Morgunblaðið - 08.09.1927, Blaðsíða 2
MORGTTNBLAWÍ#>
t
Notið ísl. vörur
lltsala á Taubútum
hefst laugardaginn 3. september og stendur yfir nokkra daga í
næstu viku. — Þrátt fyrir mikla hækkun á erlendri ullarvöru, þá
helst hið lága verð á ísl. fatadúkunum frá Álafossi. — Verslið við
Afgr. Aiafoss,
Hafnar&træti 17. Simi 404
Ðannið í Banðaríkjunum.
Samtal við F. Stanton Cawley prófessor við
Harward-háskóla.
Hjer hefir dvalið um skeið pró-
fessor í þýsku við Harward-há-
skóla í Bandaríkjunum, Mr. P.
Stanton Cawley að nafni. Hann
■er einnig prófessor í norrænu við
þann háskóla. Hefir hann nnmið
íslensku svo vel, að furðu sætir og
talar hana ágætlega. Kennara hef-
ir hann þó engan haft, heldur hef-
ir hann numið tunguna af bók-
xtm að mestu leyti. Pyrir tveimur
árum fór hann til Noregs og dvaldi
]>ar fjögra mánaða tíma og las
norrænu hjá prófessor Magnús
Olsen í háskólanum í Osló til þess
nð verða færari að gegna embætti
sínu sem prófessor í norrænu við
Harward. Hafði hann pá nýlega
tekið við því embætti að látnum
þeim manni, er það hafði haft á
hendi.
t Osló kyntist. próf. Cawley Sig-
urði Nordal prófessor og segir
iiann að sú viðkynning hafi orð-
ið sjer til ómetanlegs gagns. Sig-
nrður Nordal hafi eigi aðeins kent
sjer mikið í íslensku, heldur hafi
hann opnað augu sín fyrir öðru,
sein þýðingarmeira sje fyrir mál-
fræðing : Nordal hafi sagt sjer það,
að þeim útlendingum, sem vilja
læ'ra íslensku, megi skifta í tvo
ílokka, þá, sem aldrei koma til
íslands, og þá, sem til íslands
koma. „Og hvorn flokkinn mundir
þú vilja fyllaf ‘ hafði Nordal sagt.
Prófessor Cawley var ekki í
neinum efa um það, og hið fyrsta
tækifæri, sem gafst, notaði hann
tii þess að fara til ísiands, og lifa
þar í andrúmslofti íslenskunnar.
Segist, hann aldrei muni iðrast
þess, því að á þessari ferð hafi
hann grætt mikið, og viti nú af
reynslunni, að það sje rjett hjá
Nordal að skifta útlendum ís-
lenskufræðingum í tvo ílokka: þá,
sem koma til íslands og þá, seni
aldrei koma þangað. — Maður
þykist hafa numið tuuguna til
fulls af bókum, en ætli að hún sje
„dautt“ mál, líkt. og latína óg
gríska. En þegar hingað sje kom-
ið, og maður heyri liljóm tung-
unnar alt umhverfis sig dag efiir
-dag, skifti maður nm skoðun —
Prófessor Cawley er því mjög á-
nægður út af því að hafa komið
’i 'npað.
Mhl. fann prófessor Cawley að
máli í gær, og bar margt á góma.
Meðal annars það málið, sem ís-
land og Bandríkin eiga sameig-
inlegt: bannmálið.
— Bannlögin voru sett í Banda-
ríkjunum á stríðsárunum, segir
próf. Cawley, og má telja að það
hafi verið neyðarráðstöfun vegha
stríðsins, enda er það nú alment
máltæki vestra, að Bandaríkin haii
ekki haft annað upp úr stríðinu
en útistandandi skuldir og banr.ið.
— Hverjir gengu mest fram í
því að koma banninu á?
— „Anti 8«ioon League“ átti
n ikinn þátt í því. Það f jelag var
stofnað í þeim tilgangi upphaf-
lega, að vinna á móti vínknæpun-
um. En forstjóri þess hefir játað
opinberlega, að fjelagið hafi not-
að mútur um öll ríkin til þess ;.ð
koma banninu á.
— Hvernig hefir liannið svo
revnst ?
— Það mun hafa reynst s,7ipað
og hjer á Mandi, og skal jeg mi í
’ stuttu máli segja yður mitt álit
á því.
Aður en bannið kom, þektist að
vísu heimabruggun í Suðurríkjun-
um. Þar hrendu hinir svonefndn
„monshiners" sterka. drykki uppi
í fjöllunum, en það var ekki neitt
á móts við þá heimabruggvui sem
nú er. Nú er það orðinn sjerstak-
ur atvinnuvegur, sem fjöldi manns
lifir af. Þó er heimabruggunm
ekki neitt á móts við smyglunina.
Oteljandi skip, koma fullhlaðin
áfengi, leggjast við festar utan
landhelgi, og svo gengur straum-
Hrinn í land. — Mildu er einnig
smyglað yfir landamærin, hæði að
‘norðan frá Kanada og að sunn-
an, frá Mexíkó. — Utan þessara
landamæra blómgvast nú líka
heimabruggun, sjerstakur atvinnu-
og gróðavegur, sem bannið í
' Bandaríkjunmn hefir skapað.
Annars má segja, að bannið hafi
skapað fjóra nýja atvinnuflokka
í Bandaríkjúnum. Pyrst eru það
„The Moonshiners“, eða þeir, sem
brugga áfengi. Svo kemur annar
flokkur, sem nefndur er „The boot
leggers“. Eru það þeir, sem selja
áfengi á strætum og gatnamótum
og drógu þeir nafn sitt af því, að
þeir gengu í vaðstígvjelum og
höfðu flöskurnar geymdar í þeim.
Þriðji flokkurinn eru smyglararn-
ir og fjórði flokkurinn hinir svo-
jnefndu „Highjaekers“, en það eru
þeir, sem lifa á því að stela á-
fengi frá smyglurunum, og hafa
þeir fjölda manna í þjónustu sinni
til að selja áfengið síðan.
Nú er drukkið miklu meira í
Bandaríkjunum heldur en fyrir
stríð. Þá þótti það skömm að láta
sjá vín á sjer, en nú þykir bað
frægð. Er það einkum æskulýður-
inn, sem iðkar drykkjuskap sem
„sport“, eigi síður stúlkur en pilt-
ar. í öllum samsætum flóir áfengi
eins og vatn. ’Einn af embættis-
bræðrum mínum við háskólann
hefir sagt við mig, að hann kom-
ist ekki hjá því að vera glæpa-
maður, svo lengi sem hann lifir,
eða, svo lengi sem bannið endist
Því að samkvæmt bannlögunúm
er hver sá glæpamaður, sein á-
fengis neytir. En ekki hefir tek-
ist. að koma því inn í meðvit.und
þjóðarinnar að það sje glæpur,
bitt fremur,- eins og jeg gat uin
áðan, að það sje „sport“.
Pyrsj eftir að lögin gengu í
gildi, var að vísu minna um af-
brot, drýgð í ölæði. heldur en áð-
ur. f því hqnga bannmenn. En
þeir gæta ekki að því, að ]>að var
áður en smyglunin var „organiser-
uð“. Nú eru þessi afbrot fleiri
Ihlutfallslega heldur en fyrir stríð.
Þetta stafar mikið af því, að nú
leggja menn sjer alt til munns.
'Pátækir menn, sem áður fengu sjer
öl, eiga þess nú engan kost. Þeir
hafa ekki efni á því að kaupa hina
dýru smygluðu drykki, og afleið-
ingin verður sú, að þeir drekka
alskonar óþverra, svo sem stein-
olíu, benzín, hárvötn og — síðast
en ekki síst — brensluspíritus,
’sem stjórnin hefir látið menga
’með eitri. Hefir fjöldi manna drep-
ið sig á þessu. Það er sagt út í frá,
að heimabruggaða áfengið hafi
drepið marga menn í Bandaríkj-
unum. Má vera að það sje rjett, en
hinir eru þó langtum fleiri, sem
hafa skapað sjer aldurtila með
því að drekka hinn eitraða snðu-
vökva, er stjórnin leyfir að selja.
' — Er engin hreyfing um það
að fá bannlögin afnumin?
— Jú, fjelag hefir verið stofnáð
í því augnamiði, en þar er við ram
an reip að draga, því að bann-
ákvæðið er komið inn í stjómar-
skrána. Andbanningum eykst þó
■fylgi dags daglega. Augu manna
opnast smám saman fyrir því, a'ð
árangur bannsins verður allur
annar en sá, sem búist var við —
að lögin hafa siðspillandi áhrif 4
þjóðina yfirleitt, að þau hafa ltent
Iienni <ið óvirða önnur lög, sem
áður voru höfð í heiðri. Lögin hafa
>ekki heldur náð þeim tilgangi sin-
um, sem næst lá að þau mundu
hafa, að heimilishragur batnaði
hjá almenningi, hjá hinuin fátæk-
ustu og fámentuðustu. Síður en
svo, því að nii koma óþverradrykk
ir í stað góðra drykkja, eins og
jeg gat um áðan. Eftirlitið með
lögunum kostar einnig of fjár. —
Ríkið hefir og mist allar sínar
tekjur af áfengisverslun og þær
lenda nú hjá „The bootleggers“,
'og hinum öðrum, sem gera sjer
bannið að fjeþúfu. Þeir menn eru
auðvitað allir á móti því að bann-
ið verði afnumið og eru hinir styrk
ustu forvígismenn þess og sam-
herjar ti'inplara, og bindindis-
manna, sem hafa bannið hæst á
stefnuskrá sinni sem hugsjón.
• Sem dæmi um það, hver áhrif
bannið hefir haft á æskulýðinn,
má nefna ])að, að nú er varla hald-
inn dansleikur svo að vngismenn-
irnir komi ekki með flösku „upp
á vasann“ og yngismeyjamar
líka. t New 'York er nú hægt að
fá hvaða drykk, sem maður óskar
á veitingahúsum, — en þeir eru
þá hornir á borð fyrir mann í
kaffibollum.
sláttur
af
ðllu.
Haraldap-búð
hefst í dag og stendur yfir í örfáa daga. Þá getur margur gert góð kaup,
því frá hinu lága verði á hinum ágætu vörum verslunarinnar verður gefinn
33%—10% afsláttur. En auk þess á mikið af ýmiskonar vörum að seljast í
ikyndi fyrir sáralítið verð.
í dömudeildinvii
{ hei*r*edeildinni
má gera sjerlega góð kaup á kápufau-
um (frá 2,00 mt.). KjSlatauum, ullar,
(frá 1,75 mt.). Fatatauum. Sterkt
Flunel riflað, margir fallegir litir á 4,50
mtr., sjerlega fallegt í drengjaföt og fleira.
Mikið af hvítum Ljereftum 0,55 mtr.
Tvististau 0,65 mt. Flónel. Morgun-
kjólafau (sterk) ca. 3,00—4,00 í kjólinn
Gríðarsterkt brúnt tau í skyrtur á 4,00
í skyrtuna. Mikið af gluggatjaldaefnum.
Silkitau .falleg, sem hafa litast nokkuð
af sól, verða seld fyrir helming verðs.
Silkisokkar kvenna, feikn mikið, seljast
á 0,90—1,35 parið. Kvensjttl frá 9,50
Kvenkápur frá 9,50. Kvendragtir. Ullar-
golftreyjur afar-ódýrar. Kvenregnkápur og
kjólar fyrir Iítið. Blá Cheviot í karla- og
drengja-fatnaði. Franska klæðið fallega
verður líka neðursett meðan á skyndisöl-
unni stendur.
verður meðal annars selt afarmikið af fal-
legum og sterkum Manchettskyrtum
á að eins 4,75 stk. Skyrturnar eru úr gegn-
ofnu efni (Zepbyr) og halda alveg lit. Öll
Naerföt verða seld skyndisöluverði. Þar
á meðal hin þjóðfrægu Hanes-nœrfttt.
Brúnar skyrtur úr ullar-kahki á 5,00 stk.
Misiitir linir flihbar, fallegt úrval, 3
stk. á 1,00. Sokkar úr ull og baðmull,
þunnir sem þykkir, frá 0,55—0,90 parið.
Stajcar Taubuxur, laglegar og sterkar,
á 5,00. 1—200 stk. af Extskum húfum
verður selt á 1,00 stk. Mikið af Regn-
frðkkum verður selt alveg sjerstöku
gjafverði; þar á meðal er ein sjerlega góð
tegund úr bláu ullarefni með gúmmí-milli-
fóðri, sem selst þessa dagana fyrir 39,00
stykkið.
Nokkrir Alfatnaöir, bláir og mislitir,
sumir á stóra, en aðrir á mjög granna
menn, seljast hlægilega ódýrt.