Morgunblaðið - 21.09.1929, Síða 4
I
4
ftf O R G ( N H * A fM f>
Kjötsalt og smjörsalt
í pokum. — Borðsalt í pökkum, Te (Bue cross) 2 tegundir.
Matarlím í y2 kg. pk.
Heililv. Garðars fiíslasonar.
!□
Ruglýsingadagbök
<
ViðskiftL
>
Jeg undirritaSur tek hesta í
liaustgöngu. Magnús Þórðarson,
Móum, Kjalarnesi.
Vetrarkápur eru komnar. —
Bankastræti 6, 2. hæð.
Dagbúk.
Veðrið (í gær kl. 5): Lægðin við
V-strönd íslands virðist nú fara
vaxandi og hreyfast hraðar austur
eftir. Verður hún sennilega komin
NA-fyrir land á morgun og verður
þá orðin V eða NV um alt land.
Klukkan fimm í gærkvöldi var
byrjað að rigna á SV-landi og er
sennilegt að regnið hreiðist um
mestan hluta landsins í nótt. Hiti
var víðast 6—7 stig. ,
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
V og NV-átt, stundum allhvast og
skúrir.
Athugið! Karlmannafatabúðin,
Hafnarstræti 18, hefir fallega ný-
komana hatta, enskar húfur, sokka,
uianehettskyrtur, flibba, vinnuföt,
vasaklúta, kakiskyrtur o. fl. Að-
eins vandaðar vörur.
Ljósmyudastofa mín er flutt í
Lækjargötu 2 (áður Mensa). Opin
virka daga 10—12 og 1—7. Helgi-
daga 1—4. Sími 1980. Tek myndir
á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Sigurður Guðmundsson.
Húsnæði.
Stofa með eldunarplássi óskast
strax, handa tveimur einhleypum.
Skilvís greiðsla. Tilboð merkt:
„Skilvís1 ‘, leggist inn á A. S. 1.
Vinna.
Duglegur og reglusamur bílstjóri
getur fengið atvinnu nú þegar. —
Umsókn merkt „Vörubíll”, sendist
A. S. í. fyrir 23. þ. m.
Röskan sendisvein vantar nú
þegar. Verslunin Bjöminni, Berg-
staðastræti 35.
Egta gull plaque úr
nr. 370. Armbandsúr handa
karlmönnum. Ankerverk með
steinum. Sjerstaklega gott.
Pallegt skinnartnband. Pæst
einnig með lýsandi töluskífu.
Kostar kr. 10.85. Sendist til
fslands með eftirkröfu.
Merkur Handelskompani A.S.
Oslo, Norge.
Hef fyrirliggjandi:
Rúgmjöl í 100 og 50 kg. sk.
Hveiti fl. teg.
do... í 5 kg. sk. ,Snowball‘
Hænsnafóður „Kraft“
Kjúklingafóður „Kvik“
Kartöflur, danskar
Bygg og hafrar.
C. Behrens, sfmi 21.
Jóhann Scheving flytur erindi í
Varðarhúsinu í kvöld kl. 8V2, um
stjórnmálastefnurnar þrjár.
Bifreiðastæði. Lögreglustjóri hef-
ir auglýst, að frá 1. nóvember
rnuni ákvæðum lögreglusamþykt-
arinnar nýju framfylgt stranglega,
hvað snertir stöðu bifreiða á göt-
um. Mælir svo fyrir, að bifreiðum
eða öðrum farartækjum skuli ekki
heimilt að standa á götum bæj-
arins, nema verið sje að ferma
þau eða afferma. Bifreiðastæði
hafa verið ákveðin, og mnn fram-
vegis engin bifreið skrásett nema
eigandi gefi upplýsingar um það,
hvaða geymslupláss hann hafi fyr-
ir bifreiðina.
Mr. Vout Peters Iýsti skygnifyr-
irburðum á fundi S. R. P. í. í
gærkvöldi. Hann hefir þegar hald-
ið nokkrar einkasamkomur og
ntunu færri komast en vilja á þær.
Aðsókn að fundinum í gærkvöldi
var ekki góð, en þar hefir e. t. v.
slæmt veður ráðið nokkru um.
Sjómannastofan. Samkoman á
sunnudagskvöld fjell niður. —
Mánudagskvöld klukkan 8y2 verð-
ur samkoma.
Lárus Jónsson læknir frá Haga
er sestur að hjer í bænum. Hann
hefir undanfarin trö ár dvalið
erlendis, og aðallega lagt stund
á tauga- og geðsjúkdóma. Lækn-
isstofa hans er í Þingholtsstræti
21 (sbr. auglýsingu hjer í blaðinu
i dag).
Knattspyraumót HI. flokks hófst
í gær kl. 3. Keptu K. R. og Pram
og íauk þeim leik þannig, að K.
R. vann með 5:0. Síðan keptu
Víkingur og Valur og vann Valur
með 2:1.
Úrslit knattspyrnumóts II. fl.
bíða til sunnudags.
800 grömm var kartafla, er
Morgunblaðinu barst í gær. Er
hún úr garði Magnúsar Bryn-
jólfssonar, Dysjum í Garðahverfi.
Steinþór Sigurðsson, sonur Sig-
urðar Jónssonar barnaskólastjóra,
tekur magisterpróf í stjörnufræði
og eðlisfræði í haust. Að afloknu
prófi er hann ráðinn náttúrufræði-
Lítla
drottningin,
barnasaga meö 14 ágæt-
um myndum, Isl. þfbing
eftir fsak Jónss. kennara.
Gefið bömum yðar
þessa ágætu bók!
kennari við Gagnfræðaskólann á
Akureyri, í stað Pálma Hannes-
sonar.
Málningu Dómkirkjunnar nú
lokið pg verða messur fluttar þar
á morgun.
f dönskum blöðum var um síð-
ustu mánaðamót gert mikið veður
út af því, að danska fánanum hafi
verið óvirðing sýnd hjer í Reykja-
vík. Pregn þessi kom fyrst fram í
Svendborg Amtstidende. Þar var
frá því sagt, að danski fáninn hefði
verið dreginn við hún á íþrótta-
vellinum hjer í Reykjavík, en menn
hefðu komið þar að og dregið hann
niður og sparkað á hann. Dönsbu
biöðin spurðust fyrir um þetta hjá
stjórninni og Sveini Björnssyni
sendiherra. Var birt yfirlýsing um
það frá Sveini, að menn hjer í
Reykjavík, eins og rjett er, hefðu
ekkert um þetta heyrt og fregnin
því gripin úr lausu lofti.
Stefán Þorvarðsson lögfræðing-
ur er fyrir nokkru kominn heim.
Hefir hann verið víða í þjónustu
utanríkisráðuneytisins danska, þar
á meðal í Montreal í Kanada, þar
sem Böggild, sem einu sinni var
sendiherra hjer, er sendiherra. —
Stefán hefir verið ráðinn sem ráðu-
nautur forsætisráðherra í utanrík-
ismálum.
Nýir kaupendur að Morgrmblað-
inu fá blaðið ókeypis til næstkom-
andi mánaðamóta.
„Eini umsækjandinn, sem var
sjálfsagður' ‘ hlaut rektorsembætt-
ið, segir Alþýðublaðið í gær. —
Eklcert minnist. blaðið á, hvaða
eiginleikar það eru í fari Pálma
Hannessonar, sem geri það að
verkum, að hann einn „var sjálf-
sagður“ í embættið. Væri æskilegt
ef þetta málgagn stjórnarinnar
og ranglætisins vildi skýra þetta
nánar. — Sennilega er það kom-
munista-kaffið á Akureyri, sem
hjer hefir ráðið úrslitum hjá Al-
þýðublaðinu á sama hátt og hjá
Hriflu-Tónasi.
Hlutaveltu heldur glímufjelagið
„Ármann” í íþróttahúsi K. R. á
morgnn. Verða þar margir eiguleg-
ir drættir, svo sem reiðhestur (8
vetra, töltari), farmiðar til út-
Janda, matvæli, kol, eldavjel, raf-
magnsvjel o. m. fl. Hlutaveltan
hefst kl. 2 e. h.
Meðal gesta í bænum eru Sig-
urður Sigurðsson sýslumaður og
Ari Arnalds bæjarfógeti.
Sigurjón Guðjónsson eand. theol.
frá Vatnsdal er að gefa út Ijóða-
bók, sem „Ský" heitir; mun hún
koma á markaðinn um helgma.
Er þetta fyrsta ljóðabók Sigur-
jóns, en birst hafa eftir hann ein-
stök kvæði m. a. hjer í blaðinu.
Eggert Stefánsson söngvari held
ur söngskemtun á morgun í Gamla
Bíó. Er það nýjung, að hann hefir
aðeins íslensk lög á söngskránni,
og er líklegt, að sii tilbreytni verði
til þess að aðsókri verði að söng-
skemt.un þessari.
Messur á morgun: í Dómkirkj-
unni klukkan 11, síra Bjami Jóns-
son; klukkan 5 síra Friðrik Hall-
grímsson.
1 Fríkirkjunni klukkan 5, síra
Árni Sigurðsson.
Ný bók. í næstu viku er von
á nýrri bók á markaðinn. Heitir
hún „Andi hinna óbornu“ og er
tileinkuð foreldrum komandi kyn-
slóðar. Bókina hefir Svava Þór-
hallsdóttir frá Hvanneyri þýtt úr
KI. 10 f. h.
og kl. 3 e.h.
ierð anstnr 1 Fljótshlíð
alla daga.
Afgreiðslusímar 715 og 716.
BUreiðastöð
Reykjaviknr.
Nýtt.
lifur, hjörtu, nýru, kjöt,
gulrófur, Skagakartöflur
Kjötbúðin Von.
Afar ðdýrt.
Nýtt dilkakjöt, Kartöflur 15
aura % kg., Mjólkurostur 75 aura,
S' eskjur 50 aura, Rúsínur 75 aura,
Hveiti (Alexandra) 25 aura., Hrís
grjon 25 aura, Haframjöl 25 aura
Kartöflumjöl 35 aura
Versl. Fíllinn.
Laugaveg 79. — Simi 1551.
S. lóhannesdóttir,
Auefturetiwtl 14.
Skólaföt
Matrósaföt
Matrósafrakkar
Unglingaföt
Unglingafrakkar
mikið og gott úrval í
sofffobúð.
Ef þjer viljið aka
í góðum bíl með góðum bílstjóra,
þá ættuð þjer að koma á bifreiða-
stöðina, sem Sæberg hafði áSur, á
bak við Hótel Heklu, eða hringja í
síma 2064.
Bílstjórar eru: Þórmundur Gunn
laugsson, Björn Stefánsson, Karl
Magnússon og Helgi Jónsson.
Leynðaröómar
Parísarborgar
Viðburðarik og spennandi saga
með 200 myndum.
Tekið á móti áskrifendum á af-
greiðslu Morgunblaðsins.
ensku, og er hún eftir sömu höf-
unda og bókin „Vaknið“, er kom
út í fyrra.
Plugið. Veiðibjallan flaug í gær-
morgun til ísafjarðar og Stykkis-
hólms og kom aftur nm sex-leytið.
— í dag verður farið til Vest-
mannaeyja, ef veður' leyfir og síð-
an nokkur hringflug. Nú fer að
verða hver síðastur að komast upp
í loftið, því ekki verður flogið
mikið eftir helgina. Verður þá
byrjað að taka vjelina í sundnr.
Silkiklntar
Og
Hyrnnr.
Nýkomið mjög smekklegt
úrvaL
Vörnhnsið
Slffmenn l
Það er allra álit, að smekk-
legustn og bestu fötin, saum-
uð eftir máli, sjeu frá Guðm.
B. Vikar, Laugaveg 21. —
Ábyrst að fötin fari vel. Af-
greidd á 2—3 dögum.
Guðm. B. Vikar
Laugaveg 21. Sími 658.
íslenskar
f .
gnlrófnr
kr..6,00 pokiun.
TIRÍMNDt
Langaveg 63. — Sími 2393
Nýkomið
ijölbreytt nrval
ai skinnnm og skinn>
krðgnm á kápnr.
Verslunin
Egill jacobsen.
Hin stöðugt vaxandi sal*
,Bermaline‘ brauða er best*
aönnunin fyrir gæðum þeirra
—• Ef þjer eruð ekki þegar
Bermaline-neytandi, þá byrj-
ið í dag.
i i
nnntóbak
er best.