Morgunblaðið - 03.05.1930, Síða 5

Morgunblaðið - 03.05.1930, Síða 5
Laugardag 3. maí 1930. i r« Landsspitalinii. Ætlar ríkisstjórnin að rjúfa gerða samninga við stjórn • Landsspítalasjóðsins? Hvað segja íslenskar konur? Þingsályktunartillag'an frá 1925. Á Alþingi 1925 var samþykt þingsályktunartillaga viðvíkjandi fcyggingu Landsspítala, þar sem m. a. þetta var fram tekið: „Árið 1926 veitist stjórninni heimild til að verja alt að 100 þús. kr. úr ríkissjóði til bygging- ar Landsspítala; gegn jafnmiklu framlagi úr Landsspítalasjóðnum, enda hafi á árinu 1925 verið varið til hennar að minsta kosti 100 þús. kr. úr þeim sjóði. Þingið gerir ráð fyrir, að þessu verki verði hagað samkvæmt síðari spítalateiknun húsameistara ríkisins, með þeirri breytingu, er síðar kynni að þykja nauðsynleg og framkvæmanleg án verulegs viðbótarkostnaðar. Enn- fremur ætlast þingið til þess, að verkinu verði haldlið áfram á næstu árum, og byggingunni lokið í árslok 1929, ef ekki ófyrirsjáan- leg fjárhagsvandræði ríkisins gera óldeyft að halda henni áfram.“ Samningur milli ríkisst j ómarinnar og stjómar Landsspítalasjóðsins. Samkvæmt tjeðri þingsályktun gerði svo ríkisstjórnin samning við stjórn Landsspítalasjóðsins, sem var undirskrifaður 24. apríl 1925. 1 samningi þessum var m. a. þetta tekið fram: „Af fje því, er Landsspítala- sjóðnum hefir þegar áskotnast, og safnast kann að verða meðan á byggingu Landsspítalans stendur, og ætlað er að nema muni að minsta kosti 300.000 kr., lofar stjórn Landsspítalasjóðsins að leggja fram þ. á. alt að 75000 kr. og á næsta ári 1926, 100000 kr., en síðan það, sem eftir verður þá af fje sjóðsins á þann hátt, sem eí8ar segir.“ — — Ennfremur segir svo í samn- ingnum: „Af hálfu gefendanna eru þessi ekilyrði sett: 1. Ríkisstjórnin lætur á þessu ári byrja á undirbúningi og bygg- ingu Landsspítalans samkvæmt þeirri teikningu, br húsameistari ríkisins hefir gert af byggingunni -------------Það skal tekið fram ejerstaklega, að hæfilega stórri fæðingadeild skal komið fyrir í spítalanum, og hún starfrækt frá þeim tíma, er spítalinn verður tek- inn til notkunar.------------------ 2. Um framlög til spítalabygg- ingarinnar eru þessi skilyrði sett: a. Gegn framlagi spítalasjóðs þ. á., alt að 75000 kr., er ekki krafist neinnar greiðslu úr ríkissjóði. b. Árið 1926 skal varið til bygg- ingarinnar úr ríkissjóði að minsta kosti svo miklu fje, að jafngildi framlagi sjóðsins, eða 100000 kr., þannig, að varið verði til bygging- arinnar það ár ekki minna en 200- 000 kr. alls.-------- 0. Síðan skal byggingunni hrað- að svo sem frekast er unt, þar til henni er lokið, og skal hvert ár greiða til framhalds verksins að minsta kosti 200000 kr. Fje það, sem til þess þarf, skal greitt úr ríkissjóði, að fiádregnu framlagi Land sp't'dasjóðsins, er sjóðsstjórn in lofar að greiða tii verksins að jöfnu við ríkissjóð, meðan fje landsspítalasjóðsins endist. Til þessa telst ekki Minningargjafa- sjóður Landsspítalans. d. Bygging Landsspítalans skal lokið og útbúningi hans svo fljótt, að hann verði tekinn til afnota ár- ið 1930. Ríkisstjómin samþykkir framan- skráða ráðstöfun á fje Landsspít- alasjóðsins, tekur umgetnu boði stjómar hans og gengur að þeim skilyrðum er sett eru af hálfu gef- endanna“. Samningur þessi er undirskrif- aður af þáverandi ráðherram, þeim Jóni Magnússyni, Jón Þor- lákssyni og Magnúsi Guðmunds- syni og stjórn Landsspítalasjóðs- ins, en hana skipuðu: Ingibjörg H. Bjaraason, Ágústa Sigfúsdóttir, Laufey Vilhjálmsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Jónína Jónatans- dóttir, Elín M. Jónatansdóttir og Hólmfríður Rósenkranz. Þessi samningur við sjóm Lands spítalasjóðsins var gerður með full um vilja og vitund Alþingis. Hann er gerður samkv. fyrirmælum þingsályktunartill. er nefnd var hjer að framan. Auk þess hefir Alþingi margsinnis staðfest samn- inginn. Þannig er vitnað í hann í fjárlögum undanfarinna ára. Fyrsta samningsrofs-tilraunin af hálfu Framsóknarmaama. Forkólfar Framsóknarflokksins hafa gert nokkrar tilraunir til þess að rjúfa þenna samning við stjórn Landsspítalasjóðsins. Fyrstu til- raunina í þá átt gerðu þeir á Al- þingi 1927. í fjárlögum þeim, sem lágu fyrir því þingi, fyrir árið 1928, voru áætlaðar 150 þús. kr. til byggingar Landsspítala. For- ingjar' Framsóknar lögðu til, að þessi upphæð yrði storikuð út og að frestað yrði byggingu Lands- spítalans um óákveðinn tíma. Tryggvi Þórhallsson, núverandi forsætisráðherra, hafði forystuna í þcssari herferð gegn Landsspítal- anum á þinginu 1927. En tilræðið hepnaðist ekki; tillaga Tr. Þ. var feld. Hvað líður Landsspítalanum? Eftir kosningarnar 1927 urðu stjóraarskifti, svo sem kunnugt er. Þá settust þeir menn í valdastól, er minstan höfðu áhuga á Lands- spítalamálinu. Enda hafa fram- kvæmdip orðið hægfara síðan. Samkvæmt áður nefndum samn- ingi milli fyrverandi stjórnar og stjómar Landsspítalasjóðsins, á spítalinn að taka til starfa á þessu ári. En eru nokkrar líkur til að svo verði ? Hvað segir ríkisstjóm- iní Á nýafstöðnu þingi bar Ingi- björg H. Bjarnason fram svohljóð- andi fyrirspura til ríkisstjómar- innar: „1. Er það ekki tilætlun ríkis- stjórnarinnar, að Landsspítalinn verði tekinn til afnota fyrir al- menning og til háskólakenslu haustið 1930, svo sem samningur stendur til? Ef svo er: 2. Hvar skal þá fje taka til kaupa á öllum áhöldum og innan- stokksmunum, og hvar rekstrarfje, úr því það er ekki talið í fjárlög- um?“ Svo sem sjá má á fyrirspurn þessari, hafði stjórnin ekkert fje áætlað í fjárlögum fyrir árið 1930 eða 1931 til þess að kaupa fyrir áhöld handa Landsspítalanum og ekki heldur neitt rekstrarlán til spítalans. Dómsmálaráðherrann átti að svara fyrirspurn I. H. B. En það fór eins og endranær, að ekkert varð byggjandi á hans svari. Hann kom með alskonar vífilengjur, ger- samlega óviðkomandi málinu og skæting til fyrirspyrjanda. Oll svör ráðherrans voru út í hött. Þannig sagði hann, að Lands- spítalinn yrði tilbúinn eftir svo sem mánaðartíma handa Vestur- íslendingum ! En þegar ráðherrann var um það spurður, hvenær spít- alinn yrði tilbúinn til afnota fyrir almenning, var svar hans á þessa leið: Getur verið um nýár; getur verið eftir nýár, alt óákveðið um það, um það er ekkert tímatak- mark ákveðið. Fyrirspyrjandi minti ráðherrann þá á samninginn frá 1925, þar sem tilskilið er, að Landsspítalinn verði tekinn til afnota á árinu 1930. Ráðherrann sagði, að þessi samn- ingur væri núverandi stjóra óvið- komandi og sig varðaði ekkert um ákvæði hans. Af þessum ummælum dómsmála- ráðherrans er það sýnilegt, að núverandi stjórn ætlar að rjúfa samninginn, sem gerður var með fullum vilja og vitund Alþingis. Hvað segja íslenskar konur um þetta atferli stjórnarinnar. Lands- spítalinn er fyrst og fremst þeirra mál. Þær hafa með atorku og dugn aði safnað miklu fje í þetta þjóð- þrifafyrirtæki, og afhenti ríkis- stjórninni fjeð með því fortaks- lausa skilyrði, að spítalinn yrði tekinn til afnota á árinu 1930. Nú- verandi stjórn virðir vettugi þeHi' skilyrði og rýfur gerða samninga. Láta íslenskar konur sig þetta gerræði stjórnarinnar engu skifta? Alþingi fer nú innan skamms að halda hátíðlegt 1000 ára af- mæli sitt. Ekki getur það talist glæsileg tilhugsun, að á því merkis ári skuli sitja við stýrið stjórn á svo lágu siðferðis- og menningar- stigi, að hún svíkur gerða samn- inga um stærsta menningarmál þjóðarinnar. ------------------- Ástandið á Spáni. Eins og menn muna urðu mikl- ar viðsjár á Spáni skömmu eftir fall Rivera, og leit svo út um tíma sem dagar spanskrar konungs- stjórnar væru taldir. Ástandið er ennþá ískyggilegt, og jafnvel hálfu verra nú, þar sem ýmsir merkir stjórnmálamenn spanskir hafa gerst lýðræðissinnar síðan Beren- guer tók við völdum. Herma er- lend blöð að þeir gerist nú æ fleiri sem snúist á sveif með lýðræð- ismönnum, og að ýmsar viðsjár sjeu með konungsmönnum, annars vegar og lýðræðismönnum hins- vegar. Frúin: Af hverjr. var yður sagt upp vistinni, hjá ræðismanninum. Stúlkan: Jeg lileraði við dvrnar. Frúin: Það máttuð þjer ekki gera. En hvað var það annars sem þjer heyrðuð. Duyleg stúlka getur fengið að taka að sjer mjólkur- og brauðabúð á besta stað I í bænum.-Hátt kaup! Eigin handar umsókn ásamt mynd, sendist A. S. í., merkt: —* „Sjálfstæð atvinna." FyrirSiggjandi: Niðursoðið kindakjöt í 1/10, l/2 dósum. — Fiskabollur mjög ódýrar. Eggert Kristjánsson & Co. Símar 1317 og 1400. Nýtt úrval af Regnfrökkum Árni & Bjarni. Læriingur. Duglegur sveitapiltur, sem hefir löngún til að læra mjólkurgerð, getur fengið pláss sem lærlingur, frá maí mánaðar lokum þ. á. — Aldur 17—19 ára. Heifbrigðisvottorð og ef til eru önnur vottorð, sendist fyrir 15. maí. Mjólkurbú ölvesinga, Hveragerði. SCOTTS’s heimsfræga ávaxtasnlta jainan fyrirliggjandi. I. Brynjólfsson & Kraran. inimnuniuiuuininnuiiiinimuniinmmmmui 111 sftlu. Dpplýsingar á Lanfásveg 4, sfml 492. fslensknr matnr: Hangið hrossakjöt, saltkjðt, rúílupylsa, — kæfa, — egg, — smjör, skyr, tólg og súrhvalur. Versl. Bjðrnlnn. Bergstaðastræti 35. Rfmi 1091.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.