. Ásgeirs Sigurðsson. Austurstræti 7. Sími 300. Dreiiittiii n Dagana 26.—28. júní var presta- stefnan haldin í Reykjavík. Hófst hún með guðsþjónustu í dómkirk- junni þar sem biskupinn prjedik- aði, en meirihluti synodusmanna var til altaris á eftir; dómkirkju- prestur, sjera Bjami Jónsson, þjónaði fyrir altari. Kl. 4 síðdegis byrjuðu fundar- höldin í fundarsal K. F. U. M. Voru þá komnir til fundarins 5 prófastar, 16 sóknarprestar, 3 guðfræðikennarar háskólans, 2 uppgjafaprestar og 5 óvígðir kandídatar í guðfræði. Seinna bættust í hópinn 1 prófastur, og 5 prestar. Var því synodussókn nokkru minni að þessu sinni en undanfarin ár, enda var hún þá með langmesta móti, sem hún nokkru sinni hafði verið. Eftir að biskup hafði sett fund- inn og kvatt til fundarskrifara þá sjera Friðrik Rafnar og dosent Magnús Jónsson, gaf biskup all- ítarlegt yfirlit yfir viðburði am- liðins fardagaárs, þá er kirkjana varða. Mintist hann þar látinna presta*. þriggja þjónandi (sjera Bjöms Björnssonar í Laufási, sr. Oddgeirs Guðmundssonar á Ofan- leiti og sjera Sigurðar Stefáns- sonar í Vigur) og fimm uppgjafa- presta (þeirra prófastanna sjera Björns Jónssonar í Miklabæ, sjera Sigurðar Jenssonar í Flatey og sjera Jóns Halldórssonar á Sauða- nesi, og þeirra prestanna sjera Jóns Thorstensen á pingvöllum Beet Hálslín og Bindi selur og sr. porsteins Benediktssonar í Landeyjaþlngum). Einnig mint- ist biskup tveggja látinna prests- ekkna, frú Guðrúnar Runólfsdótt- ur á Akureyri (ekkju sjera Matt- híasar Jochumssonar) og frú Mar- grjetar Erlendsdóttur í Laugar- dölum (ekkju sr. Bjarna Sveins- sonar á Stafafelli). Loks mintist hann tveggja látinna eiginkvenna presta, frú Valgerðar Lárasdóttur Briern, konu sr. porsteins Briem, og frú Sigríðar Jónsdóttur, konu vígslubiskups, herra Geirs Sæ- mundssonar á Akureyri. Aðeins tveir prestar hefðu feng- ið lausn frá prestskap þetta far- dagaár, þeir sjera Helgi Árnason í Ólafsfirði eftir 42 ára prestskap, og dómkirkjuprestur Jóhann por- kelsson eftir 47 ára prestskap. Tveir þjónandi prestar hefðu á árinu orðið júbilprestar, þeir sr. , Páll próf. Ólafsson í Vatnsfirði ! (vígður 30. ág. 1873) og sjera Jón porsteinsson á Möðruvöllum (vígður 3. maí 1874). Tveir prest- I ar hefðu verið vígðir á árinu i (kandidatarnir Hálfdán Helgason i og Ragnar Ófeigsson) og einn pró-, i fastur skipaður (sr.Árni pórarinss.! jí Snæf.prfd.). Fimm prestaköll ^hefðu verið veitt og í hið sjötta I settur prestur í bili þangað til öðru vísi- yrði ákveðið. pjónandi j prestar væru í bili 105 og 3 að-! stoðarprestar, en allar líkur til að tala hinna fyrnefndu ykist nú á næstunni um tvo. Sem stæðu væru 8 prestaköll óveitt, en þeim mundi áreiðanlega fækka á þessu sumri. Tvær steinkirkjur hefðu verið reistar á árinu, á Brimilsvöllum og á Kvennabrekku (hin síðar- nefnda þó enn ekki fullger) og í sumar stæði til að reisa þrjár kirkjur (tvær úr steini í Mælifelli og á Ríp og 1 úr timbri í Odda). Tvö steinsteypt prestseturshús hefðu verið reist, á Skeggjastöðum. og á Dvergasteini. Enn skýrði biskup frá afskift-1 um alþingis af kirkjulegum mál- j um, frá yfirreið sinni um Norður- { ísafjarðar prfd. á næstliðnu sumri og frá utanför sinni og mintist kirkjulegra starfsemi hjer innan lands (t. d. sjómannastofunnar hjer í Rvík), útkominna rita er snertu kirkju vora (t. d. Menn | og mentir Páls próf. Ólafsonar IIII, rit dr. Arne Möller um „Lof- söng Islands um 1000 ár.“) pá skýrði dómkirkjuprestur Bjarni Jónsson frá bókagjöf ^ stiftaprófasts Martensen-Larsen í ’ Hróarskeldu til íslenskra presta og sendi prestastefnan gefanda þakkarskeyti. pá kom til umræðu skifting styrktarfjár til uppgjafapresta og prestsekkna. Var þar skift 9290,00 kr. milli 4 uppgjafapresta og 46 prestsékkna. Loks var skýrt frá hag prestsekknasjóðsins og reikn- ingur hans lesinn upp og sam- þyktur. í sjóði um nýár voru kr. 4-991,74. Var þá slitið fundi. j Kl. 8Y2 flutti sjera Bjarni Jóns- son synoduserindi í dómkirkjunni: „Dr. John Mott, — eitt blað úr kirkjusögu vorra tíma.“ Föstudag 27. hófst fundur á ný kl. 9 árdegis með bænaflutn- ingi og sálmasöng. Biskup gaf yfirlit yfir messu- gerðir og altarisgöngur á liðnu' ári samkvæmt skýrslum presta. | Messugerðir á sunnu. og helgi- [ dögum höfðu orðið 4092 eða rúm-) um hundrað fleiri en árið á undan,! en tala altarisgesta 4768 eða rúm- um 600 fleiri en árið áður. pá var skotið á Prestafjelags- fundi í sambandi við synodus og heldur hljómleika í Nýja Bíó laugardaginn 5. júlí kl. 714 síðdegis. rædd þar ýmisleg mál eftir að Emil Thoroddsen aðstoðar. Program: Hándel, Mendelsohn o. fl. gerð hafði verið grein fyrir hag Aðgöngumiðar á kr. 2.50 seldir í bókaversl. Sigfúsar Eymundssonar fjelagsins og lagður fram reikn- 0g. bókaversl. fsafoldar. ingur þess fyrir liðið ár. Var þar rætt um framhald Prestafjelags- ritsins, lagðar fram skýrslur um k'rkjugarða, sem fjelagsstjórnin hafði útvegað frá prestum og Safnaðarfundur fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík verður halöinn í öag, 4. þessa mánaðar í kirkju safnaðarins og byrjar kl. 8 síðöegis. Reykjavík 1. júlí 1924. Safnaðarsíjórnirt. Eymiindor Einarsson fiðluleikari. sóknarprestum, og rædd dýrtíðar- mál varðandi prestastjett landsins einkum að því er snertir misrjetti það er sveitaprestar hafa orðið fyrir, þar sem þeim eru ætlaðir aðeins % uppbótar í samanburði við aðra starfsmenn þjóðfjelags- ins. Loks var stjórn fjelagsins endurkosin. Stóðu þessar umræður til hádegis, og var haldið áfram á síðdegisfundinum til kk 5. Pá flutti Halldór Jónsson á Reynivöllum erindi um kirkju- söng: Hugsjónir. pakkaði biskup fyrirlestrarmanni fyrir og fóru umræður fram á eftir. Kl. 8 flutti biskup synoduser- indi í dómkirkjunni: „Hvað er kristindómur V ‘ Að því loknu dvöldu synodus- menn heima hjá biskupi fram undir miðnætti. Besf að auQÍfjsa í JTlorQunbh 5igne tiljEquist heldur hljómleika í Nýja Ríó í dag, 4. júlí, klukkan T\/it síðdegis, með aðstoð ungfrú Doris Á. von Kaulbach. Aðgöngumiðar seldir í bókaverslun Isafoldar og Sigfúsar Ey- mundssonar í dag. ísafoldarprentsmiðja leyslr alla prentun vel og sam- viskusamlega af henai me8 lœgsta verCi. — Hefir bestu sambönd 1 allskonar papplr sem tll eru. — Hennar sívaxandi gengi er bestl mælikvarBinn á hinar miklu vin- sældir er hfln hefir unniB sjer raeB áreiCanleik I vlBsklftum og lipurrl og fljðtri afgreiöslu. Pnpplrs-, nnMlaga og prentaýnla- liorn til aýnta á sbrlfstofnnnl. —— ------------gfanl 48.------------ Laugardag 28. júní kl- 93 var aftur settur fundur með bæna- flutningi og sálmasöng- pá flutti sjera Ragnar Ófeigsson erindi trúarsögnlegs efnis :Buddha og andastefua hans. Að því loknu var 10 mínútna hlje. Pá flutti prófessor S. P. Sívert- sen erindi um kirkjulíf á Eng- landi. Pakkaði biskup fyrirlestrar- mönnum fyrir erindi þeirra, en umræður fóru engar fram. Kl. 4y2 fór fram lokafundur prestastefnunnar a;ð þessu sinni. Par var á dagskrá: Samband ís- lensku kirkjunnar við kirkjur Norðurlanda. Málshefjandi var sr. Bjami Jónsson. Skýrði hairn frá prestafundi þeim, er haxm sotti í Danmörku á næstliðnu ári. Auk þess bar hann fram tilmæli um, að hjer yrði stofnuð grein alheims. fjelagsins til eflingar alþjóðafrið- ar fyrir tilstilli kirknanna og skýrði frá starfsemi þess fjelags- skapar. Ennfremur flutti biskup kveðju til íslenskrar prestastjett- ar og kirkju bæði frá Noregi og Svíþjóð, sem hann hafði verið beðinn fyrir. i pví næst vakti prófastur Kjart- an Helgason máls á hver þörf væri orðin á að endprskoða Helgi- siðabók vora og jafnvel einnig sálmabókina. Urðu allmiklar um- ræður um þetta mál og lofaði biskup að taka sjerstaklega end- urskoðun handbókarinnar til at- hugunar fyrir næstu prestastefnu. pá vakti biskup máls á því, að á næsta hausti (27. okt.) væru 250 ár liðin dauða Hallgríms Pjet- urssonar og óskaði að þessa yrði Jminst á prjedikunarstólunum 19. sunnud. e. trínitatis (26. okt.). Sjera Böðvar Bjarnason mintist alheimsfundar „Faith and order“ á næsta ári og lagði fram lista til áskriftar fyrir þá, er óskuðu að fá send rit þau, sem gefin væru út að tilhlutun þess alheimsfje- lagskapar. Loks talaði sjera Friðrik Frið- riksson nokkur orð að skilnaði og flutti bæn. Var þá sunginn sálmur og sagði biskup síðan prestastefn- unni slitið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.