Morgunblaðið - 01.12.1927, Side 8

Morgunblaðið - 01.12.1927, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ 25. Eins og um var talað fór músa- gftbbi með tvo drengina sína um miðja nótt inn í stofu skóghöggvarans. I>ar sáóð askjan uppi á skáp, og undir eins kyrjuðu þeir að naga. En það var nú erfiði! Þeir nöguðu til skiftis og að lokum höfðu þeir gert svo stórt gat, að Dísa litla gat skriðið þar út. En hvern- ig átti hún nú að komast ofan af skápn- uxn ? Hún var ekki eins fim eins og mýslurnar, og hún hafði heldur engar kiær til að fóta sig á eins og þær. 29. í>au gengu nú lengi, lengi, en veðrið var gott. Sólin skein í heiði og gylti kornakrana. Nokkru eftír miðjan dag komu þau inn á akurinn, þar sem Klumbunefur átti heima. Kornöxin stóðu þar eins og eikur og gnæfðu hátt yfir höfuð Dísu. Þegar þau komu heim undir bæ Klumbunefs, stóð hann sjálf- ur úti. „Nei, hvað er að sjá þetta!“ hrópaði hann og klappaði saman lóf- unum, en í sama bili opnuðust bæjar- dyrnar ........ 33. Þau krakkarnir ljeku sjer nú lengi og að lokum barst leikurinn efst upp á hólinn. Þar komu þau að eldhús- strompi. „Þetta er eldhússtrompurinn okkar,“ mælti annar strákurinn. „Nú skulum við grafa okkur í gegnum þak- ið og komast inn, hvað sem pabbi segir. Heldurðu að það komi ekki svipur á pabba og mömmu, er þau hitta okkur þar?“ Dsalfurinn li Barnasaga mEð 112 mynöum eftir B1 Th. Rotman. 26. Nú datt Patta nokkuð gott ráð í hug! Hann hafði komið auga á sokka kerlingar, er lágu þar á stóli. Hann nag- aði af aðra totuna og rakti upp sokk- inn. Síðan hnýtti hann margar lykkjur á þráðinn og nú var vaður fenginn fyr- ir Dísu litlu til að síga í niður af hyll- unni. Hún stakk fótunum á víxl í Iykkj- urnar og þannig komst hún niður á gólf. Þá var nú ekki beðið boðanna heldur hlaupið sem fætur toguðu til músaholunnar. 30.......... og út komu tíu litlir Klumbunefir til þess að fagna þess- um sjaldsjeðu gestum. Sjálf húsmóðir- in kom fram í bæjardyrnar. Gestunurh var tekið með mestu blíðu og spurðust þeir frændurnir almæltra tíðinda. Svo var músapabba og Dísu litlu boðið inn og settur fyrir þau ágætur miðdegis- verður og varð nú músapabbi að segja sögu Dísu og í hvaða trindum þau væru komin. 34. Dísa þóttist vita, að þetta væri mesta fásinna, en það varð engu tauti við strákana komið. Þeir hömuðust að grafa svo að moldargusurnar gengu á Dísu. „Hana, þar komst jeg inn úr!“ kallaði annar og í sama bili sá Dísa þá báða stingast á hausinn niður í jörð- ina. En þeir lentu ekki heima hjá sjer, piltarnir, eins og þeir höfðu búist við, heldur í eldhúsi moldvörpunnar. 27. Litlu mýslur fögnuðu Dísu með glaum og gleði og frú Skottlöng bar undir eins mat á borð. Það kom sjer nú vel, því að Dísa var orðin svöng, hún hafði hvorki bragðað vott nje þurt í sólarhring. Allir voru í besta skapi út af því hve laglega hefði tekist að snúa á skóghöggvarann og kellu hans. En er Dísa sá heimilisánægjuna þarna, rifj- aðist upp fyrir henni að hún hafði sjálf átt heimili og móður, — og þá fór hún að gráta. 31. „Þetta vill heppilega til,“ mælti Klumbunefur, „því að í næstu viku fer jeg á fund dvergakóngsins í skóginum, að greiða honum skatt. Hann veit nátt- úrlega alt um þetta. Hann þekkir alla Ijósálfa og veit, hvar þeir eiga heima. Skildu stúlkuna eftir hjá mjer“. — Það varð úr að Dísa varð eftir en músa- pabbi hjelt heimleiðis og veifaði Dísa til hans litlu höndinni sinni eins lengi og hún sá til ferða hans. 35. Þeim brá heldur en ekki í brún, er þeir sáu þessa tröllskessu. Hún sat þar innan um potta sína, og voru í þeim brytjaðir ormar og illkvikindi. Glyrnurnar í henni voru eins og elds- glæður, örsmáar og illilegar fram úr hófi. Og á fingrunum hafði hún afar- miklar, sterkar klær og bognar. Nei, hún var ekki frýnileg, síður en svo. 28. Þegar músapabbi hafði fengið að vita, hvað að henni gekk, sagði hann: „Jeg skal segja þjer nokkuð! Á morgun skal jeg fara með þig tiL Klumbunefs frænda míns. Það er skóg- armús. Hann hefir áreiðanlega einhver* ráð til að hafa upp á mömmu þinni“. —- Morguninn eftir kvaddi svo Dísa frú Skottlöng og allar litlu mýslurnar með kossi og hjelt á stað með músapabba. 32. En það fer ekki alt eins og ætl- að er! Nú skuluð þið fá að heyra þaðJ — Nokkrum dögnm eftir þetta fórtl þau Klumbunefs-hjónin ásamt nokkr- um krökkum sínum út á akur til að draga í búið. Tveir minstu drengirnir voru eftir hjá Dísu og áttu þau að gæta hússins, en ekki máttu þau vera inni. „Jeg vil ekki hafa nein ólæti í stofunum,“ sagði Klumbunefur, lokaðl þau úti og stakk lyklinum í vasa sinn. 36. Til allrar hamingju voru dyrn- ar opnar í hálfa gátt og áður en tröll- ið gat stokkið á fætur, þutu litlu Klumbunefirnir út með ópum og óhljóð- um. Þeir urðu að hlaupa um löng og dimm og krókótt göng og ráku sig altaf á, en tröllið var á hælum þeirra. Alt í einu sáu þeir þó skímu og út komust þeir undir bert loft að lok- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.