Morgunblaðið - 16.07.1925, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.07.1925, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAIII, Stofnandi: Vilh. Flmen. Útgefandi: FJelag I ReykjaTÍlc. Rltatjörar: Jön KJartaHaaoc, Valtýr Stefánaaon. angriyaingastjöri: E. Hafbers. Skrlfstofa Austurstrætl 8. Siuar: nr. 498 og 600. Auglýalngraskrlfat. nr. 700. Heiaaaalmar: J. KJ. nr. 748. V. St. nr. 1880. E. Hafb. nr. 770. Áskrlftagjald Innanlands kr. 2.00 á mánuöi. Utanlands kr. 2.50. 1 lausasölu 10 aura elnt. ERLENDAR SÍMFREGNER Khöfn 15. júlí ’25. FB. LæknisfræSileg uppgötvun. Símað er frá London, að lyfja- fræðistofnun ríkisins hafi fundið ^mikroskopiska organisma/ er or- saki krahbamein, Er hjer um merkilegan atburð að ræða í sögu læknisvísindanna, en vafasamt er talið hvort mikið raunve'rul. gagn verði af uppgötvuninni, Af stofn- unarinnar hálfu verður nánar skýrt frá þessu bráðlega. r t Námumálin í Englandi. 'Símað er frá London, að rann- sóknanefnd hafi verið skipuð í kolanámudeilumálunum. Belgíska stjórnin og Ráðstjórnin rússneska. Símað er frá Bryssel, að ATand- ervelde hafi sagt, að belgíska Stjórnin væri þess ófús, að viður- kenna ráðstjórnina rússnesku. Flotaaukning Breta. Símað er frá London, að stjórn- in hafi ákveðið að láta smíöa 14 ný beitiskip á næstu 5 arum. I Skattafrumvörp frönsku stjórnar- innar samþykt. Símað er frá París, að skatta- frumvörp Caillaux hafi verið sam- >ykt. Socialistar greiddu atkvæði gegn stjórninni í vissu atriði. - Vinstriflokkur þannig klofinn: Stjórnin lafir af náð hægrimanna. Verslunarmálaráðstefnan. Fimleikaflokkur í. R. Seyðisfirði 14. júlí ’25. FB — Leikfimisflokkur í. R. kom hingað í gærmorgnn á Esju. — Sýning í gærkvöldi.Var ekki hægt að halda hana á íþróttavellinum. ‘Talsverð rigning. Sýningin þótti takast aðdáanlega vel, þótti jafn- vel betri en sýning Norðmannanna 1921. Fimleikamennirnir voru þol- .góðir og jafnsnjallir. Þeir höfðu lítið gólfrými og var svækjuhiti 5 húsinu, enda fjöldi áhorfenda. Allir stórhrifnir. íþróttamennirnir ánægðir með undirbúning og mót- töku. Fara hjeðan í dag til Norð- fjarðar og er gert ráð fyrir að fiýning verði haldin þar í kvöld, en á Eskifirði á morgun. Þaðan fara þeir til Hjeraðs. Fimleika- konurnar fóru til Reyltjavíkur á Esjunni, — var viðdvöl þeirra bjer of stutt til sýningar. Þótti íSeyðfirðingum ilt að fá ekki tæki- færi til að sjá list þeirra. i Norðfirði 15. júlí ’25. FB Leikfimisflokkur Í.R. kom hing- .að í gærkvöldi á vjelbát frá Seyð- isfirði eftir talsvert sjóvolk. Var sjórinn allúfinn við Dalatanga. —■ Sýningin var haldin kl. 9 (flokk- urinn ltom kl. 7y2) á svo köll- (Tilk. frá sendih. Dana.) Rvík 14. júlí ’25. FB. Grein í „Berlingske Tidende.“ — í „Berlingske Tidende“ var birt ritstjórnargrein um verslun- arráðstefnuna.Er sú ósk látin í ljós, að framh. verði á því starfi, sém hafið var á verslunarráðstefn- unni, að koma saman og ræða þau mál, er varða verslunarstjettir beggja landanna og báðar þjóð- irnar í heild sinni. Að þörf er samvinnu og að skilyrði fyrir henni eru íyrir hendi, hefir vevsl- unarráðstefnan leitt í ljós. All- ítarlega er lýst framförum lijer á landi og í sambandi við þau orð eru endurtekin orð hr. Garðars Gíslasonar og S. Eggerz, að lífs- nauðsyn sje á, að bæta samgöng- urnar við önnur lönd. Greinarhöf. I hallast að þeirri skoðun, að til- raun til beinna ferðar milli Dan- merkur og íslands mundi nú vel ta.kast. Komist beinar samgöngur á, muni það koma í ljós, að nóg verði til að flytja. Þörf sje á, að rannsaka þetta til hlítar nú. Greinarhöf. óskar, að þetta verði einn ávöxturinn af verslunarráð- stefnunni. A styrjaldarárunum, segir greinarhöf, komst á auk- in isamvinna í verslunarmálum milli Danmerkur, Noregs og Sví- þjóðar, sem enn voru gerðar til- raunir til að auka, er stríðinu lauk. Nú sje gerð tilraun til frek- ari samvinnu m’illi Islendinga og Dana, og alt iitlit bendi í þá átt, lað verða muni báðum aðiljum í hag. Hjer sje um nokkurskonar „praktiskan Skandinavisma‘1 að ræða, sem skilið * eigi stuðning góðra manna. Skemtiför um Norðursjáland. Þatttakendur i verslunarráð- stefnunni fóru í bifreiðaför á föstu daginn, sem „Islands Handelsfor- ening“ sá um. Farið var til Fred- eriksborgarhallar í Hilleröd og þar etinn morgunverður, síðan til Kronborg og skoðað „Handels og Sjöfartsmusæet* ‘. Miðdegisverður var etinn á Marienlyst og voru þar margar ræður haldnar af þeim Bjarna Nielsen, Flygenring, fólk- þingsmanni Henricksen, Garðari Gíslasyni, S. Eggerz, Ziesberg, Ernst Meyer og' Schovelin „Börs- kommissionær‘ ‘ er hjelt ræðu fyrir minni íslands. Ræðuna fyrir minni Danmerkur flutti S. Eggerz. For- sætisráðherra bauð þátttakendum að borða á Skydebanen á laug- ardaginn. Uppástunga um breytingu á fyrir- komulagi á póstávísunum. Þegar rætt var um skrásetning íslenskrar krónu, ljet G. Gísla- son þá ósk í ljósi, að póststjórnirn ar á í.slandi og í Danmörku kæmu því til leiðar, að liægt verði að senda íslenskar krónur með póst- ávísun til Islands og ennfremur að póstkröfufyrirkomulagið yrði gert óbrotnara. „Börsen“ hefir leitað upplýsinga um þetta hjá yfirpóst- stjórninni dönsku og „Statsgælds direktoriatet“, sem benda á, að ekki muni verða um hindranir að ræða, svo þessu verði kipt í lag. Þetta hefir ekki verið rætt fyr, en ástæða er til að ætla, að þessu verði sint, þegar fram verður bor- ið á rjettum stað. Höfnin skoðuð. Boð hjá Stauning forsætisráðh. Stundunum fram að nóni á laug ard. var varið til þess að skoða höfnina og ýms mannvirki í nánd við hana.Var farið á kafnarstjórn- arskipinu „Grane“. Er ferðinni lauk, hjelt Sæmundur kaupmaður Halldórsson ræðu og þakkaði fyr- L* hönd íslendinganna. í samsæti forsætisráðh. á Skydebanen, flutti Stauning hjartanlega ræðu um ísland, og þakkaði Garðar stór kaupmaður Gíslason. Ernst Meyer þakkaði þátttöku forsætisráðherra í verslunarráðstefnunni. „Börs- kommissionær* ‘ Schovelin hjelt ræðu fyrir minni íslenskra kvenna. Þarna var margt manna saman komið auk íslendinganna, t. d. landvarnarráðherra Laust- Rasmussen, konungsritari, Jón Krabbe, stjórn stórkaupmannafje- lagsins, stjórnin í „Den islandske Handelsforening,“ o. s. frv. uðum Bakkabökkum, en þeir eru sennilega besti íþróttvöllur á land- inu. Meirihluti bæjarbiía var við- staddur og virtist ánægður. - Flokksmenn voru gestir íþrótta- fjelagsins „Þróttur,“ sem annað- ist móttöku ágæta vel. Að sýn- ingunni lokinni fór fram kaffi- drykkja og þakkaði Ólafur versl- unarstjóri Gíslason flokksmönnum og kennara með nokkrum vel völd ur orðum. Hjeðan fara þeir á morgun til Eskifjarðar, ef veður leyfir, og sýna þar. ísafirði 15. júlí ’25 FB Dönsku stúdentarnir sungu hjer kl. 11 í dag við mikla aðsókn og lof. Síldveiði byrjuð hjeðan. Aflast vel í reknet. Sláttur byrjaður fyrir nokkru. Spretta ágæt. Óþurkur. BYLTINGIN í GRIKKLANDI, og tildrög hennar. Það þykir jafnan tíðindum sæta, þegar stjórnarbjdting verður í ein- hverju landi, en það mun þó eng- inn kippa sjer jipp við, þótt þess háttar komi fyrir í Grikklandi. Þar hefir hver stjórnarbyltingin rekið aðra síðustu árin. Hinn stærsti viðburður í stjórnmálalífi Grikklands á síðari tímum, skeði 1924, þá er þjóðin vjek konungi sínum frá og stofnaði lýðveldi. — Stjórn sú, er setið hefir að völd- um frá í fyrra undir forustu Mic- halakopolus, hefir ekki átt sjö dagana sæla. Fyrst og fremst eru fjármál ríkisins komin í hina mestu óreglu, en hitt hefir þó jafn vel reynst erfiðara að skiftast þegnum á við Tyrki. Hundruð þúsunda grískra þegna hafa síð- ustu árin horfið heim til föður- landsins, og má nærri geta, hversu erfitt hefir verið að útvega öllum þessum mannfjölda húsnæði og at- vinnu. Ráðuneytið átti í hálfgerð- um erjum við Tyrki í tilefni af, að Tyrkir ráku gríska yfirbisk- upinn á brott frá Konstantínópel og fóru halloka í því máli. Enn- fremur hefir Grikkland og Jugó- slavía verið að semja um járn- brautarsambandið frá Júgóslavíu til Saloniki i Grikklandi. Júgósla- vía hefir sáralítinn aðgang að haf- inu síðan ítalía að mestu fjekk yfirráðin yfir Fiume, og stjórnin hefir því lagt ofkapp á að komast að samningum við Grikki um að- gang að Salonikihöfninni. Síð- ustu mánuðina hafa stjórnir nefndra ríkja rætt mál þetta á milli sín, en árangurslaust. í Grikklandi jókst óánægjan yfir þróttleysi stjórnarinnar inn á við og út á við. Einn góðan veður- dag eigi als fyrir löngu, komu herforingjar nokkrir í Saloniki sjer saman um að reka gömlu stjórnina og taka sjálfir í taum- ana. Flotastjórnin studdi þá að máli, og var því ekki annað fyrir stjórnina að gera, en að láta und- an síga. Sagt er, að atburðurinn hafi farið fram á mjög friðsam- legan hátt. Takmörk nýju stjórn- arinnar er einbeittari framkoma bæði í innanríkis- og utanríkis- málum, fjárhagsleg endurreisn ríkisins og efling álits þess út á við. Vonandi fer stjórnin sjer ekki eins geyst eins og hún lætur í veðri vaka. Fari hún að sperra sig um of svo til fjandskapar leiði annað hvort við Júgóslavíu eða Tyrkland, er Grikkland illa farið, því Grikkir eiga sjer fáa vini sem stendur. Atburðir síðustu ára í landinu og framkoma Grikkja í útanríkisst jórnm álnm hafa gert 'þetta gamla glæsilega menningar- land einmana. T. S. Dóra Sigurðsson. Aðalviðburð sumarsins má með sanni kalla söngskemtun frú Sig- urðsson, með hinum yndislega leik manns hennar á flygelið. Þar birt- ist hin göfugasta sönglist í svo innilegum og samfeldum tóna- hreim, að venjuleg lofsyrði við snildarleik Haraldar verða alls eigi nægileg, svo að maklegleik- um sje lýst töfrum þeirra hljóma í söng og strengjaslætti. Frú Dóra Sigurðsson er í söng sínum sem skínandi stjarna himinsins, stjarna sem töfrar, ekki með ljóskrafti sínum heldur með fögrum og skær um litbrigðum. Það má lengi og víða leita til þess að finna jafn göfuga meðferð og þá, sem þessi „Romance“-drotning lætur hverju hlutverki sínu í tje. Röddin er ekki afarmikil, eng- iii óperurödct, cn fögur er hún nú orðin og svo snildarlega með hana farið, að enginn þarf að sakna 'þess, sem vanta kann í styrkleika. t. d. í „Söngvum Dyveke.“ Frúin hefir svo afarmikið vald yfir rödd sinni að hæstu og sterkustu tón- ar hennar eru jafn fagrir sem þeir veikustu og fínustu. Ekki er ástæða til að ræða um nein ein- stök af hlutverkum frúarinnar, sama snildin í tonum og framburði var á því öllu hvort heldur í Schu bert’s og Brahms-lögunum, eða í hinum yndislegu frönsku smá- söngvum frá tímum Liiðvíks XVIII. Frú Dóra Sigurðsson sjálf, er á söngpallinum sem eftirmynd sann- rar og hreinnar listar, alt yfir- bragð, raddhreimur, framburður og skilningur á efninu svo saman- •tvinnað í „harmoniska“ heild, að úr steini má sá vera, er ekki finn- ur til þessa. Frú Dóra er óefað ;ein hin allra besta söngkona, sem hingað hefir komið. Haraldur maður hennar ljek undir söngnum með þeirri snild, er frá hans hendi má ætið vænta; vjer búumst ávalt við miklu úr þeirri átt, en við fáum altaf tölu- vert meira útilátið hjá honum af kþví, sem einkennir hina sönnn ósviknu list. Á. Th. ERFIÐLEIKAR FRAKKNESKU STJÓRNARINNAR. Fjárhagurinn og Mafokkó- styrjöldin. Síðustu daga hefir litið út fyrir, að stjórnartími Painlevés væri bráðum á enda runninn. — ÞaS var aðallega tvent, sem álitið var að verða mundi honum að falli, •sem sje Marokkóstyrjöldin og fjármálafrumvörp fjármálaráð- herra hans, Caillaux’s. Þess hefir •áður verið getið, að Painlevé flaug til Marokkó til að rannsaka á- standið þar. Þegar heim kom, hjelt liann því sleitulaust fram, að halda yrði styrjöldinni áfram þar sem ráðist hefði verið ál Frakka. Ef Frakkar færu að biðja um frið, mundi það geta leitt til þess, að þeir yfir höfuð að tala mistu fótfestu sína í Mar- okkó. Friðarbón yrði skoðuð sem ótvíræð sönnun þess, að Frakkar stæðu þar höllum fæti. Hann full- vissaði þingið um, að Frakkar als ekki herjuðu á Riffamönnum, heldur aðeins vernduðu rjettindi sín. IJmræður í þinginu urðu hin- ar snörpustu. Þegar gengið var til atkvæða um málið, greiddu sumir af Sosíalistum atkvæði á móti stjórninni, sumir greiddu als ekki I atkvæði. En eins og kunnugt er, ! eru Sosíalistarnir einmitt mikill ‘ hluti þeirra manna, er styður stjórnina að völdum. Þingið lýsti þó trausti sínu á stjórninni í Mar- okkómálinu, og var það hægri mönnum að þakka, því margir þeirra greiddu atkvæði með stjóm inni. Aðalatriðið í fjárlagafrumvarpi Caillaux’s var það, að veita þjóð- bankanum leyfi til að auka seðla- vitgáfuna um 6 miljarða. Hámark- ið var 45 en verður nú 51 milj- arður. Þetta var neyðarúrræði, en forsætisráðherra Painlevé, kvað (stjórnina mundi verða að segja af sjer, ef frumvarpið næði ekki fram að ganga, enda fór svo að lokum, að það var samþykt. Frakkneska stjórnin er því úr hættu fyrst um sinn, en riða sú, sem kom á stjórnarflokkinn við atkvæðagreiðsluna um Marobkó-, málið og stöðugt sig frankans niður á bóginn, getur orðið henni að fótakefli hvenær sem er. Frakkar bíða þess aldrei bætur, að þeir bygðu fjárhagslega fram- tíð ríkisins um of á skaðabóta- greiðslunum þýsku. Eins og kunn- ugt er, reyndust þær mun lítilfjör- legri en til var ætlast í bvrjun. I T. S. 1 ““ __________________ í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.