Morgunblaðið - 09.01.1929, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vllh. Fiasen.
tTtgefandi: Fjelag I Reykjavik._
Ritstjörar: Jön Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Slml nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasímar:
Jön Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Xnnanlands kr. 2.00 á mánutil.
Utanlands kr. 2.50 - — —
I lausasölu 10 aura eintakitS.
irlendar sfmfregnir.
Khöfn FB 8. jan.
Einræðisstjórnin í Júgóslavíu.
Frá Berlín er símað: Yfirvöldin
á Júgóslafíu hafa lokað þinghús-
inu og bannað öllum aðgang að
J>ví, einnig þeim, er sæti áttu á
þingi því, er nú hefir verið rofið.
Samkomufrelsi hefir verið tak-
markað, vof)naburður bannaður og
ströngu skeytaeftirliti ltomið á.
Það er þess vegna erfitt að gera
sjer gprein fyrir hvemig ástandið
•er í Júgóslavíu sem stendur. Sam-
kvæmt opinberunx skeytum virðist
stjórnlagarofið og stofnun ein-
ræðisvalds konungsins 'hvergi hafa
vakið óeirðir í landinu; eftir
skeytum að dæma hefir það vakið
gleði manna víðsvegar í ríkinu,
■ekki síst í Króatíu. Matchek, for-
ingi Króata, hefir íátið í ljós
ánægju sína út. af breytingunni.
Kveðst hann sjálfur hafa ráð-
lagt konunginum að nema xxr
■gildi stjórnarskrána og rjxxfa
þingið, því Króatar vonx sáróá-
nægðir með stjórnarskrána og
•eins og kunnugt sje liafi þeir eklvi
um margra mánaða skeið viljað
hafa samvinnu við þingið.
Konungurinn virðist hafa álitið
stofnun einræðisiixs eina xírræðið
til þess að konxa í veg fyrir að
ríkið limaðist Sundur, vegna deil-
unnar á milli Serba og Króata.
Margir menn eru þeirrar skoðun-
ar, að konungurinn ætlist ekki til
að einræðið eigi sjer langan aldur,
en ætla, að tilgangur konungsins
sje að nota einræðisvaldið til þess
að undirbúa nýja st.jórnarskrá, er
allir þjóðflokkar innan ríkisins
sætti sig við. Stjórnarskráin, sem
feld hefir verið úr gildi, veitti
‘Serbum mest vald í ríkinu. —
Hyggja menn, að konungurinn
ætli að reyna, þegar hann álítur
tíma til kominix, að lögleiða í
hennar stað stjórnar'skrá á jafn-
rjettis grundvellli, en margir efast
um, að það muni hepnast.
Eldgos í Chile.
Frá Santiago er sxmað: Cal-
"bncofjallið í suðurhluta Chile gýs,.
Hraunstraumar hafa valdið miklu
tjoni a ökrum. íbuarnir í nági'enn-
inu hafa neyðst til þess að flytja
frá heimilum sínum.
Þolflug.
Frá Los Angelos er símað: Flug-
vjelin „Question mark“ lenti í gær
að afloknu eitt hundrað og fimtíu
klukkustunda flugi. Viðurkenning
•rnun ekki fást fyrir því, að flug-
mennirnir hafi sett heimsmet í
■þolflugi, þareð þeir fengu bensín
<g matvæli á meðan a fluginu stoð.
K. R. æfingar í kvöld. Þriðji
flokkur fimleikar kl. 8—9. Hnefa-
3eikar ld. 10—11.
„Lögþvingnð samvinnaK
Kaupdeilan og Tíminn.
i.
Það er bei’sýnilegt að aðalmál-
gagn stjórnarinnar, Tíminn, er
milli steins og sleggjxx í kaup-
deilumálinu. Ritstjórinn skrifar
stutta grein xxm málið í síðasta.
tbl., en hann er auðsjáanlega í
vandræðum. Hann hvorlti vill nje
má styggja samhei’jana í liði sósial
ista, sem standa fyrir verkfallinu.
Ln svo vex’ðui' hann einnig að
gefa bændum axxga, atlxuga hvað
þeir muni segja. við gífurlegri
kaxxphækkun nú.
En ilt er tveim herrum að þjóna.
Og þó að Jónas Þoi'bergsson hafi
„tungur tvæi’“ og sje liðugt um
málsbeinið, rekxxr hann sig herfi-
lega á þegar hann ætlar í senn að
tala rnáli bænda og sósíalista. XJr
]xví verða Öfugnxæli og röltvillur.
Grein hans „Togaraverkfallið“ er
ágætt sýnishorn þessa.
„Sáttasemjarinn í átvinnudeil-
um, dr. Björn Þói’ðarson lögmaður
í Reykjavík, bar fram miðlunar-
tillögur í deilumálum xxtgei'ðar-
manna og sjónxanna og mun hafa
lagt í þær mikla vinnu“*). Þannig
bj’i’jar grein Jónasar Þorbergsson-
ai. Fimtán línum neðar í greininni
ó konxist þannig að orði: „Tíminn
íxxun ekki taka afstöðu til sjálfra
deiluatriðanna. Þau eru í sjálfu
sjer hverful aukaatriði og ekki
bygð á neinni rannsókn eða rök -
um, heldur aðeins kröfum“.
Hvað er þá orðið af hinni
„miklu vinnu“, sem sáttasemjari
lagði í miðlunartillögu sína? Yar
hún ekki „bygð á neinni rannsókn
eða. rökumf*
En þessar rökvillur og mót-
sagnir eru ekki það eina sem er
eftirtektarvert í gi’ein Jónasar
Þorbergssonar. Þar segir m. a.
sx’o: „Útgerðarmenn þykjast eigi
geta greitt 15% kauphækkun til
hásetanna vegna fjárhagsástæðna
útgerðarinnar. Má vera að það sje
rjett. En fyrir því liggja engin
rök fremur en kröfum sjómanna“.
Nú er það sannað, að helmingur
allra togarafjelaganna á minna, en
ekki neitt. Alt hlutafjeð er' tapað
og meira til; fjelögin lxafa stóran
skuldabagga að auki. Geta þessi
fjelög tekið á sig 15% kauphækk-
un? Og þó að sum þeirra sjeu
þannig stæð fjárhagslega, að ]xau
geti tekið hækkunina, er hækkun-
in þá rjettmæt gagnvai’t hinum?
Getxxr atvinnuvegxxrinn í heild
sinni borið hækkunina. Og geta
aðrir atvinnuvegir boi-ið hana? A
Jxetta alt vei’ður að líta, en ekki
oinblína á það hvað einstaka út-
gerðarfjelag kann áð geta goldið.
II.
Hvaðanæfa xxtan af landi berast
sönxu raddirnar: Sveitimar erxx að
tæmast; allir flýja í kaupstaðina.
En livers vegna sækir fólkið í
kaupstaðina ? — Auðvitað vegna
þess, að þar fær það goldið hærra
kaup og a því auðveldara með að
stofna sjxxlfstætt heimili. Þetta er
ofur eðlilegt, opj skiljanlegt,. Enn
er þannig háttað um annan aðal-
atvinnuveg þjóðarinnar, landbxxn-
aðinn, að hann getur ekki greitt
*) Allar letxxrbr. gorðar hjer.
sama kaupgjald og sjávarxxtveg-
urinn. Vonandi verður ekki langt
að bíða þess, að jöfnuður komist
hjer á.
. En þar senx ójöfnuðurinn er enn
svona mikill nxilli atvinnuveganna,
hvernig stendur þá á því, að Tím-
inn neitar að taka afstöðu til
sjálfra deiluatriðanna? Þó hefir
blaðið talið sig bændablað. Eða
heldur Tíminn, að deiluatriðin í
kaupdeilu þeirri, sem nxx er háð,
sje bændum óviðkomandi? Dettur
blaðinu í hug, að það verði auð-
veldara fyrir bændxxr að fá vinnu-
lcraft í sveitii’nar ef haldið verður
áfranx að skrúfa upp kaupið við
útgerðina? Hvað segja bændur?
Finst þeim sjer vera óviðkomandi
það sem deilt er um í kaupdeil-
unni hjer nú?
Þessir tveir höfuðatvinnuvegir
þjóðarinnar, landbúnaður og sjáv-
arútvegur, eru þær máttarstoðir,
sem þjóðfjelág vort hvílir á. At-
vinnuvegirnir mega ekki rífa
hvor annan niður. — Þeir eiga
að haldast í hendur og vinna sam-
an að velgengni beggja.
Æskilegast væri að þannig væri
ástatt um hag beggja þessai’a
atvinnuvega, að þeir gætu goldið
hátt kaxxpgjald. En því miður er
þessu ekki þannig farið ennþá.
Að vísu koma einstöku sinnunx
þau ár, þar senx útgei’ðin getur
greitt hátt kaupgjald. En þau eru
xxndantekning — því miður.
Jónas Þorbergsson segir, að það
sje órannsákað mál, hvað útgerðin
geti greit.t í kauþgjald. En vilji
hann kynna sjer þet.ta. nánar, mun
hann komast að raun um alt
annað.
En leyfist að spyrja „bændabláð
ið“ : Hver er kaupgeta landbúnað-
arins? Eru bændur við því búnir
nú, að greiða í kaup 15 kr. á dag
og frítt. fæði, auk ýmissa hlxxnn-
inda, eins og sáttasemjari fer fram
á? Og mundi ekki vera erfiðleik-
um bundið fyrir þá, að bæta 4
ki'. við þá upphæð, eins og leiðtog-
ar sósíalista fara fram á?
A síðastliðinu ári gxeiddu bænd-
ur kaupamanni 40—50 Ixr. á viku
og kaupakonu 25—30 kr. — Geta
þeir hækkað þetta kaup um
15% næsta sumar, eða um 50%,
ef forkðlfar sósíaJista fá í gegn
sínar kröfxxr?
Hækkun kaups til sveita, er
óhjáltvæmileg afleiðing kauphækk
xxnar við sjóinn. Samt segir Tím-
inn, að sjálf deiluatriðin sje hverf
ul aukaati’iði!
III.
„Lögþvinguð samvinna“ og ekk
ert annað getur bjargað útgerð-
inni úr því öngþveiti, sem hxin nú
er í, segir Jónas Þorbergsson að
lokuin. Hann minnist ekki á livern
ig hann hugsar sjer fyrirkomulag
þessarar „lögþvingxxðxx sanxvinnu“.
Nei, það er ekki lögskipuð þving
xxn, sem útgerðin þarfnast. Hún
þarfnast fyrst og fremst skilnings
og samxiðar valdhafanna og ann-
;ra atvinnuvega.
En sjái Jónas Þorber'gsson engin
ráð til þess að leysa vandamál xit-
gerðarinnar, önnur en lögþvingað
valdboð, hvernig hugsar hann sjer
að leysa vandamál landbúnaðar-
ins? Kenxur ekki röðin næst að
honum ? Eða dettur nokkrum
marxni í hug, að langt verði að
bíða þess að fersprakkar sósialista
fari að teygja hramminn xit um
sveitirnar og boða verkfall þar?
Á þar einnig að leysa vandanxálið
með „lögþvingaðri samvinnu?“. Á
að setja á laggirnar eitt allshei’j-
ar-„ráð“ til þess að stjórna land-
búnaðinunx ? Og þar undir mörg
minni „ráð“, sem svo eiga að
stjórná býlunum í landinu?
Ef til vill er ætlxxn þeirra Tínxa-
iixanixa eitthvað svipað þessu. En
er þetta í raun og veru nokkuð
axxnað en óþörf krókaleið að þjóð-
nýtingarmarki sósíalista? Hví ekki
að taka grímuna þegar íxiður, og
stíga skrefið fult?
Bannið í Bandaríkjunum.
Því liafði verið spáð, að rnargir
niyndxx drekka sjer til ólífis við
forsetakosningarnár í Bandaríkj-
unum. Þetta hefir rætst. Milli 6.
og 8. okt. drápu sig til dæmis 25
menn á eitruðum vínanda og of-
drykkju í New-York einni. Þess
ber þó að gæta, að þeir einir eru
taldir, sem konxust á spítala og
voru skornir upp, til þess að
rannsaka baiianxeinið. Þeir sem
aðrir bæjarlæknar telja dána úr
ofdrykkju eru ekki taldir nxeð, lík
lega til þess að tölurnar falli bann
nxönnxxm betur í geð. Manndauði í
Nexv-York úr ofdrykkju var nxeiri
en dænxi eru til fyrir bannið. —
Lóring Black þingmaður taldi að
um 11700 menn hefðu dáið 1927 í
Bandai’íkjunum xir ofdrykkju.
Metropolitan lífsábyrgðarfjelagið
segir að manndauði xir ofdrykkjxx
vaxi stórlega meðal, fjelaga. Árið
1920 dóu 77 en 1926 638 menn.
Lögreglubrot fyrir ofdrykkju hafa
og aukist afskaplega, þó drxxkknir
menn sem reika ágötunum í New-
York sjeu látnir fara í friði, ef
þeir geta slampast heim til sín
hjálparlaust. Eftirgrenslanir hafa
leitt í ljós, áð leyniverslanir nxeð
ilt áfengi eru orðnar fleiri í Banda
ríkjunum en hinar illræmdxx veit-
ingakrár (saloons) voru nokkru
sinni fyrir bamxið.
Þannig segir Clxarles Norris,
merkur læknir í New-Yorlc frá
banninu í Bandaríkjunum. Hann
kallár það sjálfsmorðstilraun og
segir að til þessa hafi hún kost.að
þjóðina 178.000.000 dollara, án
þess að láta neitt gott af sjer
leiða.
Dagbók.
St/. Andr.-. Instr/. 0 IV/V
59291128 Umr.’. Fyrirl.-.
Veðrið (í gær kl. 5) : Grunnar
lægðir fyrir suðvestan laxxd og
hreyfast þær eigi hraðar yfir en
að sumarlagi væri. Hinsvegar er
lc'ftþrýst.ing mjög há unx alla NV-
Evrópu — mest í Stokkhólmi, 791
mm. — SA stinningskaldi x Vest-
mannaeyjum, en annars er S-hæg-
viðri um alt land. Skúrir og 5—6
stiga hit.i syðra, en þurt veður
með 1—4 stiga hita á N og A-landi
Veðurútlit í dag; SA-kaldi. —
Skýjað loft. Dálítil rigning öðru
hvoru.
Merkúr, verslunarmannafjelag-
ið, heldur fund í kvöld í Kaup-
þingssalnum (sjá augl.)
Til Hóla-dómkirkju afh. Mbl.
frá Jóni Pjeturssyni 5 krónur,
Jóni Jónssyni, fyrir að fá 9 Mata-
dora. í L’honxbre 5 kr.
Trúlofun sína hafa opinberað
ungfrú Sigurjóna Bæringsdóttir,
Gi’ettisgötu 20 b og Jón Guðjóns-
son, þriðji meistari á varðskipinu
„Þór.“
Mannalát. Nýlátinn er Hallbjörn
Erlendsson frá Skógum í Kolbeins-
staðahreppi, gamall bóndi. Varð
hann bráðkvaddur.Hann var hætt-
ur búskap, en bjó lengi í Skógum.
Nýlátinn er Mai’ís Sigui’ðsson,
bóndi í Stóru-Gröf í Stafliolts-
tungum, miðaldra bóndi.
Sköinmu fyrir jól andaðist elsta
manneskja í Borgarfjarðarhjeraði,
Guðrún, móðir Ólafs bónda á Sáms
stöðum í Hvítársíðu. Var hún kom-
in yfir nírætt. (FB).
Influensan hefir verið að stinga
sjer niður í Borgarfjarðarhjeraði,
en ekki hefir hún lagst þungt á
menn, þótt talsverður hiti hafi
fylgt henni. Mislingar voru fyrir
nokkru í Norðurárdal, en eru nú
hoi’fnir. Frjetst hefir að mislingár
sje i Miklaholtshreppi í Hnappa-
dalssýslu. (FB).
Sjera Einar á Borg hefir legið
að undanföi’nxx og verið. mjög
þungt haldinn, en er nú á bata-
vegi.
Gjafir til nýju kirkjunnar í
Reykjavík, afhentar sjera Friðrik
Hallgrímssyni um áramótin: 100
kr. frá Þ. Á. B. 25 kr. frá G. G.
8 kr. frá tveirn stúlkum. 30 kr. frá
nokkrum sjúklingum.
Lyra konx hingað um hádegi í
gær. Meðal farþega voru: H. P.
Stangeland kaupm., Reidar Sören-
sen, H. Faaberg, J. S. Birkeland,
og’ ungfrú C. Niclasson frá Fær-
eyjum.
Sáttmálasjóðurinn. Samkvæmt
lögum 30. nóv. 1918, verða á þessu
ári veittar um 20 þús. krónur xir
danska hluta sáttmálasjóðsins, skv.
reglugerð,
1. til að styi’kja andlegt sámband
milli íslands og Daixmerkur,
2. til eflingar íslenskxxm ránnsókn
um og vísindum,
3. t-il styrktar íslenskum náms-
mönnum.
Auk þess verður mönnum veitt-
ur styrkur til þess að afla sjer
sjerstakrar eða almennrar þekk-
ingar (ferðastyrkur, styrkxxr til
dvalar við lýðliáskóla o. s. frv.),
fyrir að semja og gefa xxt vísinda-
leg og fræðandi rit og fyrir ým-
islegt annað, sém fellur' undir
starfsvið sjóðsins. — Umsóknum
verða að fyígja nákvæmar og
glöggvar upplýsingar, og verða
þær að sendast hið fyrsta, eðá fyr-
ir 1. mars til „Bestyrelsen for
dansk-islandsk Forbundsf ond‘ ‘,
Kristiansgade 12, Köbenhavn.
Bílar hafa undanfarna daga. far-
ið milli Víkur og Seljalands. Hafa
þeir vei’ið að flytja vermenn að
austán. Streyma nú að vermenn úr
öllum áttum og fara ýmist til ver-
stöðvanna. hjer við Faxaflóa eða
V estmannaeyja.
Þorgeir skorargeir vai’ð að fara
frá ísafirði um daginn óafgreidd-
ur, eins og kunnugt er, vegna þess
að verkamenn vildu ekki vinna
við afgreiðslu hans. Fór hann þá
til Önundarfjarðar og fekk þar
bæði kol og vatn og helt síðan
áfram til Englands. Fer hann þar
í þurkví um leið.
Nýr æfifjelagi í. S. í. Tryggvi
Þórhallsson forsætisráðherra hefir
gerst æfifjelagi 1. S. í„ og er hann
sá 67. í röðinni. Hver kemur næst?
Trúlofun sína hafa nýlega opin-
berað ungfrú Ingibjörg Guðmunds
dóttir frá Hellatxxni í Rangárvalla-
sýslu og Árni Guðnxundsson, stud.
med. frá Akureyri.