Morgunblaðið - 18.03.1926, Síða 4

Morgunblaðið - 18.03.1926, Síða 4
1 Viðskifti. Fersól er ómissandi við blóð- iejsi, svefnleysi, þreytu, óstyrk- leik og höfuðverk. Fersól eykur kraft og starfsþrek. Fersól gerir Ukamann hraustan og fagran. — Fæst í Laugavegs Apóteki. 011 smávara til saumaskapar, alt frá smæsta til stærsta, ásamt öllu fatatilleggi, — alt á sama stað. — Vikar, Laugaveg 21. Upphlutasilki er hvergi hetra nje ódýrara en á Skólavörðústíg 14. Tilkyiwiagar. Sterfkar og veikar, dýrar «g ódýrar, géðar, betri og bestar eru reykjarpípurnar, sem fást í Tóbakshúsinu, Austurstræti 17. Tóbaksvörur alskonar, í meira úrvali en hjer þekkist er í Tó- bakshúsinu, Austurstræti 17. Vinna. Roskinn maður, vanur öllum sveitastörfum, óskast á gott heimili í sveit, sem vinnumaður. Wpplýsingar í Lækjargötu 10 A. f Dansskóli Sigurðar Guðmundssonar Dansæfing í kvöld í Bárunni kl 9. Hvítkál. Rauðkál. Rauð- rófur. Purrur. Selleri. Hvergi eins ódýrt. Haupfjelag Borgfirðinga. Laugaveg 20. Sími 514. fylti Honfektiiin útlendi er nú komin aftur MORGUNBLAÐIÐ Reykið ekki CIGARETTUD nema þær s|eai géðar CraveB „A“ er eina sígarettutegundin, sem búin er til með það fyr- ir augum, að skemma ekki hálsinn; hún er bragðbetri en aðrar sígarettur. Craven „A“ er sígarettan yðar. CRAVEN ,A‘ sígarettur fáið þjer alstaðar. Reykið Craven ,,A“ og sannfærist um ágæti hennar. G E N G I Ð. Sterlingspund.............. 22,15 Danskar kr. ...............119,47 Norskar kr................. 98,92 Sænskar kr.................122,28 Dollar...................... 4,57 Franlkar.......■. .. 16,73 Gyllini....................183,09 Mörk.......................108,60 D A G B Ó K. 50 ára verður í dag Sveinn Hallgrímsson, fyrv. bankagjald- keri. Sæmilegu/- aflí er um þessar mundir á línubáta í Vestmanna- eyjum. Hefir afli verið heldur tregur þar þessa vertið, en þó er einstaka bátur búinn að fá viðunandi afla. % Beitusíld Vestmannaeyinga. — Frá því var sagt bjer í blaðinu í gær, í sambandi við það, að „Þór“ kom hingað og sótti beitu- síld, að útgerðarmenn í Eyjum væru orðnir beitulausir fyrir línu- báta sína. Þetta er mishermi. Voim Vestmannaeyingar óvenjulega síld arbirgir í vetur. En vegna þess, að netavertíð hefir byrjað þar óvenjulega seint, og er raunar ekkí byrjuð enn, þá hefir beitu- síldin gengið meir til þurðar en búist var við. En þó er hún ekki þrotin enn. Samt telja útgerðar- menn vissara, að bæta við, ef enn skyldi dragast, að netavertíð bvrjaði, og sendu þessvegna ,pór! hingað eftir síldinni. Dansleikúr Alliance Francaise var ekki haldinn á Hótel Island í gærkvöldi, verður ekki fyr en á miðvikudaginn kemur. í grein Á. Th. í blaðinu í gær, irm dómkirkjuhljómleikana, þar sem stendur: „Þá tóku við fiðlu- lögin í G-moIl“, átti að vera: Þá tóku við fiðlulögin, Sonate Tar- tini’s'í G-moll“ o. s. frv. Nýjai* bæknr s Nefndarálit Þingvallanefndarinnar frá 1925, (með uppdrætti af Þingvöllum og nágrenni), verð kr. 2,00 og 1.50. — Nefndarálit minni hluta Bankanefndarinnar fr* 1925 (Bened. Sveinssonar). Verð kr. 1,00. Fást í Bókav. Sigfúsar Eymundssonar* Kolaskip, sem Pendennis heitir, kom í gær til Þórðar Ólafssonar og Sigurðar Runólfssonar, með um 3000 tonn. Franskur togari kom hjer inn í gær að fá sjer kol og annan útbúnað. Botnia fór hjeðan klukkan 12 í gærkvöldi, áleiðis til útlanda. Meðal farþega voru, Thor Jensen og frú hans, frú Kristjana Blön- dalil Ólafsson, fsólfur Pálsson, Haraldur Andersen, ungfrú Guð- finna Einarsdóttir, ungfrú Jó- hanna Knudsen og Leifur Guð- mundsson, stúdent. H. i M. Smith. Límited, Aberdeen, Scotland. Storbritanniens störste Klip- & Saltfisk Köber — Fiskaktionarius & Fiskdampermægler. — Tel. Adr.: Amsmith, Aberdeen. Korrespondance paa dansk. Nú með nBotniu" hefi jeg fengið meira úrval af hjólhest" um og öllu þeim tilheyrandi, en nokkuru sinni áður hefir flust hing' að til landsins, sem alt selst með óvenju lágu verði. Sigurþór iónsson, Bðalstræti 9, Samskotin tíl vestfirsku ekkn- annna. Þau eru samtals orðin, það sem Morgunblaðið liefir tekið á móti, kr. 2019,00. Til Elliheimilisins frá II. kr. 10,00. Til veiku stúlkunnar frá S. kr. 15,00. a Til Strandarkirkju A. 5 krónur, N. N. 5 kr. Þ. E. 5 kr. Hafn- 'firðingur 10 kr. S. L. 5 kr. M. 10 lcr. N. N. 30 kr. Kona 5 kr. B. X. 100 kr. E. S. 5 kr. K. 5 kr. Drengur 1 kr. Ónefndur 2 kr. G. Á. 3 kr. H. S. 2 kr. M. J. 10 kr. N. N. og N. N. Keflavfk 15 kr. N. N. 5 kr. Víðvarpsstöðin. Hún verður opn- uð í kvöld kl. 9. Talar þar fyrst- ur Magnús Guðmundsson atvrh., þá syngur frú Guðrún Ágústs- dóttir, eitt eða tvö lög, sjera Frið- rik Hallgrímsson flytur stutta ræðu um þýðingu víðvarpsins fyr- ir boðun fagnaðarerindisins, frú Guðrún syngur aftur, og loks leikur þriggja manna flokkurinn á Café Rosenberg, nokkur lög. Um Bellman. Fj'rirlestur sá, er Matthías þjóðminjavörður hjelt í Stúdentafræðslunni nm Bell- mann með aðstoð þeirra Þórar- ins og Eggerts Guðmundssona mætti óvenjugóðum viðtökum, og komu úr ýmsum áttum áskoranir um að endurtaka hann. Nú hefir Matthías ákveðið, að halda fyrirlesturinn í Nýja Bíó annað kyöld tkl. 7,30, til ágóða fyrir samskotin vegna mannskað- anna ísfirsku. Eins og í fyrra skiftið leika þeir Þórarinn og Eggert nokkur úrvals lög Bell- mans. ! Aðgöngumiðar kosta aðeins 1 krónu 'og verða seldir eftir kl. 4 á morgun í Nýja, Bíó. Gengur hver eyrir til samskotanna, því að eigendur Nýja Bíó lána húsið ókeypis. Dagskrá Ed. í dag: 1. Frv. til 1. um löggilta endurskoðendur; ein umr. 2. um viðauka við og breyting á I. nr. 68, 14. nóv. 1917, 'um áveitu á Flóann; 2. umr. 3. um veitingasölu, gistihúsahald o. fl.; 2. umr. 4. um breyting á 1. nr. 17, 4. júní 1924, um stýri- mannaskólann í Rvík; 2. umr. 5. Till. til þál. um niðurlagning vín- sölu á Siglufirði; hvernig ræða skuli. Nd. 1. Frv. um útsvör; frh. 2. umr. 2. um breyting á vegalögum nr. 41, 4. júní 1924; 2. umr. 3. iim heimild fyrir Landsbanika ís- lands til að gefa út nýja flokka (seriur) bankavaxt.abrjefa; 1. umr. 4. nm heimild fyrir ríkis- Gosch' Tændstikker Gæðamerkið: Thordenskjold Samkepnismerkið: Valkyr ien stjórnina til þess að leggja jár°" braut frá Rvík til Ölfusár; 1. urar' (Ef deildin leyfir). 5. um breý^' úng á 1. nr. 28, 8. nóv. 1883, ^ að stofna slökkvilið á ísafirði; umr. (Ef deildin leyfir). VÍKINGURINN — Jeg lagði þetta á mig yðar vegna — eða áleit að minsta kosti, að ,jeg gerði það yðar vegna. Hún leit á hann, án þess að skilja hann. — Ákvörðun yðar bjargaði mjer úr miklum voða, sagði hún. En jeg skil ekki, hvers vegna þjer hikuðuð, þegar Jnlian lávarður nefndi þetta fyrst við yður. — Þetta er þó virðingar-boð. — Að eggja menn á að þjóna Jakob konungi? sagði Blood nokkuð hvatskeytslega. — Nei, Englandi, mælti Arabella. Landið er alt, Blood skipstjóri. Konungurinn ekkert. Jakob konung- ur mun falla í valinn, eins og allir aðrir, svo koma einhverir eftir hann. En England stendur. Og Eng- land á það skilið, að synir þess vinni því af einlægni og alhug, hvern hug sem þeir kunna að bera til þeirrá, sem með völdin fara í það og það sinnið. Blood leit liíssa á Arabellu, og brosti svo. — Þjer eruð skarpskygn. pjer liefðuð átt að tala við skipshöfnina áðan. En svo bætti hann við, og var nokkru kaldari í rómnum: — Haldið þjer að þessi virðingarstaða mundi einn- ig hylja þjófinn og sjóræningjann? Arabella leit niður fyrir fætur sjer, og rödd henn- ar skalf, þegar hún mælti: — Það er ef til vill, — ekki nauðsynlegt. Jeg hefi sennilega verið of ströng í dómi mínum---------og og fljótfær. Það !kom einkennilegur glampi í augu Bloods, og svipur hans varð mildari. — Ef þetta er skoðun yðar, mælti hann, og horfði fast á hana, þá er lífið ef til vill einhvers virði, þrátt fyrir alt, og þolandi að vera, í þjónustu Jakobs kon- ungs. Hann leit til óvinaskipanna, og sá að báti var skotið út af einu skipinu. Og harðnaði þá svipur hans aftur. Síðan mælti hann: — Ef þjer viljið fara undiv þiljur og sækja þernu yðar og farangur, skal jeg sjá um, að þjer verðið flu^ ar yfir í eitthvert skip flot.adeildarinnar, Hún gekk frá honum. En Blood og WolverstoI1L aðgættu bátinn, sem nú var á leið til þeirra. í hou11,n voru á að gis'ka 10 menn, undir stjórn foringja el®sý er klæddur var rauðri kápu, og stóð aftur í sta^111 bátsins. Blood beindi sjónauka sínum á hann. — Þetta er þó líklega ekki Bishop? spurðí verstone. — Nei, sagði Blood. Jeg þekki hann ekki. — Ha, ha! Wolverstone hló kuldalega. Hann ^ ir líklega skort hugrekki, Ikarlsauðinn, til að kom3 sjálfur. Hann minnist þess líklega, þegar hann 1,3 hjer í síðasta sinni. Og sendir því annan í staðilir' sinn. — . Fulltrúi Bishops var ungur foringi, Calverley a _ nafni, nýkominn frá Englandi. pað var nokkuð mi^* 1 *^ suúður á honum, og framkoma hans sýndi það, a I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.