Morgunblaðið - 08.09.1928, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.09.1928, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 MORGUNBLAÐIÐ Stofnandi: Vilh. Finsen. tJtgefandi: Fjelag 1 Reykjavlk. Ritstjörar: Jón Kjartansson. Valtýr Stefánsson. Auglýsingastjöri: E. Hafberg. Skrifstofa Austurstrœti 8. Siml nr. 500. Auglýsingaskrifstofa nr. 700. Heimasimar: Jön KJartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. E. Hafberg nr. 776. Askriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBl. Utanlands kr. 2.50 - — I lausasölu 10 aura eintakiB. Erlendar símfrEgnir. Khöfn, FB. 7. sept. Frá þingi Þjóðbandalag-sráðsins. Frá Genf er símað: Almennar nmræður um starfsemi Þjóðbanda- lagsins standa nú yfir á þingi bandalagsins. Svíinn Unden og Hollendingurinn Blokland ljetu í ljós gremju yfir kyrstöðu þeirri; sem ríkir í afvopnunarstarfsem ; inni Töldu þeir fulla nauðsyn á, að hafist væri handa svo einhver árangur sæist bráðlega. Álitu þeir nauðsynlegt að gera alþjóðagerð- ardómssamning. Drepsótt í Grikklandi. Frá Berlín er símað: Dengu-far söttin breiðist út til flestra borga d Grikklandi. Binnig til Rúmeníu og Búlgaríu. Þrjú hundruð þúsund veikir í Grikklandi, en eitt þúsund manns hefir dáið síðasta mánuðinri þar í landi. Fjárhagstjón af far sóttinni ætla menn að' nemi einum miljarð drakma. Venizelos er hættulega veikur af farsótt þess- ari. Þjóðbandalagið hefir sent til 'Grikklands sjerfræðing í hitabelt- isfarsóttum. Vatnsflóð í Indlandi. Frá Karachi er símað: Djelam- fljótið flæðir yfir stór lándsvæði í Norður-Indlandi. Bærinn Strina- gar umluktur af vatni. Opinber- lega tilkynt, að sjötíu og fimm menn hafi farist. (Borgin Stinagar er höfuðstað Tirinn í ríkinu Kashmir, íbxiatala 141,700 íbúar. Borgin stendur við IDjelamfljótið). Khöfn, FB 7. sept. Mowinckel deiíir á stórveldin. Frá Genf er símað: Mowineke l fajelt ræðu í þingi Þjóðabandalags ins í gær og krafðist bráðlegra framkvæmda í afvopnunarmálinu Kvað hann afvopnunarloforðin Versalafriðarsamningunum hafa vakið miklar vonir, en þrátt fyrir þau verji stórveldin æ meira fj til undirbúnings hernaði, stöðugt ■sje starfað að uppfundning óg .urlegra hernaðartækja, eiturgas itegunda og lofthernaðartækja. Rússar skrifa undir sáttmála Keloggs. Frá París er símað: Rússland hefir skrifað undir ófriðarbanns- sáttmála Kelloggs. Loftfarið mikla. Frá Berlín er símað: Reynslu flug „Zeppelin greifa“ hefir dr’egist vegna þess, að staðið hef ír á framleiðslu gass þess, er nota á. Nú hefir verið ákveðið, að' reynsluflugin byrji um miðbik þessa mánaðar. En til Ameríku €> ráðgert að loft.skipið fari fyrr hluta októbermánaðar. Stjóraarskifti í Búlgaríu. Frá Sofia er símað: Liaptschew- stjórnin hefir beiðst lausnar, vegna jess að þrír ráðherranna hótuðu að segja af sjer út af því að Liaptschew synjaði að verða við kröfu Burovs utanríkisráðherra um að Varlkov hermálar'áðherra færi frá völdum. Burov áleit auð- veldara að fullnægja bresk-frakk- nesku kröfunni um að hindra bylt- ingastarf Makedoniumanna í jú- goslafnesku Makedoniu, ef Varl- kov bæðist lausnar. Kína sátt- ætlar að undirskrifa' mála Kelloggs. Frá Nanking er símað: Kín- verska þjóðernissinnastjórnin hef- ir ákveðið að skrifa undir ófrið- arbannssamninginn. Landið horfna. Tryggvi Þórhallsson núverandi forsætisráðherra skrifar stundum blað sitt Tímann imdir dulnefn- ínu „Styrbjörn“. í grein eftir hann í síðasta tbl. með því.merki víkur hann að því, að einkenni sje iað ungra manna að fylgja sann færingu sinni. Gefur hann það í skyn, að eigi sje það fátítt, að menn víkji af þeirri braut með aldrinum. Þá litið er á hinn fremur stutta og lítt glæsilega stjórnmálaferil Tryggva Þórhallssonar er auðsjeð, að hann má í þessu efni djarft úr flokki tala. A imglingsárunum var Tryggvi Þórhallsson maður áhugasamur um framfaramál þjóðarinnar. Þá horfði hann yfir fögur framtíðar- lönd, og hafði að því er virtist vilja og nokkurn dug til þess að vinna að frelsi og frama þjóðar sinnar. Þegar litið er á núverandi stöðu hans í íslenskum st.jórnmálum, blandast engum hugur um, að hann á auðvelt með að greina mun á vilja og veruleika, fyrirætlunum og framkvæmdum, þrótt og þrek- leysi, efndum og svikum. í öllum þessum efnum hefir maðurinn öðl- ast persónulega reynslu. I upphafi vildi Tr. Þ. gera bændastjett landsins gagn. Eu hann hefir ratað í það' ólán, að gerast viljalaust verkfæri þeirra manna, er spyrða bændur landsins í pólitískt samband við jafnaðar- menn og bolsa. Hann vildi auka og efla ræktun landsins; en hefir nú um undan- farin ár blátt áfram unnið að eyð- ing sveitanna.. Ár eftir ár hefir hann látið hafa sig til þess, að prjedika barlóm fyrir bændum og með því dregið úr þeim fram- kvæmdakjark. f öðru orðinu hefir hann haldið því fram, að landbúnaðurinn skyldi og yrði að vera undirstað'a þjóðlífs vors- og efnalegs sjálfstæð- is. En jafnframt hefir hann látið veðri vaka, að búskapur sveitanna gæti ails ekki staðist, nema hann fengi mikinn styrk frá öðrum. En hinn uppvaxandi æskulýður sveitanna skilur, að atvinnuvegur sá, sem lifa verður á velvilja ann ara og styrktarfje, stendur völtum fótum. Mar'gir æskumann- anna trúa barlóm Tíma-Tryggva og flýja á molina. Og Tr. Þ. hefir farið lengra Fjárhag bænda hefir hann þóst vilja bæta. En á síðasta þingi sýndi hann atvinnurekstrarlánun- um fullan fjandskap. Jafnframt sýndi hann rjetta mynd ræktunar- áhugans, er hann styrkti áburðar- kaup kaupstaðabúa, og ljet sveit- irnar sitja á hakanum. Sam göngubótum hefir þessi mað ur Jþóst unna. En er liann fjekk yfirstjórn samgöngumála, urðli andstæðingar hans að þvinga hann til að halda vegabótum áfram í sama horfi og fyrirrennarar hans gerðu. Ótaldir eru dálkar Tímans, er þessi maður hefir fylt með sparn- aðartali. Þar talaði hann af eld- móði. En hvernig reyndist alvaran ? Hann er ekki fyr sestur í ráðherra stól, en hann lætur flokksmenn sína hlaða á sig uppbótum og við- bótum, jafnframt því sem hann heldur í hvern þann bitling er hann áður hafði klófest. Situr nú sparnaðarpostulinn með hátt upp í þrenn almenn ráðherralaun, eða nál. 100 krónu dagkaup. Jafnframt hefir bændavináttan og búskaparumhyggjan snúist upp í innilegt jafnaðarmanna dekur, bitlingahrúgald handa þessum yf- ir- og umsjónarmönnum „bænda' stjórnarinnar. Hinn ungi Tryggvi Þórhallsson þóttist unna frelsi þjóðarinnar og sjálfstæði. En nú situr hann að völdum, sem handbendi og vika- drengur þeirra Íslendinga, er tekið hafa sjer Gissur Þorvaldsson til fyrirmyndar. Jafnaðarmennirnir, liinir nyju vildarvinir 'Tryggva Þórhallssonar, mennirnir sem stjórna honum eru erindrekar erlendra manna, er seil- ast hjer til áhrifa. Tr. Þ. er þeirra verkfæri. Þau urðu örlög sjálf- stæðishetjunnar!! Óefað mun Tr. Þ. hafa ætlað sjer að verða skörulegur stjórn- andi, röggsamur og einbeittur, En hánn reyndist stefnulaus hringl andi, voðfeld dula í höndum jafn- aðarmanna Jónasar frá Hriflu. Og enginn getur efast um, að Tr. Þ. hafi á unga aldri viljað vera sannur maður, og hann hafi haft hug á að víkja hvergi frá braut sannleikans, En í því efni hefir honum fat- ast svo herfilega sem þjóðkunnugt er. Og jafnvel þó hann sitji í æðsta embætti landsins, vílar hann nú ekki fyrir sjer' að nota vísvitandi ósannindi að vopni, eins og fram kom í máli þeirra Ólafs Thors og hans. einasta svar, hið aumasta svar fyr- ir hann: Hann hefir gleymt öllum hugsjónum sínum, saltað þær — fyrir 100 krónur á dag. Kouau, sem flýði í Hafuarfjðrð. Haxaldur Guðmundsson á flótta. En fyrst hann á annað borð rifj- ar upp mismuninn á hugsjóna- manninum hjartahreina og óspilta — og hinum, sem svíkur sig og aðr'a, þá er von menn spyrji: Því situr þessi maður, þessi for- sætisráðherra í ósanninda o svikakös sinni? Því stendur hann ekki úr sæti sínu, og gerist nýr maður, þjóðrækinn, sparsamur einbeittur bændavinur? Því lætur hann aðra draga sig á hárinu út í ósannindi, bitlingaþvarg, jafnaðar- manna dekur, óhófseyðslu o. fl. o. fl. ? Því situr hann að völdum, þó hann viti að stuðningsmenn hans reka erindi útlendra manna er seilast hjer til áhrifa, þó fram- tíðarland hans sem áður var sje sokkið í sæ stjórnmálaspillingar? Áhorfendur finna aðeins eitt Fyrir nokkrum dögum gaus upp úlfaþytur mikill í Alþýðublaðinu út af því, að fátækrafulltrúi hjeð- an hefði ætlað að sækja konu eina suður í Hafnarfjörð er átti að flytja sveitarflutningi austur í Fljótsdalshjerað. Þessu umtali Alþýðublaðsins var ofurlítill gaumur . gefiijn vegna þess hve augljóst það var, að umí talið var ekki sprottið' af um- hyggju fyrir þessari vesalings konu, sem í hlut, átti, ellegar' þeim sem lifa í líkum kringumstæðum, heldur til þess eins að þyrla upp persónulegum ónotum í pólitíska andstæðinga. Ekki datt Alþýðublaðinu t. d. í hug að rjetta fátækling þessum hjálparhönd, þó að það reyndi að nota sjer neyð hennar í pólitiskum tilgangi. Á síðasta bæjarstjórnarfundi lióf Haraldur Guðmundsson máls á þessu enn. Talaði hann um harð- ýðgi borgarstjóra gagnvart þurfa- lingum, að hann hefði hjer gengið’ feti framar en lög leyfa o. s. frv. Fletti hann upp grein í fátækra- lögunum um það, að þurfalinga- skyldi eigi flytja, þó framfærslu- sveit krefðist þess, ef læknisvott- orð sýndi, að flutningurinn gæti orðið þeim að meini. Spurði hann síðan borgarstjóra hvort hann hefði vitað, að kona þessi, Jónína Guðný Jónasdóttir hefði haft læknisvottorð.. Gerði borgarst.jóri síðan ná- lcvæma grein fyrir því hvernig í máli þessu liggur. Konu þessa átti að flytja aust- ur á Fljótsdalshjerað síðastliðið vor. En er til kom fekk hiin að vera upp á þær spýtur að hún færi sjálfviljug er kæmi fram á sumar. En er að því kom, þá lagði hún fram læknisvottorð er skýrði frá, að það gæti verið varhugavert að f'lytja hana á framfærslusveit hennar. Vegna vottorðs þessa var flutn- ingi frestað og tilkynt framfærslu sveit málavextir. Sveitarstjórnin eystra heimtaði konuna flutta, þrátt fyrir læknisvottorðið sem var óákveðið. Þá er konunni tilkynt að hún eigi að fara austur eftir nokkra daga. En í stað þess að koma til eru komnar upp Verslun Egill lacobsen. biíar fyriríiggjandi og bátamótorar. Verðið óbreytt. P. Stef Ansson, umboðsm, Ford Motor Co. Til Dingvalla fastar ferðir. Til Eyrarbakka fastar ferðir alla ínið'vikudaga. Austur í Fljótshlíð. alla daga kl. 10 f. h. Bifreiðastöð Reykiavfkur. Afgreiðslusímar: 715 og 716. nje lögbrot, hafði Har. Guðm. lít- ið um málið að segja. En horgarstjóri gat þess að end- ingu, að Haraldur myndi í blaði sínu sennilega endurtaka ummæii þau er hann hafði um daginn um ótilhlýðilega framkomu fátækra- fulltrúa og bæjarstjórnar í þessu máli. Hann gæti staglað á því, þó hann sæi áð ummæli hans væru engum rökum bygð. viðtals á borgarstjóraskrifstofuna fer hún suður í Hafnarfjörð. Ef liún hefði haft gögn í höndum t d nýtt og ákveðið læknisvottorð um að hún þyldi ekki flutninginn, þá hefði málið' verið útkljáð. En í stað þess tekur hún sig upp og fer í aðra framfærslusveit. ■ Mint.ist borgarstjóri lítillega á framkomu lögreglunnar í Hafnar- firði í þessu máli, en vildi ekki fara langt út í þá sálma. Sagði aðeins að Hafnfirðingar hefðu t.ekið konu þessa að sjer, og kæmi liún bæjar- stjórn Rvíkur því ekki við lengur. Eftir þessa frásögu borgarstjóra er hvorki bar vott um harðýðgi BeqqíQ. Sterlingspund .. .. .. .. 22.15 Danskar kr .... 121,80 Norskar kr .... 121,86 Sænskar kr .... 122,26 Dollar .. .. 4,56i/2 Frankar .... 17,97 Gyllini .. .. 183,87 Mörk .... 108,89 Dagbðk. Veðrið (í gær kl. 5): Lægðin, sem var um 1000 kílómetra SSV af Reykjanesi á fimtudagskvöldið var skamt suður af Vestmannaeyj- um í morgun, en hefir síðan færst hægt norðvestur eftir og er nú rjett út af Reykjanestá. 1 morgun var A-rok í Vestmannaeyjum, en hefir rignt í dag og er nii SA- stinningskaldi. Á NA-landi er SA hvassviðri og jafnvel stormur á Vopnafirði. Á Vestfjörðum og Norðurlandi er vindur yfirleitt hægur, en sennilega er allhvast til hafsins. Lægðin færist að lík- indum norðaustur vfir landið í nótt og á morgun og fer jafnframt minkandi. Veðurútlit í dag: Breytileg átt og síðan vaxandi NV. Skúrir. Samsæti var þýsku flugmönn- unum, Walter flugstjóra, og þeim fjelögum haldið í Hótel ísland í gærkvöldi í tilefni af því, að starfi þeirra er nú lokið hjer að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.