Morgunblaðið - 18.09.1925, Blaðsíða 3
MORGUNBLAiIi.
Stofnandl: Vllli. Finaen.
ö'tgefandi: FJel-ie I Reykjavtk.
Ritetjdrar: Jðn KJartanaaoc,
Valttr 8t.fá.n»«on-
A.nffly»inga»tJ6rl: B. Hafber#.
Sitrifstofa AusturBtrœti 8.
Símar: nr. 498 og 600.
Auglí'»lníra»krif»t. nr. 709.
JSoljaa»lmar: J. KJ. nr. 74S.
V. Bt. nr. 1*10.
B. Hafb. nr. 770.
Áakriftagjald innaniand» kr. 1.00
á mánu.01.
Utanlands kr. 2.50.
1 Uusasölu 10
írlendar símfregnir
Khöfn 17. sept. ’25. FB.
Abd-el-Krim flúinn.
Símað er frá New York, að
frjettaritarar amerískra blaða í
Marolkkó sími, að Abd-el-Krim sje
flúinn vegna ósanikomulags við yf-
: irmann Riff-kynstofnsins.
>
Frakkar undirbúa greiðslusamn-
inga við Bandaríkjamenn.
Símað er frá París, að nefnd
fari af staðan í dag, til 'Washing-
ton, undir forystu Caillaux, til
þess að semja um afborganir á
skuldum Frakka. Ætlan manna er,
að Caillaux ætli að bjóða 75 milj.
dollara afborgun árlega.
Marokkó-áríisin köfnuð
í rigningum.
Símað er frá Fez, að árásin sje
stöðvuð í bráðina, vegna rigninga
«g ófærðar. Verði áframhald á ill-
viðrum og byrji rigningatíminn
nú, mun árásin mikla aðeins koma
að hálfu gagni.
t
Hvalveiðarannsóknir í
Suðurhöfum.
Símað er frá London, að baf-
Tannsóknaskipið „Discovery“ hafi
í dag farið af stað suður í höf til
i hvalaveiðarannsókna.
--------------------
Frá ísafirði.
ísafirði 17. sept. ’25. FB.
Ný smjörlíkisgerð.
Ný smjörlíkisgerð, h.f. Smjörlík-
isgerð ísafjarðar er tekin til
starfa. Framkvæmdarstjóri Elías
-JT. Pálsson kaupm.
Reknetaveiði
allgóð þessa viku. Nokkrir bátar
hafa fengið 100 tunnur á dag, en
margir voru áður hættir. Sextán
bátar hjeðan frá Djúpi hafa stund
að hringnótaveiði við Norðurland
í sumar, >ar af >rír gufubátar.
Afli þeirra alls 53,000 tn., eða með
al afli 3300 tn. Hæstur var Fróði
með 4500 tn., en af mótorbátun-
nm var Eir hæstur, með 4300 tn.
Tíðarfar.
Tíðarfar er enn óstilt og þurk-
iaust er.
Emil Telmanyi,
ungverski fiðluleikarinn frægi,
sem er einhver besti fiðlusnilling-
ur heimsins sem nú er uppi, kem-
ur til ReykjavíkUr með „Islandi",
eftir mánaðamótin.
Hann verður hjer hálfsmánaðar-
tíma á vegum Páls fsólfssonar.
Óefað verður heimsókn Telman-
yis einhver mesti viðburður fyrir
■hljómlistarlíf Reykjavíkur, sem
híngað til hefir borið fyrir.
R n r' T IU A ÐTD
3 1
Lanösbankinn.
í dag eru 40 ár liðin síðan lögin um bankann náðu
konungsstaðfestingu.
Tildrög bankastofnunarinnar og fyrstu starfsárin.
Efitir Sighvat Bjarnason, fyrv. bankastjóra.
Húsið í Bankastræti, sem nú er eign Sigurðar Kristjárnssonar
bóksala, þar sem Landsbankinn var til húsa fyrstu starfsárin. Upp-
haflega var húsið eign Sigmundar prentara Guðmundssonar, og var
ísafoldarprentsmiðja þar. Húsið er steinhús, bygt að nokkru leyti
úr grjóti því, sem ætlað var í Alþingishúsið, en þarna átti þing-
húsið þá að standa, og var búið að grafa þarna fyrir grunninum
undir það, áður en sú ákvörðun var tekin að hafa það við Aust-
urvöll. —
Þess var getið í einhverju
Reykjavíkurblaðinu fyrir skömmu,
að í dag ætti Landsbankinn 40
ára afmæli. Svo er þó í rauninni
ekki, því að eigi tók bankinn til
starfa fyr en í júlímán.-byrjun
1886, en fra þeim tíma virðist
rjettast að rekja aldur bankans.
Hins vegar eru í dag rjett 40
ár síðan lög þau um stofnun lands-
banka, er alþingi samþykti 1885,
hlutu konungsstaðfestingu. Mætti
því segja að þann dag: 18./9. 1885
hafi verið lagður hornsteinninn
undir bankastarfsemi á landi hjer,
er að sumri komandi hefir verið
rekin í 40 ár.
Eigi er sá tilgangur minn með lín-
um þessum að fara að rekja sögu
bankans. Það geri jeg ráð fyrir
að forráðamenn hans láti gera á
öðrum stað, þegar þeim finst við
eiga. — Hitt er þar á móti eigi
illa til fallið að fara, einmitt á
þessum degi, örfáum orðum um
fyrstu sporin í bankasögu vorri
og tildrögin til þeirra.
Eigi leið á löngu, eftir að landið
hajfði fengið löggjafaúþing og
fjárforræði, að landsmenn fundu
Tnjög til þess, að hjer vantaði
peningastofnun, er veitt gæti
mönnum haganleg lán til efling-
ar atvinnuvegum vorum, sjerstak-
lega landbúnaðinum, sem alt
fram að þeim tíma gætti meira
en sjávarútvegsins, og talinn var
aðal atvinnuvegur landsins.
Lán þau, er sparisjóðirnir íslensku
þá fáir og smáir, Og viðlaga-
sjóður landsins gátu veitt nægðu
mönnum hvergi. — Komst svo
langt að stjórnin lagði, árið 1881
frumvarp fyrir alþingi um stofn-
un lánsfjelags. — Lagafrumvarp
þetta náði þó ekki fcamþykki
þingsins, var það felt í E.d., sem
í stað þess samþykti frumvarp
um stofnun seðla-láns- og
geymslubanka, en þetta frumvarp
var aftur felt í N.d. — Árið 1883
samþykti E.d. á ný frumvarp um
stofnun banka í Reykjavík. —
Skvldi viðlagasjóður leggja fram
500 þúsund krónur í þessu skyni,
í kgl. ríkisskuldabrjefum og veð-
skuldabrjefum. Ennfremur skyldi
^auka stofnfje bankans með sam-
lagshlutum einstakra manna. -
Bankinn átti að mega gefa út
seðla, er væru innleysanlegir með
gulli. — N.d. taldi ýmsa ann-
miarka á frumvarpi þessu
og gerbreytti því, en þær breyt-
ingar vildi E.d. ekki aðhyllast og
feldi því frumvarpið.
Bæði stjórnin og þingmenn höll-
uðust meir og meir að því, að
heppilegra myndi að koma hjer
upp banika, heldur en að koma á
fót lánsfjelagi eða lánsstofnun.
En um þessar tvær stefnur hafði
áður verið talsverður ágreiningur,
,þó flestir væru samdóma um þörf-
ina á peningastofnun, í einhverri
mynd. Hins vegar voru sumir
þingmenn í vafa um það, hvort
ekki kæmi það í bága við einka-
rjett þjóðbankans danska > til
seðlaútgáfu, að stofnaður væri
lijer á landi banki, er gæfi út
seðla. — Þjóðbankastjórnin fjelst
þó á þá skoðun landsstjórnar-
innar, að svo væri ekki, með því
að þjóðbankaseðlarnir dönsku
væru eigi lögskipaður greiðslu-
eyrir á íslandi og gætu eigi nú
lengur orðið það, nema samjkvæmt
lögum frá alþingi.
Stjórnin tók nú það ráð, að
leita til þjóðbankans um aðstoð
við undirbúning á nýju frumvarpi
um bankastofnun á Islandi. Tók
þjóðbankinn, eða rjettara sagt
þáverandi aðalframkvæmdarstjóri
hans, Levý etatsrað, mjög vel í
málaleitun þessa og samdi álits-
skjal eða tillögur, sem lands-
stjórnin í öllum verulegum at-
riðum fylgdi og fór eftir, þá er
hún samdi lagafrumvarp það, um
stofnun Landsbanká á íslandi,
coxhsolisdb imim
Vallarstræti4. LaugaveglO
Kökur og brauð
viðurkenl fyrir g.oði.
8
II
ii
fer hjeðan á mánudag 21. sept.
kl. 5 síðd. austur og norður um
land í 8 daga hringferð.
Vörur afhendist í dag eða á
morgun.
Farseðlar sæfcist á morgun.
M.O K. A3&2BSM
lltsala
Allar vefnaðarvörur
seldar með
IO-207o afslætti
og alt að
hálfvirði
og margar vörutegundir með
enn lægra verði.
Verslunin
II
sem lagt var fyrir alþingi 1885.
Voru þar farnar alveg nýjar
leiðir og alt aðrar, en mönnum
hafði hjer áður hugkvæmst. Var
sú aðalnýlundan að landssjóður
— sem telja verður stofnanda
bankans — mætti gefa út óinn-
leysanlega seðla fyrir alt að hálfri
miljón króna og afhenda Lands-
bankannm þá smám saman sem
starfsfje. Skyldi skoða fje þetta
sem lán frá landssjóði til bank-
ans, er hann greiddi vexti af, en
þó mjög lága.
Það áleit tjeður þjóðbanka-
stjóri, er þá var talinn einn af
allra fremstu bankamönnum
Norðurlanda, alveg hættnlaust að
hafa seðlana ógulltrygða, ef eigi
væri gefið út af þeim meira en
íþað, sem ætla mætti að viðskifta-
þörfin krefðist minst, en full vissa
var talin fyrir því, að þá væri
það eigi undir hálfri miljón kr.
Bankinn átti að skifta seðhmum
gegn smápeningum eftir því sem
tök væru á, en að öðru leyti voru
seðlarnir á ábyrgð landsjóðs.
Svo mátti segja, að frumvarpi
þessu væri tekið tveim höndum
á alþingi. Það var eina stjórnar-
frumvarpið, sem sjerstaklega var
vikið að í boðskap konungs til
þingsins það ár. — Nefnd var
strax sett í málið í N.d. og í hana
valdir meðal annara þeir þrír þing
menn, er þá þóttu þar best skyn
hera á ban'kamál, sem sje Arn-
ljótur Ólafsson, Eiríkur Briem og
Jón Ólafsson. Lagði nefndin til
að frumvarpið yrði samþykt, með
efnisbreytingum fáum og óveru-
legum, enda haggaði hvorug
þingdeildin við frumvarpinn, að
neinum vernlegum mun. Umræður
um málið urðu eigi meiri en svo,
að furðu hefði það þótt sæta nú
á tímum í jafn mikilsverðu máli.
— Þó mundi sumum nútíðarfjár-
málamönnum vorum þykja dálítið
einkennilegur blær á ræðum ein-
staka þingmanna.
Frh.
Regnhlífar
Mikið og fallegt úrval, ný-
komið. —
S bll.
Sýning
á mjólkurafurðum
verður opnuð á morgun í húsi
Búnaðarfjelags íslands. — Þar
verður sýnt smjör frá 10 rjóma-
búum, ostar frá þeim flestum, alls
konar mjólkurafurðir frá Hvann
eyri, íslenskir gráðaostar 0. fl.
og það ekki að ástæðulausu þv£
hann er bæði hraustur og sterfcur,
og á hann það að þakka litlai
skamtinum af Kruschensalti, seiiá
hann neytir á hverjum morgni.
Kruschensalt viðheldur:
Góðri og heilbrigðri meltingri,
Heilbrigðri efnaskiftingu.
Heilbrigðu og hreinu blóði.
Sterkum 0g heilbrigðum .
taugum.
Þreytu og taugaveiklun útilokarí
Kruschen salt
Fæst í glösum til 100 daga hjá
lyfsölum og kaupmönnum.
Aðalumboðsmenn:
D.
Þar verða sýnd sýnishorn af
mjólk frá ýmsum útsölustöðum
hjer í Rvík.
í dómnefnd sýnmgarinnar eru
,Halldór Yilbjálmsson á Hvann-
eyri, ÍH. Grönfelt frá Beigalda og
frk. Anna Friðriksdóttir.
Sýningin verðnr opin þangað
,til á mánudagskvöld.
GENGIÐ.
Reykjavík í gær.
Sterlingspund ............. 22,75
Dansfcar kr................115,02
Norskar kr.................100,18
Sænskar kr.................126,00
Dollar ................... 4,703^
Franskir frankar ......... 22,49i
Gullgildi íslenskrar krónu erf
nú 79,38%. j