Morgunblaðið - 06.05.1930, Page 3
J.
MORGXJNBLAÐIÐ
8
3florgmiblaM$
ÍTtgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk
Rltstjórar: J6n' KJártansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgriiBsla:
Austurstræti 8. — Stml 600.
Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Simi 700.
Hei-nasímar:
Jðn KJartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBl.
Utanlands kr. 2.50 á mánuBl.
1 lausasölu 10 aura eintaklti,
20 aura með Lesbök.
Erlendar símfregnir.
Astandií versnar í Indlandi.
Gandhi handtekinn.
London (UP) 4. maí PB.
Prá Kalkútta er símað: Stúdent-
ar gerðu hverja atrennuna á fætur
Ænnari til þess að halda fund nm
<*andhi málin og varð lögreglan
Joks að beita kylfum sínnm til þess
að dreifa hópnum. — Lögreglan
dreifði og mannfjölda á Howrah
stöðinni. Pundahöld bönnuð.
London (TJP) 5. maí PB.
Frá Bombay er símað: Gandhi
liefir verið handtekinn. Með skír-
skotun til ákvæða í lögum frá
árinu 1827, verður hann hafður
í hældi án þess mál hans verði tek-
ið fyrir rjett. Víðtækar ráðstafan-
ir hafa verið gerðar um alt landið
til þess að koma í veg fyrir óeirðir
iit af handtökunni.
Síðar:
Gandhi var handtekinn í Surat
og fluttur snemma í morgun á
járnbrautarlest til Borivli nálægt
Bombay, en þaðan í bifreið til
Yerodafangelsis í Poona.
Stjórnin hefir sent út tilkynn-
ingu þess efnis, að Gandhi hafi
verið handtekinn vegna þess að
ólöghlýðnisbaráttan hafi leitt til
alvarlegra óeirða og bert hafi ver-
ið orðið, að Gandhi var hættur að
geta ráðið nokkurn hlut við fylgj-
endur sína.
Lá við slysi. Á laugardagskvöld-
ið stóð flutningabíll á leikvellinum
austan við barnaskólann, en bíl-
stjórinn Iiafði brugðið sjer eitthvað
frá. Drengir munu hafa af fikti
farið að rjála við bílinn, og áður
en þeir vissu af fór hann af stað.
Bíllinn rann síðan stjórnlaust yfir
þvert plássið og rakst af afli í
vegginn sunnan við það, og laskað
ist allmikið. En drengirnir sluppu
við meiðsl. Er mjög athyglisvert,
ef bílstjórar skilja svo við bíla á
almannafæri að' börn og óvit.ar
geta sett vjel þeirra á hreyfingu,
svo bílar renna stjórnlaust áfram
á hvað sem fyrir verður.
Prá Armeníu. Prk. kand. mag.
Elise Boekelund frá Kaupmanna-
höfn ætlar í kvöld kl. 8y2 að flytja
erindi um Armeníu og sýna þaðan
skuggamyndir í húsi K. F. U. M.
hjer í bænum. Kand. Boekelund
er ferðafulltrúi skandinavisks kven
fjelags („Kvindelige Missions-Ar-
bejdere“) sem rekur meðal ann-
Urs uppeldisstofnanir og björgun-
arheimili a Syrlandi tyrir munað-
arleysingja frá Armeníu. Aðgangs-
eyrir verður enginn, en tekið verð-
ur við gjöfum til björgunarstarfs--
ins. íslenskað verður, ef menn
óska.
Jónas Sveinsson læknir á
Hvammstanga er nýkominn hing-
að til bæjarins.
t
Vígslubiskup
dr. theol. Valdimarl Briem
F. 1. febr. 1848. — D. 3. maí 1930. 1 I
Þegar fregnin um sviplegt fráfall sjera Ólafs V. Briem barst
mönnum til eyrna fyrir tæpum hálfum mánuði, má gera ráð fyr-
ir að mörgum hafi veitt erfitt að átta sig, að dauðinn skyldi bera
niður á honum, sem enn stóð í blóma aldurs síns, en ganga fram
hjá hipum. háaldraða föður, sem allir kunnugir vissu hver þörf
var orðin á hvíldinni. Og því er ekki að leyna, að fæstir þeirra,
sem unnu hinum háaldraða prestahöfðingja á Stóranúpi, hafa
í hug sínum getað varist þeirrar óskar honum til handa, að
skamt mætti verða til sólseturs svo mjög sem þeir hlutu að kenna
í brjósti um hann í einstæðingsskap hans. Sú ósk vina hans hefir
rætst fyr en varði. Æfisól Valdimars vígslubiskups Briem er
nú gengin til viðar. Biðtíminn fyrir hinn ágæta og þjóðkunna
öldung varð einir tólf dagar; mun öllum þykja það gleðiefni
fremur en hitt úr því, sem komið var. Nú geta þeir mætu og mik-
ilsvirtu Stóranúps-feðgar orðið samferða til síðasta hvílustaðarins
eins og þeir urðu samferða á æfileið þeirra.
Þegar litið er yfir langan og
merkan æfiferil Valdimars
vígslubiskups Briem fær engum
dulist, þeim er þekkja æfistarf
hans, að þar er hniginn í valinn
einn af langfremstu ágætismönn
um íslensku kirkjunnar og ís-
lenskrar prestastjettar um næst-
liðna mannsaldra, enda var
hann löngu þjóðkunnur orðinn
sem höfuðprýði kennimanna-
stjettar vorrar.
Sem prestur lifði hann að vísu
alla tíð lífi hinna „kyrlátu í land
inu“ í fremur afskektu presta-
kalli sínu; en af orðspori vissu
flestir, að samviskusamari mann
og skylduræknari í embætti en
sjera Valdimar gat ekki þau 45
ár, sem hann stundaði prestskap sem þjónandi prestur, eins og
það þá líka var á flestra vitorði, að fáir sveitaprestar hafa áttt
meiri vinsældum að fagna af sóknarbörnum sínum en hann; því
að ekki mun of mælt, að hann frá fyrstu byrjun prestskapar síns
nyti í fylsta mæli elsku og# virðingar þeirra undantekningarlaust.
Sóknarmenn hans töldp sjer það blátt áfram sæmd að eiga ann-
an eins mannkostamann frir prest og sálusorgara og að mega
njóta prestlegrar þjónustu hans. Þeir litu upp til hans sem föð-
ur, sem þeir báru hið fylsta traust til, og hins ráðholla leiðtoga
bæði í andlegum efnum og tímanlegum. Svo innilegt samband
milli prests og safnaðar, sem var milli sjera Valdimars og sókn-
arbarna hans, mun mega telja sjaldgæft. Þótt sjálfur gerði hann
lítið úr kennimannshæfileikum sínum, þótti hann alla tíð góður
kennimaður, og á yngri árum, meðan hann var upp á sitt besta,
fór orð af houm sem ágætum prjedikara. Honum fóru yfirleitt
öll prestleg störf prýðilega úr hendi, enda var framkomán öll svo
prestsleg sem frekast mátti verða. En eins og hann kom fram í
kirkjunni og við öll sín embættisstörf, eins var framkoman utan
kirkju fyrirmyndarleg í alla staði.
En eins og Valdimar vígslubiskup var elskaður og virtur af
sóknarbörnum sínum, eins var hann, og engu síður, elskaður og
virtur af stjettarbræðrum sínum, sem hann var settur yfir sem
prófastur í hjeraði sínu. Hann var að vísu ærið eftirlitssamur um
alt það, sem honum bar að hafa eftirlit með sem prófastur, en
allri framkomu hans þó svo farið, að komur hans á heimili prest-
anna í prófastlegum erindum, voru prestum hjeraðsins jafnan hið
mesta tilhlökkunarefni.
Einnig í almennur störfum, sem honum voru falin, svo sem
oddvita-, sáttasemjara- og sýslunefndarstörfum, sýndi hann mikla
skyldurækni og þótti jafnan hinn tillögubesti um öll sveitar- og
hjeraðsmál.
En þrátt fyrir allar annir, sem á hann hlóðust með embættinu,
búskapnum og margháttuðum störfum öðrum í þarfir sveitar- og
sýslufjelags, vanst honum þó tími til að sinna öðrum andlegum
störfum en þeim, er beinlínis voru embættinu viðkomandi, ]>ví
að hann var mikill jðjumaður. Að öðrum kosti hefði ekki legið
jafnmikið eftir hann, eins og eftir hann liggur, þótt ekki sje litið
á annað en andlegan kveðskap hans, sem þá líka er það sem lengst
mun halda uppi nafni hans.
Þegar á prestaskólaárum sjera Valdimars vakti hann at-
hygli á sjer sem skáldmæltur vel með erfiljóðum, sem hann þá
orti eftir einn af fjelögum sínum og bekkjabræðrum. Og á fyrstu
prestskaparárum hans bárust við og við frá heimili hans út á meðal
manna ljóð í kristilegum anda, er báru þess fagran vott, að hann
vildi nota skáldskapargáfu sína í þarfir kristnu trúarinnar, sem
honum var orðin hjartans mál bæði sem manni og presti. Þegar
því skyldi setja nefnd til að vinna að útgáfu nýrrar sálmabókar
handa landsmönnum, var einnig leitað til hins unga Hrepphóla-
prests um að taka sæti í nefndinni, og varð hann við þeim til-
mælum, þá aðeins þrítugur að aldri. Jeg geri ráð fyrir, að öðrum
núlifandi mönnum sje ekki kunnara um það en þeim, sem þetta
ritar, með hve miklum áhuga og alúð sjera Valdimar gekk að
þessu verki. Á jeg í' fórum mínum fjölda einkabrjefa frá honum
til formanns sálmabókarnefndarinnar, sem öll fjalla um þetta
mál, og bera vott um hvorttveggja 1 senn, lifandi áhuga sjera
Valdimars á verkinu og glöggan skilning á þeim kröfum, sem
það gerði til nefndarmanna í starfi þeirra. En hjer skal ekki farið
frekar út í það efni. Hins vil jeg ekki láta ógetið, að tilhlökkun al-
mennings til útgáfu sálmabókarinnar, stóð ekki síst í sambandi við
það, að menn áttu þar von á nýjum sálmum frá sjera Valdimar,
sem mörgum trúhneigðum mönnum ljek forvitni á að kynnast. Og
þær vonir, sem menn gerðu til sálma hans, urðu þá ekki heldur
til skammar. Vitanlega voru sálmar hans í hinni nýju bók ekki
jafnágætir allir. Hitt fjekk engum dulist, sem á það vildi líta með
sanngirni og skilningi, að á meðal þeirra voru sálmar, sem gera
mátti óhikað ráð fyrir að ættu langt líf fyrir höndum, — sálmar,
sem til fulls jöfnuðust við hið besta í andlegum kveðskap annara
evangeliskra þjóða. Og enn mun það vera samhuga álit flestra,
sem nokkurt skyn bera á slíka hluti, að óhugsandi sje, að nokkurn
tíma verði gefin út sálmabók á íslenska tungu, sem ekki hafi að
geyma meira eða minna af sálmum eftir hann. Með sálmum sínum
í sálmábókinni færði sjera Valdimar út verksvið sit't sem kenni-
maður. Með þeim hefir hann túlkað fagnaðarmál kristnu trúar-
innar fyrir allri þjóðinni nú um 44 ár, og mun lengi gera hjer
eftir, þótt nú sje hann hniginn í valinn. Er því ekki að furða þótt
hann yrði brátt óskmögur gervals kristnilýðs þessa lands, einriig
þeirra, sem aldrei fengu hann augum litið, og einasta þektu hann
af trúarvitnisburði hans 1 sálmunum.
En sjera Valdimar Briem ljet ekki staðar numið við framlag
sitt eitt til sálmabókarinnar. Þessi tegund kveðskapar hafði náð
svo föstum tökum á hug hans og hjarta, að andlega ljóðgerðin
varð upp frá þessu það starf, sem hann helgaði allar tómstundir
sínar. Hve mikilvirkur hann varð í þeirri grein, um það bera verk
hans, sem prentuð hafa verið, ljósastan vottinn. Biblíuljóðin,
Sálmar út af Davíðssálmum, Jobsljóðin, Barnasálmar, Barnalær-
dómur í ljóðum, auk mesta fjölda andlegra ljóða, sem prentuð
hafa verið á víð og dreif í tímaritum og blöðum, og erfiljóð eftir
látna menn, eru talandi vottur um stórvirkni hans á þessu sviði.
Af öllu þessu eru Biblíuljóðin merkasta verkið. Það mun upphaf-
lega hafa verið að þakka áhrifum frá biblíuljóðum suður-þýsk*
skáldsins Karls Gerok, sem sjera Matthías hafði kynt hjer með
snildar-þýðingum sínum, að sjera Valdimar snjeri sjer að sögu-
legum yrkisefnum úr heilagri ritningu, þótt síst væri það frá upp-
hafi í hugá hans að yrkja annað eins Ijóðasafn og það, sem hjer
birtist á prenti í tveim bindum á árunum 1896 og 1897, innihald-
andi samtals 209 söguleg biblíuljóð. Það sem sagt var hjer á undan
um sálma sjera Valdimars í sálmabókinni, á einnig heima um
Biblíuljóð hans: Þau eru ekki öll jafn ágæt — enda getur eng-
inn með sanngirni ætlast til að svo sje um jafn mikilfenglegt
kvæðasafn. En jafnvíst er, að á meðal þeirra eru mörg kvæði, sem
áreiðanlega mundu ágæt talin með hvaða kristinni þjóð sem er, og
skipa höfundi þess hefðarsæti meðal skálda hennar. Á síðari árum
liefir ríkt meiri þögn um þennan ljóðbálk en við hefði mátt búast
um jafn góða gjöf. En því veldur breyttur tíðarandi. Hinsvegar er
það engin nýjung í heiminum, að góðar bækur leggist í þagnar-
gildi. En það ósannar engan veginn bókmentalegt gildi þeirra. Og
það er þá líka spá mín, að þeir tímar muni upp renna, er menn fá
aðrar skoðanir á þessu skáldverki en nú virðist ríkjandi með mönn-
um, og það þó ef til vill helst með mönnum, sem aldrei hafa lesið
Biblíuljóðin. Einnig bækur eru sínum örlögum háðar, og það oft
hinar bestu. En margar þeirra eiga sjer uppreisnarvon, og það er
trú mín, að svo sje um Biblíuljóðin, þótt núlifandi kynslóð láti
sjer fátt um þau finnast.--------
Nú er skáldpresturinn á Stóranúpi horfinn úr tölu lifenda á
meðal vor. „Höfuðprýði vor er dottin ofan“, má kristnilýður lands
vors segja, er hann minnist þess starfs, sem hann vann í þarfír
kristni og kirkju. öll þjóðin er í þakkarskuld við hann fyrir það,
sem hann gaf henni af andans-auði sínum þótt hún í bili sje sjer
þess ef til'vill ekki svo meðvitandi sem skyldi. Það er að vísu altaf
sárt að sjá til moldar borna ágætismenn, en yfir moldum vígslu-
biskups Valdimars Briem er ekki ástæða til að hefja upp harma-
söngva, því að allir þeir, sem þektu hann best og mátu hann að verð-
leikum munu yfir moldum hans geta sagt af fullri sannfæringu,
er þeir minnast æfistarfs hans:
„Þessi lærisveinn deyr eJcki“.
Vígsubiskup Valdimar Briem var Eyfirðingur að uppruna,
fæddur að Grund í Eyjafirði 1. febrúar 1848, hinn 8. í röðinni af
14 börnum þeirra valinkunnu sæmdarhjóna ólafs Gunnlögssonar
Briem timburmeistara og eiginkonu hans, Dómhildar Þorsteins-
dóttur (bónda á Stokkahlöðum Gíslasonar). Tíu ára gamall misti
hann báða foreldra sína á sama árinu. Sundraðist heimilið við það
og börnin tvístruðust í marga staði. Valdimar varð sá gæfumaður
að vera tekinn til fósturs af föðurbróður sínum, Jóhanni prófasti