Morgunblaðið - 06.04.1929, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
ift) BtenHgaw I úlsem ((
Þakpappinn Zinco-Rnber
er besti og jafnframt ódýrasti þakpappinn, sem þjer fáið.
Birgðir hjá okkur.
Red Sea) Lye
er óuppleyst lútarefni.
Red seal Lye má nota til hreinsunar við:
Afrenslispípur
Salerni
Fatnað
Matarílát
Kæliskápa
Drepa innanhúss pöddur
Drepa rottur og mýs
Vaska
Hrákadalla
Gólf
Úrgang alskonar
Gull og silfurmuni
Mannaratröppur
Eldhús og baðherbergi
Peningshús
Strokka
Mjólkurílát
o. fl. o. 'fl.
Red seal Lye ætti því að vera til á hverju heimili.
Hjer er um mjög gagnlegan varning að ræða, sem
gæti orðið til ómetanlegs sparnaðar öllum þeim, sem vildu
haghýta sjer hann, og nota til alskonar hreinsunar.
Red seal Lye fasst nú hjá neðangreindum verslunum
hjer í bænum og grend:
Einar Eyjólfsson, Þingholtssræti.
Guðjón Jónsson, Hverfisgötu 50.
Gunnar Ámason, Keflavík.
Guðm. Guðjónsson, Skólavörðustíg.
Hjörtur Hjartarson, Bræðraborgarstíg.
Jón Hjartarson, Hafnarstræti.
Verslun Sig. Skjaldberg, Laugavegi 58.
Verslunin Vísir, Laugavegi.
Verslunin Bræðraborg, Akranesi.
1 dós af Red Seal Lye kostar kr. 1.25.
Biðjið um leiðarvísir!
í heildsölu hjá
0. Johnson & Kaaber.
Hestamannafjel. Fáknr.
ðTBOO.
Þeir, sem kynnn að vilja að taka að sjer hestagæslu fyrir fje-
lagið á komandi sumri, sendi tilboð sín í lokuðu umslagi til Dan.
Daníelssonar, Stjórnarráðsdyravarðar.
Tilboðum sje' skilað fyrir kl. 8þ£ að kvöldi miðvikudaginn 10.
]í. mán. og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum
er mæta kunna. Rjettur er áskilinn til þess að taka ekki lægsta
boði og eins að hafna öllum.
Frjettir ufðsvegar að.
Kýr ganga úti. Á Völlum í
Svarfaðardal hafa tvær kýr verið
látnar út á hverjum degi síðan
snemma í mars og beitt lengri og
skemri tíma á degi hverjum. —
Önnur kýrin var í 9 mörkum, þeg-
ar byrjað var að hleypa henni rit,
en græddi sig og var komin í 12
merkur undir mánaðamót.
Stríð á Akureyri. Á þrítugsaf-
mæli danska ríkiserfingjans (11.
mars) var dreginn danskur fáni
á stöng á sjúkrahúsinu „Gud-
manns Minde“ á Akureyri. Yfir-
hjúkrunarkonan þar er dönsk og
hafði hún leyfi spítalalækiiis
(Stgr. Matt.) til að draga upp
danska fánann. En þetta sárnaði
mönnum mjög, sjerstaklega skóla-
piltum. Fóru þrír þeirra fvrst nið-
ur að spítala og drógu fánann í
hálfa stöng. En aftur kom fáninn
að hún og hringdi þá bæjarstjóri
til læknis og bað hann að sjá um
að fáninn yrði dreginn niður, og
feltk læknirinn hjúkrunarkonuna
til þess. En meðan hún var að því,
komu skólapiltar fylktu liði og
ætlnðu að draga íánann niður ineð
valdi. Þegar þeir komu upp í skóla
aftur, kallaði Sig. Guðmundsson
skólastjóri þá saman og hjelt yfir
þeim ræðu fyrir minni ríkiserfingj-
ans og ljet þá hrópa nífalt húrra
á efrir. Lauk svo þessu „stríði“,
sem er skólanum til lítillar virð-
ingar.
Mokafli var kominn víða nyrðra
þegar Esja fór um seinast. Vjel-
bátnr af Akureyri felrk þá einn
daginn 6000 pund af rígaþorski
hjá Gjögrum og er mælt að við
Eyjafjörð hafi varla sjest vænni
fiskur. Annar bátur fekk um 900
pund á Arnarnesvík. Norður í
Núpasveit var kominn ágætur
afli. Höfðu menn róið nolckra
daga og rifið upp vænan fisk rjett
utan við landsteina.
Hugulsemi stjómaiinnar. Norð-
lingur segir frá því, að ríkisstjórn-
in (JJ) Iiafi ætlað að gera sjera
Jón Guðnason að símstjóra á Borð-
eyri, og launa svo trygga fylgd,
En annað hvort hafi þó stjórnin
heykst á þessu, eða þá að Jón hafi
ekki treyst. sjer þegar til kom.
Sýslufundur er nýlega afstað-
inn á Sauðárkróki. Helsta málið
þar var hafnargerð á Króknum
og fer sýslunefnd fram á að rík-
issjóður leggi til hennar fje eftir
sama mælikvarða og til hafnar á
Skagaströnd.
Bæjarstjóm Siglufjarðar. Eins
og kunnugt er var kært út af bæj-
arstjórnarkosningunni seinustu í
Siglufirði. Stjórnarráðið hefir úr-
skurðað að kosningín skuli vera
gild.
Barnaskóli Akureyrar. Bæjar-
stjórn Aloireyrar hefir nýlega tek-
ið að láni 100 þús. danskar krónur
íil hins nýja barnaskóla, sem þar
á að fara að reisa. Bæjarsjóður
hefir áður lagt 60 þús. kr. fram
íil byggingarinnar. Er til þess ætl-
ast að skólinn verði kominn undir
]-ak fyrir haustið og verði tekinn
til afnota annað haust.
Símakappskákir þreyttu Sigl-
firðingar nýlega við Sauðkrækl -
ina. Var teflt á 9 borðum og lajak
svo að Siglfirðingar unnu T1/^ tafl
en hinir 1 y2. Áður tefldu Siglfirð-
ingar við Hafnfirðinga og gáfu
Hafufirðingar upp töflin er þeir
sáu sitt óvænna.Seinast tefklu Sigl-
firðingar við gagiifræðanemend-
ur á Akureyri, en þeim töflum
var ekki lokið, er seinast frjettis',
en SigJfirðingar töldu sjer vísan
sigur.
Frá
AtsðlumL
XTeuvetrarkápur
nokkrar óseldar ennþá.
Einnig
Karlm.fatnaður og
KarlmJrakkar.
Káputau,
nokkrir pakkar óseldir.
Vöruhnsið.
Tricotine nærfatnaður, lít-
ið eitt gallaður, verður seld-
ur mjög ódýrt.
höfum vjer fengið með e.s. „Karma“, verður selt frá
skipshlið í dag og næstu daga meðian á uppskipun stendur.
Nánari upplýsingar á skrifstofu vorri.
J. Þorláksson & Norðmann.
Simi 103 og 1903.
höfum vjer fengið með e.s. „Karma“, seljum frá skips-
hlið meðan á uppskipun stendur næstu daga.
H. Benedibtsson & Go.
STJÓRNIN.
Simi 8 (þrjár línur).
l