Morgunblaðið - 08.07.1928, Síða 7

Morgunblaðið - 08.07.1928, Síða 7
MORGUNBLAI>IÐ 7 Hestar fást leigðir til iitreið'a á sunnu- ■daginn. — Eftirleiðis fást hestar til útreiða og ferðalaga. Afgreiðsla Fáks vísar á. Sími 176. «ru búnar til hjá : Studebaker *og eru þær bifreiðar, sem best orð fá nú á heimsmárk- aðinum, bæði hvað verð og gæði snertir. Ein slík bifreið til sölu nú þegar. Allar upplýsingar gefur aðalumboðsmaður fyrir Studebaker, Efliil ViUijálmssoii, B. S. R. Sími 21 hsima 2i2r> Vjelareimar. <ai^—------- Bichmond Uistnra er góð og ódýr. Dósin kostar 1.35. F»st alSstaðar. Sv. Jðnssyni & öo. Kirkjustræti 8 b. Sími 420 3iafa fyrirliggjandi miklar birgðir af fallegu og endingargóðu vegg- fóðri, pappír, 0g pappa á þil, loft °g gólf, gipsuðum loftlistum og loftrósum. Relðfaiaeinl Blátf icheuiat °g fleiri ágæt efni ódýrust í Verslun Totfa 8. Hórðorsoiiar Tíminn var nýverið all kampa- kátur yfir því, að frankinn sltyldi vera verðfestur, lijelt auS'sjáanlega að eins stæði á fyrir okkur og Frökkum. Onei, sem betur fer er það ekki svo. Okkar króna fjell aldrei neitt svipað því sem frankinn. Um eitt skeið var svo komið, að menn hjeldu að frankinn færi sömu leið og |)ýsku mörkin ; hann var kom- inn nálægt því að vera verðlaus. Annars þarf Tíminn ekki að láta sjer koma til liugar að Frakk- ar hafi verið að leika sjer að því að stýfa gjaldeyri sinn. Þeir gerðu það' út úr neyð. Þannig lýsti Po- incaré því yfir í þinginu, „að stýf- ing gjaldeyrisins væri enginn sig- ur, livorki fyrir þjóðfjelagið í heild sinni nje nokkurn einstak- ling, heldur væri hún þung og bitur neyðarráðstöfun.“ Ef til vill sækjast Tímamenn eftir því, að svipað ástand verði hjer. En þeir eru þá áreiðanlega einir tim slíkar óskir. Raketln-blllinn úr sögunni fyrst um sinn. Þess hefir verið getið í sím- skeytum, að önnur tilraunaferð Fr. v. Opels með rakettu-bílinn hafij ekki heppnast sem best. Ný- komin erlend blöð skýra nánar frá þessu. Tilraun þessi fór fram skamt utan við Hannover. Hafði v. Opel fengið þar til umráða ca. 7 km, spotta af járnbrautinni, en bíll hans var þannig útbúinn, að hann átti að renna á járnbrautartein- um. Allmargt manna var viðstatt, þegar tiíraunin fór fram. Enginn maður var látinn vera í bílnum, en köttur var liafður þar, til þess að sjá, hvaða áhrif loftþrýsting- urinn liefði á lifandi verur. Bíll- imi átti svo að fara með þeim hraða, sem hægt væri að ná. Þann- ig var útbúnaður á bílnum, að sjerstakar rakettur voru settar í samband við liemlana, en þær áttu ekki að verka fyr en eftir 3 km. akstur. Ahorfendur voru hafðir í ca. 300 metra fjarlægð frá bílnum, þegar hann var settur af stað. Kveikt var á rakettunum með 20 metra langri raftaug. Var nú bíllinn settur á stað, og heyrðist þá ógur- legir brestir og hvellir líkast því sem skotið væri úr mörgum byss- um samtímis, en reykjarmökkur- inn þyrlaðist aftur úr bílnum, er þeystist af stað með geysihraða. En þegar bíllinn var kominn ca. 250 metra, kast.aðist hann út af teinunum með braki og bresti miklum, og fór í þúsund mola. Er því um kent, að of fljótt hafi kviknað á hemla-rakettunum. Áhorfendur flýttu sjer sem mest þeir máttu burt frá þessum ó- sköpum, en ekkert slys varð af, nema hvað kötturinn Ijet þarna lífið í vísindanna þágu. Svo fór um sjóferð þá, «g er rakettu-bíllinn þar með úr sögunni fyrst um sinn að minsta kosti. Reliance heitir þýska skemti- ferðaskipið, sem ltemur hingað í dag. Það er eign Hamborg-Ame- ríkulínunnar og kemur nú frá New York. Dagbók. Veðrið (í gær kl. 5): Djúp lægð skamt suðvestur af Reykjanesi. — Snarpur SA vindur á SV-landi og víðast stinningsgöla á SA, annar- staðar á landmu. Rigning um alt land. — Lægðin fæiúst sennilega NA yfir landið í nótt og á morg- nn. Verður vindátt og veðurlag breytilegt á meðan, en gengur til vestan- og norðanáttar upp úr því. Veðurútlit í dag: Stinningsgola á SV og V. Breytilegt veður. — Rigning öðru hvoru. Sjómannastofan. Guðsþjónusta í dag kl. 6. Allir velkomnir. K. F!, U. M. Almenn samkoma kl. 8þ2- Jóhannes Sigurðsson tal- ar. Allir velkomnir. Hjónaband. Miðvikudaginn þ. 4. þ. m. voru gefin saman í hjóna- band cand. phil. Guðrún Guð- mundsdóttir og cand. med. & chir. Einar Astráðsson. Sjera Þorsteinn Ástráðsson, Staðarlirauni, gaf þau saman. Nýr verkfræðingur. Erlingur sonur O. Ellingsen kaupm. hjer í bænum, hefir nýlega loltið fulln- aðarprófi, með ágætis vitnsburði, við Norges Tekniske Höiskole í Þrándheimi. Fræðigrein hans er aðallega bygging vega, brúa og járnbrauta. Carnegie, skip það', sem getið er um í frjettúm í dag, hefir komið hingað einu sinni áður, seint í ágústmánuði 1914. Kom það þá norðan úr höfum og hafði haft mánaðar útivist. Ekki liafði það loftskeytatæki þá og vissi því ekk- ert um ófriðinn. Brá skipverjum lieldur í brún og ætluðu elcki að trúa því að öll Norðurálfa væri komin í stríð. Carnegie er vand- að sltip og einkennilega smíðað'. Er t. d. sama sem eklrert járn í því. Er eir notaður alls staðar í staðinn fyrir járn, til þess að forð- ast segulskekltjur. Enskur togari kom til Hafnar- fjarðar síðdegis í fyrradag og hafði annan enslcan í eftirdragi. heitir sá Tamoi'a frá Hull og er á vegum Hellyer Bros. Hafði varpan flækst í skrúfunni hjá honum og varð að fá kafara frá Hamri til þess að losa skrúfuna við vörpu- druslurnar. Tókst það greiðlega og komst togarinn út aftur um kvöldið. Dráttarbátur liafnarinnar, sem keyptur var í Hamhorg, kom hing- að í fyrrinótt. Hann hefir verið skírður ,Magni.‘ Tímarit Verkfræðingafjelags Is- lands, 1. hefti 13. árg.( er nýkomið. Hefst það með eftirmælnm eftir Jóhannes Kjartansson verltfræðing og danska verkfræðinginn Karl Thalbitzer.Fylgir góð mynd hvorri grein. Þá er grein um gerilsneyð- ing mjólkur með rafmagni. Um hagnýting síldar og fiskúrgangs (J. Þ.) Vatnsafl notað á íslandi 1927 ('S. J.) o. fl. Skota-kappleikarnir. Því miður voru myndir af skosku knatt- s pyrnumönnunum ólcomnar í gær, en á þriðjudaginn mun Morgunbl. birta nöfn Skotanna og myndir af þeim öllum. Aðgöngumið'ar að lcappleikunum verða. seldir á göt- unum á morgun. Til þess að forð- ast þrengsli við innganginn, er fólk vinsamlega beðið að kaupa aðgöngumiðana af söludrengjun- um. Aðgöngumiðar fyrir alla kapp 1 eikana fást í Leðurverslun Jóns Brynjólfssonar allan daginn á morgun og kosta 6 kr. Biskupsvígsla, í dag verður Hálfdan prófastur Guðjónsson vígðui' vígslúbiskup að Hólum í stað Geirs heit. Sæmundssonar. Skemtunin á Álafossi verður í dag, ef veður levfir. En verði vont veður verður skemtuninni frestað, og vei’ða allar bifreiðastöðvarnar Jijer látnar vita fyrir kl. 1, hvort sfcemtunin verður haldin eða ekki. Sclbaðsskýli er mi verið að reisa lijá Sundskálánum í Örfir- isey. 35 laxar voru komnir á land kl. 3 í gæf úr Elliðaánum. Er það langbesti dagurinn, sem komið liefir á árinu. Til Strandarkirkju frá Önefnd- um 2 kr. V. S. 10 kr. K. Ó. 10 kr. J. S. 5 kr. 7-(-7 20 kr. Gamalt áheit 3 kr. Nonna 10 kr. N. N. 5 kr. Gamalli Itonu 1 kr. Nonna 10 kr. Gamalt áheit frá ónefndum 3 kr. Hafnfirðingi 2 kr. Helgu 5 ltr. N. N. 5 kr. Vogaslysið. Frá Binnu 4 kr. Magnús Kristjánsson fjármála- ráðherra varð fyrir því slysi á sunnudaginn var, að hjólreiðamað- ur skelti honum í Austurstræti. Kom hanu niður á andlitið. Ljet hann svo í fyrstu, sem hanu hefði eigi meiðst að ráði, og leitaði ekki læknis. En andlitið bólgnaði og' felrk hann hita síðari hluta vik- unnar. Er Ieitað var læknis, kom það upp úr kafinu að' Magnús hafði kjálkabrotnað. Hann lá rúm- fastur í gær og var talsvert illa- haldinn. Súlan flaug 6 fyrstu daga mán- aðarins 4000 kílómetra. í Þýska- landi fljúga farþegavjelar 10.000 km. á mánuði að' jafnaði. Þykir þetta, því gott áframhald. Þessa 6 daga fór Súlan frá Rvík og norð- ur fyrir Snæfellsnes og til baka, fyrsta daginn. Næst norður á Hólmavík og til baka. Þriðja dag- inn til Stykkishólms, fsafjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar og til balia hingað. Fjórða daginn aftur norður á Akureyri um Siglufjörð og til baka. Fimta daginn til Seyð isfjarðar með allmörgnm viðkomu- stöðum, og í fyrradag að austan hingað. í gær hjelt Súlan kyrru fyrir. í Austurhlíð hjer við Reykjavík var 3. þ. m. hirt taða fyrsta slátt- ar af 28 dagsláttum. Fengust 328 hestar. Mest af túninu eru sáð- sljettur, er eigandinn Carl Olsen kaupm. hefir látið gera síðustu 7 árin. Er hann keypti Austurhlíð fyrir 8 árum fengust þar 40 hestar. En undanfarin tvö ár hafa fengist þar um 560 hestar í fyrsta og öðr- um slætti. Ráðsmaður þar er Guð- mundur Ólafsson. Þrjú skip koma hingað frá út- löndum í dag, Gullfoss og Botnia fyrri partinn og Island kl. 4—5. Frú Brock-Nielsen kemur hing- að með íslandi í dag. Nokkrir að- göngumiðar að skemtun hennar á þriðjudaginn eru enn óseldir. Bát vantar. Kl. 10% á föstu- dagsmorgun reri til fiskjar hjeðan úr bænum róðrarbáturinn „Haf- renningur“, eign Gísla Kristjáns- sonar, bátasmiðs. Voru þrír eða fjórir menn á bátnum, formaður- inn Guðlaugur Jónsson, Laugaveg 46 c, Jón Mýrdal, Hverfisgötu 80, en ðkunnugt nm nöfn hinna. Það vita menn um ,,Hafrenning“, að' hann var kominn vestur í svo- kallaðar „Rennur“. Annar fiski- bátur lijeðan sá Hafrenning kl. 9,20 á föstudagskvöld, en síðan vita menn ekkert um hann. Þriðji fiskibáturinn hjeðan var á sömu slóðum til kl. 2 á laugardagsnótt, og sá hann þá ekkert til „Haf- rennings“. — Þar sem „Hafrenn- ingur“ var ekki kominn að í gær- morgun, óttuðust menn að eitthvað hefði orðið að, og var hið nýja skip hafnarinnar, „Magni“, feng- inn til þess að leita. Hann fór víða, en sá ekkert til bátsins. — „Hafíenningur" hafði smámótor, en auk þess var hann með' segl, og árar og drifakkeri. smábátamótorar ávalt fyrirliggjanði hér á staðnum. C. Proppé. N ýtt Sauðakjftt, Nautakjftt, Lax. Matarbúð Slátnrijelagsias Laugaveg 42. Sími 812. Hreins vðrur fást ailstaðar. • • • é • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • ••••••••••••••••••••••••• •••••••••••••••••£••••••• M álaflutningsskrifstola lögfræöings Hafnarstræti 16. Víðtalstlmi 11—12 og 2-4 c. arJ Heima ... 853 Simar. | Skrifstofan 1033 Gleymið ekki að biðja um rjetta tegund af kaffi. Hún er í rauðu poknnnm frá Hafflbrenslu Reykiavfkur Ol

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.