Morgunblaðið - 31.08.1929, Síða 2
2
t» n p r; tt V T-? T d H í
)) teimiHI i ÖLSEIN] ((
Höfum til:
Umbúðapappír í rúllum.
Pappírspoka.
Ðinðigarn.
Gúmmíbönd, ýmsar stærðir.
FyrlrUggJandt:
Appelsíunr. Lanknr. Kartöflnr.
Eggert Kristjánsson 5 Co,
Símar 1317 og 1400.
t
Sighvatur Bjarnason
fyrv. bankastjóri.
Fæddur 25. janúar 1859,
Um fótaferðartíma í gærmorg-
un fóru að koma upp flögg í hálfa
stöng hjer um bæinn. Er fram á
morguninn kom var auðsjeð, að
andlát hafði borið að höndum, er
snerti marga bæjarbúa. Eánar voru
upp dregnir á opinberum bygg-
ingum, svo sem stjórnarráðinu
•o. fl.
Sighvatur Bjai’nason fyrverandi
bankastjóri var dáinn.
í fyrradag bar ekki á því, að
hann kendi sjer meins. Gekk hann
um útivið og hafði tal af mörgum
mönnum, eins 'og hann átti vanda
til — því margir áttu jafnan við
hann erindi, enda þótt hann hefði
látið af mörgum þeim störfum, er
hann gegndi, meðan heilsa og
kraftar voru óskertir. í fyrrakvöld
mun hann hafa hugsað sjer fyrir
næsta dagsverki.
En hinn Iangi vinnudagur hans
var á enda. Hann dó í svefni
snemma í gærmorgun.
Æfisaga Sighvats Bjarnasonar
er lesendum þess'a blaðs kunn í öll-
um aðalatriðum — einkum þeim,
er alið hafa aldur siiin hjer í bæn-
um. í Reykjavík var hann fæddur
þ. 25. janúaí 1859, og Reykjávík
var verustaður hans alla æfi; í
Reykjavík var hann sín bernsku-
og uppvaxtarár, kom fátækur 15
■ára á landshöfðingjaskrifstofuna
og fjekk þá þegar traust samverka
manna sinna, er ætíð fylgdi honum
síðan.
Er Landsbankinn var stofnaður
1886, varð hann bankgbókari þar.
Hafði hann það starf á hendi uns
íslandsbanki var stofnaður 1904.
Bankastjóri var hann í íslands-
banka þangað til 1921, að hann
veiktist mjög þungt, og töldu
læknar, að hann þyldi eigi þá á-
reynslu, að taka við bankastjóra-
starfinu aftur.
Um það leyti sem íslandsbanki
var stofnaður, hófst sem kunnugt
er, nýtt tímabil í sögn atvinnuvega
Torra. Voru miklar vonir við þá
Dáinn 30. ágúst 1929.
bankastofnun tengdar meðal þeirra
manna, er höfðu trú á því, að at-
vinnuvegir vorir væru þess rnegn-
ugir að ávaxta aðfengið fje og
það væri þjóð voití til góðs, að
hún fengi rekstursfje mflli handa.
Að Sighvatur Bjarnason var til
þess kjörinn að vera bankastjóri
í hinum nýja banka, sýnir best,
hve rnikið traust var til hans bor-
ið, og í hve miklum metum hann
var.
í þau 16 ár, sem hann vann í
þeim banka, er óhætt að fullyrða,
að á hans herðurn hafi legið mest
af því daglega erfiði, er þurfti
til þess að annast stjórn bank-
ans. Enda afkastaði hann á þeim
árum margfalt meiri vinnu en al-
ment gerist.
Því banlcastjói’nin var ekki það
einasta, sem hann hafði með hönd-
um. Eins og til hans var leitað,
til þess að annast stjórn hins nýja
banka 1904, eins var Óg á hann
kallað til ótal starfa annara. Hann
var i bæjarstjórn, í niourjöfnun-
arnefnd, pg í stjórn fjölmargra
fjelaga, er oflangt yrði hjer upp
að telja, m. a. hjúkrunarfjel. Líkn,
Styrktar- og sjúkrasjóðs verslun-
armanna, í stjórn heilsuhælisfje-
lagsins, er gekst fyrir stofnuix
Vífilstaðahælisins, í stjórn Ekkna-
sjóðs Reykjavíkur o. fl. o. fl.
Hann var einn af fimm stofn-
endum Oddfellowreglunnar hjer
árið 1897, ásamt Birni .Tónssyni
ritstjóra. Var Oddfellowi’eglan hon
um mjög kæi*, og öll þau störf, er
hún hefir hjer unnið til almenn-
ings heilla.
Hjer Terður eigi xæynt að koma
tölu á öll þau mörgu fjelög og
stofnanir, er hann hafði afskifti af
og helgaði krafta sína. En það er
sebnilegt, að enginn maður hjer-
lendur hafi samtímis starfað í jafn
mörgum og margvíslegum fjelög-
um eins og Sighvatur heitinn.
Hjer hefir aðallega verið minst
á þau fjelög, er starfa sem líknar-
og góðgerðafjelög. Var slík starf-
semi öll honum mjög hjartfólgin.
En þá eru ótalin þau atvinnufyr-
irtæki, stór og smá, sem hann var
við riðinn, svo sem h.f. Völund á
sínum tíma, fiskiveiðafjel. fsland
o. fl. o. fl.
í stjórn Verslunarskólans var
hann einnig, og vann að efling
hans á fyrstu árum þeirrar stofn-.
unai*. Og er hjer aðeins skamt
komið þeirri upptalningu, sem
þyrfti, til að fá nokkurt yfirlit
yfir hið fjölbreytta og margþætta
starf, sem eftir þennan sivinnandi
atorkumann liggur.
Hvað var það þá, sem einkendi
þennan mann, sem fyrst og fremst
varð til þess, að fátæka piltinum
| úr Hlíðarhúsum var falin hver
trúnaðarstaðan annari meiri og
ein hin vandasamasta, bankastjórn
ín 1904? Hvers vegna var eftir því
sótt um áratugi hjer í Reykjavík,
að fá hann í stjórn fjelaga, eða
sem endurskoðanda og umsjónar-
mann fyrirtækja? Eftir hinn langa
starfsdag hans eru fjölmörgum
svörin kunn. ,
Frábær samviskusemi, reglu-
semi og árvekni einkendi mann-
inn alla hans daga. Hann lifði til
þess að gera öðrum gagn, vann til
þess að vinna fyrir aðra — og þá
fyrst og fremst fyrir bæjar- og
þjóðfjelagið. Hvert hlutverk, sem
hann tókst á hendur, varð lionum
lijai-tfólgið — srnátt sem stórt.
Hann bókstaflega sinti aldrei um
það, hve hart hann þurfti að ganga
að sjer, til þess að afkasta dags-
vei’kinu, meðan heilsa og kraftar
entust.
Samfara þessum eiginleikum
hans var hann maður vinfastur
með afbrigðxxm. Hver sá, sem á
annað borð eignaðist vináttu hans,
gat vitað, að hann átti þar ávalt
að mæta ástúð og umhyggju. —
Kann sá, er þetta ritar vel unx
það að dæma.
Sighvatur Bjarnason lxafði sjeð
mikil xxmskifti í Rej’kjavíkurbæ —
hann hafði fylgt franxþróuninni
hjer og efnalegixm framförum bæj-
arins flestum öðrunx frernur. Á síð-
ari árum, er hann smátt og smátt
var að losa sig við ýms trúnaðar-
störf, fann hann oft mjög til þess,
að samfara hinum efnislegu fram-
förxxm, höfðu hjer orðið allmiklar
umbreytingar frá því sem áður var
á hugsunarhætti og starfsháttum
manna, er eigi voru til bóta. —
TTonum fanst sínginxi manna vera
að vaxa hjer öllu yfir höfuð, en
áhugi fyrir almenningsheill lúta í
lægra haldí.
Þetta var eðlilegt. Hann hafði
sjálfur bygt líf sitt og tilveru á
umönnun fyrir annara hag. Hann
hafði blátt áfram oft. gleymt sjálf-
um sjer fyrir áhuga. á almenn-
ingsheill. Þessl var einn megin-
þáttur í fari hans.
Vegna þess er æfisaga Sighvats
Bjanxasonar tilvalin leiðbeining
fyrir unga menn, sem áfram vilja
og gagn gera, en í upphafi standa
einmana, með tvær hendxxr tómar.
■Huggun hefði það mátt vera hon-
xxm á efri árum hans, hve dæmi
hans og lífsferill er fagur til eftir-
breytni hinni xxpprennandi kyn-
slóð.
Þann 29. okt. 1886 giftist Sig-
hvatur Ágústu Sigfúsdóttur (Jóns-
soixar frá Undirfelli). Þeim vai’ð
níu barna auðið. Tvö dóu ung.
Tvær dætur mlstu þau fullorðnar,
Þorbjörgu, er gift var Magnúsi
Pjeturssyni bæjai’lækni, og Jakq-
bínu, er gift var Georg Gíslasyni
kaupm. í Vestmannaeyjum. Á. lífi
eru: Emma, gift Jóni Ki’istjáns-
syni lækni, Bjami kaupmaður, Sig-
ríður Trybom“ í Stokkhólmi,
Ágústa, kenslukona á Blönduósi,
og Sigfús, er tekur við vátrygg-
iixgarumboði því, er faðir liaxis
hefir haft.
Frú Lenin segir ráðstjórn-
inni til syndanna.
Madama Kroupskaya, ekkja
Lenins hefir nýverið skrifað rit-
gerð í rússneska tímaritið „Kras-
naya. Ga,zet,a“. Ræðst hún þar
mjög þunglega á ýmsar gerðir
ráðst.jórnarinnar, einkum ákærir
hún harðlega meðferðina. á slcóla-
böi*num. Segir hún að í rússnesk-
um skólum ríki eilíft hatur til
þeirra barna, sem eru afkomendur
borgarastjettanna. Þessi böm fái
hvergi að vera með á skemtunum,
þau sjeu hædd og svívirt hvar sem
þau koma. Vítir frxx Lenin harð-
lega þessa framkomn gasnvart
saklausum bömunum, og segir að
ríkisstjómin sje á glötunarbarmi
ef hxxix ekki bæti ráð sit.t í þessu
efni. —
Margt er það fleira senx frú
Lenin finnur að við ráðstjóraina.
T. d. segist húix hafa komist, að
því, að böm af borgaralegum ætt-
ué fái ekki lánaðar bækur á bóka-
söfnum. „Hvemig hxigsav ráð-
stjórhin sjer að ala xxpp góða
þegna með slíki’i framkomu“, spyr
frú Lenin.
Kínverskir hjúskaparsiðir.
Eyrir nokki’um árxxm giftist xxng
stúlka í Bxxdapest. Kínvei’ja, sem
var þar í borginni er Li-Yenhu
hjet. Var hjónaband þeirra hið ást-
úðlegasta og þau eígnxtðxxst tvö
böm. En nýlega dó maðxxrinn. Kon
an fjekk axinan Kínverja þar í
borginni til þess að tilkynna lát-
ið til ættingja og vina 'austur í
Kína. Og að vörmu spori kemxxr til
konunnar maður er ííkist mjög
Ly-Yen-hu, exxda, var það elsti
bróðir hans. Kvaðst hann vera til
hennar kominn til þess að giftast
henni, svo sem skylda hans væri
sem elsta bróður rnanns hennar.
Konan kærði sig hinsvegar ekkei’t
um að giftast manninnm, en fór
samt með honum t,il Hongkong
til tengdaforeldranna, og er þar í
besta yfirlæti.
Hausiulsala
í „Ninon"
Afsláttnr af öllum kjðlnm
i 3 flaga!
Langardagnr er annar
dagnrinn.
„NINON“,
Anstnrstræti 12.
í dag langardag opið 1 4.
Atvinna.
Piltur, sem hefir leyfi til að
aka bíl, getur fengið fasta at-
vinnu nxx þegar.
Uinsóknir með tilteknum aldri
sendist A. S. í. merkt „B.“
i ÉilsiiÉni
í Austurstræti, sem einnig gæti
verið íbóxðarlierbergi, er til leigu
nú eða 1. október.
A. S. t. vísar á.
Skiftafnndnr
í þrotabúi Ingu Lúders Gísla-
son, Vatnsstíg 3, verður hald-
inn á Bæjarþingsstofunni
rnánudaginn 2. sept. n. k.
kl. 10 f. h., til þess að gera
ráðlstafanir um verslanir
þær, er gjaldþroti rak og
annað, er hag búsins varðar.
Skiftaráðandiun í Reykjavík,
29. ágúst 1929.
Biðrn Þórðarsou.
Margar fallegar gerðir
af gúmmídúkum frá
Leyland & Birmingham
Rubber Co. eru fyrir-
liggjanði hjá
ftwcUdi
— Heyrðxx, karl minn, hvei’nig
stendxxr á því að þú getur talað
fyrst pabbi þinu er mállaus.
— Tja — hvemig stendur á því,
að þú ert rauðhærður, enda þótt
pabbi þinn sje sköllóttur.