Morgunblaðið - 29.04.1928, Blaðsíða 6
6
MORdrUNBLAÐIÐ .
„Arin og eilífðin“
Prjedikanir eftir Harald Nielsson prófessor,
hafa werid feldar i verðif
og kosta nú:
f skinnbandi kr. 16.00, shirting kr. 12.00, heft kr. 8.00.
fsaíoldarprentsmiðja h.f.
Radio-laiDDar
eru af fagmönnuin viðurkendir
þeir bestu, sem fáanlegir eru.
Útvarpstæki án Telefunken-
lampa, geta aldrei verið fullkomin.
Munið að Telefunken er braut-
ryðjandi á sviði útvarpsins.
Umboðsmenn fyrir Telefunken
eru
Hjalti Biörnsson S Go.
Sími 720.
Eldfastnr leir og steinn
og jnrtapottar
allskonar.
S.sknaðarljöð.
Kveðin er Helga Ásthildur dóttir mín andaðist
fjögra ára gömul, 12. janúar 1928.
Guð minn, jeg bið, láttu geisla þinn skína,
jeg geng hjer í heldimmri nótt,
legðu að brjósti þjer bænina mína,
sem bærist svo viðkvæmt og hljótt.
Rjettu mjer hjálpandi höndina þína,
gef hug mínum vaxandi þrótt;
þá sárin mín gróa og sorgirnar dvína
og svo verður hjartanu rótt.
Hvert líf, sem á ekki vopn til að verjast,
en vitund með hrópandi þrá,
þú hlýtur að gefa því hjör til að berjast
og hugsjón, hvað sigurinn má.
Hið sárasta böl er við beiskjuna sverjast
því brjósti, sem viðkvæmnin á,
og loks undir fótum á múginum merjast
og markinu aldregi ná.
Jeg flý þjer að hjarta með fórnandi höndum
og fel þjer mín blæðandi sár,
sem örlaga fangi í brqyskleikans höndum,
en byrgi mín þögulu tár.
Hið lamandi brothljóð af brimóttum ströndum
var bát mínum örlaga spár,
en beri mig flakið að friðarins lðndum
jeg fagna þjer, komandi ár.
Leiddu mig, bæn, inn í bjartari heima,
er brosir mín helgasta þrá;
leyfðu mjer augnablik aðeins að gleyma
hvar erfiða brautin mín lá.
Pó lítirðu buga minn saknandi sveima,
þá svala mjer fullvissan má,
að betur en jeg muni guðs höndin geyma
þann gimstein, er bestan jeg á.,
Guð, sem að tók þetta gull minna blóma,
sem glóði við barminn á mjer,
jeg veit, að um eilífð hann lætur það Ijóma
í lundinum bjarta hjá sjer.
Svo þegar Ioks jeg fæ leyst mína dróma
og ljóðið mitt hreinskrifað er,
þá heyri jeg, Ásthildur, orðin þín hljóma
og ákalla drottinn með þjer.
EINAR BACHMANN.
Þjáflhátíflardagur.
..Hbijdp tllpguri Un?"
VALD. POULSEN.
Klapparsiig 29. — Simi 24.
I bókinni „Austur í blámóðu
£jalla“, eftir Vestur-íslendinginn
Aðalstein Kristjánsson, er fögur
Jvsing á því, hvernig Skotar heiðra
minningu skáldsins Roberts Burns
og hafa reist honum minnisvarða á
einni ekru lands vel girtri, og fag-
urlega skreyttri trjám og blómum,
og þennan stað hafa Skotar gert
heimsfrægan og þangað ferðast
fólk svo þúsundum skiftir á hverju
ári.
Þegar við lesum þessa frásögu
Aðalsteins Kristjánssonar og finn-
um hrifningu hans mílli línanna
fyrir þeirri ræktarsepii, er Skotar
þar sýna minningu síns heims-
fræga skálds, fer ekki hjá því, að
mörgum verði með kinnroða hugs-
að til þess ræktarJeysis, sem ís-
lendingar sýna minningu og minn-
isvarða þess eina íslenska þjóð-
skálds, sem þeir enn þá hafa metið
svo mikils að reisa standmynd af.
Oft hefir verið á þetta bent í
blöðum hjer, að vanvirða það væri
^þjóðinni, í hve miklu hirðuleysis-
ástandi mynd Jónasar Hallgríms-
-sonar er, og hve mikið ræktarleysi
þjóðin með því sýndi minningu
skáldsins góða. En það hefir enn
engan árangur borið. Eins og allir
sjá, sem um Lækjargötu fara, og
Titið verður á mynd Jónasaf Hall-
grímssonar, er stöpull sá, er mynd-
in hvílir á, meira og minna nið-
urbrotinn og mosavaxinn, og svo
hefir len'gi verið. En þetta er með
öllu ósamboðið virðingvi þjóðarinn-
ar, og minningu skáldsins. Nii vil
jeg leyfa mjer að taka. undir með
öðrum, sem áður hafa á þetta bent,
og mælast fastlega til þess við hina
háttvirtu landsstjórn, að hún láti
hið fyrsta fraínkvæma allar nauð-
synlegar umbætur á stöp>li myndar-
innar og hylji þar margra ára
skammarlega vanfækslu.
Helst ætti myndin að flytjast
þaðan sem hún ef, og setjast í
skemtigarð borgarinnar suður með
tjörninni. Þar ætti, ef vel væri, að
byggja undir hana nýjan og miklu
veglegri stöpul en hún nú stendur
á. Og þar ætti liún að standa ókoin
in ár, umvafin blómum landsins, og
ræktarsemi þjóðarinnar.
Jeg vil ennfremur og í þessn
sambandi nota ' tækifærið, og
spyrja^ nefnd þá, er fyrir, að mig
minnir þrem árum, hóf fjársöfnun
meðal þjóðarinnar, til kaupa á
standmynd af Hajmesi Hafstein.
Hvað hyggur nefndin til fram-
kvæmda í þessu efni? Mjer þætti
mjög viðeigandi, og eigijilega alveg
sjálfsagt, að mynd Hannesar Haf-
stein, hins fyrsta íslenska ráð-
herj-a, væri komin upp hjer í Rvík,
á fögrum og viðeigandi stað, fyr-
ir 1930. .Jeg veit að það þætti
mörgum, fleirum en mjer,,gainan
að heyra svör nefndarinnar.
Kjartan Ólafsson.
Eins og kunnugt er, eru almenn-
ir frídagar hjer í bai, sumardag-
urinn fyrsti og 2.. ágúst. En fyrir
utan þessa daga er og einn hátíð-
isdagur, sem að vísu ekki ér lög-
lielgur, en hefir fengið fulla liefð,
j>ar er 17. júní, fæðingardagur
Jóiis forseta Sigurðssonar. Margir
eru á því að löghelga ætti þann
dag eiiinig, vegna liinna mörgu
ininninga, sem bundnar eru við
mesta frelsisskörung íslendinga.
Yirðist og dagurinn véra nijög
heppilega valinn, að minsta kosti
í höfuðstaðnum. Menn eru ekki al-
ment farnir úr bænum, í sveit eða
síld, og ]>ví auðvelt um sameigin-
legán fjölmennan gleoskap.
Dagur þjóðernismanna í fram-
tíðinni verður altaf 17. júní, og
þess vegna má gera ráð fyrir að sá
dagur verði lögskipaðnr frídagur.
Það er ekkert efamál, að marg-
ir frídagar, hver á eftir öðrum,
svo að segja, eru bæði þreytandi
og liafa ekki tilætluð áhrif. —
Kvennadeginum og 17. júní má
vel slá saman. Það er ekkert hæg-
ara en að safna fje í Landsspí-
talasjóðinn þann dag, og efla á all-
an hátt nauðsynjamál okkar. ÍSlík-
ur dagur á að vera sá sami um alt
land. Það hefir áreiðanlega. mest
áhrif, og vekur inenn best, til
sameiginlegra starfa, í þarfir þjóð-
arinnar.
Stjettar-hátíðisdagar ná aldrei
tökum á þjóðinni. Þess vegna verð-
nr og á að lögskipa, dag eins og
17. júní, sem virðist vera mjög vel
fallinn til hátíðalialda hjer á landi.
Þjóðræknismaður.
Jafnaðafrmenn og kommúnistar
lenda í áflogum og rifrildi í þýska
ríkisþinginu og kasta hrákadöllum
hvorir í aðra.
Þann 29. ínars síðastliðinn varð
sögulegur fundur í þýska ríkisþing
i.inu og ekki sem friðsamlegastur.
Lauk svo að slíta varð fundi vegna
þess að jafnaðarmenn og kommúh-
istar lentu í mestu ryskingum.
J afnaðarmaðurinn Landsberger
var að halda svarræðu gegn árás-
um af hálfu kommúnista og sagði
þeim óþvegið til syndanna. Brugð-
ust kommúnistar mjög reiðir við
og hófu árás á ræðustólinn, en
jafnaðarmenn skipuðu sjer í hóp
kringum flolcksbróður sinn til þess
að vernda hann. — Kommúnistar
tóku sig þá tii og söfnuðu saman
öllhm hrákadÖllum, sem þeir fundu
og hófu jivínæst skothríð á Lands-
berger. Þeim tókst ekki að hitta
hann sjálfan, en margir af hráka-
döllunum lentu í ræðustólnum og
brotnuðu, en nokkuð af brotununi
og innihaldinu steyptist yfir ves-
lings skrifarana.
Þegar mesta skóthríðin var af
staðin, rjeðimt jafnaðarm. fyiktu
liði á kommunistana og böhðu þá
með hnúum og hnefum. Eru kom-
múnistar færri miklu og biðu j>ví
lægra hlut. Voru margir þeirra lú-
barðir og tveir særðir til muna.
Læknir var enginn við stadduV
nema einn af þingmönnum jafn-
aðarmanna, dr. Moses. Fór hann
skömmu seinna inn í nefndarher-
bergi kommúnista og bauð hinum
særðu aðstoð sína, en hann var tek
inn og barinn í hefnda skyni við
jafnaoarmenn.
U. lyra
er hjeðan fimtudaginn 3. mai til
Bergen um Fœreyjar og
Veitmannaeyjar.
Flutningur tllkynniet
sem fyrst.
Farseðlar sœkist fyr-
ir hádegi ð fimtudag.
Nic. Bjarnason.
Til leigu.
3 herbergi og eldhús til leigu,
á góðum stað í Hafnarfi'rði.
Upplýsingar í síma 113.
H$tt ijömabússmjör
A 4 krónur kilóið
selt á Rauðará.
siml 92.
Kartðilnr.
Óvenjugóðar danskar kartöflur
á 10,50 pokinn.
ísl. útsæðiskartöflur ofan af Skaga,
Kartöflur af Eyrarbakka í sekkj-
um og lausri vigt.
Von.
Slnlka,
sem er vön afgreiðslu getur feng-
ið atvinnu nú jiegar eða 1. júní.
Skrifleg umsókn sendist fyrir 1.
maí. Taka skal fram hvar unnið
liefir og hve lengi.
Vegna þessa uppl>ots ákvað for-
seti þingsins að banna einum kom-
múnista, Jadascli, þingsetu j>að
sem eftir var fundarins. En hann
neitaði að lilýðnast, skipuninni og
sat kyr eftir sem áður og var
fundinum því slitið.