Morgunblaðið - 13.10.1927, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Tóbsksförur alskouar
ei* heppilegt að kaupa i
pund, en tapaði þó sjöhundruðum
af línu.
Heiidv. Garðars Gíslasonar.
Sólrík stofa með miðstöðvar-
liitun til leigu, á Laugaveg 81.
Kartöflur.
Nokkrir sekkir af völdum kart-
öflum frá Eyrarbakka og Borgar-
nesi.
Verðið er lágt og varan góð.
Kaupfjelag Borgfirðinga
Laugavegi 20 A. Sími 514.
Togararnir. „Ari“ kom af veið-
um í fyrrinótt, með um 900 kitti.
Fór til Englands með aflann í gær.
„Menja“ fór á ísfisksvéiðar í nótt,
og verið er að búa „Njörð“ á
veiðar.
„Nova“ fór hjeðan í gærmorgun
vestur og norður um land. Meðal
farþega voru: sjera Hálfdán Guð-
jónsson á Sauðárkróki, Benedikt
Elfar söngvari og Bernhard Arnar
verslunarmaður.
Yiðskifti.
Kjöt og fiskfars. Kjöt og fisk-
bollur. Karbonader, er best og
ódvrast í Fiskmetisgerðinni —
Hverfisgötu 57. Sími 2212.
Síld, 2 tunnur af saltaðri síld
óskast. Upplýsingar í síma 1935,
kl. 12—1.
Kaupið Glataða soninn.
E»að er góð bók og ódýr.
Skínandi fallegar krystalskálar,
tertuföt og vasar, nýkomið. Lauf-
ásveg 44. Hjálmar Guðmundsson.
Vandað og ódýrt: Ðivanar,
fjaðrasængur og madressur. Aðal-
stræti 1 (móti v-ersl. H. P. Duus).
GeíiO unoliniuiun
OÓOUP MllF.
Anna Fía
heitip hóhiii, w mesf
sp lofuð af msHuiiiOnum
yinaa.
»
Nokkrir duglegir drengir óskast.
Komi á Lokastíg 18, í dag, eftir
klukkan 1.
Vanur innheimtumaður óskar eftir
þesskonar störfum — meðmæli fyr-
ir hendi. — Þeir sem vildu sinna
þessu leggi nöfn sín í lokuðu um-
slagi, inn á A.S.Í., auðkent: „Inn-
heimtumaður.“
Stúlka óskar eftir búðar- eða
bakaríisstörfuin- — Upplýsingar í
síma 221.
Tvær stúlkur geta fengið fæði í
Þingholtsstræti 26, niðri. Málfríðm’
Jónsdóttir.
Dagbók.
Veðrið (í gærkvöldi kl. 5): All-
djúp lægð við Suður-Grænland og
færist fremur lxægt norðaustur á
bóginn. Fyrir austan land liefir
myndast ný lægð sem stefnir norð-
ur með Vestur-Noregi. Er veðrið
hjer því „milli lægða“, kyrt og
víðast úrkomulítið.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Sunnan stinningskaldi og rigning
öðru hvoru.
Farþegar með Goðafossi í fyrra-
kvöld voru, auk þeirra, sem talidr
voru hjer í blaðinu í gær: Arent
Claessen stórkaupmaður og frú
hans, Halldór Þorsteinsson skip-
stjóri, Hallgrímur Benediktsson
'stórkaupmaður, G. J. Johnsen kon-
teúll, Helgi Zoega, Jón Loftsson út-
gerðarmaður, stúdentarnir Magnús
Magnússon og Leifur Asgeirsson,
Guðmundur Þorfinnsson og And-
'rjes Jónsson, þeir síðasttöldu tveir
á leið til Ameríku.
Danssýning Ruth Hanson. Meðal
farþega á Gullfossi frá útlöndum
síðast, koinu ungfrú Rutli Hanson
og móðir hennar. Hefir Ruth Han-
son ferðast víða um, og lagt sjer-
staka stund á að læra nýtísku
dansa, bæði í Kaupmannahöfn,
París og Englandi. Er það ætlun
hennar að gefa bæjarbúum kost
á því að sjá þessa dansa, og heldur
því danssýningu í Iðnó á sunnu-
daginn kl. 4. Meðal nýjustu dansa
sem hún sýnir, má nefna: „Blaek
Bottom/ ‘ ,Jalle-Bananslide', Vals,
„Foxtrot' ‘, „Tango“ og „Flat
Charleston.“ Þessir fjórir síðast-
töldu segir ungfrú Hanson að sjeu
gerbreyttir frá því í fyrra. Ruth
Hanson er bæjarbúum vel kunnug,
hafði hún dansskóla hjer í fyrra-
vetur í sex mánuði, og kendi einn-
ig „Plastik“ og leikfimi fyrir börn
og fullorðna.
„Bottenhavet“ heitir skip, sem
liingað er komið, og tekur fisk til
útflutnings hjá Guðmundi Alberts-
svni.
í stjórn glímu^jelagsins „Ár-
manns“ voru kosnir á aðalfundi
fjelagsins í fyrrakvöld: Jens Guð-
björnsson, form., Ragnar Krist-
insson, ritari, og Stefán G. Björns-
son, gjaldkeri.
Myndir af öræfunum umliverfis
Eiríksjökul, Langjökul og Hofs-
jökul, hafa verið til sýnis í glugga
Morgunblaðsins undanfarna daga
og hefir mörgum orðið starsýnt .4
þær, eins og eðlilegt er. Myndirnar
teru 48 alls, og hver annari betri.
Er ekki ólíklegt að þær veki löng-
un hjá ýmsum til þess að ferðast
upp um fjöll og firnindi á fögrum
sumardegi. „Fagurt er á fjöllunum
núna“, er haft eftir Höllu, þegar
hún var í haldi. Fagurt er á1 fjöll-
unum enn, svo fagurt, að enginn
getur gert sjer hugmynd um það
nema sá, sem ferðast um öræfin.
Haustrigningar ætla ekki að
bregðást að þessu sinni, sem betur
fer fyrir rafveituna! Áður en rign-
ingatíðin byrjaði var sáralítið vatn
á Elliðavatnsengjum, í uppistöðu
rafveitunnar. Hefir vatnið hækkað
um % meters. En hækka má það
um 1 meter enn, svo lónið sje fult.
Hjónabönd. Gefin voru saman í
hjónaband í Hafnarfirði á laugar-
daginn var, Sigurbjörg Pálsdóttir,
frá Fáskrúðsfirði, og Kjartan Ól-
afsson rakari.
Síðastliðinn laugardag voru gef-
in saman í hjónaband af sjera
Bjarna Jónssyni Ásta Björnsdótt-
ir og Hjörtur Hjartarson, kaup-
maður.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
bahd Eyþóra Ásgrímsdóttir, síma-
mær, og Henrik Thorarensen,
bankaritari.
Halldór Júlíusson, sýslumaður,
hefir verið skipaður rannsóknar-
dómari í atkvæðafölsunarmálinu
í Hnífsdal. Fór hann hjeðan til
ísafjarðar með íslandi í fyrra-
kvöld, til þess að hefja þar rann-
sóknina.
Ný ljóðabók er væntanleg á
bókamarkaðinn í þessum mánuði,
eftir ungan mann, sem ekki hefir
gefið út áður, Kristján Guðlaugs-
son, bróður Jónasar heitins Guð-
laugssonar skálds. Áskriftalistar
að henni liggja í bókaverslunum.
Afla sinn selja í Englandi í dag
togaramir „Tryggvi gamli“ og
„Geir.“
Fiskafli hefir verið góður und-
anfarið hjá smábátum þeim, sem
stunda hjeðan róðra. Einkum hef-
ir einn bátur, Alberts frá Gróttu,
áflað vel. 1 gær fekk hann um 1000
Hvítkál hefir verið talið meðal
þeirra matjurta, sem ekki væri
gerlegt að rækta hjer áí landi, en
þetta hefir breyst allra síðustu
árin. Hvítkálsafbrigði, sem nefnt
er Þjettmerski, hefir Einar Helga-
son ræktað í garði sínum síðustu
árin þrjú, það hefir vaxið vel,
höfuðin eru 3y2—7 pund að þyngil,
þegar búið er að skera lausu blöð-
in burt; flest þeirra eru 5—6
pund. Nokkrir af þessum kálhaus-
um eru til sýnis í dag og á morgun
í glugga matardeildar Sláturfje-
lagsins í Hafnarstræti.
I
Til fátæku stúlkunnar frá N. N.
5 kr. Ónefndri 2 kr.
Til fátæks Hafnfirðings frá G.
2 krónur.
Gepid sw© wel
3ið lita £L
Capteps
sjálfblekunga og blýanta áður en þjer festið kaup á öðrum.
Þeir eru ný vara á markaðinum, fallegir, góðir og furðu ódýrir.
Bókaversf* Sigjf. Efmnnisgssonap*
Þegap þú giftip þigf
þarftu að fá klukku i búið. Nýkomið mikíð úrval
með lægsta verði i
versl. Jóns Hermannssonai*
úrsmiðs, Hverfisgötu 32.
Söngskemtun Kristján Kristj-'
ánssonar í Gamla Bio á þriðju-^
dagskvöldið var mjög vel sótt og
var söngvaranum tekið hið besta
af áheyrendum. Af sjerstökum
ástæðum bíður dómur um söng
Kristjáns þar til síðar. Hann kvað
ætla að syngja aftur í Gamla Bio
á sunnudaginn kemur.
Útvarpið í dag: Kl. 10 árd. Veð-
urskeyti, frjettir, gengi; kl. 7 sd.
Veðurskeyti; kl. 7.10 Upplestur
(Sig. Skúlason); kl. 7.30 Útvarps-
trio (Takacs, A. Berger og Emil
Thoroddsen) ; kl. 8.30 Upplestur;
kl. 9 Hljóðfærasláttur frá Hótel
'ísland.
Húsmæður!
Hagkvæmust kaup gerið þjer
á kanel og pipar i
brjefum á 10 og 25 aura frá
Efnagerðinni. Brjefin inni-
halda jafnmikið af reglulega
góðum k a n e 1 og^ p i p a r
og kaupmenn selja í lausri
vigt. —
H.f. EfRvð ileulilRUir
Kemisk verksmiðja.
Sími 1755.
Hrómundur Jósepsson skipstjóri,
er nýlega kominn hingað, eftir
nokkurra ára dvöl í Ameríku. —
Vann hann þar í tvö ár á gúmmí-
smíðastofu og ætlar nú að setja
hjer upp slíka smíðastofu, með
nýtísku áhöldum. Verður þar gert
við bifreiða-dekk og slöngur, skó-
hlífar, gúmmístígvjel o. s. frv. —
Vinnustofan verður í Veltusþndi
1, beint á móti Steindóri.
Eldur kom upp í gærkvöldi í
bifreiðaskúr hjá Þingholtsstræti
'21. Kviknaði í benzini og brann
talsvert bifreið, sem þar var inm;
.brann af lienni skýlið („toppur-
inn“) og sætin eitthvað talsvert,
en sjálf grindin mun ekki hafa
skemst til muna og ekki brann
gúmmí-ið af henni. Eldurinn var
orðinn talsvert magnaður þegar
islökkviliðið kom að, en því tókst
fljótlega að kæfa hann. Bifreiðina
átti Ólafur Stefánsson prentari
o. fl.
Oaitk-Pfska
gerðardómsnefndin skipuð.
Danir og Þjóðverjar hafa nú
skipað nefnd þá, sem samkvæmt
gerðardómssamningnum frá 2- júlí
1926 milli þessara þjóða, á að
fjalla um öll pólitísk ágreinings-
efni, sem fyrir kunna að kóina
milli þeirra.
Danir hafa skipað af sinni hálfu
Júlíus Möller hæstarjettardómara
og Undén fyrv. utanríkisráðherra
Svía. En Þjóðverjar dr. Fleisch-
mann, prófessor háskólans í
Halle og dr. von Waldkirch
prófessor við haskolann í Bern.
— Stjórnir beggja landa hafa
fallist á sem oddamann í nefndina
van Lynden van Sandenberg
greifa, kammerherra hjá Hollands-
drotningu, og er hann formaður
nefndarinnar.
Gilletteblðð
' ? ■
ávalt fyrirliggjandi í heildsölu
lfilh. Fr. Frimannsscn
Sími 557
Hinar margeftirspurðu
KEÍlÍErs
„Couníy CsramEls“
nýkomnar aftur.
*
Tóbaksverjlun Islands h.F.
M UlíHi
verða í Herðubreið.
Aðeins úrvals
Borgarfjarðarkjöt.
Fyríriiggjandi s
Saltpokar
Fiskkörfur
Merkiblek
Fiskmottur
Bindigarn.
Andersen,
Símar 642 & 842.
Austurstræti 7.
^írni 27
hEima 2127
Rlálnlng