Morgunblaðið - 04.07.1928, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.07.1928, Blaðsíða 2
s MORGUNBLA !>? Ð )) INlamaHi« Ol' Höfum til: Ríó kaffi, sömu góöu teðundina og áður. Kanöís, raitðan. Haframjöl, Hrísgrjón. Best að auglýsa í MorgunbJaðimi, ?Írc$tottc FOOTWEAR COMPANY Gúmmfvinnuskór m«ð hvitum sóla. Gúmmístfgvjei weð egia hviium sðta. Aðalumboðsrnaður á íslandi. Ó. Benjaminsson Pósthússtræti 7 — Reykjavik. Birgðir í Kaupmannahöfn hjá Bernhard K j ro r Gothersgade 49, Möntérgaarden Köbenhavn K. Simnefni: Holmstrom. Fyrirætlanir stjórnarinnar í járnbrautarmálinu. ftCMIMCCCMCCCtCftCCtl •••••••••••••••••••••••• • • :: • • Hreins vörur ii fást alistaðar. • • • • • • • • • • • • • • • • • • Richmond Mixtnra er góð og ódýr. Dósin kostar 1.35. Frost allsftadar. Drengjahúfur enskar. Sportsokkar á bBrn oy fultordna nýkomid. Verslun Torfa G. Pórðarsonar Laugaveg. Gleymið ekki að biðja um rjetta tegnnd af kaffi. Hún er í rauCu pokunum frá Kafflbrenslu Reykiavikur Alþýðublaðið og Heutaskðlinu. Nylunda vildi til þann 24. maí síðastliðinn, að Alþýðublaðið birti grein um takmörkun nemenda- fjöldans, er í öllum aðalatriðUm var hárrjett. !>ar var sýnt fram á, að lokunin kæmi þyngst niður á efnalausu fólki, að takmörkun stúdentafjölda með valdi væri fá- sinna, og þvingunarráðstafanir Jónasar ráðherra hlyti að vekja andnð og óvild. Jónas var ekki heima þegar þessi grein kom út. En í gær kvað við annan tón í Alþýðublaðinu. Þar er byrjuð margorð roila um Mentaskólalok- unina, á að vera Jónasi til varnar, en er mestmegnis út í hött, og þar sem komið er nálægt málefninu er öllu snúið öfngt. Helsta niðurstað'an að lokunin sje gerð þeim til stuðnings, sem efnalitlir eru; þveröfugt við skoð- un blaðsins þann 24. maí. óskap- ast er yfir því, að menn hafi ver- ,iö reknir frá starfi vegna stjórn- málaskoðana! Heyr á endemi! En vegna hvers er sjera Ingi- mar Jónsson, tilvonandi skóla- stjóri hjer í bæ? Vita það allir', að honu"m er ,plantað‘ hjer í nýjan skóla, vegna þess eins, að hann er skoðanabróðir Hriflumanns í stjórnmálum. Sennilega er Alþýðublaðsgreinin eftir Jónas sjálfan. Gaman að vita til þess, að þessi maður skuli eftir moldviðrið 1924 og gauraganginn skrifa nú greinar í blað það sem danskir jafnaðarmenn gefa hjer út. — A leiðarþingi, sem þingmenn Árnesinga hjeldu að Ölfusá fyrir skömmu, spurðust þeir Eiríkur Einarsson bankastjóri og Valdi- mar bóndi Bjarnason í Ölvesholti fyrir um það, hvað stjórnin ætlaði að gera í járnbrautarmálinu. Jör- undur Brynjólfsson svaraði þessu nokkuð drýgindalega; gaf hann í skyn að stjórnin hefði nýtt járn- brautar-„plan“ á prjónunum, og áður en langt liði mundi almenn- ingi gefinn kostur á að fá vitn-' eskju um fyrirætlanir þessar. j Síðan hefir, ekkert heyrst frá stjórninni fyr en á laugardaginn var, að Tíminn birtir grein um járnbrautarmálið, eftir Jónas Jóns son dómsmálaráðherra. — Gefst mönnum þar að sjá þetta nýja járnbrautar-„plan“ stjórnarinnar,1 sem Jörundur mintist á. Er það í fáum orðum þetta: Stofna á járnbrautarfjelag, sem á að ná yfir Rangárvalla- og Ár- nessýslur, Reykjavík og Hafnar- fjörð. Fjelag þetta á að hafa tvenskonar verkefni með höndum. Annars vegar fræðslustarfsemi. Á!; fjelagið að sk-ýra fyrir landsmönn- um þörf og þýðing járnbrautar- innar og eyða hleypidómum og ástæðulausum mótþróa. En aðal- veGtefni fjelags þessa á að vera „að hefja fjársöfmm um land alt, en einkum á Suðurlandi, t-il fram- dráttar járnbrautarlagningunni/ Gerir ráðherrann ráð fyrir að Suð- urland eitt ætti að geta lagt fram l]/>—2 milj. krónur til járnbraut- arinnar. Stofnfundur hins nýja járnbrautarfjelags á að vera næsta haust, en um þaö atriði hvenær hafist verði handa í framkvæmd- um farast ráðherranum orð á þessa leið í niðurlagi greinar sinnar: — „Hversu fljótt sjálf járnbrautin kæmi, færi eftir því, hve mikinn samhug, fórnfýsi og manndóm Sunnlendingar sýndu í verkinu.“ járnbrautarinnar hafa altaf við- urkent nauðsynina á því, að fá örugar samgöngur austur yfir fjall. Mótstað'a þeirra bygðist að- allega á því, að þeir álitu að full- kominn bílvegur yrði ódýrari og lieppilegri en járnbraut. Rannsókn sjerfræðinga hefir liinsvegar leitt að því skýr rök, að járnbraut er rjetta lausn samgöngumálsins aust ur á Suðurlandsundirlendið. Engu skal um það spáð að svo komnu máli hvort bændur austan fjalls geri sig ánægða með þessar framkvæmdir stjórnarinnar í „máli málanna,“ járnbrautarmál- inu. En Jónas dómsmálaráðherra tekur það skýrt fram, að þessi leið' sje eina færa leiðin í jáxn- brautaarmálinu, svo ekki þarf að vænta annara framkvæmda í þessu máli af stjórnarinnar hálfu. Stjórnin hugsar sjer að hrinda járnbrautarmálinu í framkvæmd með frjálsum samskotum. Hætt er við að nokkur bið geti orðið á framlcvæmdum, því almenningur er vart svo efnum búinn, að hann geti þegar x stað lagt fram miljónir fjár í járnbraut. — En samgöngumál Sunnlendinga er þegar orðið svo aðkallandi, að enga bið þolir. Járnbrautarmálið hefir verið á dagskrá í áratugi, og mætti undr- un sæta, ef landsmenn eigi skyldxi betur þýðing þess máls enn þann dag í dag en svo, að nauð'synlegt væri nú og stofna fjelag til þess að fræða menn um nauðsyn máls- ins. Sannleikurinn mun líka sá, að mótstaðan gegn járnbraut austur byggist ekki á því, að menn ekki játi nauðsyn málsins, heldur á hinu, að menn óttast fjárhagsaf- koihu fyrirtækisins. Andstæðingar Margir bjuggust við að járn- brautarmálið væri komið í örugga lxöfn, þegar það var sett í sa.mband við sjerleyfi til fossavirkjunar, svo sem gei’t var á þingi 1927. En nú- verandi atvinnumálaráðherra hefir drepið þessa von manna. Hann hefir neitað að veita umrætt sjer- leyfi og er það mál nú úr sög- unni. Neitun atvinnumálaráðherra hef ir mælst illa fyrir meðal bænda austan fjalls. En til þess að friða bændur lýsti ráðherra.nn því yfir á þingi í vetur, þegar hann skýrði þingheimi frá neitun sinni, „að landsstjórnin teldi sjer skylt að taka til sjerstakrar athugunar hversu bæta megi svo fljótt sem frekast eru tök til, úr hinni rnjög brýnu þörf fullkominna sam- gangna fyrir hjeruðin austan fjalls.“ Nú hefir stjórnin gert sínar „sjerstöku athuganir.“ Og niður- staðan er þessi: Þegar Sunnlend- ingar hafa lagt fram iy2—2 milj. krónur úr eigin vasa til jámbrant- arinnar, og þegar búið er að fræða landsmenn um nauðsyn járn brautar, þá skal ekki lengur standa á stjóminni! Móðir! Gakktu úr skugga um að þú fáir þér Pepsodent á tenns ur barns þíns og tannhold. ER þér ant um að barn þitt fái faliegri tennur nú og betri vörn við tannkvillum siðar á æfinni? Reyndu þá Pepsodent. Gáðu að, hvað helztu tannlæknar hvetja mæður til að nota. Þú flnnur húð á tönnum barns þins. Þá Vofir hættan tiðast yfir. Sömu þrálátu húð- ina og þú verður vör við, ef þú rennir tungunni um tennurnar í þér sjálfri. Við hanaáttu að berjast. Húðin er versti óvinur heilbrigðra tanna. Hún loðir við tennurnar, smýgur i sprungur og festist. Gömlum að- ferðum tókst ekki að vinna á henni. Nú hefur Pepsodent tvö ný efni að geyma, sem eyða henni. Helztu fannlæknar fallast á þetta. Það heldur tönnunum hvít- ari. Það er vísindaráð nútímans til betri varðveizlu tannanna. Reyndu það. Sendu miðann og þú færð ókeypis sýnishom til 10 daga. ÓKEYPIS 10 dtK« túpa. A. H. RIISE, Bredgtde 25E Kaupmannahöfn K. Sendið Pepcodent-sýnishom til 10 d«fa H1 Ntfn........................... Heimill..................... ^^^^eJnM^ftJiftn^fjöjgkjldu^ IC.10. Kæra húsmóðirl Vegna þess að þjer inun- uð þurfa hjálpar við hús- móðurstörfin. þá leyfi jeg mjer að bjóða yður að- stoð mina. Fröken Brasso. Skemtiferðln með Bullfossi. Ferðafjelagið Hekla gengst nú fyrir skemtiferð með Gullfossi eins og í fyrra. Skipið fer hjeðan að kvöldi 11. þessa mánaðar beint til ísafjarðar, og stendur þar við síðari hluta næsta dags. Þar geta farþegaV fengið bifreiðar til að fara inn í skóg, og um kvöldið verður haldinn dansleikur í Bíó- húsinu. Næsta dag eftir hádegi, verður komið til Akureyrar og ef veður er gott verður komið við í Grímsey. Hamlj veður verð- m farið þangað á leiðinni til baka. Á Alaireyri verðúr staðið við fulla tvo daga, og verður far- Jxegum gefinn kostur á að fara í bifreiðum að Saurbæ, og að Möðru völlum í Hörgárdal Einnig verða hestar xitvegaðir þeim, er vilja fara, í Vaglaskóg. Um kvöldið, síð- ari daginn, verður haldinn dans- leikur fyrir farþegana og. bæjar- búa. — Á suðurleið verður komið við á Patreksfirði og Stykkishólmi. Sjerstakur hljóðfæraflokltur verð- uv með skipinu alla leið. Alt skip- ið telst fyrsta farrými og matast allir farþegar þar. A8 þessu sinni verða þessir fararstjórar: Gunnar Halldórsson, Gotfred Bernhöft og Páll Jónsson „Púlli“ (ætli ekki það). — Alla ferðina verður far- þegum sjeð fyrir nýjustu frjett- um tvisvar—þrisvar á dag. Mun Ðrasso ber sem gull af eiri af öðrum fægilegi. i fiarveru minni, mAnaðarliína, gegnir Frlð- rik lœknii* BjB naion Iroknissftttrfum minum. Úl. Porsteinsson. „Siriua“ kakaodufft er holt, nærandi og notadrjúgt. farþegum verða skemt á ýmsan hátt á ferðinni, eftir því sem kostur er, og þurfa menn varla að ltvíða leiðindum. Mikið af far- þegarúmi er þegar pantað. Farseðlar eru afhentir á skrif- stofu „Heklu ‘ hjá Rosenberg, kl. 5—7 í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.