Morgunblaðið - 25.02.1930, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.02.1930, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ íslandsbankamálið. Útdráttnr nr ræðn Magnúsar Jónssonar á Varðarfnndi. Á þriðjudagskv. s. 1. var haldinn fundur í landsmálafjel. „Verði“. Á fundi þe'ssum flutti Magnús Jónsson alþm. langa og ítarlega ræðu um Islandsbankamálið. Orsakir stöðvunarinnar. Eftir að ræðumaður hafði lýst því, hve mikla og óvenjulega at- hygli mál þetta hefði vakið innan þings og utan, skýrði hann frá því .hverjar hefðu verið hinar beinu orsakir þess, að bankanum var lok- ■að. Hafa einkum verið nefndar tvær orsakir: 1. að Landsbankinn dró að sjer hendina um víxlaendur kaup og 2. að Privatbankinn orsak aði verðfall á hlutabrjefum ís- landsbanka og óróa um hann eT- lendis með því að segja upp láni sínu. En dýpri og varanlegri or- sakir lokunarinnar sjeu þó eldri <og alvarlegri. Það eru töp bankans frá árunum fyrir 1921, sem með- fram orsökuðust af ofmikiíli seðla- útgáfu, ófullnægjandi aðgerðir þingsins 1921,-þar sem bankanum var veitt dýrt lán i stað hluta- kaupa og honum gert að' skyldu uð draga inn seðla sína. Rakti ræðumaður sögu beggja bankanna þiessi árin og afskifti þings af þe'im. Um hag bankans nú er ekkert kunnugt nema niðurstaðan af bráðabirgðarannsókn Jak. Möllers og Pjeturs Magnússonar, er leiddi til þeirrar niðurstöðu að bank- inn ætti fyrir skuldum, og svo sú skoðun kunnugra manna, að greiðslustöðvunin stafaði ekki af f>ví að bankinn væri í raun og veru lakar staddur nú en verið hefð'i undanfarin ár. Hvaið á að gera? Úr því að bankanum hefir eitt sinn verið lokað, má e'kki gera sjer neinar tyllivonir um það, að hægt sje að sleppa skaðlaus frá því máli. Nú er aðeins að finna þá leiðina, sem hættuminnst er. Maður sem hefir fengið x sig skæð- an sjúkdóm sleppur ekki skað'laust. Það er -ekki æskilegt fyrir hann að þurfa að fara á sjúkrahús, fella niður starf" sitt um tíma, borga stórfje' fyrir o. s„ frv. En hann velur það frekar en bana eða verri sjúkleik. Bankinn verður ekki endurreist- rnr nema með miklu átaki. Lokun hans hefiF nú þegar valdið miklu tjóni, bæði í atvinnulífinu og fyrir bankann sjálfan. Hann hefir nú misst viðskifti, sem hann fær seint •eða aldrei aftur. En erfiðleikana við þetta verður að meta í saman- burði við erfiðleikana við áfram- haldandi lokun bankans. Og þá hlýtur allur efi að hverfa. Því að svo ægilegt er að horfa fram á af- leiðingar þess, að hitt verður ekki nema smávægilegt. Erfiðleikar út á við. Símskeyti hafa borist, sdm sýna ■svart á hvítu, hVaða afleiðingar viðskiftalífi neinnar þjóðar. — Bankastofnanir eru út af fyrir sig mjög arðvænleg fyrirtæki. — Ef litið er t. d. á íslandsbanka, þá hefir hann haft mjög góð' gróða- skilyrði að ýmsu leyti. Se'ðlaút- gáfa er arðvænleg verslun. Út- lánsstarfsemi hlutafjár og inn- stæðufjár er einnig mjög arðvæn- legt. Enda hefir bankarekstur- inn jafnan sýnt mjög góðan ábata, alt upp í h. u. b. 2þ4 miljón króna á ári. Þegar banki hrynur, er því jafn- an litið svo á, að bak við það hrun standi óarðvænlegur og óheilbrigð- ur atvinnurekstur. Og þegar öðr- um, af tveim bönkum lijer, er lok- að, þá hljóta aðrar þjóð'ir að líta á það sem vantraustsyfirlýsing á atvinnuvegi vora, og það vekur ótta við að láta fje sitt hingað. Ef atvinnuvegir landsins standa völt- um fótum, þá eru og bankarnir veikir. En þá er líka ríkið veikt fjárhagslega. Og alt þetta kemur fram í erfiðum kjörum á því láns- fje, sem hingað fer. _ Lánstraust einstaklinga. En sjeu útlendir fjármálamenn hræddir að lána fje' sitt hingað til ríkis eða banka, þá má þó vita, að enn meiri ástæða er fyrir þá, að kippa að sjer hendinni um lán til einstaklinga og einstakra fyrirtækja. En því hefir naumast verið nógur gaumur gefinn hingað til, hve geysimikið e'rlent fje starfar í fyrirtækjum hjer á landi án milligöngu ríkis eða banka. =- Hagstofan hefir safnað þessu hin síðari ár, en þó má telja alveg víst, að langt er frá því, að þar komi öll kurl til grafar, enda mjög misjafnt á mismunandi tímum árs. Mjög mikið af vörum, sem til landsins eru fluttar, eru seldar gegn greíðslu eftir ákveðinn tíma, en það er auðvitað ekkert annað' en erlent lán til atvinnurekstrar hjer. Kippi erlend fyrirtæki að sjer hendinni um þessi lán orsak- ast a-f því annað tveggja: Stór- kostlegt hrun í atvinnurekstrinum með öllu því óláni, sem af því stafar, eða þá marg-aukin ásókn að innlqndum lánsstofnunum. En þær verða að svara með því að leita á náðir erlenda markaðsins eða verjast með stórfeldum vaxta- hækkunum. Bændur rólegir? Jeg hefi heyrt, sagði ræð'umað- ur, að bændur sjeu yfirleitt rólegir út af stöðvun íslandsbanka. Þeir hafi, þar fæstir nein viðskifti. Ef þetta er satt, sýnir það enn, hve ófróðir menn eru í þe'ssum málum og skammsýnir. Því að stöðvun ís- landsbanka, me"ð þeim afleiðing- um, sem nú hafa nefndar verið, snerta allan landslýð, hvort sem i eða hinn hefir viðskifti við hann éða ekki. Lánstranstsspjöll hljóta að valda vaxtahækkunum vaxtakjör en flestur annar at- vinnurekstur. Aldrei hafa því at- orkusamir bændur verið settir í bráðari hættu en nú, ef illa tekst til og ógiftusamlega um lausn Is- landsbankamálsins. Rekstrarfje bankanna rýmar. Því var hreyft í upphafi þessa íslandsbankamáls, að enginn heil- brigður atvinnurekstur þyrfti að stöðvast við þessa bankalokun, því að þau viðskifti mundu flytjast hljóðalaust yfir í Landsbankann. En þetta eru bara fávísleg orð. Þesskonar breytingar geta aldrei orð'ið hljóðalaust, og það er enginn vegur að ætla að skylda Lands- bankann til þess að leysa á þann hátt úr ógæfu þe'irri, sem stjórnin og flokkar hennar vilja yfir okkur leiða. Setjum svo að atvinnurekandi, sem hefir haft mikil viðskifti við íslandsbanka komi til Landsbánk- ans. Þá kemur náttúrlega í ljós, að þær bankahæfu tryggingar, sem hann hefir, eru fastar, svo að ef Landsbankinn ætlar að taka að sjer viðskiftin er oftast engin önn- ur leið opin en sú, að Landsbank- inn greiði skuld viðskiftamannsins við hinn bankann. En e'fast má um að' Landsbankinn sje fús til þess eða fær. Þetta hefir líka komið í ljós. Farið hefir verið fram á það, að Landsbankinn taki nú að sjer nokkur aðkallandi viðskifti frá ís- landsbanka. En hvað skeður? Landsbankinn gerir þetta, en að- ,eins með því skilyrði, að ríkið gangi í ábyrgð. Jeg tel þetta eðli- legt. En það sýnir, á hverju má eiga von, ef mikið skal flytja þannig milli bankanna, og mig furðar ekkert, þó að bankastjórar Landsbankans telji rjettara að reyna að komast hjá þessum vista- skiftum viðskiftanna. í þetta skifti bað Landsbankinn aðeins um ábyrgð. En að því hlyti fljótt að reka, að harin yrði að biðja um aukið' rekstrarfje. Því að það er langt frá því, að rekstrar- fjeð flytjist frá íslandsbanka ó- sjálfrátt yfir til þess banka, sem ætti að taka við viðskiftunum. Athugaði ræðumaður svo, sam- kv. re'ikningum íslandsbanka, hvað af átarfsfje hans myndi flytjast yfir til Landsb, Komst hann að þeirri niðurstöðu, að um 20 miljón kr. af reikningsle'gu rekstrarfje bankans nú myndi hverfa við þessi skifti, eða um það' bil 1/4 allsjxessa rekstrarfjár beggja banka. Og margt af þessu væri ekki hægt að bæta upp með nýju fje, t. d. erl. lánum, jafnhentugu og því, sem nú væri starfandi. Þegar þessi rekstrarfjárrýrn- un kemur samtímis því, að mörg fyrirtæki, sem nú útvega sjer f je í xitlöndum, verða að leita til inn- lendu lánsstofnananna, svo að þörf væri á auknu rekstrarfje, þá verð- ur augljóst hvílíkur voði er fram- rindan. )) teimw Höfnm fyriiiiggjandi: M LAUK, smáaii, vernleya góðan. fl Verðið sjerstaklega lágt. Leig a. 3 stofur og eldhús með nútíma þægindum ásamt öllum húsbúnaði er til leigu frá 14. maí til 1. október, í miðbænum. — Umsóknir til A. S. í. merktar „sumar“ fyrir 15 mars. lokun Islandsbanka hefir á láns-1 innan lands og utan, og það kem- traust okkar erlendis. Eu þetta ur niður á öllum atvinnurekstri til sama má sjá með því, að athuga málið með skynsemd. Það er aðgætandi, að bankahrun er aldrei einangraður viðburður í sjávar og sveita. Og hún .ketour þó friáske átakanlegast niður á bændum vegna þess, að þeirra at- vinnurekstur þolir lakar erfið Endurreisn bankans. Um þetta mál kvað ræðumaður erfitt að segja mikið eins og nú stæðu sakir. Það væri verið' að gera tilraunir til þess að afla bank anum fjár, og árangur þeirra til- rauna yrði til þess að móta útkom- una. En nokkra aðilja hvaðst hann geta nefnt, sem hjer kæmu til greina: 1. Þegar fyrst bárust fregnir af vandræðum bankans kvaðst hann hafa vakið lauslega máls á því, hvort ekki væri hægt að ná nokkru af innstæðufje bankans- í forgangshlutafje. Til þe'ss væru tvær ástæður: Innstæðueigendur era illa staddir ef bankinn verður gerður upp harkalega, og hætt við' að þeir tapi. Þess vegna má búast við að þeir vildu láta nokkuð af mörkum til viðreisnar bankanum. í öðru lagi er ekki hægt að fá betri menn til þessa, því að um leið og þeir eru bxinir að binda fje sitt í forgangshlutum, má búast við þeim sem tryggum viðskifta mönn- um við bankann. Þeir mirndu ekki nota hvern þyt til þess að rífa fje sitt út úr bankanum. 2. Af erlendu skuldheimtumönn- unum má vænta einhvers stuðn- ings. Hambrosbanki hefir boðið að- stoð. Ríkissjóður Dana hefir víst engar tryggingar fyrir láni sínu, og væri því ekki ólíklegt, að sú upphæð fengist um eitthve'rt til- tekið árabil sem tryggingarfje með einhverjum skilyrðum. 3. Loks er svo ekki nema eðli- legt, að ríkissjóður hlaupi eitthvað undir baggann. fslensk stjómar- völd gáfu bankanum nafn það, sem gerir hann í augum allra út- lendra manna að höfuðbanka lands ins. Islensk stjórnarvöld heimiluðu bankanum það mikla seð'laflóð, sem áreiðanlega er drjúgur þáttur í erfiðleikum bankans. fslensk stjórnarvöld hafa átt meginþátt í skipun stjórnar bankans, og loks átti Alþingi áreiðanlega sinn þátt í erfiðleikum bankans með því að taka fulla ábyrgð á öllum skuld- bindingum Landsbankans. Það er því mæstum óhugsandi að ríkis- valdið geti hlaupið frá þessari stofnun, jafnvel þó að ekkert sje' litið á þá nauðsyn, sem hjer kallar að vegna atvinnuveganna. Ungur maður ógiftur, sem er búinn að taka próf í einum æðri skóla íslands, óskar eftir að komast í kynni við' góðan mann eða konu, sem gæti lánað honum 3000.00 krónur gegn veði í framtíðaratvinnu. Atvinnu, s*em gefur af sjer 10—12.000 ltrónur um árið. Sá maður eða kona, sem vildi vera svo góður að lána þessa upphæð, leggi nafn sitt inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 1. næsta mánaðar. Me'rkt Ungur maður. 000<0>00000000000000 Hvað er mest áríðandi áður en farið er í ferð? Að tryggja sig í ANDVÖKU. Sími 1250 o >00000000000000000 Meðferð málsins á þingi. Að síðústu mintist ræðumaður á meðferð málsins á þingi. Andstæð- ingar Sjálfstæðisflokksins linna ekki að breiða út þá skröksögu, að Sj.st. vilji taka ábyrgð' á öllum skuldbindingum bankans, og það eins þó að þeir bæru fram frum- varp, sem lýsti því, hvað þeir vildu gera. Frá upphafi hafa Sjálfstæðis menn viljað forðast að hleypa flokkapólitík í málið', og á lokaða fundinum báru þeir fram tillögu, þar sem þeir buðu stjórninni óskoráð fylgi sitt til allra skyn- samlegra ráðstafana bankanum til Fyrir herra! Harlmannafðt, Uetrar- og Rykfrakkar, fiúfur, Bintfi, Sokkar, Hærföt og Manchettskyrtur. Fjölbreytt úrval. Soffiubtii, (beint á móti Landsbankanum). Stjórnin keyrir í þess stað á- fram frnmvarp sitt um gjaldþrota- skifti á bankanum. Hitt vanrækti hún, að láta þegar í stað befja ná- kvæmari rannsókn á bankanum eftir að hún hafði lýst því, að hún þyrði ekki að byggja á bráða- birgðarannsókninni. Sjálfstæðismenn standa sjálfsagt enn við það, að þeir bjóða fram að stoð sína til endnrreisnar bankans. En á því veltur, hvort skynsamari menn finnist í hinnm flokkunum, se'm hafa einurð til þess að taka- saman við þá höndnm nm þetta nanðsynjaverk, og gerast með því mestu bjargvættir þjóðarinnar. viðieisnar. En sú útrjetta hönd var j þéim ógæfule'ga ekki þegin. þjóðhátíðarárinu. Bankalokunin. Um hana hefir verið skrifað mikið í Þýskaljindi, og ætla, öll blöðin að hjer sjé úin ríkisbanka íslands að ræða.. Þykir á stað farið á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.