Morgunblaðið - 18.08.1925, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.08.1925, Qupperneq 4
MGRfít NBLAÐIÐ saiiiii viískifti. lifliii Nýkomið: Mjög fallegir sport- sokkar á drengi og telpur, hekluð hálsbindi, axlabönd, sportbelti, enskar húfur og karlmannshálf- 'sokkar í öllum nýjustu litum og gerðum. Guðm. B. Vikar, Lauga- veg 5. Tómir kassar til sölu í Höepfn- erspakkhúsi, Hafnarstræti 21. élHllliH HúsnæSi. UBIIlib" íbúð, 2 eða 3 herbergi og eldhús úskast 1. október eða fyr. Areið- anleg greiðsla. A S. f. vísar á. ^— iii i ■ i ^ Góð íbúð, 3 til 5 herbergi ósk- ast 1. október,- handa barnlausu fólki. Tilboð merkt: „Barnlaust fólk“, sendist A. S. í. 4 til 5 herbergja íbúð í eða við miðbæinn, óskast til leigu 1. októ- ber eða fyrr. A. S. í. vísar á. Stúlka, vön skriftum, óskar eft- ir skriftum og vjelritunarstörfum. A. S. í. vísar á. I Flóra Islands 2. útgáfa, fæst á Afgi*. Morgunblaðsins. gert hefir verið. Vil jeg þar með beina máli mínu bæði til einstakra manna og kvenna, og ungmenna- fjelaga landsins, og vona ekki að- eins að farið verði að tala eitt- hvað um nauðsyn á að bæta þetta, því það hefir verið gert fyr, en ao það yrði eitthvað gert, ef nokk- ur neisti af áhuga og ást á land- inu leynist í þeim. Hugsa sjer að kauptúnin, sem hafa jafn mörgu fólki á að skipa, skuli ekki víðar en nú er, koma upp hjá sjer garðyrkjunámsskeið- um. Það mundi hafa vekjandi á- huga á unglingana; víða vantar hjer aðeins vakningu og viljagott fólk til að standa fyrir þessu. Námsskeið þessi þyrftu að vera dálítið skemtileg. Þeir sem stjórna þeim þurfa helst að vera færir um að geta æft söng og þjóðdansa með unga fólkinu. Líka þyrftu að vera haldnir fyrirlestrar í þjóð- legum fræðum, annað slagið, og ná í valda menn til að flytja þá. Við íslendingar þekkjum alt of lítið til þess að nota ýmislegt kálmeti, sem reynsla er fengin fyrir að getur þrifist hjer, okkur til matar; eins og það er þó dýr- mætt og holt með kjöti og fisk- meti, því, sem við höfum svo mik- ið til af. En það er með kálmeti og garðávexti þá, sem lítt eru al- menningi kunnugt, að það þýðir lítið að kenna aðeins að rækta það, það verður líka að kenna að matreiða það. Þess vegna þurfa námsskeið þessi að vera haldin bæði haust og vor. Þetta þyrftu hvorki að vera löng eða kostnaðar söm námsskeið, ef hyggilega væri að farið. 1 sveitunum legðu bændur til garða sína fyrir starfssvið, eða ungmennafjelögin, ef þair eiga jarðarbletti afgirta eða trjágarða, fyrir námsskeið þessi, og hefðu þá svo til umhirðu yfir sumarið. Á sömu stöðum þurfa svo mat- reiðslunámsskeiðin að fara fram að haustinu, og stúlkum þar kent að matreiða og geyma þær mat- jurtir, sem kent hafði verið að rækta að vorinu. Skal jeg hjer nefna hinar helstu tegundir, sem hvert sveitaheimili þyrfti að kunna að rækta og matreiða, auk kartafla og rófna, svo sem: græn- kál, teppkál, blómkál, spinat, sal- at, hnúðalauk, graslauk, hreðkur, rabarbara. Ykkur vex þetta nú líklega í augum, og viljið segja sem svo við mig, að fyr megi nú vera jarðræktin, en farið sje að fást við alt þetta á þessu kalda landi. En jeg skal þá segja ykkur það, að jeg er viss um að ótrú og framtaksleysi okkar íslendinga er hjer miklu meiri þröskuldur í vegi er: nokkur kuldi. Margir halda, að það þurfi svo og svo mikinn lærdóm til þess að geta fengist við garðyrkju; en slíkt er misskilningur. Bestu og þrifalegustu garðar sjást oft hjá því fólki, sem ekki hefir lært nema „upp á sínar spítur“, sem kalla má, af bókum um þau efni, en þó einkum af sínum eigin til- raunum, bygðum á þeirri árvekni, sem sönnum garðyrkjumanni er eiginleg. Framh. Rannveig H. Líndal. DAGBÓK. „Bautasteinar‘ ‘, minningarljóða- bók Þorsteins Björnssonar frá Bæ, er að koma út nú innan skams. Aðeins óprentaður nokkur hluti nafnaskrár. Ljóðin sjálf eru á 4. hundrað blaðsíður, en nafnaskráin (með fæðingar- og dánardægrum allra, nær 1200 nefndra manna), einar 60 blaðsíður, Er bókin því alls um 400 blaðsíður. Góður frá- gangur verður á bókinni, og fá um 2000 áskrifendur hana fyrir til- tölulega lágt verð. Áheit á Elliheimilið. Frá D. V. kr. 5,00, N. N. kr. 10,00, K. G. kr. 10,00, einstæðing kr. 10,00 og kaffigestum kr. 5,00. Har. Sigurðsson. 75 ára er í dag Edilon Gríms- son skipstjóri. Hann er einn af þektustu sjómönnum hjer sunnan- lands, og þótti mikill garpur á sinni tíð. Hann var um mörg ár búsettur hjer í bæ, en á nú heima í Hafnarfirði. Af veiðum hafa nýlega komið Apríl og Maí, Apríl með 75 tunnur en Maí með 82. Gamalmennaskemtunina á þessu sumri hefir nú verið ráðgert að halda á sunnudaginn kemur vestur við Elliheimilið Grund, ef veður verður gott. Verður þar ýmislegt til sk.emtunar gamla fólkinu, eins' og áður hefir verið. Ekki ætti að þurfa að minna styrktarmenn og vini Elliheimilisins á það, að sýna því sama velvildarhug þennan dag og þeir hafa áður gert, þegar gam- almennaskemtun hefir verið hald- in, því vafalaust láta þeir eittlivað af hendi rakna til glaðningar gamla fólkinu. Vánarfregn. Nýlega ljest á Tjörn í Svarfaðardal í Eyjafirði, Þor- björg Þórarinsdóttir, systir Krist- jáns. heit. Eldjárns Þórarinssonar og þeirra systkina, en ekkja Sig- urðar Jóhannssonar bónda frá Gull bringu, sem hjer ljest á sjúkrahúsi í vetur. Þorbjörg var yfir áttrætt, og hafði búið við allmikla van- lieilsu síðustu árin. Hún var hin greindasta og fróðasta kona svo sem hún átti kyn til. Á veiðar munu fara bráðlega Otur og Geir. Skaftfellingur kom að austan í gær og frá Vestmannaeyjum. í kvöld fer hann til Víkur. Sjöspröjt, fiskflutningaskip, kom í gær úr fisktökuferð kringum land, og bætir hjer við farminn. Skipið tekur fisk fyrir Edinborg- arverslun. Flakið af Inger Benedikte er nú Geir farinn að sprengja, og hefir unnið að því nokkra undanfarna daga. Hefir flotið upp úti fyrir hafnarmynninu ýmiskonar trjárusl, lúkur og annað skran. Ekki mun vera farið að ná upp n-einu af kolunum enn, er aðeins verið að sprengja utan af þeim. íþrótltamót það, sem haldið var á eyrunum við Kollafjörð í fyrra dag, fór vel fram, þó veður væri ekki sem best, og aðsókn því minni. Helstu skemtiatriðin voru glímur og dans. Þóttu glímurnar góðar. Nordpol heitir kolaskip, sem hingað kom í gær til Kveldúlfs. Kemur það með kolin frá Spitz- bergen. með og án fiibba í góðu órvali Húsmæður! Allir vilja hafa kökurnar sena bestar, en til þess þarf að hafa gott hveiti. Þið ættuð því allar að kaupa það í versl. ÞÖRF, Hverfisgötu 56, því þá verðið þið' vissar um að fá kökurnar ykkar verulega hvítar og góðar. 3 i man 24 veralwiiíi, 23 PonlðfiQ, .j 27 FoB»b»rg„ >t Klapparstíg 28, Málning,. IPappírspokar isegst verð. Herluf Clauaen. Siml 39. SHBsssææsKsssæsssssECfta AUGLÝSING AR óskast sendar tímanlega. SPÆJARAGILDRAN hún sje ungfrú Fielding og það er mjer nóg — það verður einnig að vera þjer nægilegt. — En hvað um Spencer? spurði Andrew dálítið hvast. — Spencer vinnur eftir mínum tilmælum í þessu máli. Ef eftirgrenslun hans viðvíkjandi ungfrú Poynton yrði að einhverju leyti móðgandi fyrir ung- frú Fielding, þá stöðva jeg hann á sama áugnabliki. — Jeg þekki Spencer ofurlítið, og haldir þú, að hann láti skipa sjer þannig eins og smábarni, þá ferðu villur vegar. Þú kant að geta sagt honum að hætta leitinni, eða hvað þú vilt kalla það, en jeg er ekki viss um að hann hlýði þjer. Hann leitar að ung- frú Poynton; hann kemur hingað til þess, og jeg er þeirrar skoðunar, að hann muni finna hana Gluggarnir stóðu opnir. Alt á einu sneru báðir mennirnir sjer út að þeim, því til þeirra barst bif- reiðarblástur, og fáum sekúndum síðar heyrðu þeir hreina karlmannsrödd. — Gerið svo vel, hjer eru aksturslaunin. Góð;* nótt. Hliðið var opnað augnabliki síðar og hár mað- ur í ferðafötum, með litla tösku í hendinni gekk inn í garðinn. Hann sá Duncombe í glugganum og veifaði til hans. Þegar hann kom nær, sást greini- lega, að hann brosti vingjarnlega og var hinn á- nægjulegasti á svipinn. — En sú hepni, að þú skyldir ekki vera geng- inn til hvíldar enn, kallaði hann. Fjekstu skeytið? — Já — fyrir einni klukkustund. En hvað má jeg bjóða þjer. — Wisky og sódavatn. Gott kvöld, Pelham. Jeg vona, að jeg hafi ekki verið ykkur til óþæginda, þó jeg komi svo skyndilega, og a þessum tima. — Auðvitað ekki. En eina spurningu vil jeg bera upp. Og------- — Svara ekki neinum fyrirspurnum í kvöld, svaraði Spencer ákveðinn. En segðu mjer, mælti hann við Duncombe hvernig stendur á, að Pelham hefir áhuga á þessu máli. — Hann var nágranni ungfrú Poynton, svaraði Duncombe hikandi. Það var að hans tilstilli, að jeg fór til Parísar til þess að leita að Phyllis. — Þá þykir mjer vænt um að mega leggja fyrir yður nokkrar spurningar á morgun, sagði Spencer við Pelham. — Þjer verðið að svara einni spurningu minni nú, sagði Pelham. Spencer hóf brýr sínar hátt á enni. Síðan sneri hann sjer að víninu, sem á borð hafði verið borið. Auk þess hafði verið komið með smurt brauð, og þótti Spencer auðsjáanlega vænt um það. — Drottin minn dýri!, hrópaði hann, jeg átti ekki von á, að jeg væri svona hungraður. En hvað voruð þjer að tala um, Pelham? Ætluðuð þjer að spyrja mig um eitthvað? — Já. Þjer senduð skeyti til Duncombe, með fyrirspurn um nöfn á gestum Runton’s lávarðar. Ogf nú lcomið þjer sjálfir. Hversvegna? — Jeg kom hingað vegna þess, að mjer varð ekkert ágengt í París. Mjer datt í hug, að lausnina á ráðgátunni, sem við erum að fást við, væri að finna hjerna megin sundsins. Pelham þreifaði sig áfram að borðinu, sem Spencer stóð við og staðnæmdist hjá honum. — Herra Spencer, sagði hann nokkuð fastmælt- ur, jeg er nær því alblindur, og jeg get ekki sjeð sviðbrigði yðar. En jeg óska þess, að þjer segiS mjer sannleikann, og jeg treysti því, að þjer gerið það. — Því miður verð jeg að segja yður það, a5 jeg verð, eins og þessu máli er nú komið að þegja yfir því, sem jeg kann að vitá. Pelham lamdi kreptum hnefa í borðið, svo glös og baldii hoppuðu. Hann var orðinn dreirrauður í andliti. — Þjer verðið minsta kosti að segja mjer„ hversvegna þjer vilduð fá að vita um nöfnin á gest- um Runton’s lávarðar. — Aðeins vegna þess, að jeg vildi gera vini mínum, sem skrifar frjettir í „New York Herald“r dálítinn greiða. Pelham varð þðgull. — Mjer þykir það mjög leitt, ef jeg liefi á einhvern hátt gert yður falskar vonir, bætti Spencer

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.