Morgunblaðið - 23.06.1929, Qupperneq 3
M 0 R G U N B L A Ð )
I
Leit að sauðnautum.
Irtnan skamms fer leiðangur hjeðan til austurstrandar
Grænlands til þess að reyna að ná í lifandi sauðnaut.
Hjer í höfninni liggur vjelbát-
nrinn Gotta frá Yestmannaeyjum
og hefir undanfarna daga verið
að útbúa hann þannig, að allir
gátu sjeð, að hann átti að nota
til einhverra stórræða. Enda er
það svo. Bátur þessi á að fara til
austurstrandar Grænlands og er
það erindi þeirra, sem á honum
eru, að freista þess hvort þeir geti
ekki náð í lifandi sauðnaut og
flutt hingað.
Aðalhvatamaður þessa fyrirtæk-
is er Þorsteinn Jónsson kaupmað-
ur frá Seyðisfirði. Hefir hann
leugi liaft áhuga á því að flytja
hjer inn sauðnaut, og mun líklega
vera fyrsti maður lijerlendur, sem
fekk þá hugmynd að það gæti orð-
ið landinú til heilla að flytja sauð-
naut hingað.. Annars er það fje-
lagssltapur, sem nefnist „Eiríkur
rauði“, er kostar förina, og eru
í þeim fjelagsskap ýmsir mætir
menn, þar á meðal Ársæll Arnason
bóksali. Hann verður með í leið-
angrinum til Grænlands, og hefir
Morgunblaðið náð tali af honum
-og spurt hann um hitt og annað
viðvíkjandi þessu fyrirtæki. —
Honum sagðist 'svo frá:
— Eins og kunnugt er samþykti
seinasta Alþing að veita 20 þús.
króna styrk til þess, að flytja
inn lifandi sauðnaut. Fjelagsskap-
ur okkar leitaði til Tryggva Þór-
hallssonar forsætisráðherra og' fór
þess á leit að fá þennan styrk. Var
þetta rjett áður en hanu sigldi.
Við höfðum þegar fengið vil.vrði
fyrir styrknum, með vissum skil-
yrðum. En áður en gengið yrði frá
samningnum um það, kemur skeyti
frá Sveini Björnssyni sendiherra
og var á þessa leið: „Dýrin lík-
legá . fáanleg,“ Verður það varla
skilið á aðra ieið en þá, að danska
ntjórnin hafi boðist til að útvega
þau. Vegna þessa viídi forsætis-
ráðherra ekki ganga frá samning-
um við okkur fyr en hann vissi
nánar um þetta. Lofaði hann að
^íma hingað er hann vissi hvernig-
þessu væri varið', en ennþá hefir
ekkert skeyti komið frá honum
um þetta. En við ætlum nú samt
að brjótast í því að fara vestur
og reyna að ná í nokkur dýr.
Teljum við tækifæri svo gott til
þess núna af mörgum orsökum,
að ekki sje vert að sleppa því.
— Hvert er förinni heitið?
— Norður til Franz Jósefs-fjarð-
•ar, sem er all-langt norðan við
Seoresbysund. Þar ér enn „aímenn-
ingur“ og öllum frjálst að veiða
þar. En einmitt þess vegna er
hætt. við, að sauðnautin gangi til
þurðar, og hver veit hvenær sein-
asta dýrið verður skotið? Vera
má, að þess verði ekki langt að
lúða, og þetta, ásamt ýmsu öðru,
hefir ýtt, undir okkur að ráðast í
þennan leiðangur nú þegar í
sumar.
— Hvernig hugsið þið ykltur að
ná dýrunum?
— Það verður að ráðast þegar
vestur kemur; fyrst er að finna
þau. Annars höfum við með okk-
ur allar hugsanlegar tilfæringar
til þess að handsama þau og koma
þeim til skips. En okkur er sjer-
lega umhugað að ná eigi aðeins í
kálfa, heldur einnig í mæðurnar,
því að hætt er við, að kálfarnir
drepist í höndunum á okkur, eða
verði ekki langlífir hjer, af við-
brigðunum, ef þeir fá ekki að
Kort, er sýnir afstöðu íslands og
Austur-Grænlands.
halda móðurmjólkinni. Við förúm
með dálítið af heyi með okkur,
en svo höfum við með okkur hey-
skaparverkfæri og ætlum að heyja
vestra, ef svo skyldi til takast, að
við næðum í nokkur dýr.
— Hvað getið þið flutt mörg
dýr á bátnum?
— Við ættum að hafa rúm fyrir
10—20 dýr í lestinni, og auðvit-
að reynum við að ná í-eins mörg
og við getum.
— Hvernig eruð þið útbúnir í
þetta ferðalag og hvað búist þið
við að vera lengi?
— Ef alt gengur að óskum, gæt-
um við komið aftur eftir rúman
mánaðar tíma, en við búum okkur
út til raiklu lengri tíma. Við höf-
um t. d. nauðsynlegustu matvæla-
birgðir, svo sem kornmat, til eins
árs, en veiðiskap búumst við við
að fá nógan. Erum við útbúnir til
þess að veiða fisk og skjóta dýr
og fugla. Eða hvað segið þjer um
hana þessa, er hiin ekki nógu
veiðileg? — Og Ársæll bregður á
loft, heljarmikilli skammbyssu,
sem hlaðin er með dynamitskotum
og „dum-dum“ kúlum. — Auk
þ.ess höfum við haglabyssur og
riffla. Olíu tökum við eins mikla
og báturinn getur borið, en til þess
að spara hana sem mést, notum
við segl eftir' því sem hægt er. Það
er því óþarfi að óttast um okk-
ur, þótt, heimkoman dragist nokk-
uð. —
— En hvað gerið þið nú, ef þið
hittið engin sauðnaut?
— Þá svipumst, við eftir ein-
Húsmæður!
BiðjiöJ kaupmanninn sem þjer skiftiö viö um Every Day mjólkina.
Every Day hefir áunniö sjer allra hylli.
Heildsölubirgðir fyrir kaupmenn og kaupfjelög bjá:
O. JOHNSON & KAABER.
A. E. 6. ritvjelin
er framleidd - af stærsta verksmið'jufyrirtæki í Evrópu, er hefir um 80000 manns
í þiónustu sinni.
A. E. G. RITVJELIN
Mod. Nr. 6.
er fullkomnasta og vandaðasta ritvjel, sem framleidd hefir verið. Hún hefir allar
þær fullkomnustu endurbætur, sem þekkjast á öðrum vjelum að viðbættum fjöl-
mörgum kostum, sem eru algjörar nýjunar á sviði ritvjelaiðnaðarins.
NÝTÍSKU RE
IKNIV JELAR.
Q PtglHAt-(*)DHNKP RE1KNIV7ELAR
SAHLABNINRARVJEL s (RARRETT.
Kaupið ekki ritvjel og; ekki reiknivjelar án bess að láta sýna yður fyrst.
A e G
ORGINÁL ODHNER
BARRETT.
HEILDV. RARÐARS RISLASONAR.