Morgunblaðið - 21.09.1929, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.09.1929, Blaðsíða 3
PrnpnbM ■tolnandl: Vllh. Flmen. trt*efandl: Fjelag 1 Reykjaylk. Kltatjörar: Jön KJartan**on. Valtýr Stefánnon. Au*lý*lnga*tjörl: E. Hafbergr. Rkrlfctofa AusturBtrætl S. ■lml nr. 500. AuKlS*lnga*krifstofa nr. 700. Holmailniar: ^ Jön KJartansson nr. 741. Valtýr Stefánsson nr. 1110. E. Hafberg nr. 770. : ÁckrlftaKjald: Innanland* kr. 2.00 á ieaánuöl. nland* kr. 2.50 - ---- »ölu 10 aura ointaklB. Erlendar símfregnir. Khöfn 20. sept. Óeirðir í Aiisturríki. Prá Vínarborg er símað: Deil- nrnar á millli sósíalista og fas- eista í Austurríki, svo kallaðra Heimwehrsmanna, ágerast stöðugt. Heimwehrsmenn heimta, að breyt- ing verði gerð á stjórnarfarinu, sem fari m. a. í þá átt að auka "vald ríkisforsetans. Afornia Heim- wehrsmenn stórfeldar kröfugöng- ur 29. sept. Óttast margir, að þeir muni gera tilraun til þess þá, að koma af stað byltingu. Sósíalistar -segjast vera staðráðnir í að vernda stjórnarskipunarlögin. Ríkisstjómin kveðst vera reiðu- búin til þess að koma í veg fyrir byltingartilraunir, en telur hins- vegar nauðsyn bera til þess, vegna Heimwehrsmanna, að flýta fyrir endurskoðun stjórnarskipunarlag- nnna. Norska skipið ;sem sökk fyrir Austfjörðum Nánari fregnir. Við viíjum vekja athygii allra á því, að við höfum nú fengið miklar birgðir af nýjum vörunt og eigum enn von á ýmsu með næstu skipum. Vershinin mun því eftirleiðis ávalt verða mjög vel birg, og viljum við til dæmis nefna eftirtaldar vörur, sem upp hafa verið teknar síðustu daga: Kvennkápur í stóru úrvali Kvennkjólar frá kr. 15.85. Samkvæmiskjólar, f jölbreytt úrval Regnkápur á fullorðna, og böm Regnslár fyrir börn, í mörgum litum. Golftreyjur m. kraga, fyrir fullorðna og börn Tricotine nærfatnaður Náttkjólar Náttföt Silkisokkar Isgarnssokkar Ullarsokkar Dívanteppi Borðteppi Skinnkragar Skinnkantar Silkihálsklútar, fjölbreytt úrval. Káputau, Kjólatau, stórt úrval, Peysufataklæði 4 tegundir Peysufatasilki Silkiflauel Crepe du Chine, m. teg. og litir Crepe Georgette Crepe Satin Flauel, margar teg., einl. og misl. Morgunkjólaefni Tvisttau Flonell margar tegundir Ljereft einbr. og tvíbr. Undirsængurdúkur Yfirsængurdúkur, blár, bleikur og rauður Rekkjuvoðir Rúmteppi o. m. m. fl. VERSLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST, VÖRURNAR BESTAR EN VERÐIÐ LÆGST. Verslunin Egill Jacobsen ******************••••••••••••••••••••••••••••••••••••»••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• (Einkaskeyti til Mbl.) Seyðisfirði, 20. sept. Norska skipið sem sökk fyrir ntan Glettinganes var síldveiði- skip, sem hjet „Defender^* (ekki ,,Norman“) og var frá Hauga- sundi. Var skipið fullfermt af síld. Lagði það á stað hjeðan frá Seyðisfirði á þriðjudagskvöld, en hrepti afspyrnurok um nóttina svo að leggja varð því til. Er rokið ;Stóð sem hæst hrotnaði stór-„gaff- allinn“. Undir morguninn lægði veðrið, og ætlaði vjelamaður þá að setja mótorinn af staf, en er hann kom í vjelarúmið, var þar mikill sjór. Kom síðan brátt í ljós, :að óstöðvandi leki var kominn að skipinu. Skipshöfnin, átta manns, fór í skipsbátinn, en skipið söklt >eftir tæpar tvær klukkustundir. Var þetta nm 50 sjómílur undan 'Glettinganesi. Bátverjar liittu nú línuból og- lögðust við það. Síðari hluta miðvikudagsins gáfu þeir neyðarmerki með púðnrsprengjum. Enskur línuveiðari „Tubal Caine“ átti línuna og var við hinn enda hennar. Heyrðust skothvellirnir þangað og kom línuveiðarinn brátt og bjargaði mönnunum og flutti til Seyðisfjarðar. Barði Guðmundsson hefir fyrir nokkru lokið magisterprófi í sögu •við Kaupmannahafnarháskóla. ------------------------- Samfylkingiu gegn sósialistum Sennilega eru þeir fáir í hóp íslenskra bænda, sem af sann- færingu fylgja stefnu sósíalista. Þó eru enn æði margir bændur, sem við alþingiskosningar greiða þessari stefnu atkvæði. — Þessir menn hafa vilst inn á ranga hraut í stjórnmálum, vegna þess, að þeir hafa valið sjer til forystn menn, sem eru grímuklaéddir sósíalistar. Höfuðstefnurnar í stjórnmálum hjer á landi eru aðeins tvær. Ann- arsvegar er sósíalistastefnan eða þjóðnýtingarstefnan. Hún vill ger- breyta þjóðskipulaginu. Vill svifta einstaklinga umraðarjetti allra framleiðslutækja. Bondinn má ekki eiga jörðina, sem hann býr á; kanpmaðurinn eða kaupfjelagið má ekki eiga verslunina; xitgerð- armaðurinn má ekki eiga skipið, sem hann gerir út o. s. frv. Ríkið á að eiga og starfrækja allan bú- skap, verslun og útgerð. Einstak- lingarnir eiga að vera þjónar rílc- isins, og verður því athafnafrelsi þeirra háð margskonar takmörk- nm. — Hin ráðandi stefnan í stjórn- málum er stefna Sjálfstæðisflokks- ins. Hann vill vernda núverandi þ jóðskipulag, sem reist er á grund- velli atvinnu- og persónufrelsis. Sjálfstæðisflokkurinn vill vernda atvinnufrelsi einstaklinganna og persónufrelsi gegn kúgunarstefnn sósíalista. Sósíalistastefnan fer nú með völdin hjer í landi. Þó er langt írá, að valdhafamir hafi meiri hluta kjósenda að baki sjer eða sinni stefnu. Með brögðum hrifs- uðu þeir völdin í sínar hendur. Þeir bændur, sem í blindni fylgdn sósíalistastefnunni við síð- ustu kosningar munu nú farnir að sjá hvaða óhappaverk þeir nnnn. Þingsaga síðustu ‘veggja ára ætti að hafa vakið þá af svefni. Ef ekki, þá ætti stjórn- arfarið í landinu að hafa vakið þá. Varla hafa bændur gleymt þing- mannsráninu í Gullbringu- og Kjósarsýsln? Muna ættu þeir og hina. gengdarlausu sóyn á rikisfje á öllum sviðum. Ríkissjóður er notaður sem einkasjóður stjórnar- klíkunnar. Nauðsynlegar fram- kvæmdir í sveitum verða að bíða, vegna þess að valdhafarnir þurfa að nota ríkissjóðinn til bitlinga- og beinagjafa handa vikaliprum flokkssnápum. Trúnaðarstöður og emhætti fá aðeins jáhræður klík- unnar. Saklausir menn eru ofsóttir og svívirtir og frá embætttim flæmdir. Ný embætti eru stofnuð, ef þau sem fyrir eru nægja ekki handa hinnm mörgu, sem stjórnin hefir lofað bita. Ríldssjóður er látinn jafna kaup deilur við útgérðina. Hann verður að greiða hundruð þúsunda til þess að forsprakkar sósíalista fái sínar kaupkröfur í gegn. Bændur verða að taka afleiðingunum, með hækk- andi kaupgreiðslu. Sveitirnar tæmast smám saman, uns þeim hefir blætt út. Þannig eru spor núverandi vald- hafa. — Þau hræða. Með sameining íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins var mynd uð ein samfylking gegn öfga og byltingastefnu sósíalista Með þeirri samfylking rís Sjálfstæðisflokkur- mn nýi. Flokksblöð stjórnarinnar hamast gegn Sjálfstæðisflokknum. Þau f'inna, að Sjálfstæðisflokkurinn beinir fyrst og fremst áhlaupinn gegn sameiginlegu vígi stjórnar- flokkanna — sósíalistavíginu. Sósíalistastefnan, eins og hún er rekin hjer, er sett til höfuðs fram- leiðendum í landinu. En aðal fram- leiðendur eru bændur og atvinnu- xekendur í kaupstöðum. Því berj- ast þessir menn banaspjótum? Því standa ekki .adlir þessir menn sam- an og mynda eina samfelda brjóst- fjdking gegn ofbeldisstefnu sósíal- ista? Atvinnurekendur í kaupstöðum hafa fyrir löngu skilið sína köllnn í þessu efni; einnig margir bænd- nr, en ekki allir. Bændnr á þingi hafa gengið í lið með sósíalistnm og svift síldar- titgerðarmenn umráðarjetti sinnar framleiðslu. Því gera þeir þettaf Því verja þeir ekki eignar- og um- láðarjett útgerðarmannsins þegar á hann er ráðist af ofstækiéfull- um byltingarmönnum ? Bráðum kemur röðin að ykkur sjálfuih; bændur góðir. Hvað ætlið þið þá að gera ? Hvað ætlið þið að gera, þegar taka á af ykkur fram- leiðslutækin, jarðirnar og búin? Æitlið þið að ganga í lið með sósí- alistum, eða ætlið þið að verja eignarrjett ykkar? Þetta verður hver einasti bóndi að hafa í huga, áður en hann leyf- ir þingfulltrúa sínum að fara eign- srránsherferð með sósíalistum, gegn framleiðendum landsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.