Morgunblaðið - 16.04.1930, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
t
Talsamband við umheiminn.
Landssímastjóri Gísli J. Ólafson leggur til, -að samning-
unum við Stóra norræna verði sagt upp, og sett verði hjer
upp stuttbylgjustöð, sem afgreiðir bæði skeyta- og talsam-
band við nágrannalöndin.
Málið er til umræðu í Sameinuðu þingi í dag.
Laugardagion 19. anril
verðnr báðin loknð vegna málningar.
Bókaverslnn Sigfúsar Eymundasonar.
iþröttanámskeið
á Alafossi
verður haldið í vor frá 15. maí til 22. júní. Fyrir yngri og
eldri. Tímalengd eftir ósk nemanda. Kent verður íslensh
glíma, leikfimi, göngur, hlaup og allskonar sund m. a.
björgunarsund og dýfingar.
Aðal kennari verður hr. íþróttakennari Vignir And-
rjesson. — Þeir sem óska að taka þátt í námskeiðint
sendi skriflega umsókn og segi til í hvaða íþróttum þeif
vilji æfa, fyrir 5. maí n.k. til undirritaðs, er gefur allar
nánari upplýsingar.
Signrjón Pjetnrsson,
P. 0. B. 404. Reykjavík. Álafoss.
Snmarkápntan
nýjasta tíska, miklar birgðir nýkomnar.
Marteinn Einarsson 5 Co.
: g..'T. ..
31fUr£Uttbiii£>y>
Útget.: H.f. Arvakur, Reykjavik
Ritstjörar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjörn og afgrjitSsla:
Austurstræti 8. — Slmi 500.
Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Simi 700.
Heimaslmar:
Jön Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á rnánuBi.
Utanlands kr. 2.60 á mánuBl.
f lausasölu 10 aura eintaklB,
20 aura meB Lesbðk.
Srlendar stmfregnir.
Ósló, FB 15. apríl.
Sigurd Ibsen
látimn.
Fyrverandi forsætisráðh. Sigurd
Ibsen andaðist í gær í Freiburg,
•eftir langvarandi bálssjúkdóm.
Á mótarhjóli til Suðurpólsins.
Tryggve Gran flugmaður íhugar
iað fara á mótorhjóli til suðurpóls-
ins. Ráðgerir hann að flytja mó-
torhjólið á flugvje'lum upp á pól-
hásljettuna og aka því næst yfir
hásljettuna til pólsins. Enskt firma
hefir boðið að smíða mótorhjól
handa Gran í þessu skyni.
Stokkhólmi, FB 15. apríl.
Flugslys.
Sjúkraflugvjel, sem var að flytja
mann, sem hafði hrapað í klettum
og meiðst, steyptist niður í hafið
nálægt Dalarö. — Sjúklingurinn
meiddist hættulega, en bróðir
sjúklingsins, þektur verkfræðingur
Pylm að nafni, beið bana. Flug-
mennirnir meiddust lítils háttar.
KanpmannabOfn
flotastöð Englendinga?
Fyrir nokkru hjelt þýski rithöf-
undurinn Ludvig Renn fyrirlestur
í verkalýðsfjelagi í Höfn, og var
UHitalsefni hans næsti ófriður. —
Taidi hann ófriðarhættuna mjög
yfirvofandi um þessar mundir,
vegna þess hve framleiðsla allra
Evrópulanda væri mikil — nema
Rússlands. Þar væri framleiðslan
í kaldakoli. Þetta misræmi ýtti
mjög undir ófrið.
Retm taldi víst, að Höfn inyndi
verða flotastöð þegar ófrið bæri
að höndum milli Rússa og Vestur-
Evrópuþjóðanna. Þeir sem hjeldu
fram ófriði, myndu ekki sjá eftir
því, þó Höfn væri skotin í rústir.
Því þá myndu þeir segja: „Þarna
sjá menn hvernig fer fyrir þeim
sem prjedika afvopnun, eins og
dönsku sósíalistarnir, og le'ggja
niður vopnin.“
Að lokum sagði Renn frá því,
að hann hefði átt tal um þetta
við danskan sósíalista, og hefði
þessi Danj. fullyrt, að hann vissi
vel hvernig stæði á því, að verið
væri að stækka höfn Kaupmanna-
hafnar. Það væri til þess að und-
irbúa höfnina handa enska fljt-
anum. Verslun horgarinnar þyrfti
ekki á þessari stækkun að halda.
Enda kæmi fjeð til þessara nýju
hafnarvirkja frá Englandi.
Þegar sæsíminn var lagður
hingað til íslands fyrir 25 árum,
var háð hörð deila um það hjer
á landi, hvort síma skyldi leggja,
ellegar við skyldum nota loft-
skeytasambandið eitt. Þá þótti
mörgum símasambandið trygg-
ara, enda varð það ofan á, En
hinir sáu í hillingum þá fram-
tíðarmöguleika, sem í loftskeyt-
unum fólust.
Samningurinn við „Mikla nor-
ræna“ ritsímaf jelagið um sæsíma
til íslands var gerður til 20 ára.
Sá samningur var endurnýjaður
árið 1926, en þá með því skil-
yrði, að hann væri uppsegjanleg-
ur annaðhvort ár með árs fyrir-
vara.
Síðan samningurinn við „Mikla
norræna“ var endurnýjaður, hef-
ir það komið á daginn, að sæsím-
inn sem lagður var hingað til
lands 1906, er nú orðinn lasinn
og bilar oft.
Síðustu 7 mánuSina hefir sím-
inn bilað 5 sinnum, og árin 1928
1929 hefir síminn verið slitinn í
67 daga. Er það því auðsætt, að
ástæða er til að líta í kringum
sig eftir öruggara og betra síma-
sambandi við ulnheiminn, en eft-
ir símalínunni á sjávarbotni, sem
slitnað getur hvenær sem er.
Loftskeytin hafa tekið miklum
íramförum á síðustu árum. Síð-
an mönnum tókst að notfæra sjer
stuttbylgjusendingar loftskeyta á
löngum fjarlægðum, hefir síma-
sambandið í heiminum gerbreyst.
Bretar hafa t. d. komið sambandi
á með stuttbylgjum milli Bret-
lands og hinna fjarlægustu ný-
lendna.
En jafnframt hafa menn kom-
ist að raun um að símasambandið
kemur fyrst að fullum notum, ef
menn hafa talsamband. Talsam-
band hefir náð mikilli útbreiðslu
í heiminum á síðustu missirum
milli mjög fjarlægra staða.
Þó hefir menn ekki dreymt um
það hjer á íslandi fram á þenn-
an dag, að við gætum komist í
talsamband við nágrannalöndin á
næstu árum.
S.l. /r hefir G. J. Ólafsson lands-
símastjóri rannsakað það mál til
hlítar, hvernig símasambandi milli
íslands og annara landa yrði best
liagað í framtíðinni. Hefir hann m.
a. imnið í sambandi við Marconi-
fjelagið.
Marconifjelagið hefir gefið upp
hvað stuttbylgjustöð myndi ko?ta
sem nægði til þe'ss að annast
skeytasendingar milli Islands og
titlanda. Hann hefir ennfremur
komist að samningum við það fje-
lag um fjárframlag til slíkrar
stöðvar með svo góðum kjörum,
að hún myndi eigi íþyngja Lands-
símannm á neinn hátt.
Með öðrum orðum, við gætum
sagt upp samningnum við Stóra
norræna, án þess að það kostaði
okkur nokkuð, jafnframt því sem
við fengjnm
tryggaræ símasamband við útlönd
en nú er — og lægri símagjöld
fyrir almenning.
En nýjustu uppgötvanir á sviði
loftskeytanna gera það ennfremur
mögulegt, að hin nýja loftskeyta-
stöð yrði jafmframt talstöð.
Gæti þá hver símanotandi hje'r á
landi fengið talsamband við
útlönd. Getur enginn maður að
óreyndu gert sjer fulla grein fyrir
því, hve feikna mikla þýðingn það
liefði fyrir viðskiftalíf vort alt, ef
hægt yrði að ná talsambandi við
umheiminn. Með því móti nálg-
aðist Island nágrannalöndin við-
skiftalega svo mikið, að alt við-
horf erlendra viðskifta hreyttist
lijer á skömmnm tíma.
Skeytasambandinu við umheim-
inn með stutthylgjnstöðinni yrði
þannig fyrir komið, að skeytin
yrðu send beinleiðis hjeðan til
Noregs, Danmerkur og Englands.
En talsamhandið yrði hjeðan
sennilega fyrst um sinn-beina leið
aðeins við eina stöð á meginland-
inu. En talsímasambönd eru nú
komin um alla álfuna. Svo hjeðan
yrði hægt að tala suðnr um alla
Evrópn, og sennilega næðist hrátt
talsamband vestur um haf.
Ekki er hægt að vita með vissu
hve talskeytagjöldin til útlanda
verða há. Fek það m. a. eftir því
hve mikil notkunin verður. En
fullyrt er, að hægt verði að hafa
Iþau svo lág, að talsambandið kæmi
strax að notum.
Eftir tilmælnm landssímastjóra
hefir atvinnumálaráðherra f'lntt
þingsályktunartillögu í sameinuðu
þingi um það, að stjórninni verði
heimilað að segja npp samningnum
við Stóra norræna á þessu ári. —
Var málið á dagskrá sameinaðs
þins í gær, en ekki rætt. Þá er það
enn á dagskrá í dag.
Vart e'r hægt að hngsa sjer, að
þingið bregðist svo herfilega skyld
nm sínum gagnvart þjóðinni, að
það afgr. ekki þetta mál í dag. Það
hefir fengið þann undirbúning hjá
landssímastjóra, að enginn getur
efast nm að hið eina rjetta er, að
hv^rfa frá notkun hins sí-slitnandi
síma, taka hið trygga stnttbylgjn-
samband, sem um leið gefur mögn-
le'ika til talsambandsins, er bók-
staflega gefur öllu viðskiftalífi
voru byr undir vængi. ísland nálg-
ast með því umheiminn. Fjar-
lægðin „yfir 300 mílna sjó“ verður
alt í einu ekki eins tilfinnanleg,
ekki eins bagaleg og hún nú er.
Loftferðir yíir Atlantshaf.
Þann 1. apríl skýrði dr. Eckeúer
loftferðastjóri blaðamönnum frá
því, að loftfar það, sem nú er í
smíðnm í Friedriehshafen, og ætlað
er til loftferða yfir Atlantshaf,
verði ekki tilbúið fyr en eftir 1 y2
ár, og reglubundnar loftferðir
milli Evrópn og Ameríku byrja
ekki fyr en á árinu 1932.
Leiðrjetting.
Gaman þykir Tímanum að læðast
í kringum sannleikann og fikta
við ósannindin. 1 síðasta blaði Tím-
ans stóð t. d. þessi klausa:
„Guðm. Haimesson og drengskap
urinn, Þegar Guðm. Hannesson tal-
ar við menn einkalega segist hann
aldrei hafa flækst inn i verra mál
en það sem Sig. á Vífilsstöðum,
Dúngal og Kleppslæknar drógu
hann inn í, þegar undirrita skyldi
fölsunarvottorðið um dómsmálaráð
herrann. En í nýútkomnu Lækna-
blaði hælir Gnðm. Hannesson
Helga Tómassyni fyrir yfirhurða
drengskap, í sambandi við árás
hans á dómsmálaráðherrann og
heimili hans. Merkilegir gerast nú
forkólfar þessarar stjettar. — B.“.
Je'g get nú fyrst og fremst frætt
Tímann á því, að jeg læt alls ekki
„draga mig inn í mál“, en fer eftir
því sem sannfæring mín býður
mjer. Við próf. Sig. Magnússon
hefi jeg ekkert um þetta mál talað
sem nokkrn skiftir, og hvorki Ni-
els Dungal nje Kleppslæknar hafa
hvatt mig til neins í því. Mje'r- er
heldur ekki kunnugt nm, að neitt
„vottorð“ hafi verið gefið, hvað
þá heldur falsað, eða rang’t að öðru
leyti.
Og hvað er það svo, sem jeg
hefi sagt í einkaviðtali ? Tímanum
er guðvelkomið að vita það. Jeg
he'fi sagt, að aldrei hafi jeg lent í
vandræðum með að svara blaða-
greinum, fyr en í þessn geðveikis-
máli, sem aldrei átti að verða opin-
hert blaðamál. Vegna hvers? Fyrst
og fremst, þess vegna, að mjer
finst það óhæfa, ef mögulefgt er
hjá því að komast, að ræða heilsu-
far einstaks manns í blöðum, og
að jeg veit hinsvegar, að almenn-
ingur getur ekki um slíkt dæmt,
nema því meira beri út af. Jeg
hefi sjeð þess fleiri dæmi e*n eitt
hve hraparlega menn geta vilst í
þeim efnnm.
Tímamönnum verður ekkj óglatt
af því að nota þetta mál fyrir
dálkafylli og kosningabeitu. Jeg
kalla það hestaheilsu, e*n þeir um
það.
Guðm. Hannesson. ;
Dagbók.
Veðrið (þriðjudag kl. 5): Lægð-
in sem var snðvestnr af Reykja-
nesi á mánudagskvöldið hefir færst
norð-austur eftir Grænlandshafi,
svo lægðarmiðjan er nú norður af
Vestfjörðum. Áttin er orðin vest-
læg á Vesturlandi en á N og A-
landi er ennþá S-átt. Mun verða
V eða NV-átt um alt land í nótt
en aðeins skammvinn, því ný lægð
við S-Grænland er á hreyfingu
austur eftir og mun aftur valda S
átt hjer á landi þegar líður &
morgundaginn.
Veðurútlit í Rvík í dag: V-gola
fram eftir deginnm, en síðan vax-
andi S-átt. Úrkomulítið.
Messur bænadagana;
1 Dómkirkjnnni: Skírdag kl. 11,
síra Friðrik Hallgrímsson og síra
iFriðrik Friðriksson (Altarisganga.
Skriftir kl. 10.40). Föstudnginn
langa kl. 11, síra Bjarni Jónsson,
kl. 5 síra Fr. Friðriksson.
1 Fríkirkjunni. Á Skírdag kl. 2
sr. Friðrik FriSriksson. Altaris-
ganga. Á föstudaginn langa kl. 5,
sr. Árn’i Sigurðsson.
f Fríkirkjunni í Hafnarfirði &
Föstudaginn langa kl. 2 e. h. síra
Ólafur Ólafsson (snngnir Passiu-