Morgunblaðið - 21.05.1925, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsingadagbók.
Jllllliliilliillll Tilkynningar
Ólafur Grímsson fisksali, hefir
> símanúmer 1610
illllllllilllllllllillilillilllllllllllllllllllillllilllllllllllllllllilillllll
Heiða-brúðurin
skjótt og' lienni er lokið hjer í blaðinu.
Askriftarverð aðeins 4 krónur.
Tekið vlð áskriffum á afgr. Mbl.
Viðskifti.
Handskorna neftóbakið í Tó-
bakshúsinu, Austurstræti 17, er
viðurkent að vera svo gott, sem
neftóbak yfir höfuð getur verið.
Orlik- og Masta-reykjarpípur
eru heimskunnar og viðurkendar
fyrir gæði. Fást í Tóbakshúsinu,
Austurstræti 17.
Munið eftir þjóðfrægu legu-
bekkjunum úr Húsgagnaverslun-
inni Áfram, Laugaveg 18. Sími
919. —
Tapað. — Fundið.
Tapast hefir tfk, gulleit að lit,
dökt trínið. Finnandi geri aðvart
í síma 131 í Hafnarfirði
l!!llll!lll!llllll!l Vinna. I
Vor- og kaupamann vantar upp
t Borgarfjörð. Sömuleiðis kaupa-
konu. Upplýsingar á Bókhlöðu-
«tíg 9, í kvöld kl. 7—8.
GENGIÐ.
Reykjavík í gær.
Sterlingspund........ 26,25
Danskar krónur . . . . -101.51
Norskar krónur .. ■ . . 90.60
-'Sænskar ikrónur .. .. 144.70
Dollar................ 5.41
Frankar.............. 28.17
DAG^ÓK.
Q Edda 59255236—1 (laugard.)
fyrirl.*. Br.\ L.\ P.\
Guðspekifjelagið. — Reykja-
víkurstúkan. Fundur föstudag 22.
þ. m., kl. 8^2, stundvíslega. Efni:
Seinni hluti um drauma: Fram-
sýni, vitranir, draumspár, tákn-
draumar, draumskrök o. fl.
Samskotasjéðurinn. — Meðal
þeirra, sem gefið hafa í hann, er
Sjóvátryggingarfjelag íslands. —
Gaf það kr. 3000.00, og afhenti
I jandsbankanum.
Stúdentamótið í Oslo. Fyrir
stuttu var getið um hjer í blað-
inu, stúdentamót það hið nor-
ræna, sem fjelag norskra stú-
denta hefir boðað til í Oslo í sum-
ar. Hafði það verið ákveðið 20.
til 24. júní n. k. En nú hefir Stú-
dentaráðinu hjer borist tilkynn-
ing um það, að mótið hafi verið
ákveðið 13.—17. júní. Fullráðið
mun það vera, að einhverjir stú-
dentar hjeðan sæki mót þetta, og
er það vel farið, að upprennandi
inentamenn lijer kynnist andleg-
um hreyfingum og stefnum ná-
gi annaþ jóðanna.
Eldhússtúlku
vantar á •
HÓTEL ÍSLAND.
HinDi
i
afar fjölbreyttu úrvali
nýkómin til
Togararnir. Af veiðum liafa
komið nýlega: Hilmir með um
70 föt, og Njörður með um 90.
Ellll Illllsil.
„Haraldur", varðbátur sá, er á
að hafa strandgæslu fyrir Vest-
udjS-ndi í suniar, fór vestur í gær.
Mercur fer hjeðan í dag kl. 6
síðdegis 4il Noregs. Meðal far-
þega til útlanda eru Steinn Helga-
scn úmboðssali og hr. Nissen og
frú hans. Allmargir fara lijeðan
n,eð skipinu til Vestmannaeyja.
Sigurður prófessor Nordal er
meðal farþega á Mercur hjeðan
ti! Noregs. Mun hann dvelja í
Höfn í sumar við rannsókn ís-
lenskra fræða á söfnum þar. —
Snöggva ferð mun hann skreppa
til Finnlands, á /kennaraþing, sem
haldið verður í Helsingfors, og
flytur hann þar fyrirlestur. Hefir
Kennarasambanáið hjer beðið
hann að sækja þing þetta. En
síðan fer hann til Oslóar og held-
ur fyrirlestra þá við háskólann
þar, sem hann hefir verið beðinn
að flytja þar. Hann mun ekki
verða búinn að ljúka fyrirlestrum
sínum fýr en í október, og kemur
hann þá hingað og tekur víð
starfi sínu hjer við háskólann.
og ætlaði að beygja út í Kola-
sund. En á undan honurn var
maður á hjóli, er ætlaði sömu
Itið, og virtist drengnum að hann
mundi verða fyrir sjer, og að
hann gæti því ekki beygt út í
sundið. Lenti hann því upp á
gangstjettinni að norðanverðu við
göt.una og inn um gluggann í
verslun L. H. Múller. Skar hann
sig talsvert á liöku og vörum, og
var læknir, Ólafur Jónsson, sótt-
ur, og saumaði hann skurðina
saman. Drengurinn heitir Sigurð-
ur Jónsson, og vinnur lijá fisk-
verkunarstöð h.f. Ara. — Vera
kann, að þetta slys hafi ekki ver-
ið af neinni óvarkárni, en sarnt
sem áður ætti það að vera áminn-
ing fyrir þá, sem fara á hjóli hjer
um bæinn, að fara varlega, ekki
síst á fjölförnum götum bæjar-
ins.
Knattspyrnuf j elagið „Fram“.
Aðalfundur þess verður haldinn
í kvöld í Iðnó, kl. 8.
Dr. Silex verður meðal farþega
á Mercur í dag. Breyttist það, að
hann hiði eftir íslandi, eins og
getið var um í biaðinu í gær.
Morgunhlaðið kemur ekki út
fyr en á laugardag, vegna helgi-
dagsins í dag.
Slysfarir. í gærkvöldi kom
drengur á hjóli ofan Bankastræti
Wembley sýningin
hefir verið opnuð á ný.
Laugardaginn 9. þessa mánaðar
var hin mikla sýning í Wembley
opnuð á ný og við mjög mikla
viðhöfn. Konungur Breta opnaði
sýninguna. Eins og llcunnugt er
var sýning þessi opin í fyrrasum-
Á fðsfudaginn
22. þ. m.., kl. óþó e- m. verður í Gamla Bíó sýnd kvikmynd af tú"
húnmgi „Ideal“-miðstöðvarofna og „Ideal“ miðstöðvarkatla, seffl
firmað „National Radiator Co., Ltd.“, Hull, framleiðir. —
þeir, sem liafa í hyggju að kaupa þessi tæki í náinni framtíð, °S
sem liefðu gaman af aý sjá hvernig þessir hlutir eru húnir til, erU
hjer með boðnir á sýninguna.
R
i
1
i
fi
i
I n
i
Linoleumdúkar
í stóru úrvali, og
llaxdúkar
Verð frá 7 kr. meter.
Dúkar á
eldhúsborð
frá 3 kr. meterinn, og
Gólfpappi
Koparskinnur
alt með lægsta Reykja-
víkurverði, hjá
Einlaugi Slelsspi
Hafnarfirði.
i
i
Vasahnífar
frá 50 aurum, og skæri, stór
og smá, fást á
Frakkasíg 16.
Nærfatnaður
og prjónavörur margskonar fæst
á Frakkastíg 16.
ar. en Bretar hiðu fjárhagslegt
'tjón af sýningunni þá, en í ár
liugsa þeir sjer að vinna upp tap-
ið, sem varð í fyrra. Bretar telja
hinn óbeina hagnað, sem þegar
hefir orðið af þessari risavöxnu
sýningu, vera svo mikinn, að hann
hafi þegar borgað hana, en
þó mun enginn hafa á móti því,
að .peningarnir ltomi einnig I
kassann, einkanlega þar sem mest
Af bragðinu skulu þjer
þekkja það.
af því, sem inn kemur er erleö^
fje frá þeim mörgu miljonn®1
ferðamaima, sem skoða sýninS
una.
HEIÐA-BRÚÐURIN.
alla, og hún nötraði eins og reir af vindi skekinu. Er hún
hafði setið þannig um stund, skreiddist hún að litla rúminu
og fleygði sjer upp í það. Hún reyndi að hlusta eftir hverju
hljóði,' sem kærni utan úr myrkrinu, og hugsun hennar festist
við manninn, sem lá úti fyrir dyrunum — dauður eða deyjandi.
Leopold hafði auðvitað flúið, þegar hann var búinn að
framkvæma ódáðaverkið. En ef til vill var sá, sem fórnn átti,
ekki dauður enn, heldur að eins helsærður og bani búinn* ef
honum kærni ekki hjálp. Klara lokaði augunum — og þá
þóttist hún geta sjeð, Iivemig hann skreið eftir garðinum í
þeirri von að ná í hjálp.
Hún reis upp úr rúminu, fastákveðin í því að vinna bug
á hræðslunni og kynnast harmleik þeim, sem fariíf hafði fram
við húsdyr hennar. Hún kveikti á næturl.jóskerinu, fór með
það inn í veitingastofuna og opnaði aðaldymar. Henni var
Ijós hættan, sem henni gat stafað af því að ganga alwn út
að næturlagi. Allir, sem fram hjá færu, myndu sjá hana, og
þá gætu þeir lagt fyrir hana þær spumingar, sem henni yrði
örðugt að svara. Og eins gæti fallið á hana gmnur um þátt-
íöku í því, sem fram hafði fari'ð þetta kvöld. En hugsun-
ina um þessa nýju hættu rak hún á burt. Hún lokaði hurð-
inni á eftir sjer og gekk út á götuna.
pað hafði hvest síðasta klukkutímann. Og þegar Klara
tom út á götuna, hittist svo á, að dimt skv rak frá tunglinu
og kastaði það bleikfölum geislum sínum yfir götuna. Klöru
Ijetti við þetta. Hiin slökti á ljóskerinu, gekk að húsveggnum
■aftui' og hallaði sjer upp að honum. Hún reyndi af alefíi að
hlusta. Tveir síðbúnir hestagæslumenn fóru um veginn og
sungu fullum hálsi, en sporamir á stígvjelunum þeirra glömr-
uðu við götuna.
Klara hreyfði sig ekki fyr en ómurinn af söngnum var
dáinn út. pá fór hún að m.jaka sjer með fram lágum múm-
um. Hún vakti engan hávaða, því sandkend moldin var mjúk
undir fæti. En ef hún heyrði til sjálfrar sín, hrökk hún sain-
an og þrýsti sjer enn fastara að múrnum.
Nú var hún komin að hominu á múrnnm. Beint fram
undan henui var akacíu-trjeð. Á bak við það liafði morðing-
inn hafst við um langan tíma. Kofi Iiézi gömlu var svo sem
tuttugu skref þaðan. pað var dimt og þögult inni í homnn
og úti fyrir. pótt Klara væri ekki með sjálfri sjer, tók hún
þó eftir því. Morðinginn hafði auðsjáanlega unnið verk sitt
fljótt og furalaust.
pegar Klara kom fyrir næsta homið á garðimun, blasti
við henni garðurinn, baðaður í tunglsljósinu. Hún ljet aftur
augun með hryllingi, því hún hafði sjeð einhverja hreyfingar-
lausa þúst í garðinum fáein fet frá bakdyrunum. Hún varð
að taka á öllum viljakrafti sínum til þess að þora að líta
þangað aftur. Húu sá, að þetta var alveg hreyfingarlaust.
Hún læddist hljóðiyn skrefum að því og sá hvers kyns var. Pað
viu' annaðh\*i't dauður eða deyjandi maður. Klara safm11'1'
öllum kröftum sínuru til næstu hreyfingarinnar; hún rje^!'
höndina íram og snerti við manninum. Hann lá á grúfu, l'*5'
lega eins og hann hafði fallið. Klara lyfti hotmm frá jöfð®1
og þá sá hún framan í Béla Erös.
Klövu fanst í svip, að hún mundi missa vitið, og 8
hún mundi framvegis bæði í vöku og svefni sjá þessa ),a'
bleiku ásjónu. Hún lagði manninn niður aftur og lá um stuud
á hiijántún hjá honum, magnlaus og ráðþrota. Hún reyndi a®
hugsa og komast að raun um, hvernig á því stæði, að Bela,,
hefði komið hingað en ekki ungi greifinn.
Sí.
En hún fann enga ráðningu á því. Hún gat ekki an»a
en horfst í augu við veruleikann: Béla lá þarna dauður, he°'
pold liafði myrt hann, og hún varð fyrir hvern mun að koi"®
í veg fvrir, að hún yrði nefnd í sambandi við þetta hryH1
lega verk.
Loks gat Klara safnað svo miklu þreki, að hún stóð 11PB
og bjóst til að fara frá líkinu. En þá steig hún ofan á eM
hvað hart. Hún leit á það og sá, að það var bakdyralyk1^
inn. Hann hafði dottið úr hendi Béla um leið og Iiann fie"'
pað var ekki nema nokkurra mínútna verk fyrir Klövn
beygja sig niður eftir lyklinum, hlaupa að bakdyrununif oplia
þær og læðast inu í húsið. — Og nú var hún komin 11111
stofuna sína eins og elt dýr, stynjandi og skjálfandi, 611
örugg.