Morgunblaðið - 20.12.1929, Page 5
Föstudag 20. des. 1929.
5
4tolD»ndl: Vllh. Flnaen.
B*.*»tnndi. Fjelu* 1 Reyk3»Tlk.
WSíjtUðrar: Jön Kjartansaon.
ValtjT Stefáneeon.
a.n*lý(ineajtjórl: H. Hafber*.
íkrifatoía Auaturstrœtl S.
flfntl nr. 500.
Ásjtl^dngaakrlfatofa nr. 700.
SaimastKar:
Jön Kjartansaon nr. 741.
ValtJ-r Stef&nsson nr. Uí:).
B. Hafber* nr. 770.
£*krifta*Jsld:
Innanlands kr. Í.00 á sa&nuOl,
nlands kr. Í.60 - ---
sölu 10 aura elntskiS
Erlendar símfregnlr.
FB. 19. des.
MacDonald-stjórnin í bobba..
Frá London er símað: Atkv.-
greiðsla um áður umgetið kola-
frumvarp stjórnarinnar ferfram
í neðrimálstofunni í dag. Ihalds-
menn hafa ákveðið að greiða
atkvæði ,á móti frv. Frjáls-
lyndir samþyktu á flokksfundi
í gær að greiða einnig atkvæði
á móti frv. nema stjórnin fjell-
ist á kröfur frjálslyndra.
ófyrírsjáanlegt er ihvernjg
atkv.greiðslan fer, en undir úr-
slitum hennar er komið hvort
MacDonaldstjórnin fer áfram
með völd eða ekki.
Skip ferst.
Skipið Norwich City fórst ný-
lega í Kyrrahajfinu. Björgunar-
bátnum hvolfdi. Hákarlar rjeð-
ust á skipshöfnina. Sex skips-
menn urðu hákörlunum að bráð.
Hinir náðu Iandi í óbygðri eyju.
Norskt skip sá neyðarmerki
þeirra og bjargaði þeim.
Frá Spáni.
Frá Berlín er símað: Ágrein-
ingur milli Rivera og Spánar-
konungs virðist fara vaxandi.
Rivera kveðst hafa fallist á á-
formaða breytingu á stjórnar-
fari landsins, en kveðst þó ekki
vilja fara frá völdum. Hinsveg-
ar er fullyrt, að Spánarkon-
ungur og merkir stjórnmála-
menn á Spáni álíti stjórnar-
skifti nauðsynleg, áður en áform
aðar þingkosningar fara fram.
Heimsmet í langflugi.
Frá París er símað: Frakkneski
flugmaðurinn Costes hefir flogið
hvíldarlaust 81 þús. kílómetra og
sett heimsmet í langflugi.
Fátakraoiálifi
Landið eitt framfærsluhjerað.
Á fundi bæjarlaganefndar þ.
17. des. var lagt til að bæjar-
stjórn samþykti svolátandi
áskorun til Alþingis.
Bæjarstjórnin skorar á Al-
þingi að breyta þegar á næsta
þingi fátækralögunum í þá átt,
að landið verði alt eitt fram-
færsluhjerað og að afnumin
verði ákvæðin um afturkræfan
og óafturkrsefan styrk, enda
jafnframt numið úr stjórnar-
skránni ákvæðið um að þeginn
fátækrastyrkur svifti þiggjanda
kosningarrjetti.
Var samþykt með samhljóða
atkvæðum á bæjarstjórnarfundi
í gær, að senda Alþini áskorun
þessa.
Útvarpsfriettir.
Kommúnistar í Berlín.
í kvöld kemur hin nýkomna
bæjarstjórn saman á fund. —
Vegna þess hve kommúnistar
borgarinnar Ijetu ófriðlega á
dögunum, býst lögreglan við
því að þeir muni aftur fara á
stjá nú. Öflugur lögregluvörð-
ur er því í næstu götum um-
hverfis ráðhúsið, og inni í ráð-
húsinu sjálfu.
Tveir flugmenn farast.
Tveir enskir flugmenn —■
Williams og Jenkins — ætl-
uðu að þreyta langflug frá
Englandi til Suður-fríku og
setja með því heimsmet. En
sunnanvið Tunis fjell flugvjel-
in úr háa lofti og lenti í skógi.
Flugvjelin mölbrotnaði, og flug
mennrnir limlestust. Var eigi
lífsmark með þem er að var
komið.
Franskir flugmenn taldir af.
Fjórir franskir flugmenn
flugu suður yfir ’Afríku. Hefir
eigi spurst til þerra síðan 15.
þ. m. Er talið díklegt, að þeir
hafi farist. Leiðangur hefir ver-
ið gerður út til að leita þeirra.
Höfnin í Þórshöfn vígð.
Vígslifathöfn fór fram við
hina nýbygðu höfn í Þórshöfn í
Færeyjum í gær. Skip Færey-
inga, Tjaldur, lá þar við hafn-
argarðinn. Formaður bæjarstj.
í Færeyjum hjelt ræðu. Flugeld-
um var skotið. Síðan haldið sam-
sæti í samkomuhúsi bæjarins.
Harðstjórn fascista.
Á fulltrúafundi facssta í
Róm var samþykt ávarp til
allra flokksmannanna, þess efn-
is, að allir þeir, sem teldu sig
til flokksns, en fylgdu honum
ekki fullkomlega og hlýddu eigi
fyrirmælum flokksstjórnarinnar
umsvifalaust, skyldu tafar-
laust segja sig úr flokknum.
Fullkominn flokksagi sje ófrá-
víkjanleg nauðsyn í baráttunni
fyrir velferð fósturjarðarinnar.
Kosningablað
Tíma-klíkunnar.
Undanfarna daga hafa nokkr
ir aðdáendur Tíma-klíkunnar
verið á þönum um allan bæ til
þess að safna meðmælendum
að lista þeim, er klíkan ætlar
að bera fram við næstu bæjar-
stjórnarkosningar, með Her-
manni Jónassyni lögreglustjóra
í efsta sæti. Meðal smalanna
voru Pjetur M. Bjarnarson eft-
irlitsmaður vjela og verksmiðja,
Eyjólfur Kolbeins, Bygg-garði,
allir þjónar Sambandsins og
nokkrir útvaldir kommúnistar,
sem Jónas frá Hriflu hafði lag!
til.
Þegar smalarnir höfðu erfið-
að í marga daga, voru um 180
nöfn komin á meðmælendalist-
ann. Fleiri fengust ekki, og var
þó víða lagt fast að fólki. Nokk-
uð af nöfnunum voru fengin að
láni hjá sósialistum — til bráða-
birgða.
Var nú listinn lagður fram.
Svo kom Tíminn og sagði frá
Jðlapifitnr:
Heims um ból. í Betlehem er barn oss fætt. I dag er glatt í döprum hjörtum. Á hendur
fel þú honum. Vor guð er horg á bjargi traust. Lofið vorn drottin. Friður á jörðu. Hin feg-
ursta rósin er fundjn. Sjá þann hinu mikla flokk. Jeg lifi og jeg veit. Af himnum ófan boðskap
ber. Nú gjalla klukltur. Signuð skín rjettlætissólin. Fögur er foldin. Alfaðir ræður. Dýrð sje
guði í liæstum hæðam. Faðir andanna.
Öll lögin, sem SIG. SKAGFIÉLD hefir sungið, fást eingöngu hjá okkur og útsölumanni
Hljóðfærahússins í Hafnarfirði, V. Long.
Hljóðf ærahúsið.
Höfum fengið stórt úrval af
WOLFF’S vindlum í mjög
skrautlegum kössum.
í heildsölu fyrir kaupmenn
og kaupf jelög.
í íiiseð § Bernhöíí.
Símar 2090 & 1609.
öllum þeim ósköpum, sem Her-
mann átti að gera í bæjarstjórn-
inni. Hefir verið sagt frá því
hjer í blaðinu.
Og í gær kemur kosningablað
lögreglustjórans; ,',Ingólfur“
heitir blaðið, en ætti að heita
„Litli Hermann". Þar er prent-
aður upp boðskapur Tímans, og
ýmsu bætt við. Viðbótin jer
skemtileg. Eftir að hafa heimtað
öll lífsins gæði handa Reykvík-
ingum — gæði sem myndu kosta
miljónir — þá kemur rúsínan:
að gæta hins ítrasta hófs í á-
lagningu útsvara á bæjarbúa!
Þetta minnir á þingmálafundinn
fræga í Árnesþingi um árið, þar
sem alt var heimtað handa Ár-
nesingum: vegir, brýr og símar,
— cn samt skyldi Alþingi gæta
ítrustu sparsemi í hvívetna.
Eins á Hermann að fara að,
ef hann kemst í bæjarstjórn
Reykjavíkur. Hann á að heimta
ýmsar framkvæmdir, sem kosta
miljónir og — hann á að skera
af útsvörum borgaranna!
Altaf er Tíma-klíkan sjálfri
sjer lík í röksemdafærslunni.
Heiðraðir uiðskiftauinlr
ern vinsamlega beðnir að senda Jóla-
pantanir sínar sem iyrst.
Matarverslnn
Tómasar Jónssonar.
Sími 212.
Talið við okknr
ef þið ætlið að kanpa
H.f. Húsgagnau.uíð Dómkirkjuna
Stærsta nrval ai hnsgðgnnm í
bænnm og ódýrast.
Baöhúsið.
Eins og að undanförnu verðnr Báðhúsið opið til kl. 12 á mið-
nætti laugardaginn 21. desember og piánudaglnn 23.
Á aðfangadag verður opið tií kl. 2 e. h.
Jólapottar Hjálpræðishersins. —
Ne'mendur nokkurra skóla hjer í
bænum hafa heitið Hjálpræðishern-
um aðstoð sinni við söfnun í jóla-
pottana. Nemendur Kennaraskól-
ans hjeldu vörð við pottana tvo
daga, í gær stóðu nemendur Sam-
vinnuskólans vörð og aftur í dag,
og neme'ndur Vjelstjóraskólans
munu standa vörð allan sunnudag-
inn.
FramhamstUDdur
skuldheimtumanna Guðm. Helga Ólafssonar kaupm. f
Keflavík verður haldinn í Kaupþingssalnum í dag (föstu-
dag) kl. 5 e. h.
Greiðslutilboð kemur fram á fundinum og eru skuld-
heimtumenn beðnir að fjölmenna.
Láras Jóbannessou.