Morgunblaðið - 03.05.1930, Síða 2

Morgunblaðið - 03.05.1930, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Höfam fyrirliggjaudi: KartöQnr, hollenskar. Vernlega góðar, hvergi ódýrari. íffr iluooatíöld. Hvítt glnggatjaldaeini og gluggatjðld seljum við þessa daga með 25% afslættl. Brauns-Verslun. R e v n i ð H.A.MINDE BERGEN VE LS MAKENDE Þetta ágæta súkkulaði fæst nú í öllum betri mat- vöru og sælgætisverslunum í borginni. Heildsölubirgðir hjá 0. Johnson & Kaaber. llfrelðastlörar. Þeir sem ætla að flytja fólk á vörubifreiðum milli Reykjavíkur og Þingvalla á Alþingishátíðinni (og sjálfir eiga nú til þess gerð yfirbygð sæti), þurfa allir að gefa sig fram við Jón ólafsson, skoðunarmann bifreiða, Njarð- argötu 47, dagana 5., 6. eða 7. þ. mán. kukkan 1—4 eða kl. 8—9 eftir hád. fiskUúðin í Holusundi hefir npp á margt gott að bjóða í dag, svo sem silnng, smálúðu, steinbít, ýsu, þorsk, og reyktan fisk. Alt nýtt og með borgarinnar lægsta verði, komið eða hringið í , síma 655 og 1610. B. Benónýsson. i Frú Frederike G. ]. Briem ekkja Gunnlaugs sál. Briem versl- unarstjóra andaðist í gærmorgun hjer í bænum á heimili sonar síns, Ólafs Briem framkvæmdarstjóra. Æfiatriða hennar verður getið síðar hjer í hlaðinu. Hvar stðndum við? Hvaða tilraunir er verið að gera á okknr fslendingum nm þessar mundir ? Er verið að leita sannana fyrir því með óslitinni misbeitingn valds ins, með gerræði og drengskapar- leysi, sem magnast dag frá degi, að við sjeum svo dofnir og danðir úr öllum æðum, að við hrökkvum ekki við, hvernig sem vöndur brjálaðs valdaderrings er látinn dynja á okkur? Er ætlunin sú að afsaka einræðis brölt og harðstjórn með því að við sjeum svo volaðir vesalingar að okkur sje ekki annað hent? Á að sýna það og sanna að ís- lendingar sje menningarsnauðir skrælingjar, sem hest sjen geymdir undir hnútasvipn þrælafógetans ? Er búið að sljófga mikinn hluta þjóðarinnar svo, að hún kunni eng in skil á rjettu og röngu? Menn hljóta að spyrja. Valdamesti maðnr þjóðarinnar fær vottorð sálsýkisfræðings um að hann sje geðhilaðnr. Hann breiðir þetta sjálfur út, gerir úr því ,stóra hombu', sem á að afla honum kjör- fylgis. Hvenær hefir heilhrigðri skynsemi verið sýnd meiri svívirða? Mentamálaráðherrann skrifar grein eftir grein um ,fáráð vísindi' og fánýta sjerþekkingu. Hvenær hefir verið ráðist jafn hatramlega á mentafýsn þjóðarinnar? Æðsti vörður laga og rjettar læt ur yfirheyra sjálfan sig og sitt h-imilisfólk, en neitar hinum máls- aðilannm að gefa skýrslu fyrir rjetti. Þekkist meiri ósvinna í nú- tímasögu nokkurs siðaðs þjóðfje- lags? Og loks klykkir ráðherrann, er fengið hafði vottorð sálsýkisfræð- ings ofan á grun þorra þeirra manna, sem kynst hafa öllu athæfi hans, út með því að reka fyrir- varalanst, úr emhætti þektasta vís- indamanninn, sem til er á landinu. Og alt á þetta að vera gert til að afla kjörfylgis. Alt í þeirri trú, að íslenskir kjósendur treysti hest ráðherra, sem grunur leikur á að sje geðbilaður, sem ræðst á mentun og þekkingu, sem hrýtur rjettar- venjur allra siðaðra þjóða og sem rekur mann úr emhætti fyrir það eitt, að hann hefir haft djörfung til að láta nppi álit á dapurlegu sálarástandi ráðherrans. Einstaka raddir hafa heyrst, er hafa dregið í efa, hvort rjett hafi verið af dr. Helga Tómassyni að hlýðnast boði dómsm.xáðh. og fara frá Kleppi. Menn þessir hafa sagt sem svo, að dr. Helgi mætti hest þekkja sálarástand dómsmálaráð- herrans, og hann þlyti að vita, að slíkar aðfarir sem fram hafa farið a Kleppi væri ekki fTamkvæmdar af heilbrigðum manni. Ðr. Helgi hefði því átt að neita að fara frá spítalanum á Kleppi. En þeir menn, sem þessari skoð- un hafa kastað fram, verða að gera sjer ljóst, að við húum hjer í rjettarríki, og öllum þegnum þjóð- fjelagsins her skylda til að hlýða lögunum og fyrirskipunum framkvæmdarvaldsins. — Sjálf stjórnarskrá ríkisins mælir svo fyr- ir, að eoginn geti „komið sjer hjá að hlýða yfirvaldsboði í bráð“, jafnvel þótt það boð sje ólöglegt. Dr. ílelgi verður því ekki um það sakaður, þótt hann hlýddi fyr irskipun ráðherrans. En það eru aðrir, sem verða á- sakaðir þunglega í þessu máli. Það eru flokksmenn ráðherrans, sem horfá á fólskuverkið án þess að hafast nokknð að. En þyngst kem- ur ábyrgðin niður á forsætisráð- herranum, sem vitanlega har skylda til að stöðva níðingsverkið. En hann lokar angunnm fyrir að- förunum og flýr til útlanda. Mál þetta er svo alvarlegt, að eitthvað verður að gera ef ekki á hreinn voði af að hljótast. Það er ekki aðeins heilsa og líf hinna 70 sjúklinga á spítalanum, sem í veði er. Dr. Helgi hefir haft itndir hendi fjölda sjúklinga utan spítal- ans, sem þannig er ástatt nm, að batavon þeirra er lítil eða engin ef hann hættir að stnnda þá. Hjer er því svo mikill voði á ferðinni, að trúnaðarmenn þjóðar- innar, alþingismenn, geta ekki setið þegjandi hjá. Ákveðið er að Alþingi komi aft- ur saman 26. júní n. k. En finnist noltkur ærlegur hlóðdropi í æðum þeirra þingmanna, sem hingað til hafa stutt núverandi stjóm til valda, verðnr að krefjast þess af þeim, að þeir styðji þá kröfu, sem hlýtur fram að koma í nafni al- þjóðar, að þingið verði fyrr kvatt saman svo hægt verði að afstýra þeim voða, sem híður varnarlaus- um og hjálparvana sjúklingum, sem nú eru lokaðir inni í nýja spítalanum á Kleppi. Kappglíma K. R. Á miðviku- dagskvöldið fór fram innanfjelags keppni í íslenskri glímn hjá K. R. Fyrst var drengjaglíma og marg- ir ungir og efnilegir þátttakendur í henni. Fyrstu verðlaun hlaut Ól- afur Kristmannsson, önnur Gísli Guðmundsson og þriðju Haraldur Guðmundsson. Þá fór fram keppni í 1. fl. og keppt um glímubikar K. R. Þátttakendur vorn 9. Bikarinn hlaut Ólafur Þorleifsson og nafp,- hótina „glímukóngnr“ K. R. — Önnnr verðlaun hlaut Tómas Guð,- mnndsson og þriðju Hallgrímur Oddsson. í þessari glímu mátti sjá margar ágætar glímur og hefir K. R. marga góða glímumenn. Þorgeir Jónsson frá Varmadal hefir stjórn- að glímuæfingum hjá K. R. í vetur, með ágætum árangri. Ártúnsbrekka. Sveinbjörn Jóns- son hrm. og Þorkell Þorkelsson forstjóri Veðnrstofunnar hafa sótt un_ að fá land til lei<ru til sumar- hústaðar í Ártúnslandi undir Ár- túnsbrekku. Fasteignanefnd hafði á fundi 29. f. m. mælt með Þvh að land þetta yrði leigt, en eftir j að fundur var haldinn barst horg- arstjóra hrjef frá Skíðafjelagi Reykjavíkur, þar sem fjelagið fór fram á, að fá Ártúnshrekku til um- ráða. Með tilliii til þessa hrjefs samþykti bæjarstjórn í fyxradag, að athuga þetta mál nánar. FeFnimargeski Seðlaveski og buddur Skjala og nótnatöskur Handtöskur með og án ferðaáhalda. Stærst úrval. Lægst verð. Leðnrvðrnd. Hliððfærahnssins Nýkomin. Sportföt frá kr. 48.00. Sportföt með 2 buxum kr. 90.00. Sportbuxur í miklu úrvali. Branns-Versinn. BlÐJlÐ UM BlöNDAHI’SÍ; Nýkomið: Hollenskur Edammer og Gosda Ostnr 20°/o Naonðs Ih. s. Blondahi ll Vonarstræti*4 B. Sími 2358. Fallegar Enskar hðfur og Linir hattar. Nýkomið. ý/ata/c/iiijtyina&cft

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.