Morgunblaðið - 10.07.1925, Page 3
M ORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÍII,
Btolnandl: Vllh. Flnaen.
Útgefandi: Fjelag: 1 ReykjaTÍk.
Rltatjörar: Jön Kjartan»»oc,
Valtýr Stefánason.
a.uKlýaingastjörl: E. Hafber*.
Skrlfstofa Austurstrætl 8.
Slmar: nr. 498 og*690.
Auglýsingaskrlfst. nr. 700.
Helmaslmar: J. KJ. nr. 742.
V. St. nr. 1220.
E. Hafb. nr. 770.
Áskriftagjald innanlands kr. 2.00
á mánuSi.
Utanlands kr. 2.50.
f lausasölu 10 aura elnt.
BIFREIÐARSLYS.
Eifreið veltur útaf veginum með
sjera Bjarna Jónsson og fjöl-
skyldu hans.
Engin hæ,'ttuleg meiðsli
hlutust af. #
Mikil mildi að ekki fór ver.
Ferðamannaskipið
„Franconia“.
ERLENDAR SÍMFREGNIR
Chamberlain telur alt framferði
Bolsa óþolandi.
Khöfn 9. júlí ’25. FB.
Símað er frá London, að Chaui-
lierlam hafi sagt í þinginu, að
j?ann veg væri nii málum komið
milli Englands og Rússlands, að
bráðlega mundi hámarki náð.
nema Rússar hætti öllum fjand-
samlegum undirróðri í Bretaveldi.
Norska stjórnin völt.
Símað er frá Osló, að ráðuneyti
Mowinckels sje nú aftur í hættu
statt, vegna frumvarps um hækk-
un skatta.
Frakkland og MarokkómáJin.
Símað er frá París, að öll at-
hygli manna heinist að Marokkó-
málunum. Styrjöldin er stór-
hættuleg Frakklandi sem stór-
veldi. Liðsauki er daglega sendur,
en þó skortir mikið á, að nægi-
legt sje. Stjórninni háir >að mjög,
að kommúnistar og socialistar
fylgja henni ekki að málum þess-
um.
\
Segja Kínverjar Bretum stríð
á hendur?
Símað er frá Berlín, að fregn-
Ir hafi borist um það, frá Peking,
að kínverska stjórnin hafi í huga
■að segja Englandi stríð á hendur.
Fimleikaflokkar í. R.
Aikureyri 9. júlí ’25. FB
Leikfimisflokkar íþróttafjelags-
Ins liafa nú sýnt hjer list sína
þrem sinnum fyrir fullu húsi. í
gærkvöldi sýndu þeir til ágóða
fyrir Heilsuhælisf jelag Norður-
lands. Að lokinni þeirri sýningu
kvað Ragnar Ólafsson sjer htjóðs
og þakkaði flokknum fyrir kom-
una með nokkrum velvöldum orð-
um. Bað hann fjelagið lengi lifa
og tóiku allir viðstaddir undir o'5
hans með húrrahrópum. Flokk-
arnir þökltuðu og árnuðu Akur-
eyri alls góðs. Á morgun fara háð-
ir flokkarnir landveg til Húsa-
víkur um Breiðumýri. Hafa Ak-
ureyrarbúar boðið hesta og. fer
hópur manna með íþróttaflokkun-
um til Breiðumýrar, en þaðan
verður farið til Húsavíkur í bif-
reiðum. Leikfimisáhöldin eru send
hjeðan með kútter pingey, sem er
eign Bjarna Benediktssonar og
Co á Hiisavík. Er það rausuar-
lega gert, að láta skip af hendi
ti’ þess í byrjun síldveiðitímans á
Húsavík. Flokkarnir verða þar
gestir bæjarins.
Seinni partinn í gær var sjera
Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur
og fjölskylda hans á leið í bif-
reið upp að Korpúlfsstöðum. í
bifreiðinni voru þau hjónin, mág
kona sjera Bjarna, frænka hans
og þrjú börn með þeim, alls sjö
farþegar.
Þegar komið var skamt inn fyr-
ir Laugabrekku tapar bílstjórinn
stjórn á bifreiðinni, og hún velt-
ur út af veginum."
par sem bifreiðinni hvolfdi, var
laut, eða grunnur skurður við veg-
inn. Varð þetta til þess, að rýmra
varð um farþegana meðan bifreið-
in lá ofan á þeim. En eins og
eðlilegt er, var það hrein hending
hvernig fólkið sem í bifreiðinnií
var kom niður. Urðu þau harðast
úti í fallinu sjera Bjarni og frú
hans. Vagnbrúnin hvíldi á brjósti
sr. Bjarna. Flutningabifreið var á
veginum rjett á eftir þessari. —
Kom maður þaðan á vettvang og
lyfti undir vagnbrúnina, svo hún
ivarð sjera Bjarna bærilegri. En
maðurinn einn hafði ekkert afl
til þess að lyfta bifreiðinni, svo
fólkið, er klemt var, gæti losnað.
En eftir örfá augnablik kom önn-
ur bifreið að með nokkra menn
er gátu losað alt fólkið.
Kom það þá í ljós, að kona
sjera Bjarna var verst leikin. Hún
hafði klemst svo um háls ogbrjóst
að henni lá við köfnun. Aðra far-
þega sakaði ekki að mun.
Læknir sagði Morgbl. ;í gær-
kvöldi að meiðsli þeirra hjóna
væri sem betur fer ekki hættu-
leg, en búast mætti við því, að
þau hjónin yrðu nokkra daga að
ná sjer til fulls
Hverjar liinar eiginlegu orsakir
slyssins eru, getur Mbl. eigi upp-
lýst. Ymislegt hefir það heyrt, en
vill engan dóm kveða upp um
það, hvað satt er. Vafalaust verð-
ur málið rannsakað mjög ítarlega,
svo að hinir sönnu málavextir
komi í ljós. Slys þetta er svo al-
varlegs eðlis, að almenningur
hlýtur að krefjast þess, að bif-
reiðaakstri bæði innan bæjar og
eigi síður utan, verði meiri gaum-
ur gefinn hjer eftir e,n verið hefir
hingað til.
,,Franeonia“, ameríska ferða-
mannaskipið, kom í aðra ferð sína
hingað til lands í gær kl. 6 síðd.,
með um 400 farþega. Skipið er
eign Cunard-línunnar, nýlegt skip
og vandað, og allur útbúnaður
því hinn prýðilegasti. Skipstjór-
inn er kaft. G. W. Melsom, O.B.R.,
R.N.R.
— Raymond-Whitcomb fjelagið
víðkunna í New-York annast
ferðamennina að nokkru leyti. —
Er ferðalag þetta kallað „Ray-
mond-Whitcomb Midnight Sun
Cruise“, eða ferðin til landa mið-
nætursólarinnar. Er þetta 5. ferð-
ir> af þessu tagi. Fer þátttakan
vaxandi. Hjeðan fer skipið að
venju til Nordkap í Noregi og svo
suður með Noregsströndum, alla
leið til Osló, þaðan til Gautaborg
ar, Kaupmannahafnar, Amsterdam
Boulogne og Englands. Aðalmenn
Raymond-Wliitcomb-f jelagsins á
þessu ferðalagi eru þeir Col. J. A.
Degen og Col. V. M. Fitz-PIugh
o. fl.
Móttöku ferðamannanna anr.a
hjer eins og í fyrra ferðamannafje-
lagið „IIekla“. Fór móttakan vel
úr hendi í fyrra, og mun þó enn
betur fara nú, því að meira er
gert gestunum til skemtunar en þá
var. Mun það hafa orðið að sam-
komulagi milli þeirra Raymond-
Withcomb-manna og Heklu-manna,
að liafa skemtun fyrir gestina íiti á
skipinu þegar fyrsta kvöldið. Er
það góð hugmynd, sem væntan
lega verður framkvæmd framvegis,
þogar eins stendur á.
Um kl. 9 í gærkvöldi höfðu far-
þegar á skipinu og margt skips-
manna safnast saman á efsta þil-
fari. En þá átti skemtunin, söng-
ur og glímur, að hefjast. Á tíunda
tímanum kom karlakór K. F. U. M.
1 undir forustu Jóns Ilalldórssonar
ríkisfjehirðis, út í skipið til þess að
skemta gestunum með söng. Enn-
fremur komu þangað 16 söngkon-
ur, er sungu tvö lög með flokku
um. Þá kom og 16 manna glímu
flokkur frá glímufjelaginu „Ár
mann“.
Mr. F. J. Kovach frá Raymoud
Whitcomb-fjelaginu ávarpaði ferða-
mennina og gestina úr landi. Bauð
hann gestina velkomna og fór mjög
! hlýlegum orðum um ísland og Is-
. lendinga og þá gestrisni, sem ferða
! menri á vegum fjelags hans hefðu
um, t. d. Alþing hið forna á Þing-
völlum o. m. fl. Var ræða hans hin
skörulegasta. Kjnti hann þá h.r.
Jón Halldórsson, söngstjóra K. F.
U. M. söngflokksins, fyrir ferða-
mönnunum, og hófust þá hljóm-
leikarnir. — Söng blandaða kórið
fyrst þjóðsönginn íslenska : „O, guð
\ors lands“, en allir lilýddu , á
standandi og berhöfðaðir. Söngur-
inn tókst vel, og var óspart klapp-
að. Karlakórið söng því næst nokk
ur lög, öll íslensk. Einsöngva söng
lir. Oskar Norðmann. Ennfremur
söng frú Guðrún Ágústsdóttir ein-
söng, en frú Ásta Einarsson ljek
undir. Margir gestanna fóru mörg-
um aðdáunarorðum um sönginn.
Því miður var ekki hægt að syngja
öll lögin, er á söngskránni voru,
því þegar hún var hálfnuð, fór að
rigna lítið eitt, og glímuflokkurinn
hafði ekki enn sýnt listir sínar.
Söngkonurnar voru klæddar ís-
lenska þjóðbúningnum og þótti
ferðamönnunum mikið til hans
koma.
Hr. Jón Þorsteinsson stjórnaði
glímuflokknum og var framkoma
flokksins hin prúðmannlegasta. —
Glímnmennirnir voru allir ungir
glímumenn úr Ármann, og lögðu
aðaláhersluna á að glíma sem lið-
legast. Vakti list þeirra hina mestu
athygli. Vegna ýringar úr lofti
varð sleipt mjög á þilfari, og því
ilt að glíma. Hr. Sigurjón Pjeturs-
son, fyrverandi glímukongur Is-
lands, ávarpaði ferðamennina fá-
tinum orðum áður en glíman hófst
og útskýrði fyrir þeim glímuna.
— Að skemtaninni lokinni voru
hressingar fram bornar, og var
komið undir miðnætti, er íslensku
gestirnir voru aftur komnir í land.
Ferðamennirnir fóru ekki dult með
ánægju sína af lieimsókn þeirra og
þökltuðu þeim óspart fyrir komuna.
Margt merkra manna og kvenua
er á skipinu, t. d. Mr. Tlieodore
Edison, sonur uppfundningamanns-
ins fra>ga, og kona hans. Mr. Edi-
son yngri er framkvæmdarstjóri í
Edisonfjelaginu. Ennfremur var
frjettaritara Morgunblaðsins skýrt
frá þessum nöfniun: Miss Dorothea
Lewis, frá New Yorlt; Mr. og Mrs.
C. II. Savre Merill, frá Boston;
Mrs. Charles A. Morss og dóttir
hennar ; Miss Marian Morss, frá
Boston; Miss Katharine G. Dodgc,
frá Boston; Mrs. Emmons J. Whit-
eomb o. m. fl„ og er alt þetta fólk
leiðtogar í fjelagslífi á þeim stöð-
um, sem það er frá. Vert er að
geta þess í þessu sambandi, að
ENRIQUE NIOWINCKEL
Bilbao (Spain)
— Stofnað árið 1845 —
Saltfiskup og hrogn
Simnefni: »Mowinckel«
Veröiö ækkaö
á hinum heimsfrægu
Zeiss kúptu gleraugna-
glerjum. Fást einungia
hjá aðalumboðsmannin-
um á Laugaveg 2.
Thiele (gult hús, blá
skilti.)
Útvegum
beint til trjesmiða:
Eik — Mahogni — Fnnj
og allar aðrar trjátegundir.
Ludvig Stopr.
Sími 333.
H.f. Þvottahúsið Mjallhvít.
Sími 1401. — Sími 1401. ?
pvær hvítan þvott fyrir
65 aura Mlóið.
Sækjum og sendum þvottinn. 4
mætt hjer. Mintist hann á margt
viðvíkjandi Islandi og Islending-margt ferðamannanna kannaðist við
MUNIÐ A. S. 1.
Sími: 700.
þau ungfrú Hólmfríði Árnadóttur
og prófessor Á. II. Bjarnason, eti
þau liafa eins og kunnugt er, far-
ið vestur til Bandaríkja til fyrir-
lestrahalds. Hafði sumt af ferða-
fólkinn hlýtt á þau þár. 'Bendir
þetta á, hve mikla þýðingu það hef
ir, er vel mentaðir Islendingar
fara utan og koma fram landi sínú.
og þjóð til sóma. — Framkoman
glevmist ekki í ókunna landinu.
Ferðafólkið ljet vel yfir sjóferð-
•inni og var vongott um, að það
fengi sólskinsveðnr hjer, því dag-
urinn í fyrradag spáði góðu, en
því miður var súld í gær svo vart
sást til fjalla.
í dag fer hópur til pingvalla
klukkan 9.
Sjerstök sýning á ísl. kvikmynd-
inni verður haldin kl. 2y2 í da'g
í Nýja Bíó.
Ferðamennirnir hafa margir far-
ið mjög hlýiegum orðum um við-
tökurnar hjer.
Skipið fer lijeðan í kvöld, beint
til Noregs.
íslenska glíman.