Morgunblaðið - 31.01.1926, Page 8

Morgunblaðið - 31.01.1926, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Á þriðjudasiiiifi byrjar siór ÖTSAIsJk á TAUBÚTIMI Afgr. Álafoss, Hafnarsfrætí íT, Simi 404. Representant sOkes 1 Norsk Import- og’ Grossistfirma söker for sine anerkjendte Motorcylinderoljer og Grease, Re- kvisita for Motorer, Kemikalier og Malervarer dyktig Representant for hvert av fölgende Sted- er: Vestmannaeyjar, Reykjavík, fsafjörður, Siglufjörður og Seyðisfjörður. Enten Agent eller godt indarbeidet Handels- firma, som kan holde passende KOMMISSION SLAGER. Billet mrk. „KommissionsIager“ indleveres til A. S. í. Reykjavík- . Smith, Limited, Aberdeen, Scotland. Storbritanniens störste Klip- & Saltfisk Köber — Fiskaktionarius & Fiskdampermægler. — Tel. Adr.: Amsmith, Aberdeen. EorrespsBðance gaa ðansb:. Bes! að angiysa í MorgnBitlaðiBB. Kæru TÍnir! Það gleður mig sannarlega, hve góðar viðtökur jeg hefi feng- ið hjer og Cigaretturnar mínar, enda var þess að vænta, að hjer yrði mjer ekki ver tekið en í öðrum menningarlöndum álfunnar. Mjer er óhætt að fullyrða, að mínar viðurkendu Kensitas- Cigarettur fást í öllum tóbaksverslunum bæjarins og í öllum helstu matvörubúðum líka. Þareð jeg sennilega fer utan með næstu skips- ferð, kveð jeg yður hjer með og bið yður um að snúa yður í fjar- veru minni, til Tóbakshússins í Austurstræti 17, sem hefir umboð fyrir mínar viðurkendu Kensitas-Cigarettur. Yðar einlægur , ' Kensitas. Frh. frá 3. síðu. fram á þennan dag. Helgisiðir , frjáls-kaþ. kirkjunnar eru hinir sömu og rómversku kirkjunnar. ‘(En hún hefir engin ákveðin trú- ! aratriði. Hún bannfærir engan fyrir skoðanir, er hann kann að hafa. Og hvernig getur hin róm- verska kirkja vakað yfir trúar- skoðunum meðlima sinna í Hún rannsakar varla hjörtun og nýr- xm. Annars skal jeg játa það fús- lega, að mjer þykir^mjög vænt um rómv. kaþólsku kirkjuna. Hún hefir margt til síns ágætis, svo sem alvöru, andlegleika, festu og guðsþjónustur hennar (þ. e. þegar ekki er prjedikað) eru mjög há- tíðlegar og miklu tilkomumeiri en guðsþjónustur- mótmælenda, því þær eru oft lítið annað en fyrir- lestrar. Á hinu stutta söguágripi frjálskþ. kirkjunnar, er hjer fór á undan, mun sjást, að hún á sjer djúpar rætur í fortíðinni, í sjálfri hinni „gamalkaþ.“ kirkju, sem er I fnxmkirkja Krists — að hún er i engin „gorkúla á haugi“ ! eins og I )ir. Boots kemst að orði í 'grein Ijsinni. Hún verður framtíðarkirk- I jan, því í henni Verður vítt til veggja og hátt undir loft. For- ustumenn hennar viðurkenna, að margar sjeu leiðirnar til guðs, og að sama andlega fæðan henti ekki öllum. Annars er það mjög leitt, ef rómv. kaþólska kirkjan hjer fer að amast við stallsystur sinni (hjer), hihni frjáls-kaþólsku, sem er í besta skilningi káþólsk, þ. e. almenn kirkja. Þegar sjefa Jak- j ob Kristinsson var einu sinni við [guðsþjónustu frjáls-kaþólsku kirk- junnar í Krotona í Ameríku, tók þátt í helgisiðunum rómversk- kaþólskur klerkur. Svona á það að vera. Menn eiga að sameinast um hið æðsta hlutverk kirkjunn- ar: að leitast við a?þ dýrka Krist | og þjóna honum, en ekki vera að i deila um aukaatriði, sem ekki ! koma sönnum kristindómi við. — j „Bókstafurinn deyðir, — en and- inn lífgar.“ Sj ómannaguðsþ j ónusta í Hafnarfirði send í útvarpið í dag. Fyrsta tilraun hjer á landi. FyrirliggianAi: SfillBlk Kl. 2 í dag heldur sjera Ólafur Ólafsson sjómannaguðsþjónustu í ITafnarfirði. Hefir útvarpsfjelagið ákveðið að gera tilraun með að ná guðsþjónustunni í útvarpið og senda hana íit. Er svo ráð fyrir gert, að hún nái til togaranna, sem eru á veiðum. Er símaþráður lagður í kirkjuna og áhald sett þar, er tekur við ræð- unni og söngnum og ber til útvarps- ! stöðvarinnar hjer á Melunum. Er fróðlegt að vita, hvernig þessi til- I raun tekst. Er þetta í fyrsta sinni, sem reynt er að senda út ræðu hjer. Einnig er fróðlegt að vita, hvernig það tekst, að flytja. ræðuna frá Hafnarfirði í útvarpið hjer. Á flestum ísl. togurunum er gjall- arhom. Ef það tekst á annað borð að senda ræðuna út svo hún heyr- ist til togaranna, geta skipshafnirn- ar heyrt hana. Sýslufundur Árnesinga er nýafstaðinn. Meðal þeirra mála sem þar voru til umræðu var: Spítalcmálifí. Ákveðið að sýslan leggi 15000 kr. til Eyrarbakkaspít- alans, svo hann verði nú loks full- ger. Hjeraðskólam.álið. Samþykt var að byrja á ákólabyggingu að sumri. þó ekki sje ákveðið mcð fullri vissu hvar skólinn eigi að vera. Verður skólastaður ákveðinn á auka fundi sýslunefndar síðar í vetur. Vegir í f'lóanum. ÁkveðiS aðgera fyrirhugaða Vegi (3—4) um Flóa- áveitusvæðið að sýsluveginum. Samþyktir voru gerðar, að skora á þing og stjórn að flýta járnbraut- j armálinu, og leyfa innflutning og notkun á öðrum baðlyfum en | Hreinskreólíni. »•» i iiinUl tfWi"'1 »' ■ ágæt tegund. Hialti Bísrnsson & Prjóna- garnið góða er komið aftur VÍKINGURINN. — En jeg vil ekki standa á móti því, hjelt Blood áfram, að þjer eignist stúlkuna, ef þjer viljið kaupa hana. — Kaupa hana? — Já, og við því verði, sem þjer hafið sjálfur ákveðið. Levasseur reynd) að stilla sig. Honum var nú ljóst, að fjelagi hans varð ekki unninn með frekju og stóryrðum. Það þurfti annað til. — Þessir 20 þúsund pjastrar eru lausnargjaldið fyrir unga manninn, mælti hann. — Nei — verið þjer nú ekki að skrökva, þjer hafio sagt ótvírætt, að þessi upphæð væri lausnar- gjald og heimanmundur ungu stúlkunnar. Það er rjettora fyrir yður að greiða þessa peninga nú þegar, svo b-.'jgt sje að skifta þeim millj skipshafnanna strax. pá taka þeir ef til vill vægara á samningsrofi yðar. — Þjer eruð spaugsamur, Blood, mælti Levasseur og hló kalt og illmannlega. Hann átti við það, að Blood gæti ekkert aðhafst. Hann hafði aðeins um tíu menn með sjer, en Levass- eur hafði yfir hundrað. En hann hafði ekki gætt þess, sem Blood treysti á — ágirnd mannanna. Þegar Levasseur aðgætti menn sína, þóttist hann sjá græðg- isglampann í augum þeirra, og það kæfði liláturinn í hálsi hans. Hann sá strax, að þeir fylgdu Blood að málum, og að þeir vildu hafa sinn hluta af þessum 20 þúsund pjöstrum. Hann þagði um stund, og bölvaði mönnum sínum í hljóði. En hann sá, að hann varð að fara varlega. — Þið misskiljið mig. Það á vitanlega að skifta - lausnargjaldinu, þegar það kemur. En á meðan held jeg stúlkunni. — Gott og vel, muldraði Cahusac, við samþykkj- um það. — Það er jeg ekki viss um, sagði Blood. Ef Made- leine d’Ogeron neitar að borga lausnargjaldið. Hvað þá? Vilji Levasseur sitja einn að stúlkunni, þá verður hann að borga þessa peninga strax, og líða skaðann, ef lausnargjaldið fæst ekki. — Þetta er skynsamleg tillaga, hrópði einn af mönnum Levasseurs; Blood foringi hefir á rjettu að standa. Þannig skal þetta vera. — Sacré Dieu! hrópaði Levasseur. Hvar ætti jeg að taka 20,000 pjastra? Það, er fellur í minn hlut af þessari ferð, nægir ekki í helminginn. Jeg verð að skulda ykkur peningana þar til jeg hefi unnið mjer þá inn. Eruð þið ánægðir með það? Sennilegast hefðu hásetarnir samþykt þetta, ef Blood hefði ekki komið fram með mótmæli. — En ef þjer skylduð nú deyja, mælti hann við Levasseur, áður en þjer hafið fengið peningana? Þjer vitið, að dauðann er ekki lengi að bera að höndum okkar, sem þessa atvinnu höfum. — Fjandinn sjálfur hafi yður! hrópaði Levass- eur. Er ómögulegt að gera yður ánægðan? —- Jú —með því að þjer borgið nú þegar 20,000 pjastra, sem skiftist strax milli skipshafnanna. — Jeg hefi þá ekki. — Þá er best, að sá kaupi fangana, sem gctnr borgað. — Og hver haldið þjer, að hafi svo mikla peD' inga hjer ? . — Jeg. Og meira til! — Pjer! Þjer! — Já. Jeg skal greiða peningana nú strax. Levasseur starði á Blood gersamlega lamaður 'af nndrun. Og foringjarnir flyktust um hann, því nú var eitthvað í boði. Blood fór ofan í vasa sinn og dró þaðan ofur'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.