Morgunblaðið - 31.01.1929, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.01.1929, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Maismjöl, Hænsabygg, Haframjöl, Rúgmjöl. Heildv. Garðars Gíslasonar. m ÍS m ÍS Vifekifti. mdwmmmmmmmmmmmmm o □ Hitamestu steamkolin ávalt fyrirliggjandi í koiaverslun Ólafs Ólafssonar. Sími 596. Piskbúðingnr, Fiskpylsur, Yínar pylsur, Buff, Kotilettur, Karbon- ade, Kjötfars tvær tegundir, Fisk- fars tvær tegundir. Alt er best í Fiskmetisgerðinni, Hverfisgötu 57. Sími 2212. Sent heim. Besta saltkjötið í bænum fæst í Ármannsbúð, bæði í smásölu og heilum tunnum. Fegnrstir Túlipanar fást á Yest- urgötu 19. Sími 19. Útsprungnir túlipanar, nokkrar tegundir af Kaktusplöntum og Hyasintur til sölu. Hellusundi 6. i _____ Baðsalt og Eau de Cologne frá 4711, ætti að vera til á hverju heimili. Verð frá kr. 1.25 glasið. Fæst í Rakarastofunni í Eimskipa- fjelagshúsinu, sími 625. Tapað. — Fumdið. Tapast hefir dökkjarpur reið- hestur síðastliðið laugardagskvöld. Mark: Þrístýft fijaman hægra? Hver sem yrði var við hest þennan geri viðvart, Jóni og Gísla Hafnar- firði, sími 34. Hvað er að sjá þetta! Ertu vlrkilega orðin svona kvefaður? Þjer batnar strax, ef þú notar Rósól-Mentol og Rósól- Tftflur. Vetrarkápurnar seljast nn allar með 30°|o afslætti. Verslun Egill lacobsen. Van noutens konfekt og átsúkkulaði er annálað um allan heim fyrir gæði. 1 heildsölu hjá Þú sem tókst skinnvetlingana í gær á borðinu í versluninni London, skilaðu þeim strax þang- að aftur, ella jeg gef upp nafn þitt. Bárnjáru 24 og 26,31”breidð 5_6—7—8-9—10 f. Galv. sljett járn 24 26, 36” breidd. Galv. þaksanmur. Þakpappi „Víkingnr“. Pappasanmnr, íyrirliggjandi hjá C. Berhens, sfmi 21. Nankinsföt (mí>- Vinnnsky rtnr (Kahaki). Prjðnapeysnr (Overalls). Karlmannshninr, n ý k o m i ð. Verslunin Vík, Laugaveg 52. Sími 1485. Ver kf aeri: Koparplötur, Koparstangir, Vjelareimar, Boltar. Vald Poulsen. Tobaksverjlun Islandsh. í. Brautárholtsborgina. Við biðum nokkra stund ti! þess að sjá hvort það kæmi ekki fram aítur, en svo var ekki. Það hjelt beinni stefnu Ojg var þó engin andvari er gæti borið það. TJm skip gat ekki verið §.ð ræða, og ekki held- ur flugvjel. Það var svo bjart og skamt á milli er við sáum ijósið fyrst, að við hefðum hlotið að sjá vængi og skrokk á flugvjel, hefði hún verið þar á sveimi, enda hlot- ið að heyra til hennar. Útvarp skeyta. Eíns og kunnugt er, er veðurfregnum útvarpað frá loftskeytastöðinni tvisvar á dag kl. 8.45 að morgni og kl. 7.45 að kvöldi. Nú hefir landssíminn tekið upp á þeirri nýbreytni að taka einnig við einkaskeytum til send- ingar á þennan hátt. Getur þetta oft komið sjer vel, ef menn þurfa að lioma orðum út um land til kunningja sinna sem eiga heima fjarri síma, en hafa móttökutæki. Þægilegt get.ur þetta líka orðið fyrir þá sem heima eiga í afskekt- um bygðum og eiga móttökutæki því það verður þeim þá líkt og sími og færir þeim einkaorðsend- ingar. Að vísu getur síminn ekki tekið ábyrgð á því, að skeyti þessi komist til skila, það er alveig und- ir því komið að móttakandi hlusti í rjettan tíma, en til frekara ör- yggis er hverju skeyti útvarpað tvisvar sinnum, bæði morguns og 'kvölds. Fiöldi nvrra búka Eimskipafjelagiö. Auglýstur hef ir nú verið brottfarardagur skip- auna hjeðan. Lagarfoss á að fara á morgun (1. febr.) beint til Kaup mannahafnar. — Brúarfoss fer hjeðan 5. febrúar vestur og norð- ur um land til Lundúna. — Goða- foss fer hjeðan 5. febrúar til Aberdeen og Hamborgar. Kemur við í Hull og Leith í heimleið. — Fvrsta ferð Gullfoss til útlanda á þessu ári fellur niður, upp frá því á hánn að fylgja áætlun, og fer lijeðan 16. febrúar til Aust- fjarða. og Kaupmannahafnar. Alliance Francaise hjelt aðal- fund sinn fyrir 1928 þ. 28. þ. m. á Hótel Heklu. Forseti fjelagsins Páll Sveinsson setti fundinn og skýrði frá störfum þess á liðnu ári. Hafði fjelagsmönnum fjölgað tals- vert á árinu. Bókasafn á fjelagið allstórt og hefir notkun þess auk- ist að miklnm mun, enda hefir það nú fengið ágætt húsnæði á Hótel Heklu og er opið allan dajginn. — Eins og að undanförnu hefir fje- lagið haldið uppi frönfekukenslu og hefir Davíð Sch. Thorsteinsson, læknir, haft hana á hendi í vetur. Lagðir voru fram endurskoðaðir reikningar fjelagsins og samþykt- ir. — Þá fór fram stjórnarkosning og var öll stjórnin endurkosin, en hana skipa Páll Sveinsson, forseti, Davíð Seh. Thorsteinsson, varafor- seti, Pjetur Þ. Gunnarsson, gjald- keri, Magnús Jochumsson, ritari og Þorlákur Arnórsson, bókavörð- ur. Endurskoðendur voru og kosn- ir þeir sömu og áður þau frk. Sigríður Bjarnadóttir og Ole Blöndal, póstritari. Frá Akureyri var símað í gær: Um helgina, laugardag og sunnu- dag var hjer norðanstórhríð og 13 stiga frost mest. Setti þá niður talsverðan snjó. — Ekkert heyr- ist um skólamálið. Skólanefndin Iumar á því með þögn, og fæst ekki til að gefa neinar upplýs- ingar. Dánarfregnir. í gærmorgun and- aðist Sigrún Gestsdóttir, ekkja Stefáns Eiríkssonar myndskera. Átti að skera hana upp við nýrna- veiki en hún andaðist í svæfmg- unni. Sigrún heitin var ættuð frá Fossi í Vopnafirði. Lifir faðir hennar þar <enn í hárri elli, en er nú blindur. Frú Sigrún var hin mesta búsýslnkona og samhent manni sínum. 31. desembér s.l. andaðist að heimili sínn Langruth í Manitoha, Margrjet Finnbogadóttir frá Suð- ur-Reykjum í Mosfellssveit, 65 ára að alcíri. Hún var gift Erlendi Er- lendssyni frá Mel hjer í bænnm, og munu þau hafa farið vestur um haf fyrir 40 árum, og eru 7 börn þeirra (af níu) á lífi þar vestra. Af systkinum Margrjetar sálugu eru á lífi hjer á landi frú Arnfríð- ur, kona Runólfs Pjeturssonar, fyrrum lögregluþjóns, og Helgi Finnbogason á Reykjahvoli í Mos- fellssveit og í Ameríku Valgerðuí Finnbogadóttir í Vancouver B. C., en látinn er fyrir þrem árum syst- ir þeirra, María, sem gift var Ein- ari Einarssyni á Lágafelli. Símamenn halda hinn árlega dansleik sinn í Hótel ísland ann- að kvöld. Gott skautasvell er á tjörninni nú og verður næstu daga ef sama veður helst. Kristileg samkoma verður á Njálsgötu 1 í kvöld kl. 8. Allir velkomnir. Þórunn Sveinsdóttir frá Pálshús um hjer í bæ, nú til heimilis á Bergþórugötu 10, varð 89 ára í gær. Er gamla konan vel ern og frxsk þrátt fyrir sinn háa aldur. íslenskra og erleLðra, hentngar til tækifærisgjafa f Bókav. Sigff. EymundssonaPa Vetrarkápnr og Telpnkápnr 20 til 30% afsláttur. Vetrarkápntan 10 til 20% afsláttur. S. Jóhaunesdóttir. Aueturstrati 14. Beint á móti Landsbankanoni Simi '887. RiDmðfonnn OsSó Gilletteblöð óvalt fyrirliggjandi í heildsölu Ifilh. Fr. Frimannsson Sfmi 557 Tex Richard dauður. Laust eftir nýár andaðist hinn lieimskunni hnefaleikastjóri, Tex Riehard suður' í Miami á Flor- ida, eftir botnlangauppskurð. Hami var urn fimtugt, en fyrir löngu orðinn fi*ægasti hnefaleika- stjóri í heimi. Meðal annars stóð hann fyrir hnefaleik þeirra Car- pentier og Dempsey og hnefaleik Dempsey og Tunney. Eins og margir Ameríkumenn byrjaði haitn í smáum stíl. Hann var fyrst „Cowboy“, svo knæpuforstjóri, en svo fór lxann að leggja sig eftir því að stofna til íþróttakappleika, bæði hnefaleika og kapphlaupa innan hxxss. Seinast rjeði hann Nurmi fyrir 6000 dollara til þess að hlaupa í köpp við ameríkskan hlaupagarp innan húss. Hann hafði góðar tekjur. jafnvel á ameríkskan mælikvarða, en tapaði líka stórfje í ýmsum fjárhættu fyrirtækjnm. Talið er að hann muni láta eftir sig 15 miljónir dollara. Á seinasta hnefalexknum milli Tunney og Dempsey græddi hann 400 þúsund krónur. Hann var einhver sá mesti skrumauglýsingasmiður, sem til var í Bandaríkjunum og hanr liafði gott lag á því að fá fólk til að berjast um það að komast á kappleika þá er hann efndi til. Ford býðst til að gera sam- göngubætur í Egyptalandi. Henry Ford reynir á allan hátt að auka útbreiðslu bifreiða sinna um allan heim. Seinasta uppátæki hans er það, að hanu hefir boðið stjórninni'. í Egyptalandi að kosta þar að öllu leyti nýjan „macadami seraðan“ bílveg, 250 km. að lengd og kosta viðhald hans, með því skilyrði að stjórnin afnemi verð- toll á bílum, en hann er þar 8%. Hver veit nema það væri hægt að fá Ford til þess að leggja vegi hjer í landi; t. d. að fullgera Norðuilandsveginn og lcosta við- hald hans, gegn því að afnuminn væri tollnr á bílum hans? er einn besti fiskiskipamótor. Rapmótorinn er nálægt tvisvar sinnum útbreiddari í norska fiskiskipa- flotanum, en sá, sem næstur honum er. Rapmótorinn hefir hlotið bestn meðmæli og viðnr- kenningu verkfræð- inga háskólana norska (Niðarósi) eftir að hafa verið þar þrautreyndur. Rapmótorinn er steyptur í „elek- trojámi“, sem er 100% sterkara en vanalegt steypujárn. Rapmótorinn hefir síðasta ár ver- ið endurbættur tii muna. íslendingar! Kaupið R a p og þið verðið ánægðir. Semjið við herra O. Ellingsen, Reykjavík. Nýkomið ■ Islenskt smjör, íslensk egg, skyr. Reyktur silungur á 50 aura % kg. Reykt hrossakjöt á 60 aura kg. Reykt kindakjöt. Frosið kjöt og fleira. Hvergi eins ódýrt. j Versl. Failnn. Laugaveg n9- — Sími 1551. Þakkarorð. Ollum þeim, nær og fjær, þekt- um og óþektum, sem sýndu mjer í orði og verki hjálp og huggun í sorg minni og erviðleikum við frá- fall mannsins míns, Ingimundar Ingimundarsonar, seni druknaði í sjóróðri s. 1. vetur í Vogasjó, færi jeg hjartanlegar þakkir mínar og barna minna, og bið þeim allrar blessunar, og vona, að guð launi þeim góðviljann og samúðina. Reykjavöllúm í Bítskupstungum 10. janúar 1929. Vilborg Guðnadóttir. Horgunblaðið f»«t & Laugavegi 32.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.