Morgunblaðið - 14.04.1928, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Pinsen.
tTtgefandi: Pjelag I Reykjavlk.
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Slml nr. 600.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjaid:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.50 - ---
I lausasölu 10 aura eintakiS.
Þingtíðindi.
Úr verstöðvunum.
Vestmannaeyjum, FB 13. apríl.
Agætis afli up'p undir viku-
'tíma. í gær kom á land hátt á
•annað hundrað þúsund, — þorsk-
tir. Er það hið mesta, sem nokkru
sinni hefir komið á land hjer á
'cinum degi. Unnið er dag og nótt.
Varla hægt að koma fiskinum
Aindan.
Fjárlögin
afgreidd óbreytt, eins og Ed. hafði gengið frá þeim.
Irö Vestur-íslendingum.
-i-t--
F. B. í apríl.
íslenskir vesturfarar.
Fra 1. maí 1927—1. febr. 1928
fiuttust tuttugu og fjórir íslend-
ingar til Canada.
Þing Þjóðræknisfjelagsins
var sett að morgni þess 21. febr.
í Winnipeg og lauk því um mið-
.nætti þ. 23. s. m. Þingstörf fóru
:fram Ji daginn, en á kvöldin voru
.almennar skemtisamkomur. M. a.
jfór fram á þeim kappglíma. Annað
íkvöldið hjelt Þjóðræknisdeildin
Frón hið árlega miðsvetrarmót
•sitt. Sjera-Run. Marteinsson stjórn
aði því, en ræður fluttu þar sjera
Ragnar E. Kvaran, Sig’. Júl. Jó-
hannesson læknir o. fl. Karlakór
iBrynjólfs Þorlákssonar skemti og
•ennfremur Sigfús Halldórsson rit-
stjóri með einsöng. Síðasta kvöld-
ið flutti sjera Jónas A. Sigurðsson
ærindi um þjóðrækni.
Síðasta þingdaginn fóru fram
kosningar embættismanna og hlutu
þessir kosningu: Sjera Ragnar E.
Kvaran, forseti, Jón J. Bíldfell
varaforseti, sjera Rögnvaldur Pjet
ursson, skrifari, sjera Runólfur
Marteinsson, varaskrifari, Arni
Eggertsson fjehirðir og bóka og
skjalavörður O. S. Thorgeirsson.
Mannslát.
Þ. 15. febr. andaðist í Flata-
tungu í grend við Arnes í Mani-
toba Mrs. Anna Sigfúsdóttir Hall-
■grímsson. Hún var ættuð úr Svarf-
aðardal, f. 1842. Hiin var gefin
Sigurbirni Hallgrímssyni og fluttu
þau vestur um haf 1874, voru eitt
ár í Ontario og voru með fyrstu
landnemum til Gimli í Manitoba
1875. Þeim hjónum varð sjö barna
auðið. Eru 21 barnabörn Onnu á
lífi og 25 barnabamabörn. Anna
hafði verið þrekkona og gfeind
vel.
í gær var ein umr. um fjárlögin
í Nd. Eins og skýrt hefir verið
frá, hafði Ed. gengið þannig frá
fjárl., að þau sýndu á'pappírnum
32 þús. kr. tekjuafgang.
Engin brtt. kom fram í Nd. við
þessa umr. svo sýnilegt var, að
ætlunin var af afgreiða fjárlögin
óbreytt, eins og Ed. hafði gengið
frá þeim.
Frsm. fjvn., Ing. Bj., lýsti yfir
því, fyrir nefndarinnar hönd, að
hún legði til, að fjárl. yrðu af-
greidd eins og þau lægju nú fyrir.
Þó væri nefndin engan veginn
ánægð með þá afgreiðslu, einkum
væri nefndin óánægð með þá
mörgu persónustyrki, er nú væri
í fjárl, En af ótta við enn vei|ri
afgreiðslu, ef fjárl. yrðu opnuð
að nýju, lagði nefndin þetta til.
Ymsir þm. urðu til þess að deila
hart á stjófnina og stjórnarliðið
út af afgreiðslu fjárlaganna. Eink-
um varð Pj. Ottesen til þess að
víta þá afgreiðslu er fjárlögin
fengju. Sýndi hann fram á, að
fjárlögin hefðu ekki tekjuafgang,
eins og útkoma þeirra sýndi, held-
ur raunverulegan tekjuhalla og
hann ekki óverulegan. Raunveru-
legur tekjuhalla fjárlaganna yrði
um 300 þús. kr., ef með væru
reiknuð þau útgjöld, sem talin eru
í 22. og 23. gr. fjárl. Þessar upp-
hæðir næmu yfir 300 þús. kr. —
Ennfremur vantaði inn í fjárlögin
100 þús. kr. til byggingu Lands-
spítalans, svo að unnið væri þar
samkv. gerðiim samningum. Hefðu
fjárlögin því um 400 þús. kr.
tekjuhalla.
Yerður nánar vikið að afgr.
fjárl. síðar hjer í blaðinu.
Járnbrantin anstnr.
Forsætisráðherra lýsir því yfir á Alþingi, að hann veiti ekki „að svo
j vöxnu máli“ fossafjelaginu „Titan“ sjepleyfi til þess að virkja
Urriðafoss nje til jámbrautarlagningar austur.
Leiðrjetting. I símskeyti því, til
þýska blaðsins „Voss. Zeit,“ sem
"birt var í greininni „Hverjir eru
föðurlandssvikarar“ hjer í blað-
inu í gær, hafði fallið úr orðið ekki
í niðurlagi skeytisins. Átti niður-
lag skeytisins að vera svohljóð-
andi: „og á öðrum fundi lýsti
dómsmálaráðherra því ennfremur
yfir, að orðrómurinn um bækistöð
ensku flotamálastjórnarinnar á ts-
landi væri ekki algerlega rjett-
mætur/'1
Við umræðu um fjárlögin í Nd.
í gær, spurði Jörundur Brynjólfs-
son forsætisráðherrann að því,
hvað hann hugsaði sjer að gera
við sjerleyfisbeiðni „Titans“ til
virkjunar á Urriðafossi í Þjórsá
og járnbrautarlagningar austur að
Þjórsá. Og ef stjórnin ætlaði sjer
ekki að veita sjerleyfið, hvað hann
hugsaði sjer þá viðvíkjandi sam-
göngumálunum austur yfir fjall.
Fyrirspurn þessari svaraði for-
sætisráðh. þegar í stað. Hafði hann
svarræðuna skrifaða í vasanum og
las upp. Var ræðan svohljóðandi:
; „Snemma á þingi barst mjer
fyrirspurn um það, hvort jeg
mundi ætla að veita fossafjelaginu
Titan, samkvæmt umsókn þess,
sjerleyfi til járnbrautarlagningar
frá Reykjavík til Þjórsár, samkv.
heimild í lögum frá þingi í fyrra.
Voru þá ókomnar umsagnir um
málið frá sjerfræðingum. En nú
eru þær komnar og geta liáttv.
1 alþingismenn átt kost á að kynna
sjer þær í atvinnumálaráðuneyt-
inu.
Nú hefir mjer borist áskorun
frá fimm alþingismönnum, frá
þeim hjeruðum, sem mestra hags-
muna eiga að gæta um járnbraut-
arlagninguna um „að veita fossa-
fjelaginu Titan sjerleyfi til þess
að virkja Urriðafoss í Þjórsá, svo
framarlega sem fjel. færir sönn-
,ur á, að dómi landsstjórnarinnar,
að það hafi nægilegt fjármagn að
sínum hluta, til þess að leggja járn
braut fra Reykjavík að Þjórsá,
með þeim hraða sem sjerleyfislög-
iin ákveða.“
| Síðan hefir mjer borist áskorun
i frá 15 alþingismönnum um að
í „veita ekki sjerleyfi til þess að
tvirkja Urriðafoss í Þjórsá, nema
(því aðeins að full vissa sje fyrir
því, að nægilegt fjármagn sje á
ireiðum höndum hjá sjerleyfisbeið-
anda til járnbrautarlagningar frá
jReykjavík austur að Þjórsá.“
Loks hafa 11 alþm. sumpart æskt
þess skriflega, að sjerleyfið verði
ekki veitt, sumpart greitt atkvæði
gegn því.
Nú liggur það ljóst fyrir
í beiðni þeirri um sjerleyfi sem
fossafjelagið Titan hefir sent,
stjórninni, að fje til framkvæmda
er ekki á reiðum höndum, enda er
það og jafnframt tekið fram í um-
sókninni að þess sje yfirleitt ekki
að vænta að fje verði fyrir hendi
áður en sjerleyfið er veitt. Hitt er
i aftur á móti fullyrt af fjelagsins
hálfu, að fje muni fást síðar, en
fyrir því eru ekki færð fullnægj-
andi rök.
Það liggur því ekki fyrir, að
fossafjelagið Titan hafi „fært
sönnur á, að dómi landsstjórnar-
innar að það hafi nægilegt fjár-
magn að sínum hluta, til þess að
leggja járnbraut frá Reykjavík
að Þjórsá með þeim hraða, sem
sjerleyfislögin áltveða“, nje held-
ur: „að full vissa sje fyrir því, að
nægilegt fjármagn sje á reiðum
höndum hjá sjerleyfisbeiðanda til
járnbrautarlagningarinnar.“
í frafflhaldi af því, sem nú hefir
verið sagt, skal því þá lýst yfir, að
þegar af þeirri ástæðu, sem nú
hefir verið nefnd, mun jeg ekki
telja rjett að svo vöxnu máli, að
gjalda jákvæðið þeirri beiðni sem
fossafjelagið Titan hefir sent um
að fá sjerleyfi til þess að virkja
Urriðafoss og leggja járnbraut frá
Reykjavík til Þjórsár.
En í þessu sambandi skal því
lýst yfir að landsstjórnin mun
telja sjer skylt að taka til sjer-
stakrar athugunar hversu bæta
megi, svo fljótt, sem frekast eru
tök til, úr hinni mjög brýnu þörf
fullkominna samgangna fyrir hjer-
uðin austan fjalls.“
ÍJt af þessu svari forsrh. spunn-
ust langar umræður, er stóðu fram
á nótt. Er ekki tök á að skýra frá
þeim umr. hjer nema að litlu leýti.
Einar Jónsson: Vil lýsa því yfir, að
mína undirskrift átti að skilja svo, að
jeg vildi ýta nndir þetta mál, ekki
draga úr því. Hafi annað legið bak
við þegar jeg var beðinn að skrifa
undir, þá hefi jeg verið blektur.
Magnús Guðmundsson: Hjer er auð-
sjáanlega verið að leika sjónleik. Jör.
Br. spyr meinleysislega, en forsrh.
kemur með skrifaða ræðu upp úr vas-
anum. þessi leikur hefir verið aftal-
aður þeirra á milli.
pegar jeg, snemma á þinginu, beindi
fyrirspurn til Tr. p. um það, hvað
hann ætlaði að gera í þessu sjerleyfis-
máli, svaraði Tr. p. því, að hann
rnundi leita álits sjerfræðinganna
Geirs Zoega og Steingríms Jónssonar.
Alit þeirra er nú komið. Leggja þeir
báðir til, að sjerleyfið verði veitt.
Ráðherrann ber fyrir synjuii sinni
nú, áskorun er hann hafi fengið frá
þingmönnum, 5 sjer á skjali og 20 á
öðru. Veit ekki hvað vakað hefir fyrir
þm. þessum. En skil ekki að áskorun
þeirra 5 Sunnlendingá hafi verið gerð
í þeinj tilgangi, að leggja stein í götu
þessa máls. Enda yfirl. fengin frá
1. þní. Rang. um það, að hann hafi
með undirskrift sinni viljað ýta undir
það að sjerleyfi yrði veitt. Sjerleyfis-
lögin voru afgr. í fyrra með % hl.
atkv., og jeg fæ ekki skilið að sú
breyting hafi orðið síðan, að því er
þetta mál snertir, að meirihl. sje nú
andvígur málinu.
pað hefir aldrei verið talað. um að
stíga aðeins annað skrefið í þessu máli,
að samþ. lögin; geng.ið út frá, að
sjerleyfi verði veitt skv. lögunum. Við
höfum engu að tapa, því að Titan
verður að hefjast lianda fyrir 1. maí
1929, ella að missa sjerleyfisrjettinn.
Viðurkenni að Tr. p. á erfitt í þessu
máli; hann talaði sterkt á móti málinu
í fyrra. Jeg ætlast nú ekki til þess að
ráðherrann skifti skoðun; en heimta
að hann gefi skýr svör, hvað hann
ætli sjer að gera. Ætlar hann að veita
sjerleyfið, ef nægilegt fje yrði lagt
fram? Eða ætlar hann að neita skil-
yrðislaust? Heimta skýrt svar um
; þetta, því það er ósæmilegt narr af
Alþ., ef það er af gefa vilyrði um
sjerleyfi, en svo neitar ráðherrann að
fara að vilja þingsins.
Tr. p. segir að fje sje ekki á redðum
höndum. Við því er ekki að búast
meðan sjerleyfi er ekki veitt. Enginn
getur ætlast til þess, að peningamenn
sjeu að leggja fram fje, án þess vissa
sje fyrir því, að sjerleyfi fáist.
Mín sannfæring er, að fje sje fá-
; anlegt. Jeg hefi sjeð brjef hjá Kl.
Jónssyni — og það brjef hefir Tr. p.
einnig sjeð — þar sem því er yfirlýst,
ao nægilegt fje sje til, þegar sjerleyfi
er fengið. petta brjef frá þeim stað,
'að jeg hefi fylstu ástæðu til að trúa
því.
Og sjeu líkur, livað þá vissa fyrir
i því, að f je til járnbrautar fáist, þá
ítel jeg það óverjandi með öllu að
slá hendinni á móti því. Járnbraut
(austur að pjórsá er áreiðanlega eitt-
Ihvert langstærsta framfaramálið, sem
á dagskrá hefir komist hjá okkur.
Mjer sárnar það, ef fyrv. stuðnings-
1 menn þessa máls hafa nú, viljandi eða
óviljandi, orðið til þess að leggja
stein í götu þess. Skil ekki í því, að sá
liafi verið þeirra vilji.
Magnús Kristjánsson. Er óánægður
með yfirlýsingu Tr. p. Sje ekki að
nokkur hætta hefði getað af því staf-
að, að veita sjerleyfið.
Gu.nnar Sigurðsson: Er óánægður
með afgreiðslu þessa máls. Vona að
það hendi aldrei þingmenn Sunnlend-
inga að styðja þá stjórn, er stæði í
veginum fyrir járnbvaut austur. (En
hvað gerið þm. ?)
Umr. var hvergi nærri lokið, þegar
blaðið fór í pressuna. Verður sagt frá
þeim nánar síðar.
Thoivaldsensbasarinn.
Það mun vera rúmur aldarfjórð-
ungur síðan Thorvaldsensbasarinn
byrjaði hjer starfsemi sína. Og
víst er um það ,að hann hefir
mörgum að liði komið, og helst þó
þeim, sem mesta þörf hafa haft
fyrir að geta selt handavinnu sína
n. fl. iatækum einstæðingum, sem
án basarsins mundu ekki hafa get-
að selt það, sem þeir hafa búið til.
Omakslaun þau sem basarinn hef-
ir tekið af seljendum, liafa verið
svo hverfandi lítil, að þeir hafa
ekki orðið þess varir, enda var
stofnun basarans ekki gerð í
gróðaskyni, heldur góðgerðar.
Thorvaldsensfjelagið hefir nú
látið breyta búð sinni, og hyggst
að starfa með engu minna fjöri
en áður. Eins og gefur að skilja,
er þó starfsemi fjelagsins komin
undir því, að því berist smekk-
legir og sannsýnilega verðlagðir
Hýil nautakiOt
reglulega gott.
Verslunin
Kjöt Gc Fiskur.
Laugaveg 48. Sími 828.
Rúgmjttl,
Rúgur,
Hænsnabygg,
Vi maís og malsmjttl,
Hafrar,
Vi baunir,
lfictoriubaunir
fyrirliggjandi hjá
G. Behrens.
Simi 21.
Úrvals
Skagakartðflur
í heilum sekkjum og lausri vigt.
Danskar kartttflur
kr. 10.50 pokinn.
Drífandi.
Laugaveg 63. Sími 2393.
FEDERAÚ
DLKK og slttngur, allar
stærðir fyrirliggjandi.
Ávalt haldbestu dekkin.
EgiU Vilhjálmssou,
B. * Sa Rg
Tr|evörurf
alskonar seljast með lægsta mark-
aðsverði cif. á allar íslenskar hafn-
ir, af fjölskrúðugum birgðum í
Halmstað í Svíþjóð. — Biðjið nm
iilboð.
A.B. GUNNAR PERSSON,
Appelsinur dq
epli
ódýrasti
Verslunin Fram
Laugaveg 12. Siml 2288.