Morgunblaðið - 03.05.1928, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.05.1928, Blaðsíða 5
Fimtudagiim 3. maí 1928. eru af fagmöimum viðurltendir þeir bestu, sem fáanlegir eru. Útvarpstæki án Telefunken- lampa, geta aldrei verið fullkomin. 'Munið að Telefunken er braut- ryðjandi á sviði útvarpsins. Umboðsmenn fyrir Telefunken eru Hialti ijmsson | Go- Sími 720. AU-Bran á hverjn heimill. Þeir kanpmenn og aðrir augrlýsendur, sem sjerstaklega þurfa að aug- lýsa í sveitum landsins, anglýsa í ísafold — Utbreiddasta bl ðði sveitanna. — Einokunarmálin á Alþingl. ^álítið sýnishorn af hinni llýju stjórnmálastefnu. I. Þegar það vitnaðist síðastlið- sumar, að foringjar Fram- ^knarflokksins hefðu leitað til ^síalista eftir stuðningi eða ^lutleysi við stjórnarmyndun, ^ptust blöð stjórnarinnar um ^ lýsa því yfir, að stuðningur Jjfesi ætti ekkert að kosta. Birtu ^Öðin yfirlýsingu um þetta frá ^mhandsstjórn Alþýðuflokks- V og var þar m. a. þetta tekið V: ..Alþýðuflokkurinn hefir engin ^ilyrði sett fyrir hlutleysi sínu ^ engin áhrif haft á mannaval , ‘áðuneytið, enda er loforðið um '^tleysið alls ekki tímabundið". ,1‘að er óneitanlega skemtilegt, | og nú er komið, að hafa Ssa yfirlýsingu frá Aljiýðu- Xknum skjalfesta. — Veslings ^Hdurnir í Framsókn hafa auð- 1* ^nlega óttast, að stjettarbræð- þeirra úti um bygðir landsins V!^U óánægðir út af sambandinu sósíalista. Yfirlýsingin frá v hýðuflokknum hefir átt að |^a sem græðandi plástur á ^ar vantrúuðu sálir. M.^ir, sem kunnugir voru í að-| íjj ^búðum Framsóknar og só lstg, vissu vel, að yfirlýsing! Alþýðuflokksins var markleysa ein. Sósíalistar myndu fá sitt, þrátt fyrir yfirlýsinguna. I’etta kom líka fljótt á daginn. Stjórnin var ekki fyr sest á laggirnar, en það sýndi sig mjög greinilega, að það var flokkur sósíalista, sem stjórnaði landinu, en ekki bændaflokkur. I’etta kom í ljós í ótal fram- kvæmdum stjórnarinnar, sem nú eru landskunnar, t. d. lögbrotin í sambandi við varðskip ríkisins, bitlingarnir mörgu til ýmissa gæðinga sósíalista o. s. frv. Greinilegast kom þetta þó í ljós eftir að Alþingi var komið saman. Mátti segja, að sósíalist- ar rjeðu þar öllu. I>arf ekki ann- að en minna á Jóns Auðuns-mál-' ið, stjórnarskrána (hvernig só- síalistar ráku Framsóknarmenn! til að fella stjórnarskrárbreyt-1 inguna), skifting Gullbringu- og Kjósarsýslu í 2 kjördæmi, að ó- gleymdum öllum einokunarmál- iinum. II. Ujóðnýtingarboðorðið er fyrsta boðorð sósíalista. Krafa þeirra er, að afnuminn verði eignar- rjettur einstaklinga á jörðum og öllum framleiðslutækjum. Ríkið sjálft reki alla framleiðslu til lands og sjávar; ríkið reki alla útgerð, verslun, iðnað allan og búskap o. s. frv. Einstaklingarn- ir mega ekki starfrækja neitc þesskonar upp á eigin spýtur. Þeir verða að vera daglauna- menn ríkisins. Það er stutt síðan að þjóð- málastefna sósíalista fluttist hingað. Hún hefir því ekki kom- ið á stað neinum stórfeldum bylt- ingum í þjóðlífinu enn sem kom- ið er. Það var fyrst á þingi í vet- ur, að sósíalistar beittu sjer af alefli fyrir ýmsum stefnumálum. Einkum voru það einokunarmál- in, sem þeir ljetu til sín taka. Skulu hjer nefnd nokkur þessara stefnumála sósialista, sem borin voru fram á síðasta þingi. Síldareinokun (flutnm. Ingvar Pálmason og Erl. Friðjónsson). Frá 1. maí ]>. á. skal vera einka- sala á allri saltaðri og kryddaðri síld eða verkaði á annan hátt til útflutnings á íslandi eða í ísl. landhelgi, og nefnist þessi einka- sala „Síldareinkasala íslands“. Stjórn einkasölunnar hefir á hendi 5 manna nefnd; kýs Al- þingi 3, einn ;er tilnefndur af verklýðssambandi Norðurlands og einn af þeim mönnum, er gera út á síldveiðar næsta ár á und- an kosningu. Stjórnarnefndin er kosin til þriggja ára og á hún að kjósa 3 framkvæmdarstjóra. Lög þessi eru þegar komin til framkvæmda. Síldarbræðslustöðvar (flutnm. Erl. Fr. og I. P.). Ríkisstjórn- inni er heimilt að stofna og starfrækja (á kostnað ríkissjóðs) síldarbræðslustöðvar á Norður- landi og annarsstaðar, þar sem hentast ]>ykir. Má verja alt að 1 miljón króna úr ríkissjóði til þessa fyrirtækis, og er heimilt að taka það fje að láni. óþarfi er að taka það fram hjer, að þessu fyrirtæki fylgir stórkostleg áhætta fyrir ríkissjóð Stjórnarflokkurinn lagðist allur á móti ]>ví, að fyrirtækið yrði rekið á samvinnugrundvelli og án áhættu fyrir ríkissjóð. Sósí- alistar kúguðu Framsóknarmenn í þessu máli, eins og mörgum öðrum. Lög þessi hafa þegar öðlast gildi, en nú virðist nokk- urt hik komið á stjórnina í mál- inu. Steinolíueinokunin (flm. Har- aldur Guðmundsson). Fluttihann þáltill. í sameinuðu þingi, þar sem skorað var á stjórnina að nota heimild 1. nr. 77, 14. nóv. 1917, og taka einkasölu á stein- olíu. Eins og kunnugt er, hafa orð- ið stórkostlegar umbætur á olíu- versluninni hjer á landi nú und- anfarið. Hafa umbætur þessar þegar fært lándsmönnum hagn- að, í lækkuðu olíuverði, sem nem- ur hundruðum þúsunda króna. En einokunaráfergja sósíalista er svo mikil, að þeir hirða ekkert um þessa staðreynd. Þeir vilja eyðileggja ]>ær umbætur, sem orðið hafa. En sem betur fór, náði krafa þeirra ekki fram að ganga á síðasta þingi. — Þál.till. dagaði uppi. Tóbakseinokun (flm. Hjeðinn Valdimarsson). Samkv. frumv. ]>essu átti ríkið að taka einkasölu á öllu tóbaki frá 1. jan. 1929. Það vill svo til, að þessi einka- sala er ekki alveg ókunnug lands mönnum, því hún var starfrækt hjer 4 ár (1922—1925). En sú reynsla, sem fjekst af verslunar- aðferð þessari, varð ekki þann veg, að menn hefðu getað vænst þess, að nokkrum óbrjáluðum manni kæmi til hugar að endur- reisa það fyrirtæki aftur. Meðal- tekjur ríkisins af tóbaki (þ. e. tolli og einkasölu) þau 4 ár, sem einkasalan starfaði, urðu krónur 764,510. En tolltekjurnar einar 1926, eftir að verslunin var gef- in frjáls, urðu kr. 1,137,000, eða um 370 /nis. kr. hærri en meðál- tekjur einkasölunnar. Dálaglegur búhnykkur fyrir ríkið, eða hitt þó heldur, að fá einokunina end- urreista! Frv. Hjeðins varð ekki útrætt á síðasta ]>ingi, en það nun eíga að sjást síðar. Saltfiskseinokun (flm. Har. G.,; Sigurj. Ól. og H. V.). Samkvæmt frv. þessu átti ríkisstjórnin að taka í sínar hendur, frá 1. jan. 1929, einkasölu á „söltuðum og þurkuðum fiski, sem veiddur er, hjer við land og verkaður er í landi eða fluttur er á land og út- flutningshæfur telst“. — Þetta frv. sofnaði í nefnd að þessu sinni, en sósíalistar munu ákveðn ir í að vekja það upp aftur á : næsta þingi. Á burðareinokunin (st j ór nar- frv.). Ríkisstjórninni er heimilt, að taka í sínar hendur einkasölu á tilbúnum áburði frá 1. okt. 1928. Árin 1929, 1930 og 1931 er stjórninni heimilt að greiða úr rikissjóði flutningskostnað ábui'ð arins til landsins á þær hafnir, sem skip Eimskipafjelagsins og Esja koma á. Áburðinn má að- eins selja hrepps- og bæjarf jelög- um, búnaðarfjelögum, samvinnu- f jelögum bænda og kaupmönnum. (Stjórnin eða atvmrh. setti sig j mjög á móti því, að kaupmenn mættu hafa áburð á boðstólum). , Álagning má vera 2% (Tr. Þ. lagði til 5%), og skal áburðurinn , ætíð greiddur við móttöku. Tveir bændafrömuðir í íhalds- flokknum, þeir Jón á Reynistað og Pjetur Ottesen, sýndu fram S á, hve vanhugsað þetta mál væri, eins og það væri flutt af stjórn- inni. Um 19/20 hlutar alls tilbú- ins áburðar væri notað í kaup- • stöðunum og grend við ]>á. Fje, sem ríkið greiddi, kæmi því ná- lega eingöngu þeim að notum. Þessir menn, er besta hefðu að- stöðu hvað markað og annað snertir, fengju greiddan allan flutningskostnað, eða 100%. — Bændur, er byggju ekki alllangt frá kaupstöðum, fengju 30-50 % flutningskostnaðar, en dalabænd- ur og f jarsveitarmenn aðeins 10- 20%. Þó væri mest nauðsynin á j að koma áburðinum til þeirra. ■ Hjer væri því framið hróplegt ; misrjetti. Til þess að leiðrjetta ! þetta misrjetti, fluttu ]>eir Jón j Sig. og P. Ott. víðtækar brtt. við frv. stjórnarinnar, þar sem þeir ^ bændur, er erfiðasta áttu að- stöðu, fengu mestan styrk, en kaupstáðirnir minst. En „bænda- flokkurinn“ ocj sósíalistar drápu þessar tillögur, en sam]>. frumv. stjórnarinnar og nú er ]>að orðið að lögum! III. Á þessu yfirliti, sem hjer var gefið, m|6 nokkuð sjá* hvert stefnir. — Stuðningur sósíalista átti ekkert að kosta, en hann hef- Diirkopp saumavjelar, hand- snúnar og stignar, fyrirliggjanði. Uepslunin Biöin Kristjánsson ]ón Biörnssnn I Go. barinn. smjðr, ísl. og Egg ný, best í Iferslunin Framnes við Framnesveg . Sími 2266. Gilletteblöð ávalt fyrirliggjandi í heildsölu líilh. Fr. Frimannsson ir þegar orðið æði dýrkeyptur.. Fyrir þeirra tilverknað hafa ver- ið samþykt lög, er heimila ríkis- stjórninni að draga ríkissjóð út í stórkostleg áhættufyrirtæki, — (síldarbræðslustöðvarnar). Ein- hverntíma hefði það þótt merkis- viðburður, að atvinnumálaráð- herra „bændaflokks“ greiðir at- kvæði með því að kasta einni miljón úr ríkissjóði í síldar-- bræðslustöðvar, en á sama tíma telur hann það vera „samvisku- laust ábyrgðarleysi", að fara fram á að veittar verði 300 þús. kr. til samgöngubóta í sveitum; landsins. „En tímarnir breytast og menn- imir með“. Fyrir nokkurum árum hefðu þeir varla orðið margir, sem trúað hefðu því, þótt spáð hefði verið, að á því herr- ans ári 1928 ætti það fyrir full- trúum bænda á Alþingi að liggja, að láta teymast á eyrunum af öfgafullum byltingamönnum úr flokki sósíalista. En hvað átti sjer ekki stað á þingi í vetur? Fyr á tímum var alment álit- ið, að einn öruggasti vörðurinn um sjálfstæðismál þjóðarinnar væru bændur. Þeir myndu aldrei bregðast skyldu sinni í þessum málum. En hvað hefir ekki komið á daginn nú? Eftir að sannað er á flokk só- síalista, að hann er beinlínis gerð- ur út af dönskum stjórnmála- flokki, gerast bændur í Fram- sókn svo aumir, að þeir bindast stjórnmálaböndum við /> e s s a menn! Og þeir hafa gert meira. Þeir hafa selt sósíalistum sjálf- dæmi í öllu er að stjórn landsins- lýtur. Hvað veldur ]>ví, að bændur telja sig nauðbeygða til að láta kúgast þannig?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.