Morgunblaðið - 24.07.1928, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.07.1928, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ Y MORGUNBLAÐIÐ Stofnandl: Vllh. Finaen. Ctcefandl: Fjelag 1 Reykjaylk. Rltatjörar: J6n Kjartanaeon. Valtýr Stefánaaon. ■á-Hflýeing-astjöri: B. Hafberg. Skrifatofa Austurstrœti 8. Slatl r. 500. AuKlýglngaskrlfstofa nr. 700. Helmaslmar: Jön Kjartansson nr. 74i. Valtýr Stefánsson nr. liIO. B. Hafberg nr. 770. Askriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á saánuOl. Utaniands kr. 2.50 - ---- I lausasölu 10 aura elntaklS. - Erlendar símfrEgnir. Khöfn, FB 22. júlí. Kínverjar og Japanar. Frá Peking er símað: Kínverska l>jóðernissinnastjórnin hefir sagt cpp verslunarsamningum Kína við -Japan. Japanar í Kína eru því framvegis háðir dómstólum og skattaiöggjöf Kínverja. Búast Jnenn við, að' Japanar sætti sig •ekki við uppsögn verslunarsamn- inganna eins og sakir standa og -mótmæli henni. Ný uppfynding. Frá Berlín er símað: Prófessor -Bergius, sem fann upp aðferðina fil þess að vinna olíu úr kolum, ■kveðst hafa fundið upp aðferð til þess að vinn$ mannafæðu úr trje. £>egir hann það mögulegt, að kreyta cellulósunni á kemiskan liátt í meltanleg kolahýdröt. Br húist við því, ef uppfyndingin ■reynist vel, að hún verði þýðing- >armikið fyrir skógauðug lönd. i Merk leikkona látin. -Frá London er símað': Leikkon- an Ellen Terry er látin. (Ellen Alice Terry var f. 1848. "Var hún einkanlega fræg fyrir aneðferð sína á ýmsum hlutverk- 'tim* úr leikritum Shakespeares, -Júlíu, Ofelíu o. fl.) Khöfn, FB. 23. júlí. Allir samþykkja tillögu Kelloggs. Frá New York er símað: Öll fjórtán ríkin, sem Kellogg utan- líkismálaráðherra Bandaríkjanna -hafði boðið að undirskrifa ófrið- urhanns-samninginn hafa lofað að skrifa undir hann. Stórkostlegt verkfall. Erá París er símað: Sjötíu þús- nndir kolanámumanna hafa gert verkfall í Saardalnum. Eigi er getið um ástæður til verkfallsins í skeytunum úr námuhjeraðinu enn sem komið er. Frá norðurhöfum. Frá Kingsbay er símað: Sænski hjálparleiðangurinn er farinn heim Krassin fer til Gautahorgar til viðgerðar. -*1rá Berlín er símað: Blaðið Allgemeine Zeitung skýrir frá því •®ð ítalir hafi pantað tvær flug- vjelar hjá þýskri flugvjelaverk- smiðjti. Flugvjelar þessar a að ‘nota i ieitinni að löftskipsflolrkn- um. Kjartan Ólafsson læknir er ný- Jega fannn lijeðan úr bænum augnlækningaferðalag ut um land. Ætlar hann að taka á móti sjúk- lingum á ísafirði, Patreksfirði, Búðardal og Stykkishólmi það sem eftir er mánaðarins og fram til 14. ágúst. Sbr. auglýsingu í Morgun- iblaðinu á laugardaginn var. Frjettir. Siglufirði, FB. 23. júlí. Síldarveiðin. Ágæt veðrátta undanfarna daga. Síldarafli góður. Alls er húið að setja á land í hræðslu ca. 30,000 mál síldar. Síldin veiðist mest á Skagafirði og Húnaflóa. Strönd. M/b Rap úr Vestmannaeyjum strandaði á Skallarifi. Mannbjörg. Skipið er fult af sjó. Litlar líkur til þess að hægt verði að ná því út M/b Mar's úr Vestmannaeyjum ‘strandaði á Siglunesrifi. E/s Óð- inn kom þar til hjálpar og náði skipinu lítið skemdu. Borgarnesi, FB. 23. júlí. Túnasláttur mun allvíða langt kominn. Heyþurkun gengur allvel, Vegurinn í Norðurárdal er kom inn hjer um bil að Sanddalsá milli Hvamms og Sveinatungu. Viðgerð fer fram á veginum á Holtavörðuheiði. Bifreiðar fara nú iðulega til Blönduóss. Bráðlega verður hægt að fara úr Borgarnesi til Stykkishólms í bifreiðum. Er nú verið að ryðja veginn frá Hjarðarfelli í Mikla- holtshreppi og vestur yfir fjallið, svo hægt verði að komast yfir það. Akbrautin er komin vestur undir Hjarðarfell. Eldsfoði á Abnreyri Mánudag FB. Eldur kviknaði í dag í Hotel Goðafoss, sennilegast frá múrpípu. Tókst að slökkva eldiun áður en húsið brann alveg. Verður vörður haldinn við húsið í nótt, ef ske kynni að eldurinn blossaði upp aftur. Hótel Goðafoss stendur í Torfu- nefsbótinni í einu þjettbygðasta timburhúsahverfi bæjarins Er við- búið að mikil hætta hafi verið á því að eldurinn dreifðist í næstu hús, og hefði húsahverfið þar í Bótinni þá alt verið í hættu. ---•—</#>>—------- m Horðmasinaförinni. Samkoma var haldin í Nýja Bíó á sunnudaginn fyrir norsku. ferðamennina. Var hvert sæti skipað' í húsinu á tilsettum tíma, kl. 3, nema nokkrir bekkir er ætl- aðir voru ferðafólkinu. Það var í kirkju um þessar mundir, og víðs- vegar um bæinn og tókst ekki að ná því saman fyrri en kl. rúm- lega 3y2. Fyrst talaði Helgi Valtýsson-um förina, og um sambúð Norðmanna og íslendinga. Þá talaði Benedikt Sveinsson. Skýrði hann frá förinni sem af er, einkum komunni til Hjaltlands. Því næst söng karlakór K. F. II. M. nokkurlög. Var sönguum mæta vel tekið. Þá ljek Norðmaðurinn Per Berge nokkur norsk danslög á” Harðangursfiðlu. pví næst tóku komumenn til máls. Prófessor Hannaas talaði m. a. um framfarir þær og breytingu sem hjer hefði orðið síðan hann kom hjer fyrst fyrir 24. árum; og Lars Eskeland fyrv. skólastjóri hjelt ræðu er snerist að miklu leyti um sjálfsbjörg þjóða, fram- för og hnignun hins hvíta kyn- þáttar. Massige dýralæknir flutti íslendingum kveðju frá Sognbúiun og Djuurhus Færeyja-skáld hjelt að lokum snjalla ræðu á færeysku. Samkoman stóð yfir í þrjá tíma. Klukkan 9 um kvöldið var glímusýning á Austurvelli. Sýndu þar 8 menn Norðmönnum hina ís- lensku glímu, sjerstaldega brögð og vörn. Var gerður að glímunni ágætur rómur og á eftir sýndi ferðafólkið norska dansa, og þótti það nýstárlegt hjer og höfðu menn gaman af að horfa þar á. Árla í gærmorgun fór norska fólkið hjeðan í bifreiðum austur yfir fjall og alla leið að Hlíðar- enda. En á miðnætti lagði Mira af stað' hjeðan til Norðurlandsins. Dagbók. Veðrið kl. 5 í gær). Lægðin suð- vestur af Reykjanesi hreyfist hægt NA og fer heldur minkandi. SA stinningsgola og lítilsháttar rign- ing á Sv. og V.-landi en þurt í öðrum landslilutum. Hlýast 20 stig á ísaf. en 12—16 stig annarsstaðar Veðurútlit í dag: S og SV-gola. Breytilegt veður, — skúraleiðing- ar og bjart á milli. Ásgrímur Jónsson málari er ný- kominn til bæjarins; hefir hann dvalið austur í Þjórsárdal og ver- ið að mála þar. Geysir á Reykjanesi hætti að gjósa á laugardaginn. Hafði liann gosið áðnr reglulega en nú hætti hann alveg. Þorkell Þorkelsson veðurfræðingur var þar suður frá til að skoða hverinn. Ljet hann sápu í hann, en þá br'á svo við, að hann hætti að gjósa. Ölafur Sveins son vitavörðúr á Reykjanesi segir að eftir því, sem hann hafi tekið eftir hafi hverirnir þarna suður frá hætt að gjósa jafnan á undan jarðskjálftum, og býst hann við að gos og jarðumbrot muni vera í nánd. I sumar hafa engir jarð- skjálftar komið á Reykjanesi þangað til í fyrradag. Þá komu tveir kippir, snöggir nokkuð. Bifreiðarferð að Reykjanesi. í gær fór bifreið í fyrsta skifti alla leið frá Reykjavík og heim í hlað á Reykjanesi. Var það „Essex“- bifreið' og var Ingólfur Einarsson bifreiðarstjóri. Voru þeir fjórir saman í bifreiðinni og fór bifreið- in svo Ijett yfir, að þeir þurftu aldrei að ganga af henni. En bif- reiðastjórúm, sem kynnu að fara þangað suður eftir í sumar er ráðlagt að hafa keðjitr á hjólun- nm, því að víða er sandur þar sem hjólin geta snúist í án þess að vinna áfram. Margir g’estir voru að Reykja- nesi á sunnudaginn — líklega um 40. Komu þeir bæði frá Grindavík og Höfnum. Skenitiferð drengja. Á sunnu- daginn gekst K. F. U. M. fyrir skemtiför drengja, og voru milli 20 og 30 í förinni. Var ekið í bif- reiðum ;suður að Kaldárseli. Þar skiftist hópurinn. Fóru nokkrir að Hvaleyrarvatni og fengu sjer þar bað. Hinir gengu á Helgafell og fengu þaðan dásamlegt útsýni. Segja þeir, sem voru í þeirri för að þeir gleyini því aldrei svo lengi sem þeir lifi hve fagurt var um að litast á Helgafelli — sólskin um alt, og heiðríkja svo langt sem augað eygði. M/s. Dr. Alexandrine fer í kvöld kl. 6 til Norðurlandsins með fjölda farþega. Meðal þeirra eru: Soffía Thoroddsen, Björn Björnsson bak- aram. og frú, Ölafur A. Guðmunds 9 Krvöövörur: Colman’s mustaröur. Maggi kjötkrafturí teningum ogáflöskum. Pipar. Kanill. Kryddblendingur. Borösalt. Stofi-haraoniuB sjerlega falleg (alveg ný að ytri gerð) fæ jeg með næstu skipum. Hljóðfæri þessi eru frá ágætu firma. Innra verk: 1—10% raddir, 4%—6 áttundir, 9—39 stilli. Efniviður: Eik, valhnotuviður eða mahogni. Harmonium af þessari gerð verða áreiðanlega vinsæl hjer á landi. Elias Bjarnason, Sólvallapgðtu 5 Rvik. HF. EIMSKIPAFJELAG ÍSLANDS „Selioss11 fer hjeöan í dag kl. 6 síödegis vestur og noröur um land til Hamborgar og Hull a heimleiö. Egg glæný á 15 aiara. Uersl. foss Laugaveg 25. Simi 2031. Til miðs ágústs gegna læknarnir Halldór Hansen og Ól. Jónsson læknisstörfum fyrír mig. Matth. Einarsson. son kaupm., sjera Páll Signrðsson, Jórunn Norðmann, Bjarni Bene- diktsson, Finnhogi R Valdimas- son, Gísli Guð'nmndsson gerlafr. og frú, Ásgeir Þorsteinsson verkfr., Magnús Thorberg útgerðarm., Davíð Thorsteinsson og frú, Jón Þorðarson, Sigurður Jónsson og frú, Sigríður Björnsdóttir, Mar- grjet Pálsdóttir, Anna Pálsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Maja Ölafs- son 0. fl. Að Grjóteyri í Kjós fór Árni læknir Pjetursson í bifreið síðastl. sunnndag, og er það í fyrsta skift- ið, sem bifreið hefir þangað komið'. Vegalengdin er um 55 rastir frá Reykjavík. Jón bóudi Magnússon tók einkarvel á móti Árna og lians fríða föruneyti. 0.8. Botnia fer miövikudaginn 25. júlí kl. 8 síðd. til Leith (um Vestmannaeyjar og Thorshavn). Farþegar sæki far- seöla í dag eða fyrir hádegi á morgun. Tilkynningar um vörur komi í dag eöa fyrirhádegi ámorgun- M.s. Dpcnning Alexandnne fer í kvöld kl. 6. G. Zimsen. Hid marg eftirspurða frakkaeini (í peysufatafrakka). nýkomið, dKkkblátt og mislitt. Saumastofan Þinghpltsstræti 1. íslenskir Tomatar á kr. 1.75 pr. */a kg. f i st daglega. Matarverslun Tómasar Jónssonan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.