Morgunblaðið - 17.09.1927, Síða 2
2
MOEGUNBLABIÐ
)) IHfemm i Öu
M
MAGGI
Bouillon-Terning
Maggi’s Teningar
Ostar,
10 tegundir.
Ódýrastar liiá
<»CI
Maggi's Supuextrakt
or það bestff.
Fæst i ílestum nýlenduvöru-
verslunum.
ðlafur Finsen
hjerðslæknir
sextugur.
Klein,
Frakkaatíg 16. Sími 73.
Eldavjelar —
Ofnar —
Þvottapokar —
Ofnrör —
margar tegundir
fyrirliggjandi.
ií. Einarssan S Funk
Fyrsta flokks
dilkakjöt
.-■á 75 aura. Y> kg., sent u;n allar
götur. Hringið í síma 1091 og
kjötið verður sent heim fljótlega.
Yerðið er það lægsta, og varan
«er góð.
Eins og að und«.nförn\i sel jeg.
kjöt í heilum kroppum, ásamt,
fleira, svo sem: Lifur, mör og
sviðum. Tek pantanir nú þegar,
því sláturtíð byrjar í næstu viku.
Það skal tekið fram, að kjötið
er úr Borgarfjarðardölum.
líersl. Björninn.
Bergstaðastræti 35. Öími 1091.
Munið
hlutaveltu
Hringsins
í Kópavogi á morgun og hin
ódýru fargjöld
Nýju-bifreiðastöðvarínnar,
Hinar margefiirspurdu
M M'
.ýkomnar aftur.
Tc'aoksverjlun Islands h.f.
Ólafur læknir Finsen er fæddur
17. sept. 1867 í Keykjavík. For-
eldrar hans voru O. P. Finsen
póstmeistari og fyrri kona hans
Hendrikke Finsen (f. Bjering). —
Ólafur Finsen útskrifaðist 1888 úr
latínuskqlanum og 1892 úr lækna-
skólanum. Eft.ir það var hann um
hríð á sjúkrahúsum í Kaupmanna-
höfn. Hann var 1894 skipaður
aukalæknir á Skipaskaga. — ÁnÖ
1900 fjekk hann veitingu fyrir
Skipaskagahjeraði.
Hann hefir allan embættisaldur
sinn dvalið á Akranesi og aldrei
sótt þaðan, enda miuiu fáir lækn-
ar hafa átt meiri vinsældum að
fagna í læknishjeruðum sínum en
Ólafur. Hann er einkar varfærinu
og samviskusamur læknir og þyk-
ir skjótur að búa sig að heiman,
hvort sem hans er vitjað á nótt
eða degi.
Ólafur læknir kvæntist haustið
1894 Ingibjörgu ísleifsdóttur prests
frá Arnarbæli. Hafa þau hjónin
eignast 8 börn, af þeim eru 6 á
lífi og öll uppkomin. — Samfarir
þeirra hjóna hafa verið hinar
bestu, enda eru þau bæði ráð-
deildarsöm og skyldurækin og
samtaka í því, að bera hvors ann-
ars bagga.
Bæði eru þau læknishjónin mjög
gestrisin, og líður öllum gestum
vel, sem þar ber að garði. A heim-
ili þeirra hefir löngum ríkt kæti
og glaðværð, enda eru hjónin
söngvin og söngelsk.
Óiafur hefir aldrei mátt vamm
sitt vita í einkalífi sínu og em-
bættisferli. Hann hefir haft. ýms
trúnaðarstörf á hendi fyrir sveit-
unga sína og leyst þau vel af
hendi, eins og honum er títt.
Með sextíu árin á haki er Ólaf-
ur læknir einkar ern og skjótur
í hreyfingum. Vonandi endist
honum þetta góða veganesti enu
'einn til svo tugi ára, því að mað-
urinn er þjettur á velli og þjett,
ur í lund, eins og hann á ætt til.
Aðalfnudnr
Sundfjelags Reykjavíkur.
Samþykt áskoruu til bæjarstjóm-
ar um sundhallarmálið.
í fyrradag var aðalfundur Sund
fjelagsins haldinn. Gaf stjórnin
þar ítarlegt yfirlit nm starf fje-
lagsins á liðnu ári. Þar voru og
rædd ýms áhugamál fjelagsins,
svo sem sundhallarmálið, nm sund-
skálann í Örfirisey, verðlaunagripi
o. fl.
í sundhallarmálinu var sam-
þykt svohljóðandi tillaga:
„Aðalfundur Sundfjelags Reykja-
víkur skorar á bæjarstjórnina að
veita nú þegar ríflegan styrk til
sundhallarbyggingar í Reykjavík
og vinna að því í sambandi við
Alþing og í. S. í., að sundhöllin
verði bygð að fullu fyrir 1930.“
Á fundinum voru kjörnir tveir
lieiðursfjelagar, Ben. G. Waage og
Erlingur Pálsson.
Stjórnin var öll endurkosin, en
hana skipa: Erlingur Pálsson, for-
rnaður, Ingibj. Brands, varaform.,
Jóhann Þorláksson, gjaldken,
Valdimar Sveinbjörnsson ritari og
Ólafur Pálsson.
Sundíþróttinni er nú á allra
síðustu árum mjög að aukast fylgi
hjer. En allir þeir, sem áhuga hafa
á sundinu ættu að fylkja sjer um
Sundfjelagið og ganga í það, og
þurfa menn ekki annað en snúa
sjer til einhvers í stjóm þess. Með
því að vera, í fjelaginu, fylgjast
menn áreiðanlega best með í öllu,
sem að sundinu lýtur og styðja
íþróttina hest og mest með því.
Oorskt skip
strandar á Sauðárkróki.
í fyrradag strandaði norskt skip
á Sauðárkróki, með þeim hætti, að
það rak frá hryggju og upp í f jöru
Skipið kom hjeðan að sunnan
með^salt, og átti að losa um 45
tonn af því á Sauðárkróki. Var
búið að losa í fyrradag klukkan
þrjú, um 35 tonn. En þá fór að
versna veður, og versnaði svo
skyndilega, að ekki þótti t.rygt fyr-
ir skipið við bryggjnna; en þegar
það ætlaði að fara frá, dró það
'ekki móti veðri og sjó, og rak
aipp í fjöru. Var sagt í símtali að
norðan í gær, að það eitt hefði
riðið baggamuninn, að skipið hafði
ekki látið akkeri fallið, þegar það
lagðist að bryggjunni.
Skip þetta heitir „Ströna“, og
er gamall trjekassi, 47 ára gamall;
vjelin er kraftlit.il og sögð orðin
heldur hrörleg. Um leið og það
rak upp, er álitið, að skrúfan hafi
eitthvað bilað, og stýrið brotnaði
alveg af því.
' Símað var til Siglufjarðar í
'fyrrakvöld eftir skipi til þess að
reyna að ná „Ströna“ út. En þá
var þvílíkt foráttuveður á Sigln-
firði og stórsjór í Siglufjarðar-
4nynni, að ekkert skip treyst.ist til
að fara út og til Sauðárkróks. —
'Seinni partinn í gær var og ekk-
’ert skip komið þangað.
í samtali því, er Morgunblaðið
átti við Sauðárkrók í gær, bjóst
heimildarmaður þess við, að ekki
mundi takast að ná skipinu út.
í því ern nú 220 smálestir af salti,
og er kominn nokkur leki að því.
Sjór er enn allmikil) nyrðra, og
þolir þessi gamli trjekassi lítið, og
var búist við, að hann mundi fljót-
lega liðast sundur.
Einkarjettnr
Þórbergs Þórðarsonar.
' Algengt er að menn sækist eftir
allskonar einkarjetti, einkum i
sambandi við eigin framleiðslu
isína. — Þórbergur Þórðarson hef-
ir öðlast þann einkarjett, að geta
sagt alt sem hið sjúka ímyndun-
arafl hans blæs honum í brjóst, án
þess að nokkur maður taki hið
minsta tillit til hans.
Það er hið óbrjálaða almenn-
ingsálit í landinu, er veitt hefir
Þórbergi einkarjett þenna, til æfi-
langra afnota. Enginn mun öf-
unda. hinn málliðuga málfræðing
af sjerstöðu hans, enginn ásælast
hinn noltkuð óvenjulega rjett hans.
Friður sje með Þórbergi.
3ón 5 ÖErgmann
skáld.
...
Bergmann lifir lýðum hjá
Ljóðin hans því valda.
Þótt hans lijúpur þokist frá,
Þeirn má ávalt tjalda.
Gegnum ljóðahjúpinn hans
Hugans geislar skína.
Og úr fýlgsnum einbúans
Ymsar myndir sýna.
í
Flestir eiga’ á vegi vök,
Verður erfið skörin.
Drengir þreyta dauðatök
Djúp eru stundum örin.
Það hann sá, og það hann fa.nn,
Þótt ei hirti að kvarta.
Því við arninn eldheitan
Átti’ liann víkingshjarta.
Verði skáldi gangan greið,
Geislar mannelskunnar.
Yfir hulda lýsi leið
Lauki ferskeitlunnar.
Ág. Jónsson.
Ego
og EjómabnssmjOr
altaf nýtt í
f /*
c?l / verpooim
Maður
vaamr verslunarstörfuxn getur
fengið atvinnu í jámvöruverslun
hjer í bæ.
TTmsóknir merktar „Jám“, send-
ist A. S. 1.
Nýbomið:
Dilkalíjöt —
Gulrófur —
Tröllepli —
Gulaldin —
Tomater —
Matarbnð
Slátnrljelagsins.
Laugaveg 42. Sími 812.
Hlskonar Grænmoti
selur
Klein
Frakkastíg 16. Sími 73.
vetoriini er l nðnd.
Nýkomiö:
Fallegav* kvenvefrapkápur,
Vetrarkápuiaug
Skinnkantar.
Ennfremur:
Karlnvetrisrfrakkap,
fallegt úrral.