Morgunblaðið - 13.10.1927, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.1927, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ber saman um að sje besL Fœst i flestum malvöpuverslunum. Skrllstofiherbergl á öðru lofti i PAsthússtræti 7 til leigu nú þegar. Upplýsingar I fslandsbanka kl. 10—12 virka daga. Skjalaskðpnr (kartoteksskápur) óskast til kaups nú þegar. A. S. í. vísar á. Hðgöngomíðar að prjedikunum Haralds Níelssonar prófessors fást hjá: Bókaversl. ísafoldar, Bókaversl. Sigf. Eymundssonar, Bókaversl. Ár- sæls Árnasonar, Silkibúðinni og Hljóðfæraversl. Katrínar Viðar. í d a g kl. 1 e. h. verða nokkrir ungir fallegir húnverskir hestar seldir á Hverfisgötu 4 [pDrt Barðars Bíslasonar]. Sængnrdúkar, — Fiðurhelt ljereft og Dúnhelt ljereft,. selt með ábyrgð. Rúmteppi — Rekkjuvoðir, Laka- og Sængurveraefni. Hvergi meira úrval. Margar gerðir af Rúmstæðnm bæði úr járni og trje, BARNARÚM, og hinir afarþægilegu y Beddar F I Ð U R í sængur og koddla gufuhreinsað og lyktarlaust. Hálfdúnn, íslenskur æðardúnn 1. fl. Islensk skáldsaga. „Vefarinn mikli frá Kasmír.' ‘ Eftir H. Kiljan Laxness. Nokkur stormur reis um þessa bók meðan liún var að koma út. Sá stormur hefði líklega, hvergi getað myndast nema hjer á landi. Þó bókin sje að ýmsu leyti sjer- stök, djarfari og bersögulli, en títt er um ískenskar skáldsögur, þá myndi hún hvergi í menningar- og bókmentalandi hafa vakið annað eins rót. Og það af þeirri einföldu ástæðu, að þessi tegund skáld- 'sagna er þar nú ekki lengur ný- næmi. Nú er þessum gusti, sem nm bók- ina og höftmdinn varð, lokið að mestu, og friður og róleg íhugun komin í staðinn. Ætti því að vera óhætt að minnast á liana án þess að neitt fárviðri dyndi yfir. Hið fyrsta, sem manni dettur í hug, þegar maður leggur bókina frá sjer, að loknum lest.ri, er vit- laus fjörhestur, sem æðir tryltur íutan vegar, sparkar möl og grjóti víða vegá, rífur ]>úfur og slettir leirnum langar leiðir, tekur eiu- staka snildarspor, glæsilegur, gammvakur, en fatast svo gangur- inn jafnskjótt, óg sami leikurinn byrjar á ný, svo þeir, sem á borfa, snúa sjer nndan. Halldór K. Laxness minnir á slíkan trylling, sem býr víir mikl- um og mörgum kostum, en hirðir teklci um lagða veginn, brautina, en þeysir í þýfið og æðir þar nm, án þess að ná sjer niðri á nokkrum gangi nema endrum og eins. Höfundurinn hefir tekið sjter fyr- ir hendur að lýsa í þessari bók tungum manni, vel gefnum og iþróttmiklum, sem berst út i hið tegilegasta skoðanaöngþveiti og lendir ]iví í gífurlegri sálarlegri baráttu. Allar lífsskoðanabylgjur nútíðarinnar brotna á honum. — Alla hylji mannlegra tilfinninga verður hann að kafa og kanna. — Hann lætur hann ýmist velkjast og þvælast í svartasta bölsýni, í hat- römmn trúleysi eða hann lyftir honum. upp í hrifni og eldmóð 'trúartrausts, mannkærleilta og samtilfinningar með öllu og öllum. Hann gengur í gegnum hverja eld- 'skírnina á fætur annari, stígur og /fellur, ])roskast aftur og fellur á ný. Hann leitar til kaþólskrar tru- ar, í skant kirkjunnar, en nær þar engri fótfestu. Hann gerir skírlífið áð hugsjón sinni, en svík- ur þá hugsjón áðnr en varir. — Hann er orðinn að leiksopp sjálfs ' sín. Og þegar hann í sögulok er kominn enn á ný undir vald og vernd kaþólskunnar, og sigrar sjálfan sig, og rekur barnsmóður sína frá sjer, veit rnaður ekki liverju maður á að trúa. Er hann kominn úr hafrótinu í höfn? Eða er þetta aðeins stundargriða- staður? Steinn Elliði er ekki einstakling- ur. Ef höfundur hefir ætlað að gera hann úr ga.rði með sjálf- stæðan persónuleik, hefir honum mistekist. Steinn er aðeins ímynd þess nútímamanns, sem lendir í brimróti nýrra og ólíkra. lífsskoc- ana, sem nú flæðir yfir veröld- ina. I raun og veru eru fáar per- sónur í bókinni einstaklingar. Þær eru flestar ímyndir — flestar „typur“. Þær skortir flestar eða allar lífsanda og hjartslátt hins ‘persónulega manns, einstaklings- ins. Það er ef til vill vegna þessa skorts, að öll sagan, allar persón- urnar eru ósannar. Þær liefðu ekki þurft að vera það, þó þær sjeu ímyndir, ef höfundurinn hefði ekki teflt öllum atburðum, öllum skoðunum, öllum ferli persónanna út á vstu ])röm öfganna. Laxness veður upp yfir höfuð í öfgum, og þær setja ósannindablæinn á bók- ina. Frásögnin er „búin til“, elcki lifuð. Hefði ekki Kiljan getað gert betri bók, ef hann hefði stilt bet- ur í hóf með öfgarnar? Var hon- um ekki í lófa lagið, að lýsa bar- áttu Steins Elliða, þó hann þvældi honum ekki í sífellu í saur og sið- leysi? Svo mun flestum finnast. Það er skamt öfganna milli. — Laxness hefir stórspilt. sögunni með öfgunum, sett ósanníndablæ á frásögnina. gert persónurnar ótrú- legar, og brotið niður þá megin- reglu góðrar skáldsagnalistar -— að segja svo frá, að trúað verði, spenna, bogann ekki hærra en svo, að ekki bresti. Því ber ekki að neita; að það er mikill þróttur í þessari bók, snjöll tilþrif, á stöku stað, sem sýna, að það, er eitthvað að brjót- ast um í höfundi hennar, að hann á yfir meiri krafti að búa, en meðalmaðurinn. En þessi kraftur er enn ótaminn, óbeislaður, og það er svo að sjá, að Laxness vilji ekki temja sjálfan sig. En á með- an svo er, verða gönuskeiðin mörg. Stíll Laxness er sjerkennilegur, en víða ófagur og óþjáll, þó sum- staðar detti hann niður á glitrandi setningar. En málið er hraldegt, svo hraklegt, að það er ósamboðið jafn miklum efnisrithöfundi og Laxness er, að kast.a svo til þess höndunúm sem hann gerir. Þar ægir ölln saman. Málið á bókinni er einskonar ruslakista, safnþró orðskrípa, afbakaðra tökuorða og ■tilvitnana í erlend mál. Þar er alt látið fara og fljóta, sem örum manni getur í hug komið. i „Vefarinn“ er elcki mikið skáld- verk; gallarnir eru augljósir, áber- andi og ^miklir. En bókin er engu að síður merkileg. Hún er einskon- a.r „tákn t.ímanna“ — vaxin úr skoðana-óskapnaði síðari ára, ár- anna eftir styrjöldina, þegar and- leg verðmæti hrundu í rústir, og nýrri lífskoðun skaut upp úr öllu rótinu eius og fálmandi hönd. — Bókin er sjálf einskonar skáld- sögu-óskapnaður. J. B. i Til Strandarkirkju frá B. Ó. 5 kr. Nonna 5 kr. Sveitastúlkn 5 kr. S. R. 5 kr. K. 5 kr. N. N. 15 kr. N. N. 2 kr. N. N. 3 kr. Onefndri 2 kr. Nýkomið ! P e y s u r mislitar, $§£ á karlmenn og drengi. $§£ Einnig ^ Kven-prjónavesti, ^ nýjasta tíska. a* Athugið g'luvffana! Verslun Egill lacobsen. Dömupels (Beaverskinn), mjög fallegur, til sölu í klæðaverslun H. Andersen & Sön. Aðalstræti 16. lllRlllDM. Stúlka ábyggileg og þrifin, óskast í nýlenduvöruverslun. Upplýsingar kl. 4—6 í dag á Vesturgötu 48. □ 3BQ □ Regnfrakkar nýkomnar, margar tegundir ■og litir. Alfatnaður ódýrastur í bænum. Mest úrval. Vðruhúsið. □Hi=n= □□□ Egg, Hvítkál, Gulrætur, Rauðrófur, Gulrófur, Laukur, Purrur, Selleri, Vínber, Epli nýkomið í Sími 434. góðu „The Fairy of the home“ eru komnar aftur í heildsölu og smásölu Verðið lækkað. 60 litir af flosgarni á leiðinni. h G. Guilia s Co. Austurstræti L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.