Morgunblaðið - 23.06.1929, Page 6
€
Bödtker í miklum mettun. Hefir
hann sjerstaklega gert landi sínu
góðan greiða með útvegun mikils
fjár erlendis, bæði handa hinu
norska ríki, sveitarfjelögum í
Noregi, og handa norskum bönk1-
um. Er«orð á því gert, með hversu
góðum kjörum honum hefir tekist
að útvega slík lán. Hefir hann
með þeirri starfsemi unnið þjóð
sinni stórmikið gagn og styrkt
lánstraust hennar og fjármála-
stöðu alla út á við.
J. Sejersted Bödtker mun nota
komu sína hingað til lands til
þess að ferðast um landið og kynn
ast öllu hjer svo sem tími leyfir,
og verður honum að sjálfsögðu alls
staðar vel tekið.
------<«»;->—--
Kappskákir
Óslóar og Reykjavíkur.
Dómurinn kominn.
íslendingar og Norðmenn
skilja jafnir.
í gær barst forseta Skáksam-
bandsins, Pjetri Zophóníassyni,
skeyti frá Smedal forstjóra og for-
seta Skáksambandsins norska svo-
hljóðandi:
„Sænska skáksambandið hefir
dæmt skákirnar unnar hjá hvítu,
nema jafntefli Jón Guðmundsson
og Martinsen. Skákimar því jafn-
ar (þ. e. a. s. hvorugir unnið).
Oska til hamingju. Smedal.“
Hjer heima var búist við því,
sem versta dóm fyrir íslendinga,
að þeir yrðu jafnir, og hr. Bemdt-
sen ritstjóri „Sehackwárlden“ seg-
ÍL’ hið sama í blaði sínu, en telur
þó ekki ólíklegt, að þær verði
dæmdar íslendingum.
Samkvæmt þessum dómi hafa
uiniið af hálfu íslendinga:
Eggert Gilfer og
’ og Brynjólfur Stefánsson,
ii tapað hafa
Asmimdur Asgeirsson og
Einar Þorvaldsson,
en jafntefli gerðu
Sigurður Jónsson og
•Jón Guðmundsson,
og hefir því hvor aðili fengið 3
vinninga.
fslensku skákmönnunum þykir
fremur hart, að skák Einars slculi
dæmd töpuð, og um skák Jóns, er
var ger jafntefli, má taka það
fram, að skák hans stendur
betur, enda þótt skákin sje dæmd
jafntefli.
■ ——-----------
HnattspymumðtlS.
Valur og Akureyringar jafnir.
í gærkvöldi þreyttu þeir Valur
•og Akureyringar. Veður var kalt
og hvast á hánorðan. Urðu Akur-
eyríngar fyrst að leika á móti
vindi, en vörðust svo vel, að marki
þeirra var aldrei hætta búin. f
seinni hálfleiknum var meiri sókn
af Akureyringa hálfu og skutu
þeir oft vel til marks. En þó fóru
leikar svo, að hvorugir skoruðu
mark.
Olfert Richard
er látinn í Kaupmannahöfn, eftir
uppskurð, 57 ára gamall. Er þar
fallinn frá einn mesti kennimaður
Danmerkur. Með framkomu sinni,
ræðum sínum og innileik sínum
í guðsþjónustu, skipaði hann sjer
aðalssess ineðal presta, og hin fjöl-
mörgu rit hans bera. í senn vott
um afburða hæfileika og einlæg-
an vilja á því að leiða menn til
guðs. Æskulýður Danmerkur
saknar leiðtogans. Hina sjerstöku
afstöðu hans til lærðra og leikra,
skapaði ekki hvað síst hin ötula
framganga hans í stofnun K. F'.
U. M. A unga aldri safnaði hann
ungum mönnum undir merki
Krists og með áhuga og ötulleik
hvatti hann þá til stórræða, og að
forgöngu hans var bygt stærsta
samkomuhús K. F. U. M. á Norð-
urlöndum. Þar var það, að hann
ft kk kr’aft þann og guðmóö í
prjedikanir sínar, að við dauða
hans á landið á bak að sjá sínum
fremsta ræðusnillingi, enda flykt-
ust menn svo í kirkju til hans, að
aldrei var nóg húsrými, og það
skeði ósjaldan, að konungsfjöl-
skyldan hlýddi á messu hjá hon-
um. Orðsins list er hverful, en á-
hrifin og straumhvörfin, sem hann
olli, eru varanleg.
Olfert Richard.
Jafnframt prestsstarfi sínu rak
hann mikla bókmentaiðju, sem í
sinni röð er með því fremsta, er
Danir hafa skapað, og sem í þýð-
ingum hefir farið viða um heim.
Eftir kenniugum hans er víða
farið úti um heim í uppeldi ung-
iiru-a, Fyrirlestrar hans við liá-
skólann voru afar fjölsóttir, og
það er því merkilegra fyrir þá sök,
að hann valdi ekki vísindaefni,
heldur gaf ráð um starf ’prest-
anna. En efnið var hugðnæmt og
flutt af þeim krafti, að áhrifin
munu lengi lifa. Aðstaða hans
gagnvart söfnuði sínum var hin
fegursta, enda hafnaði hann meir
en einum biskupsstól, til þess að
geta þjónað enibætti sínu í Kaup'-
mannahöfn.
Sá er þetta ritar, spurði einu
sinni Olfert Richard, hvaða ritn-
ingarstað honum þætti vænst um.
Hann svaraði, að sjer þætti vænst
um Matteus 2,10, þar sem sagt er
frá vitringunum frá Austurlönd-
um: „En er þeir sáu stjörnuna,
glöddust þeir harla mjög.“ Þetta
er skiljanlegt, vegna þess, að hann
fann, að hann átti sjer leiðar-
stjörnu í lífinu, og að hann leit-
aði sí og æ barnsins í jötunni.
Starfsemi hans byrjaði meðal
barna, og með andríki sínu og
eklheitri trú skapaði hann sjer
söfnuð feðra og mæðra. Hann gat
leýst hið erfiða hlutverk, að safna
hinum hverfula æskulýð nútímans
undir merki Krists, vegna þess að
hann var sjálfur nútímamaður —
MÖRGUNBLAÐIÐ
RECORDS
prove more than Sþeed
Hinn nýi Studebaker’s Erskine Six Club Sedan fyrir 5 menn. — Trje-
hjól og hristingsafnám í hverjum bíl.
Til sannindamerkis um það hvað Erskine s e d a n fer ljett yfir og er
sterkur, er það, að hann ók 1000 mílur á, 984 mínútum, og náði þann-
ig meti þeirra bíla, sem seldir eru fyrir líkt verð.
Þetta opinbera met Erskine Six sannax meira en það að hann sje
hraðskreiður. Það sannar einnig hvað hann er smíðaður úr vönduðu
efni og er vandaður að öllu leyti, enda hefir þetta verið einkenni
Studebaker’s bíla í 77 ár. Það sannar einnig vfirburði hreyfivjelar-
innar. Og vegna alls þessa hafa Studebaker’s bílar náð öllum opin-
berum ameríkskum metum fyrir þol og flýti.
Komið í dag og sjáið með yðar eigiln augum hvað Erskine Six Club
Sedan er framúrskarandi fallegur og skrautlegur. Reynið hann og
þá munuð þjer komast að raun um hvað hann er mjúkur undir og1
hverja yfirburði hann hefir yfir aðra bíla.
Umboðssaíi á ísSandi:
■ > \
EOILL VILHJALMSSON
STUDEBAKER
óhræddur við að leggja inn á nýj-
ar brautir í prjedikunum sínum.
Hann talaði ætíð blátt áfram, ó-
liáður allri hefð í ræðulist, en prje-
dikanir hans voru þrungnar töfra-
krafti, og þótt mál hans væri
blátt áfram, var það þróttmikið
og lipurt, og hann notaði oft
dæmisögur úr daglega lífinu, að
dæmi meistarans frá Nazaret. —
Vegna meðfædds smekks hans, fór
hann aldrei yfir takmörk þau, er
slík venja hlýtur að sétja sjer,
en þeir, sem líktu eftir honum,
urðu að temja sjer aðferð hans
með þjálfun og lærdómi. Þess
vegna varð hann líka að hafa það
á hendi að kenna öðrum prestum.
Hann var alþýðumaður í orðsins
fylsta skilningi. Þess vegna syrgja
hann allir þeir, er nokkur kynni
hafa haft af honum, bæði ungir og
gamlir. Frekar en nokkur prest-
ur getur hann tileinkað sjer orð
guðspjallamannsins: „En er þeir
sáu stjörnuna, glöddust þeir harla
mjög“. Leggi maður þann skiln-
ing í stjörnuna, að hún tákni tak-
mark lífsins, þá hefir hann fylli-
legá náð því takmarki.
p. t. Reykjavík.
Eyvínd Rafn.
IVUDER O F CHAMPIONS
Loitskeytastððvar.
Upppsetningu og viðgerðir annast fljótt og vel.
H.F. RAFMAGN.
HafnarPtræti 18. Sími: 1005.
Ef nalay n RayRtjavikur.
Laugaveg 32 B. — Sími 1300. — Símnefni: Efnalaug.
Jóhannes úr Kötlum, skáld, er
staddur í bænum og dvelur hjer
nokkra daga.
Hreinsar með nýtísku áhöldum og aðferðum allan óhrein
an fatnað og dúka, úr hvaða efni sem er.
Litar upplituð föt, og breytir um lit eftir óskum.
Eykur þægindi! Sparar fje!