Morgunblaðið - 25.05.1929, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
S
r
|
f
í
Erlendar símfregnir.
Khöfn, FB. 23. maí.
Óeirðir í Kína.
Frá Shanghai er símað: Stjórn-
inni í Nanking (kínversku þjóð-
ernissinnastjórninni), veitist stöð-
ugt erfitt að halda hylli alls hers-
ins og bæla niður mótspyrnu ým-
issa hershöfðingja, sem sífelt erU
■að gera tilraunir til þess í ýms-
«jn hjeruðum, að mynda hervakls-
stjórnir gegn Nankingstjórninni.
Her Nankingstjórnarinnar virð-
ist nú að vísu liafa unnið sigur á
Kwangsihernum skamt frá Can-
ton, en hinsvegar virðist Nanlcing-
síjórninni nú hætta búin frá Féng-
yuh-siang hershöfðingja, er veitti
Nankingstjórninni stuðning í ó-
friðnum gegn Norður-Kína. En
Feng-yuh-siang- snerist seinna á
móti Chiang-lcai-shek, sem nú er
raunverulega forseti Kínaveldis.
Hjer Feng-yuh-siang og fleiri hers-
höfðingjar, sem valdagjarnir eru,
ofsjónum yfir því, hve mikils
trausts og virðingar Chiang-kai-
shelc nýtttr, og vilja steypa lion-
um af stóli og með því koma í
veg fyrir að það starf, sem Chiang-
kai-shek á svo mikinn þátt í, að
sameina Kínverja undir einni
stjórn, verði til ónýtis unnið. —
Feng-yúh-siang safnar nú liði í
Honanhjeraði. Birti hann þar yfir-
lýsingu í gær og er henni beint
gegn Chiang-kai-shek. Kveðst
Feng-yuh-siang hafa verið kosinn
.yfirmaður hersins og’ telji hann
það hlutverlc sitt að hreinsa til í
landinu og steypa Nanking-stjórn-
inni, sem hann kveður hafa verið
.myndaða með ólöglegum hætti.
Herskylda í Bandaríkjunum.
Frá Washington er símað: Unit-
»ed Press skýrir frá því, að laga-
frumvarþi því, sem áður hefir ver-
sð um getið, viðvíltjandi her-
•rskyldu, hafi verið frestað fyrst um
sinn, svo að stjórnin geti íhugað
hvaða aðferð skuli notuð við liðs-
;safnað á meðal verkamanna í iðn-
-aðargreinunum. Búast menn við,
«ð frumvarp þetta mæti mikilli
mótspyrnu innan iðnaðarins, þar
*eð foringjar verkamanna hafa lýst
j'i'ir þeirri skoðun sinni, að frum-
varpið sje skerðing á rjettindum
werkamanna.
Samsæri gegn ráðstjórninni
í Rússlandi.
Khöfn, FB. 24. maí.
Frá Moskva er símað til Ritzau-
frjettastofunnar: Frjettastofa
Rússlands tilkynnir, að rússneska
lögreglan hafi komist að því, að
tvö byltingafjelög höfðu unnið að
þ>ví að steypa i}áðstjórninni af
■stóli. Tveir háttsettir embættis-
menn í samgöngumálaráðuneytinu
<og einn prófessor, sem stjórnuðu
Stofnandl: Vilh. Finsen.
ntgefandi: FJelag I Reykjavlk.
Ritstjörar: Jön KJartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstrætl 8.
Slmi nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasimar:
Jön KJartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
áakrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.60 - ----
t lausasöiu 10 aura elntakiB.
fjelögunum, hafa verið dæmdir til
dauða og teknir af lífi. Fór aftaka
þtirra fram í gær. Aðrir þátttak-
endur í byltingaáformnnum hafa
verið dæmdir til fangelsisvistar.
Khöfn, FB. 24. maí.
Stefnuskrá Lloyd George.
Frá London er símað: David
Lloyd George birti í gær stefnu-
skrá frjálslynda .flokksins. Við-
víkjandi utanríkismálunum kvað
hann svo að orði, að aðaltakmark
floltksins væri að reyna að koma
í veg fyrir að styrjaldir verði
'<þna r útkljá deilumál þjóðanna.
Kvað hann flokkinn vilja láta
minka fljótlega vígbiinað allra
þjóða og endurskoða friðarsamn-
iugana, til þess að lagfæra gall-
ana á þeim. Ennfremur kvað hann
það vilja flokksins, að komið yrði
á aftur stjórnmálasambandi við
Rússiand gegn gagnkvæmum lof-
orðum um áð forðast undirróður.
New York ekki örugg fyrir
loftárásum.
Frá New York er símað: Flug-
æfihgar yfir New York City í
fyrrinótt leiddu það í ljós, að
borgin getur eklti varist árásum
úr loftinu. — Sprengjuflugvjel
hepnaðist að sleppa fram hjá leit-
arljósunum inn yfir borgina. Er
álitið af sjerfræðingum, að flug-
vjelin hefði getað skotið á og
eyðilagt mikinn hluta borgarinnar.
Frá Kína.
Frá Nanking er símað: Nanking
stjórnin hefir samþykt, að gera
Feng-yuh-siang rækan úr flokki
þjoðernissinna og senda her manns
á móti honum.
Uppreisnin í Mexiko.
Frá Mexiko City er símað til
Ritzau-frjettastofunnar, að 4000
menn hafi beðið bana í uppreist-
inni, sem nú er niður bæld, en
eignatjón er áætlað að nemi 10
miljónum sterlingspunda.
Að norðan.
Rafmagnsmál Akureyrar.
Akurayri, FB. 24. maí.
Bæjarstjórnin hefir ályktað að
Jata undirbúa rafmagnsvirkjun í
stórum stíl við ár í grendinni,
vegna þess að fyrirsjáanlegt er að
rafmagnsþörf bæjarins muni mik-
ið aukast í nánustu framtíð. Leit-
að verður samvinnu um undirbún-
ingsstarfið við Eyjafjarðarsýslu,
Þingeyjarsýslu og ríkisstjórnina.
Vinnustöðvuninni af ljett.
Siglufirði, FB. 24. maí.
Hlaðafli af fullorðnum þorski og
dálítill síldarafli.
í fyrradag var ofsarok á norð-
austan og allir bátar á sjó, en
þeir komust allir heilu liöldnu til
hafnar.
ríðarfar gott. Fannir að liverfa.
Vinnustöðvuninni í verksmiðju
dr. Paul er afljett. Varð það að
samkomulagi að einn útlending-
anna færi. Var það verkstjórinn.
Sjö útlendingar, faglærðir menn,
unnu í verksmiðjunni, að fengnu
leyfi stjórnarvaldanna, er deilan
liófst.
—-—--------------
Dagbók.
Veðrið (í gærkv. kl. 5): Lægð
fyrir sunnan land og háþrýstisvæði-
fyrir norðan. Engar fregnir af
hafinu suður undan og lieldur
ekki frá Bretlandseyjum. Lægðin,
sem var sunnan við Færeyjar í
morgun, hefir dýpkað og færst
norður á móts við Austfirði. Þó er
þæpið að hún verði svo öflug, að
hún valdi N-átt hjer á landi á
morgun nema helst á NA-landi. —
í dag hefir verið mikil rigning á
SV-landí, einkum í grend við Rvílt
(17 mm. frá kl. 6 til kl. 17) en
ekki liefir sú úrkoma náð til Stykk’
ishólms eða Vestfjarða og í Grinda
vík hefir heldur ekki rignt að
mun. — A Halamiðum er emiþá
snarpur A-vindur og slæmt veiði-
veður.
Veðurútlit í dag: SA- og A-
kaldi. Skúrir.
Messur á morgun. f dómkirkj-
unni kl. 11 síra Fr. Hallgrímsson,
kl. 5 síra Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni í Reykjavík kl.
2 síra Árni Sigurðsson.
Hjúskapur. í dag verða gefin
sarnan í lijónaband María Jóns-
dóttir verslunaírmær og Jakob
Jónsson kaupmaður. Heimili þeirra
verður Miðstræti 10.
K. F. U. M. A-D-menn koma sam
an í kvöld kl. 8i/2. Kaffi.
Valtýr Albertsson læknir hefir
dvalið ytra í 6 ár við framhalds-
nám, lerrgst af á sjúkrahúsum í
Noregi og Danmörku. Vann ault
þess um tíma á rannsóknastofu og
var eitt ár hjeraðslæknir í Noregi.
Hann er nýkominn heim og setst
að hjer í bænum; opnar lælminga-
stofu í dag í Austurstræti 7 (sbr.
augl. í blaðinu).
Björgunarbátur Slysavarnafje-
lagsins verður fluttur úr Slippnum
um miðjan dag á mongun og hon-
um ekið niður á Steinbryggju og
verður liann þar bæjarbúum til sýn
is. Kl. 3 heldur forseti Slysa-
varnafjelagsins (Guðm. Björnson)
ræðu og lýsir bátnum, en að henni
lokinni gefur frú Guðrún Brynj-
úlfsdóttir bátnum nafn. Þá vígir
biskup bátinn. Er það algengur
sigur erlendis, að klerkar eða bisk-
upar vígi nýja björgunarbáta, áð-
ur en þeir hefja starf sitt. Að því
loknu verður bátnum hrundið á
flot, honum róið út úr höfninni og
þá sett upp segl, ef byr gefur.
Verður þetta án efa mjög hátíðleg
viðhöfn eins og’ vera ber, þegar
fyrsti björgunarbátur íslendinga
er settur á i'Iot. — Á morgun
verða seld merki á götunum til á-
góða fyrir sjóð Slysavarnafjelags-
ins og gefst þá öllum kostur á að
styrkja gott málefni og þjóðinni
hjartfólgið, með því að láta nokkra
aura af höndum rakna.
Nýja- rafmagnsstöð, 85 kw., á að
reisa í Fáskrúðsfirði í sumar. —
Verður það jafnspennustöð og
knúi(i vatnsafli. H.f. Rafmagn
hjer í bænum hefir tekið að sjer
að koma stöðinni upp fyrir 57,680
ltrónur, og er þar í falið að leggja
heimtaugar að húsum frá stöðinni.
Byrjað verður á verkinu í næsta
mánuði og á því að vera lokið 1.
október og á stöðin þá að talta til
starfa.
Jarðarför Guðlaugs heit. Lárus-
sonar fór fram í gær. Nemendur
Mentaskólans fylgdu honum til
grafar í skrúðgöngu.
Ellen Buurmeister ensajn. Frá
því var sagt lijer í blaðinu fyrir
nokkrum dögum, að Ellen Buur-
meister ensajn í Hjálpræðisherniim
hefði verið kvödd hjeðan til Dan-
merkur og væri á förum þangað.
En sú breyting hefir á orðið, að
skipunin hefir verið afturkölluð,
og fer7 ensajninn ekki fyrst um
sinn hjeðan.
Auglýsingar, sem birtast eiga í
blaðinu á morgun, þurfa að koma
tímanlega í dag og alls ekki síðar
en kl. 6 vegna þess að blaðið
verður að fara fyr í prentun en
vant er, þar sem lokað verður
fyrir rafmagnsstrauminn kl. 1 í
nótt.
Eimreiðin. Annað hefti þessa ár-
gangs er nýkomið. Hefst það með
„ljóði í mæltu máli“ eftir dr. Al-
exander Jóhannesson og heitir
„Flugferð“. Er það lýsing á fyrsta
flugi frá Akureyri til Reykjavík-
ur. Ragnar E. Kvaran skrifar
„TTm bíl og stíl“, Oddur Oddsson
skrifar grein um „Skinnklæði“, en
Knútur Arngrímsson ritar grein er
nefnist „Guðfræðinám -og góð
kirkja“, og er það svar við grein
Ragnars Kvarans í næst seinasta
hefti Eimreiðarinnar. Jakob Smári
ritar um Nietzche, en ljóð eru þar
eftir' Jón Magnússon og Rögnvald
Þórðarson. „Veraldir í smíðum“
heitir grein eftir Clyde Fischer,
forstöðumann stjörnufræðideildar
náttúrusögusafns Bandaríkjanna,
og liefir ritstj. þýtt. Upphaf er þar
að ferðasögu frá Afglianistan eftir
sænska konu, Áróru Nilsson og
nefnist „Flóttinn úr kvennabúr-
inu“.
Sundfjelagið hjelt aðalfund sinn
í fyrrakvöld. Var þar útbýtt reglu-
igerð fyrir róðraræfingar. Kosin
var stjórn: Erlingur Pálsson form.
log meðstjórnendur Valdimar Svein
björnsson, frú Gerda Hanson, Ól-
afur Pálsson og Sigurður Þorkels-
son.
Hrossasýningar. Hjeraðssýning-
ar á hrossum á að halda á Vestur-
landi "frá Hvammsfjarðarbotni að
Ritru. -— Fyrsta sýningin verður
haldin að Leirá þ. 29. maí og sein-
asta sýningin í Kollafjarðarnesi þ.
20. júní. Engar sýningar verða þó
í fsafjarðarsýslunúm. — Theodór
ráðunautur Arnbjörnsson frá Ósi
hefir unjsjón með sýningum þess-
um og l'eggur hann af stað hjeðan
í þeim erindum upp úr helginni.
Gert er ráð fyrir 11 sýningum að
þessu sinni. (FB).
Aðalfundur Ræktunarfjelags
Norðurlands verður lialdinn að
Laugum í Reykjadal, Suður-Þing-
eyjarsýslu, í lok júnímánaðar
Aðalfundur Búnaðarfjelags fs-
lands verður haldinn að Laugum í
Reykjadal, í lok júnímánaðar, að
aflöknum aðalfundi Ræktunarfje-
lags Norðurlands. (FB).
Landnám Hallsteins lieitir lítið
ljóðakver eftir Ásg. H. P. Hraun-
dal og er nýkomið út. Er það lje-
legur kveðskapur, enda er bókin
öll orkt á einum degi, 28. janúar
1929, að því er segir í henni sjálfri.
Óþarfa leikur var það, er nokkr-
ir drengir í Suðurpól höfðu sjer
til ánægju í fyrrakvöld. Þeir tóku
körfu, sem einhver hafði skilið
eftir hjá veginum, settu liana á
vegarbrúnina og röðuðu stórum
steinum frá henni yfir veginn til
þess að stöðva bíla umferð. For-
eldrar þessara barna ætti að líta
eftir því að þau geri þetta ekki
oftar.
Látum oss fara til íslands. Ný-
lega stóð í bresku blaði grein með
þessari fyrirsögn. Var þar frásögn
nm tíðarfarið á íslandi, höfð eft-
ir Taylor skipstjóra á s.s. Chis-
wick, þá nýkomnum hjeðan. Seg-
ir Taylor, að Island sje hinn rjetti
Euðmundur Hamban
flytur í 3. sinn erindi um
í Nýja Bíó sunnudag 26. maí
kl. 4 síðdegis.
Aðgöngumiðar á kr. 1,50 fást- í
Bókaverslunum fsafoldar og Sigf.
Eymundssonar og við innganginn.
Karlmannaiöt,
Regnfrakkar,
Regnkápnr, drengja.
Manchester,
Laugaveg 40. — Sími 894.
Niðurjöfniinarskrá.
Skrá yfir aðalniðnrjöfnun út*
svara í Reykjavík fyrir árið 1929
liggur frammi almenningi til sýn-
is í skrifstofu borgarstjóra, Aust-
urstræti 16, frá 25. ]i. m. til 7.
júní næstkomandi að báðum dög-
um meðtöklum, kl. 10—12 og 1—5
(á laugardögum aðeins kl. 10—-
12).
Kærur yfir útsvörunum skulu
konmar til niðurjöfnunarnefndar,
Hafnarstræti 10, áður en liðinn er
sá tími, er niðurjöfnunarskráin
liggur frammi, eða fyrir kl. 12
síðdegis þann 7. júní.
Gjalddagi á fyrri helmingi út-
svaranna er. 1. júní.
Borgarstjórinn í Reylcjavík,
24. maí 1929.
K. Zimsen.
Aðeins
Laugavegs Apótek,
Lyfjakúðin Iðnun,
hárgreiðslustofur og margir
kaupmenn, hafa hið
Ekta
RosoI-GIycerin
sem eyðir
sprungri húð,
fílapensum og
húðormum.
Varist
eftirlíkingar.
Gætið að nafnið sje rjett.
Aðeins Rósól ekta.
H.f. Efnagerð Reykjaviknr.
Kemisk verksmiðja.
Allskonar
Mrtm.
Vald. Poulsen,
Sfml 24. Klappapstlg 29.