Morgunblaðið - 22.08.1925, Síða 4

Morgunblaðið - 22.08.1925, Síða 4
4 ILGRGL NBLAÐIÐ iiiiiiT“ TiiSiii Nýkomið: Mjög fallegir sport- sokkar á drengi og telpur, hekluð hálsbindi, axlabönd, sportbelti, enskar húfur og karlmannshálf- sokkar í öllum nýjustu litum og gerðum. Guðm. B. Vikar, Lauga- veg 5. lllllllllllllll! Húsnæði. lÍliiiillllliiiliÍ Eitt stórt eða tvö samliggjandi herbergi, móti sól, í góðu húsi, óskast til að kenna í. Jóna7 Sigurjónsdóttir, Kennara- skólanum, sími 618. Peningaveski hefir fátækur drengur tapað á götum bæjarins með 34 krónum í. Finnandi skili því á Hverfisgötu 92. I Flóra Islands 2. útgáfa, fæst á Afgp. Morgunblaðsins. III. 1. I grein minni um erlend sorprit drap jeg lauslega á rit- dómana. Því verður ekki neitað með rjettum rökum, að ritdómar- ar hafa verið og eru með þjóð vorri mjög svo ljelegir. Jafnvel í ritdómum hinna vönduðustu tímarita vorra verða fyrir oss svo örg öfugmæli, að firn mega heita. Þó eru ritdómar þeir, sem hinir og þessir skjóta inn í blöð- in, ennþá lakari. Þeir eru hrein og bein auglýsing af lakasta tægi. Bækur koma út tugum saman á ári hverju — og allar fá þær meira eða minna lof. Fer það mest eftir því, hve höfundurinn er dug- legur að skjóta upp herör og senda málalið sitt fram á ritvöll- inn. Með þessu móti má það fyrir- brigði ske, að höfundar, ger- sneyddir skáldskapar- og lista- gáfu, sendi á bókamarkaðinn eina bókina annari fáránlegri. Einn hinn argasti, en um leið stríð- montnasti ritklaufi Islands, sendi t. d. á markaðinn í fyrra fimtu •— segi og skrifa fimtu bók sína —- og mjer er sagt að hún sje uppseld!!! Það getur vart heitið afsakan- legt, að vitrustu og rithæfustu menn þjóðarinnar þegi í hel það af góðum bókmentum, sem út kemur, og láti bullið og vitleysuna sigla sinn sjó í friði. Þetta deyr aí sjálfu sjer, segja menn um sorpritin. Jú, það kann að vera, að þau taki aldrei sess í bókmenta sögu vorri, en þau spilla máls- og bókmentabragði almennings og loka sæmilegum og góðum bók- mentum leið til fjöldans. Jeg hefi heyrt hina ábyrgu, andlegu leið- tóga vora afsakaða með því, að þeir fengju ekkert fyrir ritdóma sína nema skammir. Satt er það, að jafnan þá er einhver skrifar sanngjarnan ritdóm, lofar og lastar með fullu rjettdæmi, setj- ast þegar að honum hundrað krunkandi hrafnar. En það hrafna garg ættu menn að geta látið sjer í Ijettu rúmi liggja, ella eru þeir ekki færir um andlega leiðsögn. Nú munu sumir ef til villhalda að jeg líti svo á, sem almennast er, þrátt fyrir alla skrumdómara, að íslenskar bókmentir sjeu komnar í mestu niðurlægingu, að heimur versnandi fari og hin yngri skáld vor sjeu að engu nýt. En það er þvert á móti. Jeg Mt svo á, að nú sje allmikill og kjarngóður gróð- ur í bókmentum vorum — og í hreinu og fögru formi hafa þær sjaldan staðið jafn hátt og nú; einkum má segja, að sum af hin- um yngri ljóðskáldum vorum sjeu þar afbrigða snillingar. En fleira er gefið út en nokkru sinni áður — og meiri hlutinn er sem oftast einkis virði. En sú er hættan mest, að í ritdómunum er öllu hælt, svo að almenningur veit hvorki upp nje niður í völundar- húsi bókmentanna. Framh. Guðmundur Gíslason Hagalín. GENGIÐ. Reykjavík í gær. Sterlingspund ............ 26,00 Danskar kr............ .. 123,28 Norskar kr................ 99,73 Sænskar kr.............. 144,12 Dollar .................... 5,37 » Franskir frankar ......... 25,40 <S>- D AGBÓK. Messur á morgun: í dómkirkj- urmi klukkan 11 árdegis, sjera Friðrik Hallgrímsson. í Landa- kotskirkju hámessa klukkan 9. f. hád. Engin síðdegisguðsþjónusta. ÍSjera Ólafur Ólafssou fríkirkju- prestur á 45 ára prestsskaparaf- mæli í dag. Timburskonnorta, er „Fylla“ heitir, kom með trjáviðarfarm til „Völundar“ í gær. Esja fer hjeðan í dag, klukkan níu. — Meðal farþega eru: Jóhann Kristjánsson byggingafræðingur, Þorgils Ingvarsson bankaútbús- stjúri, Jón Þórarinsson fræðslu- málastjóri, Jón Guðmundsson af- greiðslumaður á Skálum, Þór. Ní- elsen bankamaður, Sigurður Kvar- an læknir, Andrjes Þormar síma- maður og Jón Víðis mælinga- maður. Gullfoss fer hjeðan í dag kl. 4 til útlanda. Farþegar eru meðal annara: Magnús Kjaran kaupmað- ur, Haraldur Arnasön kaupmað- ur, Björn Björnsson bakarameist- ari, Ingvar Ólafsson kaupmaður, rnóðir hans og tveir bræður, ung- frú IngibjÖrg Zimsen, ungfrú Arpi, ungfrú Elín Jakobsdóttir, ungfrú Ragna Þorvarðardóttir, ungfrú Sigurbjörg Ólafsdóttir, Ey júlfssonar, frú Anna Ghristensen, lyfsala í Stykkishólmi, Gísli Finns- son járnsmiður og frú hans, Jón Björnsson kaupmaður, Schmidt- Reinecke, þýski fiðluleikarinn, og sjö stúdéntar. Haraldur Sigurðsson píanoleik- ari og frú hans, taka sjer fari hjeðan með Esju til Vestmanna- eyja. Ætla þau að halda hljóm- leika í Eyjum, en halda síðan á- fram með Gullfossi til Danmerkur. Austan úr Mýrdal komu nýlega Þorsteinn Þorsteinsson kaupmað- ur í Vík og Sveinn Þorláksson stöðvarstjóri. Segja þeir, að slátt- ur gangi illa í Mýrdal vegna sí- feldrar vætu. Eiga menn mikið úti af heyjum, og liggur það sumstað- ar undir skemdum. Er það eink- um á þeim bæjum í austurhluta Mýrdals, sem liggja fjær sjó, að veðráttan hefir verið erfið vegna sífeldra fjallaskúra. Checko-Slóvakískur konsúll. — Þess var getið hjer í blaðinu fyrir skömmu, og haft eftir Lögbirt- ingablaðinu, að hr. stórkaupmað- ur Jón Laxdal hefði verið viður- lcendur Cheeko-Slóvakískur kon- súll í Reykjavík, en nú hefir Lax- dal skýrt Morgunblaðinu frá því,' að hann sje konsúll fyrir alt ís- land, með aðsetur í Reykjavík. j Aukadýrtíðaruppbót. Samþykt j var á bæjarstjórnarfundinum í1 fyrrakvöld aukadýrtíðaruppbót fyrir fasta starfsmenn bæjarins í 3.—9. launaflokki. Nemur hún 100 kr. á ári fyrir hvert barn innan 16 ára og hvern skyldu- ómaga, er starfsmaðurinn hefir á framfæri sínu. Úr ferðalagi um Vestfjörðu er nýlega kominn Sigurður Sigurðs- son búnaðarinálastjóri. Baldur kom af veiðum í gær, með 110 föt lifrar. Mjölnir kom hingað í fyrrinótt, og tekur hjer fisk til útflutnings. Kom frá Hafnarfirði og hafði tek- ið þar 164 smálestir af fiski. Á veiðar fór Menja í gærkvöldi, en Gulltoppur fer í kvöld. Þá mun og Ver fara á veiðar mjög bráðlega. Kolafarm fjekk Kveldúlfur ný- lega með skipi, er Stockpole heitir. Suðurland fer til Borgarness í dag með norðan- og vestanpóst. Tampen, norskur línuveiðari, kom frá Grænlandi í gærmorgun. Sagði lítinn afla. Áheiit á Strandarkirkju frá G. kr. 5,00. Vestur-íslenskir gestir. Væntan- leg eru hingað með „Lyra“, nú eftir helgina sjera N. Steingrímur Þorláksson og frú hans. Er hún norsk og hafa þau verið í kynnis- för í Noregi hjá ættingjum og vinum hennar, en ætla að bregða sjer hingað til lands snöggva ferð. S.jera Steingrímur er meðal kunn- ustu Vestur-fslendinga. Hann er Þingeyingur að ætt, fæddur 1857. Fór hann ungur af landi burt, og las guðfræði bæði vestan hafs og í Osló. Voru í gær liðin rjett 38 ár síðan hann vígðist. Síðastliðin 25 ár hefir hann verið prestur íslenska safnaðarins í Selkirk í Manitoba, og tvö árin síðustu for- seti Kirkjuf jelagsins. Sjera stein- grímur er mjög vinsæll meðal Is- lendinga vestan hafs, og hefir unnið af miklum áhuga að prests- skaparstarfi sínu. Heimili þeirra hjóna er orðlagt fyrir gestrisni. Hjeðan munu þau fara aftur til Noregs, og þaðan vestur um haf. Gamalmennaskemtunin verður á raorgun kl. 2 til 6 a tuninu við Grund, ef veður leyfir. Reynt verð ur að sækja ellihruma, sem um það biðja. Eru þeir, sem þann flutning þurfa, beðnir að segja til sín í síma 1019 kl. 5 til 7 síðdegis Nýir kaupesidw* að murnu fá bla’ið ókeypis til næstkomandi mánaðamóta^ SÉmari 24 verslBiíiB 23 Ponkeu, 27 Fouberft Klapparstíg 23. Málning. Fyrirliggjandi s Trawl-virar, Trawl-garn, Manilla, Bindigarn Simi 7ZO. Gott Betra Best Sal- gati Innlendur og erlend- ur Brjóstsykur, — Karamellur, — Kon- fekt f lausri vigt og I Bskjum, að ógleymd- um hinum mörgu tegund- um af Atsúkkulaði. Alt þetta selur lóbalishiisid Austurstræti 17. í dag. — Lesendurnir eru beðnir að minna gamla fólkið á þetta svo enginn gleymist. SPÆJARAGILDRAN XX. KAFLI. Herra Fielding í nýju hlutverki. Það var óvenjulega hljótt í höll Runtons lá- varðar þennan dag, þar sem allir gestirnir, að und- anteknum amerísku feðginunum, voru á veiðum, á samt mörgum heimamönnum. Þó var ekki verulega friðsamlegt í einu gesta- herberginu á neðstu hæð, stórum, skrautlegum sal. Einni stundu áður hafði innistúlkan skilið við alt þar í röð og reglu. En nú leit það öðruvísi út. Á miðju stofugólfinu lá maður á grúfu. Úr gagnauganu flaut blóð úr opnu sári niður á gólf- teppið. í hvert sinn, er hann dró andann, stundi hann sárt við. Borð og stólar lágu á hliðinni og bent það á, að hörð barátta hefði átt sjer þarna stað. Um það bar einnig vitni útlit hins mannsins, sem í stofunni var. Þessi maður var herra Fielding. Hann lá á hnjánum og rannsakaði í ákafa innihald kassa eins úr svörtu mahogni. En hann virtist vera fullur af ýmiskonar skjölum. Við hlið Fielding á gólfinu lágu allskonar verkfæri, sem hann hafði brotið upp kass- ann með. Fielding var ekki sjálfum sjer líkur á þessu augnabliki. Hann var náfölur; við og við þreifaði hann á annari öxl sinni, og var auðsjeð, að > hann kendi þar mikið til. Ofurlítil púðurlykt var í stofunni, og við fætur hins deyjandi manns lá skammbyssa. En Fielding sinti engu öðru en kass- anum. En alt í einu var hann truflaður. Hratt fótatak heyrðist á ganginum og sá, sem kom, staðnæmdist við dyrnar. Síðan var drepið á dyr, hvað eftir annað. Særði maðurinn stundi enn meir, og reyndi að velta sjer á hliðina, því hann hafði ekki mist með- vitundina. Fielding lokaði 'kassanum og stóð upp með erfiðleikum. Hann stóð um stund ráðþrota og starði á dyrnar. Hver gat þetta verið? Hann hafði beðið um að verða ekki ónáðaður. Stórir svitadrop- ar spruttu fram á enni hans. Loks gekk hann hægt að dyrunum. — Hver er þar? spurði hann með aðdáunar- verðri ró. — Það er jeg! Hleypið þjer mjer strax inrt, var svarað. Fielding þótti sýnilega vænt um. Hann opnaði dyrnar og dró ungu stúlkuna inn í stofuna. — Hvers vegna komið þjer svona fljótt aftur? spurði hann reiðilega. Jeg ætlaðist alls ekki til þess. Hún ætlaði að tala, en kom ekki nokkru orði upp. Maðurinn á gólfinu stundi hátt við. Þá fóf hryllingur um ungfrúna og lienni lá við falli. — Hver fjandinn er þetta? Getið þjer ekki svarað? Hjer hefir farið fram ljótur leikur. Jeg ei særður, og jeg er hræddur um að jeg hafi sært þenn an náunga fullmikið. — Jeg gekk niður í garðinn, gat ungfrúin loks- ins stunið upp, og jeg sá þá koma. Þeir koma allir aftur. — Koma þeir aftur? — Þeir eru nærri kornnir. — En bifreiðin? — Hún bíður hjer úti. Fielding hafði nú alt í einvi gleymt sárinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.