Morgunblaðið - 16.04.1930, Page 2

Morgunblaðið - 16.04.1930, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Glnggatjaldaeini, Dyratjaldaeini, Góliteppi ialleg. Jía^aídmJfhna^on m<~> Kanplð pðskakjóllnn í „NINON“. <--cc )) MainæM & Oilsiem (( Þetta er nafnið á lang bestu línsterkjunni sem seld er hjer á landi. Fæst alstaðar. Dtfierðarmenn! Á ísaiirði er ávalt íyrirliggjandi kol og salt hjá Togarafjelagi ísfirðinga h. f. (Edinborgarbryggjn). Sími 29. Simneiiii Trawler. IHaa jeg byde Dem en Cocktail. Her er Liy og glade Dage. Jeg elsker Sang og Strenge'spil. Fotbolls-yalsen. Köbenbavnvalse'n. Han skænked mig röde Boser. Siiss singt die Geige. Pagan love song. I just a Yaga- bond Lover. Wien du Stadt meiner Tráume. Buling a nestle for Mary. Hallo 1930. Blodröde Roser. Köbenhavn—Kal- imdborg, og margar fleiri nýjar plötur með síðustu skipum. Hljóðiærabns Reykjavíknr. Skinnkápnrnar margeftirspurðu eru komnar. Marteinu Einarsson & Co. P i 11 n r, sem vill nema málmsteypu getur fengiS framtíðaratvinnu. fielsmliian Hleðlnn. Snmarkápnrnar eru komnar. Harteinn Einarsson & Co. drðsirnar ð vfsindin. Hver var tilætlun dómsmálaráð- berra þegar bann hóf fyrstur manna umræður um geðveikismál- ið? Tilætlunin var sú, að rótfeJsta þá skoðun í hugum manna, að póli- tiskir andstæðingar bans hefðu fengið dr. Helga Tómasson til þess að gera árás á ráðberrann og heim- ili hans. Út af þessu fjargviðraðist ráðherrann um „kviksetningartil- raun íhaldsins", forsætisráðherra talaði um eiturbyrlara og skildu allir hvert því skeyti var beint og Halldór Stefánsson var ekki i vafa um að Heflgi Tómasson væri ,ístöðu- laus einfeldningur*, sem gerst hefði „flugumaður' ‘ pólitískra andstæð- inga ráðherrans. Jafnvel Arup prófessor ympraði á þessu sama, en var fyrstur manna til að aftur- kalla þær aðdróttanir á hendur Sjálfstæðismönnum, sem fólust í orðum hans. Þeir, sem fylgst hafa með skrif- um Tímans í þessu máli, hafa veitt athygli hinni gagngdru stefnubreyt ingu, sem orðin er á málfærslunni. Nú er ekki lengur rætt um „kvik- setningartilraunir' ‘ Sj álf stæðis- mainna, heldur er árásunum beint að nokkru til læknastjettarinnar í heild, en að mestu á hendur dr. H. T. sjálfum. Stjómin hefir sannfærst um að skotið var yfir markið, þegar Sjálfstæðisflokknum var bendlað við málið. Svo ólíkindale'gir hlutir verða sagðir, að jafnvel lesendur Tímans neita að gína við þeim. Það er í frásögur færandi, að blaðið skuli ekki berja höfðinu lengur við steininn um ásakanir sínar á hendur Sjálfstæðisflokkn- um. Bn með þessu er sýnt að dóms- málaráðherrann, „sjerfræðingar* ‘ hans og samve'rkamenn, hafa gefist upp við að halda málinu fram sem pólitísku máli, en reyna með öll- um ráðum að hnekkja áliti dr. Helga Tómassonar. En um það má segja: nú eru góð ráð dýr. Til þess að ná til dr. Helga Tómassonar eru höfundar Tímans komnir út á svo hálan ís, að þeir geta með engu móti fótað sig. Kjaminn í málfærslu þeirra er f stuttu máli sá, að öll sjefrþekk- ing sje einskis virði og öll vísindi fánýt. Það er mentamálaráðherra is- lensku þjóðarinnar á því herrans ári 1930, sem gerir þessar óhjúp- uðu árásir á æðri þekkingu og vís- indi. Hafa menn heyrt annað eins? Einkennilegast er það þó í þe'ssu máli, að þegar verið er að tala um að ýmsum sjerfræðingum hafi skjátlast, til sönnunar því, að öll vísþidi sjeu einskisnýt, þá ér hvergi ne'fnt nafn dr. H. T. Menn fá að vita, að einhvemtíma hefir verið hrundið dómi, sefm núver- andi dómstjóri Hæstarjettar dæmdi sem undirrjettardómarL — En hver hrinti þeim dómif Var það ekki einmitt „sjerfræðin“ ? Jú, það var Hæstirjettur Dana, sem skipaður er jafnan lögfræðingum, sem getið hafa sjer mikinn orð- stír fyrir sjerfræði sína. Það voru hin „fáráðu vísindi", sem lögðu lokaúrskurð á málið. Tímamefnn ná sjer ekkert niður á dr. H. T. þótt þeir nefni dæmi þess, að Jóh. Jóhannessyni, Jóni Þorlákssyni og Lárusj H. Bjama- son hafi einhvem tíma skjátlast. Hjer er að ræða um dr. Helga Tómasson og því hefði verið um- svifaminst að nefna einhver dæmi þess, að honum he'fði skjátlast. Hversvegna er það ekki gert? Dr. Helgi Tómasson hefir feng- ið traustsyfirlýsingu frá 28 lækn- nm hjer á landi. Hann hefir einnig fengið traustsyfirlýsingu frá helsta málsvara dómsmálaráðherrans ut- an landsteinanna, prófessor Arap. En þyngst vevður á metunum traustsyfirlýsing sú, sem Tíma- menn gefa honum sjálfir. Fjand- menn hans sjá enga leið til að ná til hans sjálfs. Þeir gera sig að þeim endemum, að ráðast á alla sjerþekkingu — á sjálf vísindin. Dr. Helgi TómassOn getur ákaf- lega vel sætt sig við, að lítið sje lagt upp úr áliti hans af þeim mönnum, sem fordæma vísindi yf- irleitt. En allir sjá, í hverja háð- ung er komið, þegar aðalmálgagn stjómariimar gerir sig að mál- svara slíkra kenninga. Framkoma Tímamanna í þessu máli er til stórskammar í þjóðfje- lagi, sem telur sig hafa sæmilega alþýðumentun. Þeir menn sem halda uppi árásum á vísindin geta ekki talið sig til nútímans. Þeir eru eins og eftirlegukindur frá tímum hjegiljanna og lijátrúarinn- ar, eins og uppvakningar frá öld galdrabrennanna. Með þessu áfram lialdi má búast við því, að næst verði því haldið fram í Tímanum, að Helgi Tómasson hafi gekt samn- jng við Kölska, og eigi að brennast á báli! Það var óheppilegur undirbún- ingur undir * Alþingishátíðina, er dómsmálaráðherrann birti það ut- anlands og innan, að hann hefði fyrir því orð frægs sálsýkisfræð- ings að hann væri geðveikur. Hitt verður ekki til aukins álits ís- lensku menningarástandi, þegar af sanna á geðveiki ráðhefrrans með því, að öll vísindi sjeu tóm vitleysa Tímamenn munu sannfærast um, að þeir hafa aftur skotið yíir markið. Sumarfagnað heldur Glímufjel. „Ármann“ síðasta vetrardag (23. apríl). Verður þar margt til skemt unar, svo sem fimleikar, glíma, söngur, o. fl. Að lokum verður dans stiginn með góðum hljóðfæra- slætti til kl. 4. Aðgöngumiðar fást í vérsl. Heklu, Laugaveg 6, og hjá flokksstjórum fjel. (kosta 3 kr.) íslensknr matnr: Lúðuriklingur, sá be*sti sem hjer hefir sjest. Hangikjöt, saltkjöt, rúllupylsa, kæfa, gulrófur, egg, smjör, skyr, tólg, bjúga og reykt hrossakjöt. Versl. B]ðrninn. Bergstaðastræti 35. Sími 1091. Naglaburstar frá 0.15. Handskrubbur frá 0.25. Pottaskrubbur frá 0.20. Gólfskrubbur frá 0.50. Fægikústar frá 0.90. Skaftkústar frá 0.90. Skaftburstar frá 0.40. Götukústar f!rá 0.90. Skóburstar frá 0.75. Ofnburstar frá 0.75. Uppþvottakústar frá 0.55. o. fi. Verslnnin Ingvar Úlafsson, Laugaveg 38. Til oðskanna: Ödýrar grænar baunir % kg. 35 aura, y2 kg. 65 aura 1 kg. 1.25. Nýjar vörur teknar upp daglega. Feikn fallegt úrval af Sumarkápum kom í gær. Ennfremur Kjólar — Káputau. Kjólatau, ullar og silki og ótal margf fleira af fallegum Sumarvörum. Ódýrar Bnrstavörnr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.